Morgunblaðið - 26.08.1975, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 26.08.1975, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. AGUST 1975 3 Samkomulagi er hægt að ná — segir Rainer Barzel eftir viðræður sínar hérlendis „Viðræðurnar hér hafa verið mjög gagnlegar og ég mun gefa um þær skýrslu þegar ég kem til baka til Bonn. Ég tel afar mikilvægt að lausn verði fundin á landhelgisdeilunni milli þjóðanna og eftir dvöl mína hér tel ég að lausn megi finna." Þetta sagði Rainer Barzel fyrrum kanzlaraefni Kristilega demókrataflokks- ins í V-Þýzkalandi (CDU) og óhrifamaður í stjórnarand- stöðunni I Bonn. Barzel og aðstoðarmaður hans, Thomas Jansen, héldu ut- an í morgun eftir nær fimm daga dvöl á Íslandi. Barzel átti í gær viðræður við Geir Hallgrímsson for- sætisráðherra, Einar Ágústs- son utanríkisráðherra, ýmsa embættismenn og framá- menn í sjávarútvegi. Hann sagði í samtali við Mbl. í gær að viðræðurnar hefðu verið vinsamlegar og hann hefði nú öðlast betri skllning á við- horfum íslendinga til land- helgismála. Mbl. lagði nokkrar spurn- ingar viðvíkjandi landhelgis- málum fyrir Barzel í gær- kvöldi áður en hann hélt í kvöldverðarboð utanríkisráð- herra. Hann sagði m.a. að honum þætti afstaða þýzku stjórnarinnar i landhelgisdeil- unni ekki óhóflega stíf. „ís- lendingar hafa sýnt fyllstu hörku í málinu og við það hefur afstaða Þýzkalands einnig harðnað. Báðir hafa e.t.v. gengið of langt í þess- um efnum." Við spurðum hvort bannið við löndunum íslenzkra skipa í þýzkum höfnum hefði ekki komið Þjóðverjum sjálfum í koll. „Það má öllu venjast og því lengur sem bannið verður í gildi þeim mun vanari verð- ur fólk því að hafa ekki á borðum hjá sér íslenzkan fisk. En ég vona að banninu verði létt sem fyrst og við getum aftur farið að fá fisk úr íslenzkum skipum." Barzel sagði að lokum að ferð hans hingað hefði í alla staði verið hin ánægjuleg- asta. Hann hefði hitt 25 is- lenzka þýzkukennara á nám- skeiði þeirra á Laugarvatni og hefði það verið sér mikið ánægjuefni. Hann sagðist hafa lært að kunna að meta ísland og náttúru landsins og hingað vildi hann mjög gjarn- an koma á ný með fjölskyldu sinni þegar tækifæri gæfist 40000 manns hefðu beina atvinnu af sjávarútvegi i landi hans og fyrir þetta fólk skipti miklu að ekki yrði kippi stoðum undan úthafsfisk veiðunum. „En lausn á a? vera hægt að finna sé fullri skynsemi og góðum vilja beitt", sagði Barzel. „ÞrjátÍL ár í stjórnmálum hafa kenrn mér að það er mikilvægt a? hafa fastar grundvallarskoð anir og án þeirra verður ekk þrifizt í pólítík. En það er líkó mikilvægt að kunna að slaké á og miðla málum. Á þýzkt segjum við að það þýði ekk að stinga höfði í vatn oc keppa við vatnið í úthaldi Vatnið sigrar alltaf að lokum m.ö.o. það gagnar ekki aí berja höfðinu endalaust vil steininn." Við spurðum Barzel hvor honum fyndist réttlætanleg af Vestur-Þýzkalandi að beiti EBE fyrir sig í baráttunni vii íslendinga út af landhelg inni. Hann svaraði: „Allt á sé sín upptök, síðan gerist eitt hvað og þá koma viðbrögðin En allt á sér líka endi og við verðum að reyna að leysa þessi mál friðsamlega." Er hann með þessu að gefa í skyn að EBE kunni brátt að Rainer Barzel og Geir Hallgrímsson forsætisraonerra hætta tollastríðinu við ís- lendinga? „Um það get ég ekkert fullyrt, það veltur vafalaust m.a. á því hvernig viðræður munu ganga." Barzel var spurður hvort Hitaveitan spar- ar Hafnfirðingum 300 millj. kr. á ári A NÆSTU dögum verða fyrstu húsin I Hafnarfirði tengd hita- veitu. Lagning aðfærsluæðar frá Reykjavfk hófst á árinu 1974 og er hún nú tilbúin. Á árinu 1974 hófst einnig lagning dreifikerfis um bæinn og hefur það verk gengið betur en ætlað var og lagt hefur verið i fleiri götur en upphaflega var áætl- að. Þegar er búið að leggja inn f mörg hús en eftir er að tengja. Gert er ráð fyrir að um 70% byggðarinnar f Hafnarfirði eigi þess kost að tengjast við veitu- kerfið á þessu ári. Samkvæmt útreikningum er gert ráð fyrir að tifkoma hitaveftunnar