Morgunblaðið - 26.08.1975, Side 11

Morgunblaðið - 26.08.1975, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. AGUST 1975 11 manna bezt, að ör þróun I hrað- frystiiðnaðinum bæði i fram- leiðslu, verzlunarháttum og út- gerð frystiskipa, myndi verða sú framtíðarlausn, er kæmi að mestu gagni. Reyndist hann þar sann- spár. Ölafur naut maklegs trausts hjá helztu forystumönnum f þjóðmál- um, fjármálum og sjávarútvegs- máium og fékk því ótrúlega miklu til leiðar komið til hagsbóta fyrir þjóðarheildina. öll þjóðin stendur í þakkar- skuld við Ólaf Þórðarson frá Laugabóli fyrir heillarik afskipti hans af sjávarútvegsmálum. Sveinn Benediktsson P.S. Utför Ólafs fer fram frá Nauteyrarkirkju við ísafjarðar- djúp miðvikudaginn 27. ágúst kl. 4 siðdegis. Jarðaður verður hann hjá skyldmennum sinum I heima- grafreit að Laugabóli. KVEÐJUORÐ Óðum hverfa af sviðinu forustu- menn þeirrar kynslóðar, er komst til manndómsára um það leyti, sem Island varð fullvalda ríki. Fullir bjartsýni og trúar á batn- andi framtíð ruddu þeir brautina til fjölbreyttara atvinnulífs og bættra lffskjara. Einn þessara manna var Ólafur Þórðarson frá Laugabóli. Á löngum lífsferli lagði hann gjörva hönd og hugvit sitt að flestum þáttum islenzks atvinnulifs. Og hvar sem hann kom einkenndist verk hans af hugkvæmni, óþrjót- andi áhuga og þeirri óeigingirni, sem ekki spyr að eigin launum, heldur eingöngu árangri starfsins þjóð sinni til heilla. Þótt margir nytu ávaxtanna af starfi Ólafs á nær átta tuga ára æviferli, stendur þó sjávarútveg- urinn í stærstri skuld við hann. Ólafur var einn af forustumönn- um Sölumiðstöðvar hraðfrysti- húsanna frá upphafi, en fá fyrir- tæki hafa fært Islendingum meiri björg í bú. Og í starfi sinu fyrir Sölumiðstöðina átti Ólafur frum- kvæði að mörgum nýjungum í rekstri, er til heilla horfðu fyrir samtökin. Hjartfólgnast var honum þó ætíð skipafélagið Jöklar, sem laut framkvæmda- stjórn hans frá upphafi. Sjálfur kynntist ég ekki Ólafi Þórðarsyni fyrr en á síðustu starfsárum hans, en þau kynni hafa orðið mér ógleymanleg og lærdómsrik. Þótt Ólafur væri si- starfandi framtaksmaður, jafn- vígur I viðskiptum innan lands sem utan, varðveitti hann þó ætið viðmót og fjör sveitadrengsins norðan úr Djúpi. Hann var einn þeirra manna, er sló birtu gleði og manngæzku á umhverfi sitt, ætið reiðubúinn að miðla öðrum af lífs- reynslu sinni og lifsgleði. Slíkra manna er gott að minnast. Jóhannes Nordal. „Þungt er tapið, það er vissa, — þó víl ég kjósa vorri móður, að ætfð megi hún minning kyssa manna, er voru svona góðir, — að ætfð eigi hún menn að missa meiri og betri en aðrar þjóðir.“ Móða timans fellur fram óstöðvandi og brýtur niður stofn- ana — og stundum fyrr en varir. Þá er saga sögð, sem hvorki verð- ur breytt né við aukið, lífssaga á enda skráð. I dag minnist íslenzk saga og samtíð, ástvinir og vinir Ölafs Þórðarsonar frá Laugarbóli, en það nafn er í hugum okkar, sem áttum með honum samleið, áttum hann að vini, umvafið ástúð og ljúft að nefna það. Slík var hans gerð og svo var hann reyndur. Með Ólafi Þórðarsyni er horf- inn góður sonur þjóðar sinnar, vökull bjartsýnismaður um hennar heill og hag. Spor hans eru djúp I framkvæmda- og atvinnusögu þjóðar okkar, sem lengi mun minnst og hvatning má vera til dáða og hugrekkis um framvindu allra góðra mála I þágu Iands og þjóðar. Að sjálfsögðu verða margir vinir hans og félagar til að minnast hans og hins stóra hlutar, er hann lagði i þjóðarbúið af sinni alkunnu alúð og framsýni. Þar er vissulega margs að