Morgunblaðið - 26.08.1975, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. AGÚST 1975
Leit að Bakkafjarðartrillu
HJÁLPARBEIÐNI barst til
Slysavarnafélags Islands á föstu-
dagskvöldið frá Bakkafirði, en
þar var farið að óttast um tvo
menn á þriggja lesta trillu, Svani
NS 78. Hafði trilian farið í róður
um morguninn ásamt öðrum bát-
um, en ekki komið til hafnar á
sama tíma og þeir. Strandferða-
skipið Hekla var á Bakkafirði
þetta kvöld og bað SVFl skipið
um að sigla út fyrir Digranesið og
út á svonefndan Vopnabanka til
að gá að bátnum. Ennfremur var
GREIÐSLA olíustyrks til Reyk-
víkinga hófst sl. fimmtudag og
koma alls tæpar þrjár milljónir
króna til útborgunar að þessu
sinni. Styrkupphæðin er tvö
þúsund krónur á hvern einstak-
ling fyrir tímabilið marz til mai
og greiðist framteljendum. Þann-
ig fá t.d. hjón með tvö börn yngri
en 16 ára greiddar 8 þús. krónur,
en hjón með tvö börn eldri en 16
ára fá hins vegar greiddar 4 þús.
kr. og börnin tvö sinar tvö þús.
Komið með tvo sjúka
Rússa til Reykjavíkur
RÚ SSNESKUR togari kom til
hafnar í Reykjavík seint i fyrra
kvöld með tvo sjúka skipsmenn.
Var annar mannanna með
sprunginn botnlanga, en hinn
með meiðsli á fótum. Voru menn-
irnir lagðir á Landakostsspitala,
þar sem sá fyrrnefndi var skorinn
upp. Leið honum í gær vel eftir
atvikum, en verður áfram á spít-
ala í nokkra daga. Hinn skipverj-
inn fékk gert að sínum meiðslum
og fór í gær með skipinu er það
hélt úr höfn að nýju. Talsmaður
rússneska sendiráðsins sagði Mbl.
í gær að skipsmennirnir báðir og
starfsmenn sendiráðsins væru
Iæknum og hjúkrunarliði á
Landakoti mjög þakklátir fyrir
fljóta og góða aðstoð.
Slys við Mývatn
Vogum, Mývatnssveit, 25. ágúst.
MJÖG harður árekstur varð hér á
þjóðveginum milli Revkiahlíðar
og Vogasunnaní Hlíðarkambi sl.
laugardagskvöld. Rákust þar sam-
an tveir Volkswagen-bílar. Var
annar bíllinn að koma með fólk
sem vinnur við Kröflu og var
ferðinni heitið á dansleik í Skjól-
brekku. I bílnum, sem á móti
kom, var aðeins ökumaður. Við
áreksturinn mun hann eitthvað
hafa slasazt, svo og farþegi er sat i
framsæti í hinum bílnum. Báðir
voru þeir strax fluttir með sjúkra-
og lögreglubílum f sjúkrahúsið á
Húsavík. Bílarnir skemmdust
mjög mikið.
Aður hafa orðið árekstrar og
fólk slasazt og bílar skemmzt á
þessum stað. Þarna er beygja í
brekku og auk þess er útsýni frek-
ar takmarkað vegna trjágróðurs.
Furðulegt er, að þarna hefur ekk-
ert merki verið til viðvörunar
vegfarendum og ber að sjálfsögðu
að vlta það. Nú er það krafa, að
þessi óhappa- og slysastaður
verði lagfærður með því að
breikka veginn í beygjunni og
beggja vegna, þannig að hægt sé
að skipta veginum f tvær akrein-
ar.
— Kristján.
Jafnt hjá Guðmundi
GUÐMUNDUR Sigurjónsson stór-
meistari gerði I gær jafntefli við
ungverska stórmeistarann Andr-
as Adorjan á skákmótinu í Lond-
on. Sömdu þeir um jafntefli í 19.
leik eftir að Adorjan hafði ekki
tekið áhættuna á mannsfórn sem
Guðmundur bauð uppá.
