Morgunblaðið - 26.08.1975, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 26.08.1975, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1975 ÞRÓTTUR — Islandsmeistarar f 5. flokki 1975 Guðmundur K. Júlíusson, Egill Þorsteinsson, Benedikt Sigurðsson, Kristján Jónsson, Karl Þorsteinsson, Nikulás Jónsson, Hörður Andrésson, Gústaf Vffilsson, Sigurður H. Hallvarðsson, Haukur Magnússon, Elvar Rúnarsson, Mikael Eggertsson, Guðmundur Kærnested, Egill Ragnarsson, Róbert Gunnarsson, Jón Ólafsson, Jóhann Kjartansson og Tryggvi Geirsson þjálfari. r O. flokki eftir Valsstrákarnir léku undan norðan gjólu í fyrri hálfleik og skoruðu þeir þá tvö mörk. Það fyrra gerði Karl Hjálmarsson, en Ágúst Sigurðsson það síðara. Þróttarar mættu ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og var ekki langt Iiðið á hálfleikinn, er þeir höfðu jafnað metin og skorað tvö mörk, en þau gerðu þeir Haukur Magnússon og Sigurður Helgi Hallvarðsson, sem er fyrirliði Iiðs- ins. Var nú allt útlit fyrir, að liðin skildu jöfn öðru sinni, en seint í leiknum tókst Agli Ragnarssyni að skora sigurmark Þróttar eftir hornspyrnu og færa þar með félagi sínu íslandsmeistaratitil- inn f ár. Að leik loknum afhenti Helgi Daníesson formaður Mótanefndar KSl fyrirliða Þróttar bikar þann, sem keppt er um, svo og hverjum leikmanni verðlaunapening. úrslítaleik við Val „Sentir” í sex ár SIGURÐUR Helgi Hallvarðsson, 12 ára fyrirliði Þróttar, var að vonum glaður, er við hittum hann að máli eftir úrslitaleikinn þar sem hann var umkringdur félög- um sínum. — Ég byrjaði að leika með Þrótti þegar ég var 6 ára og hef alltaf verið „sentir". — Við lékum í B-riðli Islandsmótsins og töpuðum bara einum leik, 2—1 fyrir Leikni f Breiðholtinu, en stærsti sigur okkar var 7—1 gegn Haukum í Hafnarfirði. Jú, ég er búinn að skora mörg mörk i sumar, en ég hef bara ekki talið þau, sagði Sigurður. — Nei við vorum aldrei hræddir við Valsstrákana, þar sem við vissum alltaf að við mundum sigra þá. Við lékum einu sinni við þá æfingaleik í sumar og unnum þá 1—0, Og svo gerðum við jafntefli 2—2 í úrslitaleiknum á mánudag. — Við höfum æft mjög vel f sumar undir stjórn þjálfarans okkar, Tryggva Geirssonar, og við erum allir ákveðnir í að halda áfram að æfa og keppa fyrir Þrótt. Þróttarsig URSLITALEIKURINN í lands- móti 5. flokks fór fram á Melavell- inum mánudaginn 18. ágúst. Átt- ust þar við lið Þróttar og Vals. Leikurinn var mjög jafn og skemmtilegur og lauk honum með jafntefli 2—2 og mátti vart á milli sjá hvort liðið væri betra. Liðin reyndu þvf aftur með sér á Melavellinum miðvikudaginn 20. ágúst og var aftur um jafna og skemmtilega keppni að ræða. Blikarnir flestir íslandsmeistarar annað árið í röð ÞAÐ voru þreyttir en ánægðir Blikar sem fögnuðu sigri f þriðja flokki á þriðjudaginn fyrir viku. Þeir höfðu leikið sex leiki á átta dögum, en sigur f úrslitaleiknum gegn Vfkingi gerði það að verkum að þreytan hvarf eins og dögg fyrir sólu. Framundan var Skotlandsferð þar sem leikmennirnir efnilegu, er nú vörðu titil sinn f þriðja flokki, skyldu leika við skozka jafnaldra sfna. Jón Orri Guðmundsson heitir