geta, sem i heiðri skal munað og geymt. Vin sinn skal maður muna, og hér er þann að kveðja, sem frá fyrstu kynnum og alla tíð reynd- ist slíkur hollvinur ræktar og tryggðar, að fáum verður til jafn- að. Skuld okkar er stór við þenn- an ljúfa, góða vin. Margar unaðs- stundir áttum við með honum, þar sem drenglund hans og hjartahlýja lék sem ljósgeisli um stofuna og yljaði okkur öllum, er nutum návistar hans. Margt kemur i hugann, þegar til hans er hugsað um langan veg, og allt er það á eina Iund, signt þeirri fegurð og birtu, sem kær- leikurinn einn megnar. Nú þegar leiðir skiljast að sinni, tjáum við honum, hollvin okkar og heimilis okkar og alls hópsins okkar, þá hjartans þökk, sem okkur brestur orð til að tjá sem við vildum. En við trúum þvi, að hugsanir okkar berist til hans í þeirri bæn, sem við eigum heitasta, að Guð launi honum það marga og mikla, sem við eigum honum vangoldið. Bjart var yfir honum, meðan hann dvaldi hér og gekk á vegin- um meðal okkar. Og bjart mun enn í kring um hann, þar sem hann fær að lifa það og líta, sem æðra er og meira en okkur er gefið hér, fegurð himinins, sem við öll þráum heitast innst inni. Hann sé Guði falinn góði vinur okkar, hans friði og náð. Svo mælum við og börnin okkar öll, yngri og eldri. Rannveig og Sturlaugur. Ólafur Þórðarson, fram- kvæmdastjóri frá Laugabóli, varð bráðkvaddur að morgni sunnu- dagsins 17. ágúst, á 79. aldursári, en hann hafði kennt hjartasjúk- dóms um nokkurra ára skeið. Þekktastur er Ólafur fyrir forystustörf sin á sviði fisk- iðnaðar. Hann var meðal stofn- enda Sölumiðstöðvar hraðfrysti- húsanna 1942. Átti sæti í fyrstu stjórn þess og allt fram til 1960, og átti sinn drjúga þátt i uppbygg- ingu fyrirtækisins, innanlands sem utan. Um hin heillariku störf hans á þessum vettvangi munu aðrir skrifa. Undirritaður átti þvi láni að fagna að kynnast Ólafi fyrir 19 árum þegar stofnun Trygginga- miðstöðvarinnar h.f. var í undir- búningi, en tíu árum áður (1946) hafði Ólafur beitt sér fyrir stofn- un Jökla h.f. og var framkvæmda- stjóri þess fyrstu tuttugu árin, en þá lét hann af því starfi af heilsu- farsástæðum. I aðalstjórn Tryggingamiðstöðv- arinnar h.f. var hann frá stofnun til ársins 1974 er hann sjálfur óskaði eftir að vikja fyrir yngri mönnum en tók þá sæti í vara- stjórn og gegndi því til dauða- dags. Er Líftryggingamiðstöðin h.f. var stofnuð 1971 var Ólafur kosinn stjórnarformaður og gegndi því starfi, er hann lézt. Ólafur var óvenju framsýnn maður og hugvitssamur. Tillögur hans um skipulag þeirra fyrir- tækja er hann var í forystu fyrir, bera þess glöggt vitni. Ölafur var málafylgjumaður mikill og taldi ekki eftir að leggja á sig aukin störf fyrir málefni, sem hann mat til heilla, Hann var kröfuharður húsbóndi en ákaflega réttsýnn. Hann fylgdist allt til dauðadags með störfum þeirra yngri manna, sem hann réð til hinna ýmsu fyrirtækja. Hann gaf þeim tiltölu- lega frjálsar hendur og sameinaði hugmyndir þeirra svo að sem bezti árangur næðist fyrir heild- ina, en það var hans leiðarljós. Hann var glöggskyggn á þróun mála, hugmyndarikur mjög, og einbeitti sér að hinni breiðari stefnumörkun. Ólafur Þórðarson var vin- fastur og tryggur með afbrigðum. Undirritaður vill þakka Ólafi Þórðarsyni góða vináttu og mörg holl ráð. Það var sérstök ánægja að vinna fyrir hann og með honum. Hann var óspar að hvetja menn þegar hann sá að vel stefndi, og vara við boðum, sem framundan kynnu að vera. Mikið skarð er höggvið í raðir frystihúsamanna með fráfalli Ólafs. Seint verða honum þökkuð