Morgunblaðið - 26.08.1975, Side 27

Morgunblaðið - 26.08.1975, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. AGÚST 1975 27 Minning: Guðmunda Margrét Þorvaldsdóttir Fædd 6.11. 1927 Dáin 20.8. 1975 I dag verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju Guðmunda Margrét Þorvaldsdóttir, Holts- götu 6, Ytri-Njarðvík. Guðmunda eða Munda eins og hún var venjuiegast kölluð af vinum og ættingjum, og ég mun gera í þessum fáu kveðjuorðum mínum, lést í Landspítalanum 20. ágúst s.l. eftir langa og erfiða sjúkdómslegu. Foreldrar Mundu voru hjónin Þorvaldur Jóhannesson skipstjóri og útgerðarmaður, fæddur á Skriðufelli í Gnúpverjahreppi, og Stefanía Guðmundsdóttir frá Ánanaustum í Reykjavfk. Þau bjuggu allan sinn búskap á Grund í Ytri-Njarðvik, en eru nú bæði látin. Munda ólst upp og dvaldi í for- eldrahúsum þar til hún giftist eftirlifandi eiginmanni sínum, Sverri Ólsen verkstjóra og at- vinnurekanda í Ytri-Njarðvfk, en þau gengu f hjónaband þ. 26. september 1949. Hjónaband Mundu og Sverris var einstaklega farsælt og ham- ingjuríkt, og held ég að mér sé óhætt að segja að þar hafi aldrei skuggi á fallið. 1956 höfðu þau byggt sér einbýlishús að Holts- götu 35 í Ytri-Njarðvík. Þar kom strax fram hversu samtaka þau voru um að byggja sér og börnum sfnum vistlegt heimili. Þar kom fram hinn góði smekkur Mundu til alls er að heimilishaldi snýr. Hún gaf sig alla að því að búa manni sfnum og börnum það besta sem góð móðir og húsmóðir getur Iagt fram sér og sínum til hamingjuauka. Munda var mikil mannkosta- manneskja, vel greind og víðlesin. Hún hafði yndi af ljóðalestri, og minnist ég þess er við vorum ein- hverju sinni að ræða saman um bókmenntir, að hún kvað sig oft geta fengið meira út úr einu ljóði en við lestur einnar bókar. Munda flikaði ekki til- finningum sfnum en hafði þó mjög ákveðnar skoðanir um menn og málefni. Mér sem þessar línur rita var kunnugt um að undir yfirborðinu bjó göfug sál sem öll- um vildi gott gera, og þess naut fjölskylda hennar f ríkum mæli, sem og aðrir sem áttu því láni að fagna að vera í návistum við hana. Þess sér einnig merki í börnum þeirra hjóna Mundu og Sverris, sem öll eru hin mannvænlegustu, en þau eru talin í aldursröð, Stefanfa Vallý gift Geirmundi Kristinssyni skrifstofustjóra — Ólöf María gift Sigurði Erlends- syni málarameistara, en þau eru búsett í Keflavík. Þá er Sigrfður gift Vilbergi Karlssyni vélvirkja — Sverrir Örn kvæntur Guðrúnu Halldórsdóttur, en þau eru búsett í Ytri-Njarðvfk, og Rúnar Þór sem enn dvelur í foreldrahúsum. I kringum 1970 höfðu Munda og Sverrir byggt sér hús á Holtsgötu 6 í Ytri-Njarðvík þar sem þau hafa átt heima sfðan. Fljótt eftir að þau fluttu að Holtsgötu 6 voru öll börnin að Rúnari undanskildum gift og búin að stofna til eigin heimilis. Þá gafst Mundu meira næði til-að velja sér og sinna tómstundastörf- um. Auk þess að búa heimili sitt innandyra af fágætri smekkvfsi, sneri hún sér að því að fegra umhverfis sig utandyra. Að þvf starfi gekk hún af jafn heilum hug og öðru sem hún tók sér fyrir hendur að framkvæma. Á skömmum tima breytti hún móakargi f vel skipulagða gróður- reiti. Við þær framkvæmdir naut hún hins annálaða dugnaðar Sverris sem eins og ávallt var reiðubúinn til að rétta hendi við það sem þurfti að sinna ~fyrir heimilið. Mig minnir að það hafi verið í fyrrasumar að við hjónin komum til