Morgunblaðið - 26.08.1975, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. AGÚST 1975
29
félk í
fréttum
„Básinn ” hrundi við opnunina
+ Viö opnun vörusýningar-
innar á föstudag vildi það
óhapp til, að hluti eins „báss-
ins“ hrundi og munaði minnstu
að slys yrðu á mönnum. Svo
varð þó ekki og var þegar hafizt
handa við að koma sýningar-
deildinni I samt lag aftur.
Reyntað bjarga
úrAndreu Doriu
ítalskir
mann-
rœningjar
enn að
+ Fimmtfu og átta ára gömlum
landeiganda var nýlega rænt f
borginni Reggio Calabria á
Suður-ltalfu. Maðurinn
Domenico Arecchi, var fertug-
asta fórnarlamb ftalskra mann-
ræningja á þessu ári.
Sjómaður
hefnir
sín á
barþjóni
+ Drukkínn sjómaður, sem
neitað hafði verið um af-
greiðslu á bar i bænum Lorient
i Frakklandi tók til sinna ráða
til að komafram hefndum gegn
barþjóninum. Hann settist upp
f bfl sinn og ók rakleitt inn á
veitingastaðinn f gegnum rúðu
sem á vegi hans varð. Þrír slös-
uðust, sem á barnum voru, en
aðrir gestir brugðu við hart og
yfirbuguðu bflstjórann. Öku-
þórinn liggur nú í sárum á
spítala og er miður sfn andlega
og Ifkamlega að sögn lögregl-
unnar.
Tryltarbýflugur
ráðastásjómenn
+ Býflugnager réðst nýlega á
sjómann nokkurn sem var að
veiðum á báti sínum skammt frá
borginni Montpellier á Miðjarðar-
hafsströnd Frakklands með þeim
afleiðingum að hann beið bana.
Tveir aðrir sjómenn sem hugðust
koma félaga sfnum til hjálpar
fengu alvarlegar stungur þegar
flugurnar réðust á þá.
+ Flokkur kafara hefur
sprengt sér leið inn í ftalska
skemmtiferðaskipið Andreu
Doriu, þar sem það liggur á
66 metra dýpi um 70 kfló-
metra frá Nantucket-eyju
við vesturströnd Bandarfkj-
anna. Fyrirhuga kafararnir
að bjarga ýmsum verðmæt-
um úr skipinu, en sagt er að
þar sé að finna reiðufé, gim-
steina og skartgripi,
Rembrandt-málverk og um
12000 vfnflöskur samtals að
verðmæti um f jórar milljón-
ir Bandarfkjadala (um 640
milljónir fslenzkra króna).
Andrea Doria, sem eitt
sinn var flaggskip ítalska
kaupskipaflotans, sökk á
þessum slóðum eftir að
skipið Ienti f árekstri við
+ Lorenzo Herrera setti á
föstudag glæsilegt heims-
met f eldamennsku. Hann
stóð samfellt yfir pottunum
f 100 klukkustundir og sló
þar með gamalt 96 tfma met
sem skráð er f heimsmeta-
bók Guinness. Herrera mall-
aði alls kyns skyndimat,
hamborgara og annað þess
háttar, meðan á þessu stóð,
en á klukkustundar fresti
sænska skipið Stockholm í
júlf 1956. Talsverð leynd
hefur verið yfir rannsókn
árekstursins, en f honum
fórust 50 manns, en 2500 var
bjargað.
Margoft áður hefur verið
reynt að bjarga verðmætum
úr Andreu Doriu, en það
aldrei tekizt. Að sögn blaðs-
ins Providence Journal, sem
skýrir frá leiðangrinum, eru
með f ferðinni sjónvarps-
menn sem hyggjast taka
myndir inni f skipinu og
gera úr þcim heimildakvik-
mynd um slysið. Ekkí var
frá því skýrt hvenær kafar-
arnir komu að skipinu, né
hvort einhverju væri búið
að bjarga.
fékk hann fimm mfnútna
frf. Sfðustu klukkutfmana
notaði hann þann tfma til að
baða fætur sfna f söltu vatni
til að auðvelda sér stöðuna
yfir eldavélinni. Þegar 100
tfmum var náð, hvað skyldi
Herrera hafa gert þá? Jú,
hann eldaði sér morgunmat,
settist niður og sporðrenndi
honum áður en hann lagðist
til svefns.