ómetanleg störf i þeirra þágu í uppbyggingu samtakanna. Systkinum hans og öðrum vandamönnum votta ég mína innilegustu samúð. Blessuð verði minning Ólafs Þórðarsonar. Gísli Ólafsson. Skák eftir JÓN Þ. ÞÓR Nú eru svæðamótin að kom- ast í fullan gang enn einu sinni. Keppninni á Asíusvæð- inu er lokið, en þar sigraði Filipseyingurinn Torre. I Bandaríkjunum hafa þeir Browne og Rogoff unnið sér rétt til þátttöku í næsta milli- svæðamóti, og svæðamót Evrópu hefjast nú með haust- inu. Eins og mörgum mun kunnugt eru Sovétrfkin sér- stakt skáksvæði, og þaðan koma fjórir þátttakendur í milli- svæðamót. Yfirleitt hafa Sovét- menn látið meistaramót sín gilda sem svæðamót, en nú hafa þeir efnt til sérstaks móts, og. hófst það fyrir skömmu. Þegar sfðast fréttist af móti þessu höfðu verið tefldar 4 umferðir og var staðan þessi: 1.—4. Vasjukov, Taimanov, Savon og Gulko 3,5 v., 5. Holmoff 3 v., 6.—9. Alburt, Beljavsky, Gúfeld og Svetkovsky 2,5 v., 10. Bronstein 2 v., 11.—12. Bala- shov og Vaganjan 2 v., 13. Grigorjan 1,5 v. og biðsk., 14.—16. Dvoretsky, Roman- ishijn og Tukmakov 1,5 v. Þetta er mjög sterkt mót, og verður fróðlegt að sjá, hverjir verða hinir fjórir útvöldu. Eins og menn hafa vafalaust tekið eftir eru ýmsir af sterkustu skákmönnum Sovét- rikjanna fjarverandi. Það staf- ar að því, að þeir Spassky, Petrosjan og Polugajevsky fara allir beint í millisvæðamót, og hið sama gildir sennilega um Tal, Kusmin og Geller. Viktor Kortsnoj fer hins vegar beint í kanciídatakeppnina. Og hér kemur svo ein skák frá svæðamóti Sovétmanna. Hvftt: Taimanov Svart: Vaganjan Enskur leikur. I. c4 — Rf6, 2. Rc3 — d5, 3. cxd5 — Rxd5,4. g3 — g6, (Annar góður möguleiki er 4. — e5, ásamt Be7). 5. Bg2 — Rb6, (5. — Rxc3 er líka gott). 6. Rf3 — Bg7, 7. 0-0 — 0-0, 8. d3 — Rc6 9. Be3 — h6, 10. Hcl — He8, (Betra var 10. — e5). II. Rd2! — Rd4, (Nú hefði hvitur svarað 11. — e5 með 12. Bxc6) 12. Bxd4 — Bxd4, 13. Rb5 — c6, (Svartur verður að láta góða biskupinn af hendi, þar sem hvítur gæti svarað Bxb2 með Rxc7). 14. Rxd4 — Dxd4, 15. Dc2 — Hb8, 16. Rb3 — Da4, 17. Dd2 — Kh7, 18. Rc5 — Dd4, 19. e3 — Dd8, 20. h4. (Drottningarflakki svarts er lokið án sýnilegs árangurs, og nú ræðst hvftur til atlögu gegn svarta kóngnum). 20. — Rd7, 21. h5 — g5, 22. f4 — Rxc5, 23. fxg5! (Svona fór hann að þvi! Eftir 23. Hxc5 — f6 væri allt í lagi hjá svörtum). 23. — Re6, 24. Hxf7+ — Kg8, 25. gxh6! (Peðið léttir ekki ferð sinni). 25. — Kxf7? (Eina vörnin var 25. — Hf8). 26. Df2+ — Kg8, 27. Df5 — Hf8, 28. Dg6+ — Kh8, 29. Be4 — Hf7, 30. Dxf7 — Dg8, 31. Dxe7 (Enn fljótvirkara var jafnvel 31. Df5 — Dxg3+, 32. Kfl og svarta drottningin verður að hörfa til baka til g8). 31. — Dxg3+, 32. Kfl — Dh3+, 33. Kf2 — Dh2+, 34. Kel — Dgl+, 35. Ke2 — Dh2+, 36. Kfl — Dh3+, 37. Kf2 — Dh2+, 38. Bg2 (Svartur átti enga von um þráskák. Síðustu leikjunum var leikið til þess að vinna tima). 38. — Bd7, 39. Df6+ — Kh7, 40. Df5+ — Kg8, 41. Hhl — Dc7, 42. Dgb og svartur gafst uppl. Ef þér haldið að allar reiknivélar séu eins, - lítið á hvað aðrir hafa að bjóða, áður en þér kaupið Ricomac. Sölumenn okkar eru ávallt reiðubúnir að veita yður hvers konar upplýsingar um verð og möguleika Rico- mac án nokkurra skuldbindinga af yðar hálfu. RICOMAC 1Q12P Sérstaklega lipur reiknivél, sem m.a. skilar rauðum mínustölum og hefur aflestrarkommu. Hringið eða komið og fáið upplýsingar um Ricomac, sem hæfir starfi yðar. >--N GRicom) SKRIFSTOFUVELAR H.F. Hverfisgötu 33 Simi 20560 argus

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.