Morgunblaðið - 26.08.1975, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.08.1975, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1975 „Umbúðalagerinn veld- ur okkur erfiðleikum” — segir Lárus Jónsson Ljósm. Mbl. Friðþjófur HÚSEIGNIN Laugavegur 32 hefur verið auglýst til sölu og er verðið 25 milljónir, að sögn Ragnars Tómassonar f Fasteignaþjónustunni, sem hefur eignina á söluskrá. Hér er um að ræða þrjú hús á eignarlóð: Tvflyft timburhús, sem snýr að götunni og hefur verið notað sem verzlunar- eða skrifstofubygging, einlyft steinhús, sem snýr að göt- unni, og hefur verið verzlunarhús, og tvflyft bakhús, steinsteypt, sem er tengt við verziunarhúsið og hefur verið notað sem vinnuhúsnæði fyrir verzlunina Guðmundur búinn að fá 1600 tonn af loðnu FYRIR SKÖMMU skipaði iðnað- arráðherra Lárus Jónsson alþm. formann Sölustofnunar lagmetis f stað Guðrúnar Hallgrfmsdóttur. Morgunblaðið hafði f gær sam- band við hinn nýskipaða formann og spurði hann hver væru brýn- ustu verkefni hinnar nýju stjórn- ar. Lárus Jónsson sagði, að verið væri að meta stöðu fyrirtækisins og reynt væri að glöggva sig á vandamálunum, en ekki væri enn búið að taka afstöðu til þess hvernig ætti að ma-Ia þeim vanda, sem við væri að fást. Hann sagði, að lagmetismark- aðurinn í Bandaríkjunum væri mikið vandamál. Gerður hefði verið samningur við fyrirtæki þar á sínum tíma um sölu á íslenzku Valur - ÍA 1- 0: Sigurmarkið skorað af 50 metra færi VALUR vann lið Akurnesinga 1:0 f 1. deild Islandsmótsins f knatt- spyrnu á Laugardalsvellinum f gærkvöldi. Sigurmark Vals skor- aði Vilhjálmur Kjartansson úr aukaspyrnu frá miðlfnu vallarins, þ.e. af rúmlega 50 metra færi. Aðstæður á Laugardalsvellin- um voru mjög slæmar og bitnaði það á leik liðanna en eigi að síður var mikið um tækifæri á báða bóga og voru Akurnesingar þó heldur atkvæðameiri. Fram og Akranes eru nú jöfn í efsta sæti 1. dieldar með 17 stig þegar einni umferð er ólokið. I síðustu um- ferðinni leikur Akranes við Keflavík á Akranesi og Fram mætir Val á Laugardalsvellinum. Nánar á morgun. lagmeti þar í landi. Því miður hefði það farið svo, að lítið sem ekkert af lagmetinu hefði selzt og hefðu forráðamenn fyrirtækisins í Bandaríkjunum sagt, að íslenzka lagmetið væri of dýrt, auk þess að almenn sölutregða væri á banda- riska markaðnum. Þá sagði Lárus, að Sölustofnun- in ætti allmikinn umbúðalager, sem tæki ianean tlma að nvta til fulis og hefði það vissa fjár- hagserfiðleika í för með sér. í fréttatilkynningu frá Sölu- stofnun lagmetis segir, að sam- kvæmt lögum um stofnunina ckini irtnaðarráðherra stiórn til Lárus jonsson. MORGUNBLAÐINU barst f gær svohljóðandi fréttatilkynning frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu: briggja ára. 1 mann samkvæmt tilnefningu viðskiptaráðherra.l samkvæmt tilnefningu fjármála ráðherra, 2 eftir tilnefningu full- trúaráðsfundar framleiðenda, en 1 er skipaður án tilnefningar. Eftirtaldir menn voru skipaðir f Framhald á bls. 34 Kínverski sendiherrann til Vestfjarða SENDIHERRA Kina á Islandi hélt sl. þriðjudag í ferðalag um Vestfirði. Heimsækir hann ýmsa staði þar, ræðir við for- ystumenn og kynnir sér at- vjnnuhætti og fleiri atriði. Hann er væntanlegur til Reykjavíkur aftur i dag, þriðjudag. Erlendir sendiherrar hafa margir hverjir ferðazt um Vestfirði, t.d. fékk Mbl. þær upplýsingar á Isafirði í gær, að þangað hefðu komið f fyrra sendiherrar Danmerkui; og Israels og að á undanfömum árum hefðu komið þangað sendiherrar allra ríkja sem sendiráð hafa á tslandi. Hafa sendiherrarnir bæði komið til að heimsækja ræðismenn þjóða sinna og eins til að