þeirra í heimsókn einn góð- viðrisdag. Við Sverrir létum fara vel um okkur inni f sófa, en kon- urnar gengu út í garðinn. Konan mín hefur oft síðan minnst á þá miklu gleði sem kom fram hjá Mundu meðan þær gengu þarna um garðinn og ræddu um garð- yrkju, um heiti einstakra tegunda blóma og trjáa, og hvernig með skyldi fara. Það er sagt, að manninn megi þekkja af verkum hans, og það er rétt, og þannig getum við, sem virðum fyrir okkur íbúðarhúsið á Holtsgötu 6, hvort heldur er innandyra eða utan, þekkt mann- eskjurnar sem þar hafa lifað og búið. Þriðjudaginn 19. ágúst s.l. sat ég við sjúkrabeð Mundu mágkonu minnar. Ég þóttist sjá að ekki yrði langt að bfða þess að hún kveddi þetta jarðneska líf og hyrfi á braut yfir djúpið mikla til hins eilífa Ijóss. Hugsunin um þann mikla missi sem eiginmaður hennar, börn og barnabörn sem og aðrir ættingjar hennar yrðu fyrir við fráfall hennar, olli mér sárri sorg, og spurningar leituðu á hugann um tilganginn með þessu lffi. Elskuð eiginkona, móðir og amma er kölluð burtu langt um aldur fram, eftir verður tóm sem ekki verður fyllt. Ég vona þó og bið að minn- ingarnar um ástrfka eiginkonu, móður og ömmu megi draga úr sárasta söknuðinum, og að tfminn mildi og sljóvgi sárasta broddinn í hugum þeirra sem mest missa við fráfall hennar. Að lokum vil ég senda mágkonu minni hinstu kveðju yfir móðuna miklu frá mér og fjölskyldu minni, með innilegu þakklæti fyrir liðnar stundir. Sverri og börnum hans sendi ég og fjöl- skylda mín innilegustu samúðar- kveðjur. Guð blessi minningu þína. Jón Kr. Olsen. Minning: Jón Þorsteinn Jóhannsson Fæddur 11. mái 1930. Dáinn 8. júlf 1975. Það er ómetanlegt fyrir dýra- Iækni, sem þarf að ferðast mikið að eiga völ á góðum fylgdarmanni og bflstjóra, sem er gæddur þeim eiginleika að geta ekið í srtjó og ófærð. S.l. 17 ár hefi ég ótal sinnum leitað til Þorsteins Jóhannssonar þegar erfið ferðalög stóðu fyrir dyrum. Fyrr á árum, þegar vega- þjónustan var enn verri en hún er í dag, kom þetta sér ákaflega vel. Alveg var sama hvernig stóð á fyrir Þorsteini, alltaf var hann boðinn og búinn og skipti einu hvort um gamlárskvöld eða aðra hátíðisdaga var að ræða. Þor- steinn æðraðist aldrei né gafst upp f tvfsýnum ferðum, hann sá alltaf hinar björtu hliðar tilverunnar og naut þess að sigrast á höfuðskepnunum, hvort sem ferðalangarnir voru villtir uppi á Breiða- dalsheiði eða þeir, eftir sólar- hrings vökulag, brutust áfram ofan úr Fljótsdal út Fellin f blindbyl, svo vondu veðri, að ekki er á mínu færi að lýsa. Ekki hefi ég trú á, að fólkið, t.d. í litla þorpinu okkar eða sveitungar Þorsteins í Fljótsdalnum, hafi gert sér grein fyrir að hann var kjarkmaður, hann bar það ekki utan á sér. Hann tók hlutunum eins og þeir voru, svo var því lokið. Þannig brást hann við sjúkdómi þeim er varð honum að aldurtila. Fyrir rúmu ári fékk hann vont kast af kransæðastíflu og var, eftir að hann tók að hressast, ráð- lagt að fara vel með sig, lfklegast stóð hann í þeirri meiningu að hann færi vel með sig, en breytti þó í engu sfnum högum, hann stundaði sitt starf sem síma- maður; sagði, að það væri svo rólegt. Menn geta þó gert sér f hugarlund hvort það hefur verið rólegt hjá þeim s.l. vetur, einn mesta snjóavetur þessarar aldar. I tómstundum vann Þorsteinn við húsið sitt, garðinn sinn, og dyttaði svo að bílnum sfnum og áfram var haldið að gera