Morgunblaðið - 26.08.1975, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. AGÚST 1975
t
Móðir okkar og tengdamóðir
GUÐRÚN B. ÁRNADÓTTIR
fré Lundi,
andaðist i Reykjavík 22. ágúst Jarðarförin ákveðin siðar.
Böm og tengdaböm.
t Eiginkona min og móðir okkar.
MATTHILDUR EDWALD,
lézt á Borgarspitalanum 22 ágúst Ragnar Þorsteinsson, og böm hinnar látnu.
t
Eiginmaður mirtn, faðir okkar, tengdafaðir og afi
PÉTUR JÓNSSON,
vélstjóri Gufuskálum.
verður jarðsettur frá Fossvogskirkju, í dag þriðjudaginn 26. þ.m. kl 3
Hrefna Matthfasdóttir
og böm.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi
JÓN BJARNI KRISTINSSON
forstjóri
verður jarðsunginn frá Frikirkjunni miðvikudaginn 27. ágúst kl. 1 3.30.
Þeir sem vildu minnast hins látna láti Ifknarstofnanir njóta þess. Fyrir
hönd vandamanna
Erna Árnadóttir
t
Útför eigínkonu minnar og móður okkar
KATRÍNAR SIGURÐARDÓTTUR,
Hafnargötu 123, Bolungarvik,
er lézt hinn 21 þ m , verður gerð frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 28.
ágúst kl 1 3,30.
Porgils GuSmundsson
og böm.
t
Útför litlu dóttur okkar,'
ÖNNU TÓMASDÓTTUR.
Grýtubakka 22,
fer fram frá Fossvogskirkju 27. 8 kl. 10.30. Blóm og kransar
afþökkuð. þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Barnaspltala
Hringsins.
Ingibjörg Jónsdóttir,
Tómas GuSmundsson.
t
Higinmaður minn og faðir
HALLDÓR G. ÞÓRHALLSSON
auglýsingastjóri,
andaðist í New York 17. ágúst s I. Minningarathöfn fer fram i
Dómkirkjunni fimmtudaginn 28 ágúst kl. 1 3:30.
Þóra Dagbjartsdóttir,
Þórhallur Halldórsson.
t
Móðir okkar,
ÞÓRKATLA ÞORKELSDÓTTIR,
frá ísafirði.
andaðistað Hrafnistu 23 ágúst.
Guðrún Bjömsdóttir, Guðbjörg Bjömsdóttir Smith,
Sigrfður Bjömsdóttir Proppé. Birna Bjömsdóttir.
t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi
SIGUROUR EYLEIFSSON
skipstjóri
Sólvallagötu 5 a
vbrður jarðsunginn frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 27. ágúst kl. 3,
e.h , Þeir sem vildu minnast hins látna láti líknarstofnanir njóta þess.
Kristjana M. Sigurðardóttir Pétur Guðmundsson
Helga Sigurðardóttir Lárus Björnsson
Sigurður Sigurðsson Brynja Kristjánsdóttir
Þóra E. Sigurðardóttir Jóhannes Guðmundsson
Arinbjörn Sigurðsson Lilja Magnúsdóttir
Ingibjörg Sigurðardóttir Hinri, Lárusson
barnabörn , barnabarnabörn.
Pétur Jónsson
vélstjóri—minning
Fæddur 24. september 1923
Dáinn 14. ágúst 1975
Hinn 14. ágúst s.l. lést að Gufu-
skálum á Snæfellsnesi mágur
minn Pétur Jónsson vélstjóri til
heimilis að Álfheimum 60 hér í
borg. Hann hafði um alllangt
skeið átt við erfið veikindi að
stríða sem ekki varð ráðin bót á.
Pétur heitinn var fæddur i
Reykjavík 24. september 1923 og
var þvi tæpra 52ja ára er hann
lést.
Foreldrar hans voru hjónin Jón
G. Pétursson vélstjóri Þórðar-
sonar eldra frá Gróttu og Guð-
björg Ólafsdóttir Guðmundssonar
bónda í Sviðugörðum I Flóa. Jón
lifir son sinn nær áttræður að
aldri en Guðbjörg lést 11. april
1970.
Pétur var elstur fimm systkina,
eftir lifa tvær systur, Guðríður
Þórdís og Sigurbjörg, og tveir
bræður, Ólafur og Þórhallur, öll
gift og búsett í Reykjavík.
Pétur ólst upp i foreldrahúsum
á Eiriksgötu 9 í hópi glaðra systk-
ina og góðra nágranna og er hann
hafði aldur til hóf hann nám I
vélsmíði í Vélsmiðjunni Steðja,
gekk í Iðnskólann og siðan Vél-
skóla Islands og lauk þaðan prófi
1950.