kynn- ast lifi fólksins og atvinnu- háttum. Forseti Islands hefur hinn 22. þ.m., samkvæmt tillögu dóms- málaráðherra, veitt Jóni Eysteinssyni héraðsdómara emb- ætti sýslumanns í GuIIbringu- sýslu og bæjarfógeta f Keflavík og Grindavík frá 1. október 1975 að telja. Jón Eysteinsson (Jónssonar fyrrum ráðherra) er 38 ára að aldri. Hann lauk prófi í lögfræði við Háskóla Islands 1965 og hóf sama ár starf við bæjarfógeta- embættið í Keflavík. Fulltrúi bæjarfógetans í Kópavogi var hann 1966—1970, en starfrækti siðan um skeið lögfræðiskrifstofu i Keflavik. Hann varð fulltrúi við embætti bæjarfógeta f Keflavík 1971 og var skipaður héraðsdóm- ari við það embætti 1. jan. 1974. Hann hefur verið settur bæjar- fógeti í Keflavfk og Grindavík og sýslumaður í Gullbringusýslu frá því í jan. sl. vegna veikinda bæjarfógetans, Alfreðs Gíslason- ar, og einnig af og til áður af sömu orsökum. NETAVEIÐIBÆNDUR við Ölfusá, Hvftá og Þjórsá hafa nú f sumar sem og á sl. sumri selt sinn lax beint til Frakklands og fengið fyrir hann mjög gott verð, eða 638 króna meðalverð fyrir hausaðan og slægðan fisk. Er laxinn seldur fyrir milligöngu Andra H/F í Reykjavfk og mun kaupandinn f Flugfreyjumálið þingfest í dag EKKERT nýtt hefur gerzt í deilu flugfreyja og Flugleiða um launa- mál undanfarna daga, en í dag verður mál þessara aðila þingfest fyrir Félagsdómi. LOÐNUVEIÐI fslenzku skipanna þriggja, sem nú eru við veiðar I Barentshafi og landa I bræðslu- skipið Norglobal, gengur sæmi- lega og fyrir helgi voru þau öll komin með um 1500 tonn. Krún- borg frá Færeyjum hefur reyndar aflað lang bezt eða um 2400 lestir. Morgunblaðinu tókst f gær að ná sambandi við bræðsluskipið Norglobal. Loftskeytamaður skipsins sagði, að skipin hefðu Jón Eysteinsson Hann er kvæntur Magnúsfnu Guömundsdóttur og eiga þau tvö börn. Aðrir umsækjendur um emb- ættið voru 11 talsins: Framhald á bls. 34 Frakklandi dreifa laxinum til hótela og veitingahúsa. Þórarinn Sigurjófisson í Lauga- dælum, semásætiíára manna nefnd veiðibænda, sem fer með sölumálin sagði í samtali við Mbl. að verðið sem fengist í sumar væri mun betra en á sl. ári, en þá var kilóið selt á 400 kr. Hæsta verðið nú er fyrir stórlaxinn, 725 kr. á kg. Þórarinn sagði, að laxinn Ifkaði greinilega vel í Frakklandi, þvf að kaupandinn hefði þegar óskað eftir áframhaldandi við- skiptum næsta sumar. Það sem af er hafa 14,6 lestir verið sendar úr landi að verðmæti um 9,5 millj- ónir kr. Að sögn Þórarins leggur kaupandinn áherzlu á að fá aðeins netafisk. Þórarinn sagði, að veið- in í sumar hefði verið með albezta móti. fiskað ágætlega fram á föstudag og betur eftir því sem liðið hefði á vikuna, en á föstudagskvöld hefði svo gert brælu og veiðiveður ekki komið fyrr en í gær og voru öll skipin að fá loðnu þá. Skipin héldu sig f upphafi supnarlega í Barentshafi, en þar voru torfur fremur smáar. Færðu skipin sig þá norðar en þar hafa fundizt fallegri torfi Loftskeytamaðurinn sagði, að á föstudagskvöld hefði Sigurður verið búinn að fá 1364 lestir, Guð- mundur 1.632 lestir, Börkur 1.488 lestir, Krúnborg 2.349 lestir og Sólborg 936 lestir. Hendrik Sv. Björns- son ráðuneytisstjóri FYRIR nokkrum dögum var í Morgunblaðinu skýrt frá tilfærsl- um sendiherra og annarra starfs- manna utanrikisþjónustunnar milli staða. Þvf er nú unnt að bæta við, að standa mun til að Hendrik Sv. Björnsson komi heim frá París til að taka við ráðuneyt- isstjórastarfi i utanrikisráðuneyt- inu, Hans G. Andersen verði sendiherra f Brussel, Tómas Tómasson fari frá Brtissel til Genfar og Pétur Thorsteinsson ráðuneytisstjóri taki við sérstöku verkefni fyrir