kunnug- um sem ókunnugum greiða. Hann ráðgerði sumarfrí uppi á öræfum, en fann þó alltaf fyrir sjúkdómn- um. Síðast þegar ég hitti hann, spurði ég hann hvernig heilsan væri. — Jú, hún er stórfín, sagði hann. Þú finnur þá ekkert til, spurði ég. Það er undir mér sjálf- um komið, ef ég reyni eitthvað mikið á mig, koma verkirnir. Er ég hvatti hann til að fara sér hægar var svarað með bros á vör, að það væri einmitt það sem hann gerði, síðan sagði hann mér einn góðan brandara, snaraði sér upp í símabflinn og ók upp f sína sfðustu för. Nokkrum dögum síðar varð hann bráðkvaddur við vinnu sína niðri á Norðfirði. Oft hafði Þorsteinn sagt mér að hann gerði sér fulla grein fyrir hvað gæti hent og bætti við: „Nú þá er þessu lokið.“ Þetta er kald- hæðnislegt af 45 ára manni, en þetta er kjarkur, þetta er að taka hlutunum eins og þeir eru, þetta var hans máti, sem lýsti sér hvar sem brotist var áfram í lífsins ólgusjó, jafnt í ofsaveðrum uppi á Fjarðarheiði eða uppi í Fellum. Hvort rétt er að taka hlutunum svona, er ég ekki maður til að dæma, en Þorsteinn var maður að minu skapi, þess vagna vorum við vinir. Þorsteinn gat kvatt þennan heim án þess að hafa áhyggjur af fjölskyldu sinni. Árið 1956 kvænt- ist hann eftirlifandi konu sinni Guðlaugu Sveinsdóttur Ijósmóður frá Hryggstekk í Skriðdal, dóttur hjónanna Steinunnar Gunnlaugs- dóttur og Sveins Guðbrandssonar, fyrrum bónda þar. Guðlaug er mikil dugnaðar- og myndarkona, Þau Þorsteinn eignuðust 2 börn, tvíbura, Bergljótu og Jóhann, og bera þau nöfn foreldra Þorsteins. Frá fyrra hjónabandi átti Guðlaug fjögur börn og reyndist Þorsteinn þeim sem besti faðir. Allur þessi barnahópur er nú uppkominn, nýtir og góðir borgarar, kurteist og prútt fólk svo af ber. Fyrstu búskaparárin bjuggu þau Guðlaug og Þorsteinn f sam- býli með þeim Steinunni og Sveini, foreldrum Guðlaugar, Framhald á bls. 29 Vinsamlega birtið eftirfarandi smáauglýsingu í Morgunblaðinu þann:........... 1 1 i 1 I 1 i i i i i i i i i i i i i 1 50 1 1 1 1 1 L l l l i i i J 1 1 1 1 1 L J 1 1 i i i I | 300 I__I__I__I__I__I__I__I__I__I__1__1__1__1__I__\__\__I__\_I__I__I__I I I I I 450 1 1 1 1 1 1 1 I 1 1 1 1 1 1 1 1 j 1 1 1 1 1 1 1 1 I 750 1 1 1 1 i 1 1 1 1 I 1 1 1 1 1 1 1 1 1 I 1 1 1 1 1 900 1 I 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1050 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1111 1. 1 1 1 I I 1700 Hver lína kostar kr. 1 50 Meðfylgjandi er greiðsla kr........... 1^1 | 1 1 | | L 1 I I I Fymeðtn JtáH T/tJCA Skrifið með prentstöf- &£•/%& y lZi um og setjið aðeins 1 staf i i i^i ^ U/y, ,/1 /iX-i /1 hvern reit. i/i \S\/' i i Áríðandi er að nafn, heimili l—J 11 I I 1 L 1 1 1 1 1 1 I 1—1. 1 1 1 1 1 I 1 1 1 1 L 1-1- 1 1 1 1 1 1 -L. 1.1. 1. » 1 1 1 1 1 » 1 1 1 1 1 1 1 og simi fylgi. Nafn: Heimili: Sími: I Auglýsingunni er veitt móttaka á eftirtöldum stöðum: REYKJAVÍK: Kjötmiðstöðin, Laugalæk 2, Sláturfélag Suðurlands, Háaleitisbraut 68 Kjötbúð Suðurvers, Stigahlíð 45—47, Hólagarður, Lóuhólum 2—6 Sláturfélag Suðurlands, Álfheimum 74, Árbæjarkjör, Rofabæ 9 HAFNARFJÖRÐUR: Ljósmynda og gjafavörur, Reykjavikurvegi 64 Verzlun Þórðar Þórðarsonar, Suðurgötu 36, KÓPAVOGUR: Ásgeirsbúð, Hjallabrekku 2, Borgarbúðin, Hófgerði 30. Eða senda í pósti ásamt greiðslu til Smáauglýsinga deildar Morgunblaðsins, Aðalstræti 6, Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.