Þá tefldi Guðmundur biðskák
sfna við Miles úr 7. umferð í gær-
morgun og gaf hann skákina f 43.
leik, enda staðan vonlaus. Adorj-
an er efstur með 5'A vinning, eftir
8 umferðir, Miles hefur 5 vinn-
inga, Sax og Timman 4'A og Guð-
mundur 2‘Avinning.
hafinn undirbúningur að því að
senda út báta á Bakkafirði og
Vopnafirði, en áður en af þvi yrði,
kom tilkynning frá Heklu um að
hún hefðifundiðtrillunaog allt
væri f lagi. Að vísu hefði orðið
bilun f trillunni, en hún væri
komin f lag á ný. Hélt Hekla sfðan
áfram sfna leið, en trillan varð á
ný fyrir bilun við Digranesið. Þá
skutu skipverjarnir upp svifblysi
og kom þá bátur frá Bakkafirði
þeim til aðstoðar og dró trilluna
inn.
krónurnar hvort. Alls fá um 1400
einstaklingar þennan tvö þúsund
króna styrk, en nokkrir tugir elli-
lffeyrisþega, sem njóta tekju-
tryggingar frá Tryggingastofnun-
inni, fá heldur hærri upphæð í
olíustyrk, eða 3 þús. kr. Olíustyrk-
ur er greiddur þeim, sem nota
olíu til húshitunar, en langflestir
borgarbúa hafa hitaveitu.
Rekald á Skerjafírði
TILKYNNING barst til Slysa-
varnafélags Islands á föstudag
um að sézt hefði eitthvert rekald
úti á Skerjafirði og var jafnvel
talið mögulegt, að þar væri um
bát að ræða. Sjóbjörgunarsveitin
Albert á Seltjarnarnesi fór út á
fjörðinn að kanna málið, en þarna
reyndist einungis vera um drasl
að ræða.
— Stuðnings-
menn
Framhald af bls. 36
kosinn prestur, væntanlega í
næsta mánuði.
Reykjavfk, 15. ágúst 1975
Jón Auðuns, f. dómpróf.
Hagamel 10; Stefán Jónsson,
forstj. Melhaga 1; Sigrfður Ell-
ingsen, frú Ægissiðu 80; Lúðvíg
Hjálmtýsson, frkvstj. Hagamel
32; Jón Hafstein, tannl. Ægis-
síðu 84; Gunnar Friðriksson,
frkvstj. Hjarðarhaga 31; Guðm.
Benediktsson, ráðuneytisstj.
Reyhistað, Jón Thorarensen, f.
sóknarpr. Hagamel 42; Katrín
Smári, frú Hjarðarhaga 62;
Friðrik Ólafsson, stórm. Hjarð-
arhaga 15; Einar Guðnason, f.
próf. Miðbr. 3, Seltjarnarnesi;
Auður Guðmundsdóttir, frú
Unnarbraut 7, Seltjarnarnesi.
Morgunblaðið hafði í gær-
kvöldi samband við sr. Guð-
mund Óskar Ólafsson og leitaði
álits hans á dreifibréfinu og
efni þess. Hann sagði:
„Ég vil sem allra minnst tjá
mig opinberlega um þetta mál
utan það að ég harma hverja þá
tilraun, sem gerð er til að vekja
úlfúð eða draga fólk f dilka í
umræddum efnum. Annars
verða menn að eiga þetta við
sjálfa sig hvaða aðferðum sam-
vizkan býður þeim að beita.“
Að öðru leyti vildi sr. Guð-
mundur ekki fjalla um efni
dreifibréfsins né þær fullyrð-
ingar sem þar koma fram.
MORGUNBLAÐIÐ reyndi
ítrekað að ná sambandi við sr.
örn Friðriksson í gærkvöldi til,
að fá hans skoðun á málinu, en
án árangurs.
Loks ræddi Mbl. við Þórð Ag-
úst Þórðarson formann sóknar-
nefndar Nessóknar. Hann
kvaðst á þessu stigi ekkert geta
sagt um dreifibréfið og efni
þess. Hann sagðist hafa boðað
fund I sóknarnefndinni í kvöld,
(þriðjudag) og yrði bréfið þar
til umræðu.
Þá hefur komið upp deila í
sambandi við fyrirhugaðar
prestkosningar hvort Seltjarn-
arnessöfnuður eigi að taka þátt
í þeim eða ekki. Sóknarnefnd
Seltjarnarnesprestakalls hefur
látið frá sér fara tilkynningu
sem birtist i heild á bls. 8 f Mbl.
í dag. Segir þar m.a. að það sé
ákveðin ósk sóknarnefndarinn-
ar að sérstakur prestur komi á
Seltjarnarnes, en þvf hefur ver-
ið þjónað af prestum Neskirkju
til þessa. Embætti hafi losnað f
Nesprestakalli s.l. vor og hafi
þá opnazt möguleikar á því að
það flyttist til Seltjarnarness.
