Morgunblaðið - 26.08.1975, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. AGÚST 1975
17
myna ur opnu viKublaðsins, sem Celtic gefur út. A
myndinni til vinstri skorar Jóhannes markið gegn
Derby, og í myndatexta segir: „Augnablikið , sem allir
áhangendur Celtic biðu eftir. Ekki aðeins sigurmark-
ið, heldur einnig skorað af vfkingnum, sem hafði
heillað áhorfendur. Það er ekki á hverjum degi að
nafn eins og Edvaldsson er á listanum yfir markaskor-
arahjáCeltic.
hannes, heldur Jón Asgeirsson
áfram f viðtali við blaðið, það sak-
ar ekkert að reyna.
Sean Fallon aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Celtic, segir í sömu
frétt, að Celtic geti ekki misst
Jóhannes þennan dag, hann sé
atvinnumaður í knattspyrnu og
verði að hugsa fyrst um félag sitt,
segir Fallon. — Ég vildi gjarnan
hjálpa mínum fslenzku vinum, en
ég verð ætfð að hugsa fyrst um
Celtic, segir Fallon.
Þegar þetta er skrifað, hefur
Jóhannes skorað þrjú mörk með
Celtic í fjórum leikjum, sem telj-
ast mikilvægir. Hann skoraði að
vfsu eitt mark með Celtic í keppn-
isferð um Irland, en síðan kom
markið á móti Derby — Englands-
meisturunum. Sfðan hefur hann
skorað bæði gegn Hearst og Dum-
barton og þótti markið i leiknum
gegn Hearst sérlega glæsilegt.
Celtic leikur hér á landi gegn
Val þriðjudaginn 14. september
og verður Jóhannes með f þeim
leik. Lengi vel leit út fyrir að
Jóhannes myndi ekki skrifa undir
nógu tímanlega til að mega leika í
Evrópukeppni, en samningar
voru undirritaðir á siðustu
stundu, þannig að með Evrópu-
leikina er allt klappað og klárt hjá
honum. Ef hann hefði hins vegar
ekki skrifað undir f tfma, voru
Valsmenn búnir að ákveða að
bjóða Celtic að nota Jóhannes í
leiknum til að gefa íslenzkum á-
horfendum tækifæri til að sjá Jó-
hannes i leik méð sínum nýju
félögum, sem hann hefur gert
samning við til þriggja ára.
VIKING WARRIORS ARE
NO JOKE NOW
' — *tren Ihouqh staodcrds h«v» bcen é Valur - the only leeland
ri«in<3 r*markably „ .
team to ehmmate an
Jóhannes f Celticbúmngnum. 1 honum leika ekki aðrir en úrvalsknatt-
spyrnumenn.
ÞAÐ eru greinilega ekki allir
jafnhrifnir af þvf að Jóhannes
Eðvaldsson skyldi ganga f raðir
Celtic. Fyrst eftir að samningur-
inn var undirritaður var mikið
um mál þetta fjallað f dönsku
blöðunum, og fékk Jóhannes
heldur kaldar kveðjur f sumum
þeirra. Reyndar er slfkt ekkert
nýtt, þegar það hendir að leik-
maður með dönsku Iiði gerist at-
vinnumaður. Venjulega er
gangurinn sá, að blöðin gera
mikið úr þegar leikmaðurinn fær
tilboð og fylgjast með áhuga á
samningagjörðinni, en senda
sfðan viðkomandi oft tóninn
þegar allt er yfirstaðið.
1 dönsku blöðunum kom m.a.
fram að forráðamenn Holbæk
væru mjög óánægðir yfir því að
missa Jóhannes og teldu, að svo
gæti farið að brottför hans kostaði
liðið Danmerkurmeistaratitilinn f
ár. Þeir hefðu vitað um áhuga
Jóhannesar á því að gerast at-
vinnuknattspyrnumaður, en hins
vegar haldið í vonina um að hann
yrði hjá þeim í a.m.k. 2 ár, þar
sem hann hefði komið utan á
þeim forsendum að hann ætlaði
sér í sjúkraþjálfaranám.