utanrikisþjónust- una. Pétur Thorsteinsson í heimsókn í Kína PÉTUR Thorsteinsson, ráðu- neytisstjóri í utanríkisráðuneyt- inu, er nú í heimsókn f Kína ásamt konu sinni, Oddnýju, í boði kínverska utanríkisráðuneytisins. Mun hann ræða við embættis- menn eða ráðamenn þar eystra og skiptast á skoðunum við þá um samskipti tslands og Kína og um alþjóðamál. að því er Morgunblað- inu var tjáð f utanríkisráðuneyt- inu f gær. Frá Kfna halda þau hjónin til Tokyo og þar mun Pétur ræða við embættismenn, en síðan koma þau við f Moskvu á heimleiðinni. Þau hjónin héldu utan fyrir rúmri viku og eru væntanleg heim aftur í fyrrihluta næsta mánaðar. ♦ » ...... Sáttafundur í far- mannadeilií í gærkvöldi SÁTTAFUNDUR í kjaradeilu undirmanna á kaupskipunum og vinnuveitenda þeirra stóð enn I gærkvöldi, er Mbl, fór f prentun. Fundurinn hófst kl. 14, en matar- hlé var gert kl. 19—21. Að sögn Péturs Sigurðssonar ritara Sjó- mannafélags Reykjavíkur var engin hreyfing í samkomulagsátt á fyrri hluta fundarins, fram að matarhléi. Undirmenn til- kynntu þar, að engin undanþága yrði gefin frá verkfallinu og það hæfist á áður boðuðum tíma, þ.e. kl. 24 á kvöldi fimmtudaginn 28 ágúst, eða eftir tæpa þrjá sólar- hringa héðan í frá. Eru þeir að fá 'ann Nú er laxveiðitfmanum veru- lega farið að halla og mörgum ám verður lokað um næstu mánaðamót, en þeim sfðustu svo 20. september. Ljóst er að veiðin í sumar hefur verið mjög góð og metveiði f sumum ám. Laxá á Ásum „Það er sama mokveiðin," sagði Haukur Pálsson á Röðli, er við hringdum í hann. „Nú eru komnir rúmlega 1800 laxar á þessar tvær stangir og menn eru ennþá að fylla kvótann sinn, sem er 20 laxar á dag. Þetta er mesta veiði í Laxá á Ásum, sem um getur en met- sumarið var 1973, er 1609 laxar veiddust. Áin er ifka morandi af laxaseiðum þannig að útlitið er gott. Veiði lýkur á hádegi 1. september, en Langhylur hefur verið lokaður frá 20. ágúst, en þar eru miklar hrygningar- stöðvar.“ Miöfjarðará Sigrún Sigurðardóttir í veiði- húsinu við Miðfjarðará sagði okkur, að þar væru komnir um 1400 laxar á land, en þess má geta að allt veiðitfmabilið í fyrra veiddust aðeins rúmlega 800 laxar. Sæmileg veiði er í ánni, og bændadagar hófust í gær. Veiði lýkur um mánaða- mótin. Norðurá Björg örvar í veiðihúsinu við Norðurá sagði okkur að áin hefði verið fremur dauf sl. hálf- an mánuð, en tekið vel við sér síðustu daga. Ekki vissi hún heildartöluna úr ánni, en sagði að um 60 laxar hefðu veiðzt á sl. 10 dögum. íslendingar og út- iendingar eru nú við veiðar, en veiði lýkur 30. ágúst. Þverá Guðmundur Kjartansson sagði okkur að sæmileg veiði hefði verið síðustu daga og fór síðasta hoil með 60 laxa á 6 stangir eftir 3 daga. Um 2000 laxar eru komnir úr Þverá og sá stærsti 24 pund, en nokkuð margir 20 pund og aðeins yfir. Laxá á Aðaldal Helga Halldórsdóttir í veiði- heimilinu Vökuholti á Laxa- mýri sagði okkur að veiðin hefði verið fremur róleg undanfarið en þó alltaf reytingur. Um 1300 laxar eru nú komnir á land á veiðisvæði Laxárfélagsins, sem er nokkuð betra en í fyrra. Að sögn Orra Vigfússonar höfðu á hádegi f gær verið bókaðir 99 laxar f veiðibókina að Á, sem er mun betra en í fyrra. Mjög vel hefur veiðzt á þessu svæði síðustu daga, sérstaklega á Höfðabreiðu, en annars sást lax á öllu svæðinu. Að sögn Orra hefur verið Mallorkaveður í Aðaldal undanfarið og hitinn um eða yfir 20 stig. Minna slý er f Laxá en oft hefur verið á þessum árstíma. Lax til Frakklands fyrir 10 milljónir Jón Eysteinsson skipaður sýslumaður og bæjarfógeti — í Keflavík, Grindavík og Gullbringusgslu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.