Svo hafi ekki orðið og embættið
við Neskirkju auglýst og þar
með gengið í berhögg við vilja
Seltjarnarnessafnaðar og sam-
þykkt safnaðarráðs Reykjavík-
urprófastdæmis. Sé það álit
safnaðarstjórnar að Seltjarnar-
nessöfnuður eigi ekki að taka
þátt í væntanlegum prestkosn-
ingum f Nessókn og prestkosn-
ingar eigi ekki að fara fram á
Seltjarnarnesi fyrr en söfnuð-
urinn fái tækifæri til að kjósa
sinn eigin prest.
Mbl. sneri sér f gær til bisk-
upsins yfir Islandi hr. Sigur-
bjarnar Einarssonar vegna sið-
arnefnda málsins, en hann
kvaðst á þessu stigi ekki vilja
tjá sig um það.
— Boða verkfall
Framhald af bls. 36
þessara félaga og samtaka eru f
starfi við undirbúningsfram-
kvæmdirnar á Grundartanga.
Skúli Þórðarson, formaður
Verkalýðsfélags Akraness, sagði i
samtali við Morgunblaðið í gær,
að samningafundur hefði sfðast
verið haldinn f fyrri viku. Verka-
lýðsfélögin væru að Ieita eftir al-
mennum samningum um kaup og
kjör fyrir þá vinnu, sem þarna er
unnin, svo og um aðbúnað starfs-
manna á vinnustað, en um það
atriði hafa spunnizt nokkur blaða-
skrif að undanförnu. Skúli sagði,
að nú væri búið að vinna þarna
hátt í fimm vikur án þess að neitt
lægi í rauninni fyrir um kaup og
kjör þeirra manna sem þarna
ynnu.
I Morgunblaðinu sl. fimmtudag
birtust viðtöl við nokkra starfs-
menn við undirbúningsfram-
kvæmdirnar á Grundartanga og
þar var m.a. þetta haft eftir
tveimur mönnum, öðrum frá
Akranesi og hinum frá Hafnar-
firði: „Þetta verkfall er bara í
blöðunum. Við, sem hér vinnum,
teljum aðbúnaðinn eins góðan og
mögulegt er við þessar aðstæður
og það er fráleitt að menn hér fari
í verkfall vegna hans.“ Skúli var
inntur eftir því, í gærkvöldi,
hvort þetta stingi ekki í stúf við
verkfallsboðunina. Hann sagði, að
það væri ekki von, að maður, sem
væri nýbúinn að ráða sig í vinnu,
færi að gefa miklar yfirlýsingar
um slæman aðbúnað, ef hann
stæði að auki með verktakann sér
við hlið. „Ég vísa því algerlega
heim til föðurhúsanna, að þetta
verkfall sé bara orðið til hér á
skrifstofum verkalýðsfélaganna,"
sagði Skúli að lokum.
— Rækja
Framhald af bls. 36
ekki að fara en rækja þolir ekki
endalausa geymslu. Hinsvegar
væri þar 12% innflutningstollur á
rækju, og hækkað í 16% um
næstkomandi áramót. Um s.I. ára-
mót var tollurinn hinsvegar ekki
nema 8% og þótti nógu hár. Þann-
ig að hætt væri við að við fengjum
ekki viðunandi verð f Bretlandi
nema tollar yrðu lækkaðir.
— Við verðum líka að selja
meiri rækju á meginlandi Evr-
ópu, sagði Björgvin, en þar búa
200 milljónir manna. Og ef hið
opinbera gerir ekkert í þessum
málum fer rækjuframleiðslan f
rúst.
Svfar sem einnig hafa keypt
nokkuð mikið af rækju frá Islandi
hafa algjörlega haldið að sér
höndum með rækjukaup héðan
eftir að staðan kom upp á brezka
markaðnum, og vona að verðið á
Islandi lækki, en Islendingar hafa
undanfarin ár selt Bretum um
500 lestir af rækju.
— Portúgal
Framhald af bls. 1
Vitor Alves majór, einn þeirra,
sem skipulögðu byltinguna í
fyrra, að taka sæti upplýsingaráð-
herra f stjóminni.
I allan dag var reynt að sann-
færa Goncalves um að hann yrði
að segja af sér og einn möguleiki
af mörgum sem vekja óvissu er sá
að stuðningsmenn hans úr hern-
um reyni að bjarga honum. Hóf-
samir herforingjar gáfu Costa
Gomes forseta vikufrest í sfðustu
viku til að víkja Goncalves sem
þeir segja að hafi hrakið landið á
barm upplausnar f þjóðfélagsmál-
um og efnahagsmálum.
Heimildamenn handgengnir
Costa Gomes segja að hann reyni
að finna leið til þess að Goncalves
geti sagt af sér án þess að bíða
álitshnekki. Vitað er að hann er
góður vinur Goncalves og það get-
ur gert honum erfitt fyrir.