fyrirliði Breiðabliks og hann var einnig fyrirliði þriðja flokks á sfðasta ári. Fjórir leikmanna Breiða- bliks f 3. flokki nú léku með flokknum f fyrra, hinir léku með fjórða flokki, sem einnig varð Islandsmeistari. Markatala Blikanna f leikj- unum f sumar er 45:14 og þeir hafa unnið þau mót, sem þeir hafa tekið þðtt f f sumar. — Þetta sumar var mjög erfitt, sagði Jón Orri að loknum leiknum við Vfking. — Margir nýir leikmenn komu inn f liðið og urðu þeir að leggja hart að sér við æfingar, ef við ætluðum okkur að ná árangri. En með miklum vilja og góðri stjórn þjálfarans, Ásgeirs Þorvaldssonar, náðum við takmarkinu. — Leikirnir I úrslitakeppninni voru erfiðustu leikir okkar f sumar, við lékum 6 leiki á 8 dögum og þvf er eðlilegt að við séum þreyttir, sagði Jón Orri. — En þetta er bara byrjunin, Breiðablik á eftir að ná sama árangri f öðrum flokkum f sumar. Jón Orri Guðmundsson fyrirliði Breiðabliks Magnús Stefánsson fyrirliði Ólafsvfkur-Vfkinga Ólafsvíkingarnir gerðu betur en þeir bjartsýnustu vonuðu VlKINGARNIR frá Ólafsvfk komu talsvert á óvart f úrslitakeppninni f þriðja flokki, en liðið komst f úrslit. Sjálfsagt hafa þeir þó komið sjálfum sér mest á óvart, þvf að leikmenn liðsins hafa aldrei áður tekið þátt f Islandsmóti f knattspyrnu og f sumar Iéku þeir aðeins tvo leiki f riðlinum áður en þeir héldu suður í úrslitin. Magnús Stefánsson heitir fyrirliði þeirra Vfkinga og sagði hann að leiknum loknum, að leikurinn gegn Breiðabliki hefði verið fyrsti tapleikur Vfkinganna á sumrinu. — Þó að við höfum tapað úrslita- leiknum 4:0, erum við ánægðir með árangur okkar f sumar, sagði Magnús. — Árangurinn ýtir örugglega undir áhugann og næsta sumar sendir Vfkingur vonandi fleiri flokka til keppni f Islandsmótinu. Breiðabliksliðið var mun betra en við f úrslitaleiknum og þeir áttu skilið að sigra. Við brotnuðum við þau tvö mörk, sem við fengum á okkur f fyrri háifleik og náðum aldrei að sýna það sem við höfum sýnt f fyrri leikjum sumarsins. Forráðamenn Vfkingsliðsins sögðu að það væri erfitt að halda úti mörgum flokkum f Islandsmótinu þar sem kostnaður væri mikill og þá sérstaklega f sambandi við ferðalög. Styrkir til félagsins nema aðeins um 250 þúsund krónum og sú fjárhæð er fljót að étast upp þegar þarf að farameð meistaraflokkinn f 7 löng ferðalög. Þrjú opin golfmót um síðustu helgi: Júlíus vann í Grafarholti Jens Guðjónsson gullsmiður gaf glæsileg verðlaun I kvennakeppr inni á Hvaleyri, og sést hann hér f hópi verðlaunahafanna, sem er talið frá vinstri: Kristfn Þorvaldsdóttir, Sigrún Ragnarsdóttii Jakobfna Guðlaugsdóttir, sem sigraði og Hanna Áðalsteinsdóttir. ÞEIR sem telja að of mikið sé af mótum hafa kannski verið eitthvað súrir á svipinn um sfð- ustu helgi, þar sem þá fóru fram hvorki meira né minna en þrjú opin inót samtímis: Coca Cola keppnin í Grafarholti, opin unglingakeppni á Hval- eyri og opin kvennakeppni á sama stað. Þau voru að vísu fremur fámenn, en þó mættu 15 konur til leiks og fer þeim nú ört fjölgandi. Fyrri hluti Coca Cola mótsins fór fram f Grafar- holti helgina áður; þá var keppt með forgjöf og hefur verið sagt