Lorenzo Herrera
setti nýtt elda-
mennskuheimsmet
Litur vonarinnar á
Þorlákshafnarvegi
Þorlákshöfn 22. ágúst.
HAFNARFRAMKVÆMDIR hér
ganga samkvæmt áætlun, og
sumir þættir þeirra betur enda
veður hagstætt til vinnu við
sjóinn. Hér er mikið byggt og
helzt einbýlishús og mikið er sótt
um byggingarlóðir. Nú er verið að
undirbúa 12 lóðir til bygginga en
hús á ýmsu byggingarstigi munu
vera um 30 talsins. öll hús Við-
lagasjóðs hér á staðnum eru seld
og fengu þau færri en vildu en
þau eru 42 að tölu. Einnig er
verið að ganga frá lóðum uiidir
fjölbýlishús en fjármagnsfyrir-
greiðslu vantar til þess að
væntanlegir framkvæmdaaðilar
geti hafizt handa við byggingu á
þeim.
Að sjálfsögðu hafa hafnarfram-
kvæmdir hér og vonin um góða
höfn ýtt mjög undir þessa öru
þróun og óskir manna um að
setjast hér að en hér munu vera
heimilisfastir ufn 800 manns sem
er þó lauslega áætlað og fjöldi
aðkomufólks vinnur hér allt árið.
Þess má geta til gamans, að árið
1950 voru aðeins 4 íbúar skráðir í
Þorlákshöfn.
Hitaveitumálin standa þannig
að fyrir sumarfrí starfsmanna
hafði verið boruð 2200 metra djúp
hola og hitastig í botni holunnar
var þá 190 stig. Þá var dælt köldu
vatni í holuna í tæpan mánuð eða
á meðan menn voru f fríi en þá
var hitinn mældur aftur og er nú
180 stig. Nú er verið að leita að og
lagfæra fóðringu sem mun hafa
gefið sig en næsti áfangi er að
holan verður sprengd út og bíða
menn að sjálfsögðu spenntir eftir
að sjá árangurinn af því.
Nýi vegurinn hingað, sem lagð-
ur var f vor frá Þrengslavegamót-
um, hefur enn ekki verið opnaður
fyrir umferð og er nú orðinn al-
grænn yfir að líta. Ekki mun þó
litur vonarinnar á veginum vera
fyrirboði þess að vonir Þorláks-
hafnarbúa eigi að rætast um
varanlegt slitlag á veginn, þvf nú
er verið að mala efni f efsta lagið
sem því miður á ekki að vera
varanlegt. Það virðist sem sagt
eiga að leggja mikinn kostnað í
malarlag á þennan vegarspotta
en varanlegt slitlag að fá að bíða
betri tíma. Fólk hér á að sjálf-
sögðu erfitt með að skilja slíka
hagfræði. Ölfushreppur hefur
ráðið tæknifræðinginn Gunnar
Indriðason til starfá á komanda
hausti og ráðin hefur verið til
læknishéraðsins hjúkrunarkonan
Lára Lárusdóttir með búsetu í
Þorlákshöfn en héraðslæknirinn,
Þórhallur Ólafsson, kemur hingað
tvo daga f viku.
—Ragnheiður.