Dönsku blöðin segja og að
CELTIC havc rcfused.
to releasc defender
Johannes Edvaldsson
•-'•land’s vital
vv,:nn-
— Ég minnist þess ekki að ó-
þekktur miðvörður hafi gengið
inn f lið Celtic og áunnið sér þar
fast sæti, en það hefur landsliðs-
fyrirliðinn ykkar örugglega gert.
Þetta sagði Bobby Maitland, einn
af fþróttafréttariturum skozka
blaðsins „Scottish Daily Express"
f bréfi til íþróttasfðu Morgun-
blaðsins f sfðustu viku. — Auk
þess sem Jóhannes stóð sig mjög
vel sem varnarmaður, þð hefur
hann skorað þrjú mörk f fjórum
erfiðum leikjum og mér er tii efs
að nokkur annar áhugamaður f
knattspyrnu hefði leikið þetta
eftir honum, hélt Maitland áfr-
am.
Jóhannes Eðvaldsson gerir
greinilega stormandi lukku í
Skotlandi og ummæli blaða um
hann eru mjög á einn veg; Celtic
gerði góð kaup er það festi sér
þennan sterklega, fslenzka vfking.
I fréttablaði Celtic, sem kemur út
vikulega, eru fjórar myndir af
Jóhannesi, honum hrósað á hvert
reipi og auk þess er grein um
fslenzka knattspyrnu. Eðlilega er
mest fjallað um Val, en Valur
mætir Celtic í Evrópukeppni bik-
armeistara í næsta mánuði.
Eins og kunnugt er þá hefur
Celtic synjað Knattspyrnusam-
bandi Islands um leyfi til að nota
Jóhannes í landsleiknum gegn
Belgum í Liege 6. september
næstkomandi, en þann dag á Celt-
ic einmitt að leika í deildarbik-
arnum. Hefur mál þetta vakið
mikla athygli f Skotlandi og í
blaðinu „The Sunday Express“
var miklu rúmi varið í synjun
Celtic. Þar er m.a. viðtal við Jón
Asgeirsson framkvæmdastjóra
KSl, sem segir að afboðun Jó-
hannesar f leikinn hafi komið
eins og þruma úr heiðskíru lofti
fyrir fslenzka knattspyrnusam-
bandið. — Ef við vinnum leikinn
gegn Frökkum munum við þó
reyna enn einu sinni að fá Jó-
sennilega hafi það verið óvitur-
legt hjá Jóhannesi að gera samn-
ing við Celtic. Hann hafi átt
möguleika á mun betri samning-
um hjá liðum á meginlandinu,
hefði hann haft ofurlitla biðlund.
Upphæðirnar sem í boði séu i
skozku knattspyrnunni séu nán-
ast vasapeningar á móti þvf sem
gerist f Belgfu, Hollandi, Vestur-
Þýzkalandi, Frakklandi, Spáni og
í fleiri Evrópulöndum og eigi það
jafnt við þótt í hlut eigi beztu og
ríkustu félögin í Skotlandi. Þá sé
óvenjulegt að leikmaður geri
samning til þriggja ára. Flestir
reyni að fá stuttan samning til að
byrja með, og freista þess svo að
fá verulega hækkun, er samning-
urinn er endurnýjaðar.
Iþróttablaðið komið út
TþróttablaðiS, 3. tölublað 35. ár-
gangs, er nú komið út, fjölbreytt að
efni. MeSal þess má nefna viðtal við
Ellert B. Schram, formann KSÍ, sem
nefnist: Starfið atdrei svo umfangs-
mikið sem nú og verkefnin óþrjót-
andi. Fjallað er um 15. landsmót
UMFf á Akranesi og rætt við marga
keppendur þar. Viðtal er við Jón
Ásgeirsson, Iþróttafréttamann, og
nefnist það: HafSi litla matarlyst
fyrir fyrstu lýsinguna. Grein er um
hinn fræga golfleikara Johnny Miller
og nefnist hún: Ég á trú minni aS
þakka hversu langt ég hef náS. Þá er
grein um brasilíska knattspyrnusnill-
inginn Pele, og veru hans f banda-
rískri knattspyrnu.
Þá er i blaðinu greint frá úrslit-
um f helztu fþróttamótum sumarsins
og fjallað um Olympfumálefni og
málefni iSf
Holbæk með sárt ennið
Jóhannes slær í gegn