Hann var síðan vélstjóri á tog-
urum um ára bil, en vélsmíðin var
honum hugleikin. Fór hann því í
land og starfaði sem verkstjóri í
ýmsum vélsmiðjum í Reykjavík,
Steðja, Kyndli og síðast i vél-
smiðjunni Dynjanda. Á árunum
1960—62 vann hann að uppsetn-
ingu véla í Sogsvirkjun og var um
skeið skoðunarmaður vélbúnaðar
skipa. Arið 1963 gerðist Pétur
starfsmaður Landssímans við
t Eiginmaður minílog faðir
Litli sonur okkar, ÞORKELL
HANSOLAF ÞÓRÐARSON,
andaðist á Barnaspítala Leifsgötu 22.
Hringsins þann 24 ágúst verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn
Dröfn Karlmannsdóttir, 27 ágúst kl. 3.
Leif Nielsen. Sigrlður Sólmundsdóttir, Þórdis Þorkelsdóttir.
t
Eiginmaður minn,
HALLDÓR MATTHÍASSON,
skrifstofustjóri,
lézt laugardaginn 23 ágúst. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
föstudaginn 29 ágúst kl. 10:30
Lilja Þórarinsdóttir.
t
Eiginkona mín
GUÐMUNDA MARGRÉT ÞORVALDSDÓTTIR
Holtsgötu 6 Ytri NjarSvtk
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 26. ágúst kl. 3.1 5.
F.h. barna, barnabarna og tengdabarna
Sverrir Ólsen
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við fráfall mannsins mlns
og föður,
JÓNASAR KR. SÖLVASONAR
Magnfrfður Júlfusdóttir og börn.
t
Þökkum innilega sýnda samúð og vinarhug við andlát og útför föður
okkar, tengdaföður og afa,
BJARNA R, ÁRNASONAR.
Byggðarenda 13.
Jóhann E. Bjarnason,
Árni K. Bjarnason,
Gunnar M. Bjarnason,
Sverrir Bjarnason,
og barnabörn.
t
Minningarathöfn um
ÓLAFÞÓRÐARSON
frá Laugabóli
fer fram frá Dómkirkjunni í dag kl 13.30. Hann verður jarðsettur I
heimagrafreit á Laugabóli við isafjarðardjúp og hefst sú athöfn i
Nauteyrarkirkju miðvikudaginn 26 ágúst kl 16.
Ásta og SigurSur Þórðarson
Ingibjörg Þórðardóttir,
Brynhildur og Jón ÞórSarson
Dagbjört og Gústav ÞórSarson.
Una Aradóttir,
Björg Jakobsdóttir,
Anna Guðmundsdóttir,
Þurfður Eggertsdóttir
Loranstöðina á Gufuskálum og
gegndi því starfi til dauðadags.
Þótt Pétur væri maður enn á
miðjum aldri er hann féll frá
hafði hann lagt gjörva hönd á
margt um dagana enda eftirsóttur
til starfa og mikiil dugnaðar og
hagleiksmaður í starfsgrein sinni.
Pétur unni mjög útilífi og
ferðalögum, aflaði hann sér góðra
bóka um náttúru og landfræði Is-
lands, átti traustan fjallabíl og fór
víða um óbyggðir og lagði stund á
hverskonar veiðimennsku, kleif
fjöll og seig í björg. Verður ekki
annað sagt en að hann hafi
stundum teflt á tæpt vað á þess-
um ferðum sínum enda kjark-
maður og óvílinn. En hann átti
einnig aðrar hliðar ekki síður
hugþekkar, og sameinaðj með sér-
stæðum hætti kjark og karl-
mannslund og hinsvegar mildi og
ijúft viðmót sem laðaði jafnt unga
sem gamla.
Hinn 17. ágúst 1951 gekk Pétur
að eiga eftirlifandi eiginkonu
sína, Hrefnu Matthiasdóttur,
ættaða úr Garði suður og var
hjónaband þeirra hið farsælasta
og einkenndist af gagnkvæmri
vináttu og tryggð. Börn þeirra
Péturs og Hrefnu eru þrjú, öll
uppkomin og hin mannvænleg-
ustu. Þau eru: Jón starfsmaður
Landsbankans, Matthias hús-
gagnasmiður, kvæntur Sigurjónu
Sigurðardóttur, og Ingibjörg
yngst þeirra systkina, enn í föður-
garði.
Á skilnaðarstund vildi ég mega
þakka Pétri mági mlnum fyrir
góð kynni og trausta vináttu við
mig og mitt heimili og votta
Hrefnu, börnum þeirra og ástvin-
um hans öllum dýpstu samúð í
þungri raún. En minnumst þess
að öll él birtir upp um síðir.
Blessuð sé minning Péturs
Jónssonar.
Guðmundur Úlafsson.
Afmælis-
og minningar-
greinar
ATHVGLI skai vakin á því, að
afmælis- og ininningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig
verður grein, sem birtast á í
miðvikudagsblaði, að berast í
sfðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með
greinar aðra daga. Greinar
mega ekki vera í sendibiéls-
lormi eða bundnu máli. Þa>r
þurfa að vera vélritaðar og
með góðu Ifnubili.