spari Hafnfirðingum um 300 milljón- ir króna á einu ári. Þess upplýsingar komu fram á blaðamannafundi, sem bæjar- stjórn Hafnarfjarðar hélt f gær en auk bæjarfulltrúa voru á honum ýmsir starfsmenn bæj- arins og hitaveitustjórinn í Reykjavík, Jóhannes Zoega, en það er Hitaveita Keykjavikur, sem Ieggur hitaveituna f Hafn- arfjörð. Kristinn Ö. Guðmunds- son bæjarstjóri, gerði grein fyrir framkvæmdum bæjarins og vék fyrst að hitaveitufram- kvæmdum í bænum. Það var 1. nóvember 1973, að Hafnarfjarðarbær gerði samn- ing við Reykjavíkurborg um lögn og rekstur hitaveitu í bæn- um og hófst lagning aðfærslu- æðarinnar eins og áður sagði á árinu 1974 og það sama ár var hafizt handa við lagningu dreifikerfis um bæinn. Hita- veita Reykjavikur leggur hita- veituna í Hafnarfjörð en auk þess er unnið að lagningu hita- veitu í Kópavog og Garðahrepp. Gert er ráð fyrir að fram- kvæmdum f Kópavogi ljúki fyr- ir áramót en framkvæmdum f Hafnarfirði og Garðahreppi verði lokið fyrir næstu áramót. Að sögn Jóhannesar Zoéga, hitaveitustjóra, nemur kostnað- urinn við lagningu hitaveitu í þessum þremur sveitarfélögum um 2000 milljónum króna en f Hafnarfirði einum um 700 milljónum. I þessum tölum er talinn með kostnaður við virkj- unarframkvæmdir í Mosfells- sveit, sem fram fara á þremur árum, er framkvæmdir við þessa lögn standa yfir, þó er ekki tekinn með kostnaður við aðfærsluæð frá Reykjum f Mos- fellssveit til Reykjavíkur. Það er ljóst að tilkoma hita- veitunnar minnkar til muna út- gjöld íbúa Hafnarfjarðar og hinna tveggja bæjarfélaganna vegna hitunarkostnaðar. Hita- L.josm. mdi. av. wiiu. HITAVEITAN ER KOMIN — Það var stðr stund hjá bæjarstjórn Hafnarfjardar þegar opnað var fyrir helta vatnið á gatnamótum Hjallabrautar og Breiðvangs f gær. Þarna streymdi heita vatnið út f hraunið og gufustrókurinn steig upp. Á myndinni er bæjarstjórn Hafnarfjarðar, bæjarstjóri og hitaveitustjóri f Reykjavík. veitustjóri sagðist gera ráð fyr- ir, að milli 1300—1400 hús yrðu tengd hitaveitunni og væru þau um 1,4 milljón rúmmetrar. Ætla mætti að olíunotkun væri milli 18—20 þúsund tonn á ári og kostnaður við slfka kynd- ingu væri um 400 milljónir á ári. En eins og verð á heitu vatni er i dag ætti það vatn, sem þarf í Hafnarfirði, að kosta um 100 milljónir á ársgrundvelli. Hitaveitustjóri bætti þvf við, að hitaveituverð væri of lágt og þó að umbeðnar hækkanir fengj- ust væri hitaveituverðið aðeins þriðjungur af olíuverðinu. Samtals verður d'reifikerfið um Hafnarfjörð 62 km að lengd en það svarar til þess að ekið sé þrisvar fram og til baka milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur. Þau svæði, sem fyrst fá hita- veitu í Hafnarfirði verða Norð- urbær, sem allur verður tengd- ur, Álfaskeiðshverfið og mið- hluti bæjarins, Kinnahverfi, öldur, efrihluti Hvamma og nokkrar götur í Vesturbænum, sem liggja næst Reykjavikur- vegi. Eins og áður sagði er tenging hitaveitunnar að hefjast en eft- ir að lögð hefur verið heimæð að húsi, þarf húsráðandi að út- fylla tengingarbeiðni á skrif- stofu Hitaveitu Reykjavíkur eða á skrifstofu bæjarverk- fræðings í Hafnarfirði. Fyrir- sjáanlegar eru miklar annir hjá hitaveitunni við tengingu og verður tengingarbeiðnum sinnt í þeirri röð, sem þær berast. Heimæðargjöld eru f dag fyrir hús að 400 rúmmetrum krón- ur 109.310.00 og fyrir hvern rúmmetra umfram það, að 200 rúmm. krónur 87,50 og sfðan stighækkandi. Þriðjung heim- æðargjaldsins skal greiða áður en vatni er hleypt á kerfið, þriðjung ári síðar og þriðjung tveimur árum eftir tengingu. Að loknum blaðamannafund- inum var ekið að mótum Hjalla- brautar og Breiðvangs, þar sem starfsmenn Hitaveitunnar sönnuðu fyrir viðstöddum að heita vatnið væri komið til Hafnarfjarðar. Björn Árnason, bæjarverkfræðingur í Hafnar- firði, sagði að fólk mætti búast við að vatnið yrði ekki nógu heitt fyrstu dagana en gert er ráð fyrir að við eðlilegt rennsli verði vatnið um 75 gráðu heitt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.