— Minning Jón
Framhald af bls. 27
síðar komu þau sér upp fallegu
húsi hér í kauptúninu, áttu gott
og listrænt heimili og fallegan
garð fyrir utan. Til þeirra var gott
að koma, enda komu þangað
margir. Best fannst mér húsbónd-
inn njóta sfn, er hann hafði sett
einhverja góða hljómplötu á
plötuspilarann, en hann hafði
mikið, yndi af tónlist, sérstaklega
ef um karlakóra var að ræða,
enda var hann söngmaður góður
og starfaði í Karlakór Fljótsdals-
héraðs í mörg ár.
Þorsteinn var mikill náttúru-
unnandi og var gaman að ferðast
með honum. Mér er alltaf minnis-
stæðúr vormorgunn einn úti f
Hróarstungu, fyrir nokkrum ár-
um. Við höfðum komið utan úr
Jökulsárhlíð og var klukkan eitt-
-hvað um sex að morgni, er við
komum að Jökulsárbrúnni og
beinast lá við að aka austur um
Heiðarendann og koma sér sem
fyrst heim og reyna að sofa smá
stund, en Þorsteinn var nú ekki á
því. Hann sagðist þurfa í vinnu kl.
átta, það tæki því ekki að fara að
sofa í svona fögru veðri og stakk
upp á því, að við tækjum á okkur
krók og færum út hjá Hallfreðar-
stöðum og þar yfir Tunguna, þar
væri svo fallegt á morgni sem
þessum. Þennan morgun upplifði
ég stemningu Páls Ólafssonar
skálds, er hann kvað:
Við mér hlógu hlið og grund
hvellan spóar sungu
enn er þó til unaðsstund
I henni Hróarstungu.
Ekki var þó Hróarstunga sveit-
in hans Þorsteins. Hann var fædd-
ur á Bessastöðum í Fljótsdal, og
fluttist síðan kornungur á nýbýlið
Eyrarland sem foreldrar hans,
hjónin Bergljót Þorsteinsdóttir og
Jóhann Jónsson frá Bessastöðum,
byggðu í landi Bessastaða. Þar
sleit hann sínum bernsku- og
æskuskóm og átti þar ótal unaðs-
stundir. Er hann stofnaði heimili,
fluttist hann i Egilsstaðakauptún,
eins og áður getur. Þó að Þor-
steinn væri fluttur úr Fljótsdaln-
um átti Fljótsdalurinn hug hans
allan og ekki síður fólkið i daln-
um. Allt sitt lif var hann að gera
öðrum greiða, en ég held að
ljúfast hafi honum verið að gera
fólkinu i fallega bernskudalnum
sinum greiða. Þar átti hann alltaf
heima og þar var hann borinn til
grafar á Valþjófsstað hinn 16. júli
s.l. Þar hvila nú jarðneskar leifar
hans I þeirri frjóustu mold, sem
til er á íslandi. Aldrei hefi ég litið
Fljótsdalinn eins fagran og þenn-
an dag, sjaldan eða aldrei hefir
annað eins fjölmenni mætt við
kirkju á Valþjófsstað. Það voru
greinilega fleiri en ég og fjöl-
skylda mfn, sem áttu Þorsteini
Jóhannssyni heimilisvininum
okkar, skuld að gjalda, skuld sem
aldrei verður goldin.
Bergljót móðir Þorsteins lést
1973.— S.l. ár hefur Jóhann faðir
hans dvalist á heimili þeirra Guð-
laugar og Þorsteins. Jóhann ber
sorg sína með stakri ró og æðru-
leysi. Ég og f jölskylda mfn vottum
Jóhanni, tengdaforeldrum Þor-
steins, Guðlaugu og börnunum
okkar innilegustu samúð og vitum
að góður Guð hefur veitt þeim
styrk I raun. jýn p^tursson,
Egilsstöðum.
□EEEEGEEEEEEEGGEGEE
(£1
63
□
ca
ia
63
63
63
63
63
63
63
63
63
63
63
63
63 EEEEEEEEEEEEEEEEE 63
PIZZA
Hr. Alllster Kirby
pizza sérfræðingur
kynnir TOLONA
pizza í dag kl. 4-6
KSKUK
Sudurlandsbraut 14