frá úrslitum hér í blaðinu. Sextán efstu komust áfram og tóku þátt í 36 holu keppni nú um helgina ásamt 29 meistara- flokksmönnum. Þar voru því 45 þátttakendur og hart barizt. Júlíus R. Júlfusson úr Keili varð sigurvegari mótsins og lék vel, á 74 og 75. Hann hefur staðið í byggingu f sumar og ekki haft tíma né aðstöðu til æfinga sem skyldi. Þessvegna kemur sigur hans skemmtilega á óvart, og þó — það má alltaf búast við góðum leik af Júlfusi. Einar Guðnason varð annar og náði þeim prýðilega árangri að leika annan hringinn á 72 og er það trúlega nálægt þvf bezta, sem fslenzkur leikmaður hefur leikið Grafarholtsvöllinn í nú- verandi formi, en vallarmetið ,er 68 og setti það Svíinn Jan Rube f fyrrahaust. Það er athyglisvert, hve þeir Einar Guðnason og Þorbjörn Kjærbo hafa staðið sig vel í sumar; báð- ir náð góðum árangri og jafnan verið með möguleika á sigri. Árangur 10 efstu manna var annars sem hér segir: 1. Júlfus R. Júlíusson, Keili 75—74, samtals 149 2. Einar Guðnason GR 78—72, samtals 152 3. Sigurður Thorarensen GK 75—78. samtals 153 4. Þorbjörn Kjærbo GS 75—79, samtals 154 5. Geir Svansson GR 77— 78, samtals 155 6. Eiríkur Þór Jónsson, GR 78— 79, samtals 157 7. Jóhann Kjærbo GS 79— 80, samtals 159 8. Gunnlaugur Ragnarsson GR 84—76, samtals 160 9. Þórhallur Hólmgeirsson GS 78— 83, samtals 161 10.—11. Óttar Yngvason GR 79— 83, samtals 162 Svan Friðgeirsson GR 77—85, samtals 162 Af þessu má sjá, að keppnin hefur verið geysilega hörð og munar aðeins einu höggi á öðr- um, þriðja og fjórða manni. Keppnin gaf samtals 170 stig til landsliðs og fær Júlíus 32,3 stig, Einar fær 28,9, Sigurður fær 25,5 og Þorbjörn fær 22,1 stig. OPIN KVENNAKEPPNI A HVALEYRI Konurnar kepptu bæði með og án forgjafar og hafa áreiðan- 'lega gert eins og þær gátu, þvf að óvenjulega glæsileg verð- laun voru í boði: Skartgripir, sem Jens Guðjónsson gull- smiður hefur smíðað og gefið til keppninnar. Jens er sjálfur golfleikari og félagi í Keili og afhenti hann verðlaunin. Úrslit urðu þessi: An forgjafar: 1. Jakobína Guðlaugsdóttir GV, 46— 44, samtals 90 2. Hanna Aðalsteinsdóttir GK, 50—48, samtals 98 3. Kristfn Pálsdóttir GK, 47— 52, samtals 99 Með forgjöf: 1. Sigrún Ragnarsdóttir, NK, samtals á 101—24:77 2. Kristfn Þorvaldsdóttir NK. samtals á 102—24:78 3. Jakobfna Guðlaugsdóttir GV samtals á 90—12:78 OPIN DRENGJA- OG UNGLINGAKEPPNI AHVALEVRI Á vegum Golfklúbbsins Keilis fór fram opin drengja- og unglingakeppni á Hvaleyrar- velli nú um helgina. Þetta er Dunlop-keppnin, sem svo er nefnd vegna þess að Dunlop- umboðið gefur verðlaunin. Þarna voru mættir til leiks Reykvíkingar, Suðurnesja- menn og Hafnfirðingar og fór svo, að heimamenn báru nokkuð af; aðeins einn Suður- nesjadrengur komst f verð- launasæti, hin tóku Keilis- drengir. Urslit í drengjaflokki: 1. Einar Sigfússon GK, samtals á 172 2. Hilmar Björgvinsson GS, samtals á 176 3- Tryggvi Traustason GK, samtals á 184 Urslit í unglingaflokki: 1. Reynir Baldursson GK, samtals á 177 2. Rúnar Halldórsson GK, samtals á 177 3. Guðjón Guðmundsson GK, samtals á 183

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.