Kommúnistar verða að ákveða
hvort þeir verða að hverfa með
Goncalves eða snúa við honum
baki og gera bandalag við öfga-
menn lengst til vinstri. Þótt
flokksforinginn Alvaro Cunhal
hefi hvatt til útkalls stuðnings-
manna Goncalves reyndi flokkur-
inn í dag að bæta aðstöðu sína
með myndun sameiginlegrar
„bráðabirgðastjórnar" flokksins,
vinstrimanna f hernum og sjö
annarra vinstri flokka til að berj-
ast fyrir byltingarmarkmiðum.
Stuðningsmenn Goncalves í
blöðum í Lissabon eru enn bjart-
sýnir á að hann haldi völdunum,
„Diario de Lisboa" sagði í for-
ystugrein að allt benti til þess að
„stefnu framfaraafla“ yrði haldið
áfram. Hermenn frá Copcon tóku
sér stöðu við skrifstofur „Jornal
Novo“ og tveggja annarra blaða
sem kommúnistar ráða ekki yfir
til að vernda blöðin gegn árásum
vinstrimanna.
I morgun lýsti Costa Gomes
marklausa yfirlýsingu sem stuðn-
ingsmenn Goncalves túlkuðu sem
stuðning við hann. Yfirlýsingin
var óljóst orðuð og forsetinn til-
kynnti að hann lýsti hana mark-
lausa vegna þess að hún hefði
verið rangtúlkuð og misnotuð.
I yfirlýsingunni sagði að rfkis-
stjórnin yrði að stjórna landinu
meðan herinn leysti innbyrðis
ágreining sinn. Andstæðingar
Goncalves töldu þetta merkja
rikisstjórn án tillits til þess hver
stjórnaði henni og þeir reyndust
hafa rétt fyrir. sér. Blöðin og út-
varpið, sem - kommúnistar ráða,
túlkuðu þetta sem stuðning við
Goncalves.
— Hafnarbann
Framhald af bls. 1
keppni. Prammasjómenn segja
að tekjur þeirra rýrni ef kerfið
verði lagt niður.
Þeir sem standa fyrir mót-
mælunum hafa einnig birt sjö
aðrar kröfur, meðal annars um
launahækkanir og bætt vinnu-
skilyrði. Þeir segja að hafn-
bannsaðgerðum verði haldið
uppi þar til stjórnin gangi að
öllum kröfum þeirra.
Hraðbátar lögreglunnar
fylgjast með hafnbannsaðgerð-
unum en engin tilraun var
gerð til að dreifa prömmunum.
Ráðuneytistalsmaður sagði að
ekki stæði til að biðja sjóher-
inn um aðstoð. Talsmaður lög-
reglunnar sagði að mótmælin
hefðu farið friðsamlega fram
og ekki hefði dregið til tíðinda.
I Belgíu var einnig lokað
ýmsum skurðum í dag af sjó-
mönnum sem krefjast jafnari
farmskiptingar.
— Rhódesía
Framhald af bls. 1
nefndarfundir sem eiga að taka
við af ráðstefnunni á járnbrautar-
brúnni fari fram í Rhódesíu og
ANC krefst þess enn að þeir fund-
ir verði haldnir annars staðar.
Samkvæmt óstaðfestum frétt-
um hefur Kaunda sett ANC
úrslitakosti. Ef afrískir þjóðernis-
sinnar samþykkja ekki að hefja
viðræður um nýja stjórnarskrá
Rhódesíu innan sjö daga mun
Zambíustjórn hætta stuðningi sín-
um við ANC samkvæmt þessum
heimildum.
ANC vill ekki að viðræður fari
fram í Rhódesíu þar sem að
minnsta kosti tveir af fjórum
helztu foringjum samtakanna,
séra Ndabaningi Sithole og James
Chikarmen, eiga það á hættu að
vera handteknir ef þeir snúa aft-
ur til Rhódesíu.
Vorster er sagður hafa sett
Smith úrslitakosti á sama hátt og
Kaunda hefur sett ANC úrslita-
kosti. Samkvæmt óstaðfestum
fréttum krefjast þeir báðir þess
að samkomulag takist innan 60
daga og nefndir verði skipaðar til
að ganga frá því einhvern næstu
daga.
Kaunda hefur verið miklu leng-
ur við Viktoriufossa en upphaf-
lega var ákveðið og því þykir ljóst
að viðræðurnar séu á mikilvægu
stigi. Vorster sagði eftir að hafa
rætt við Kaunda við komu hans:
„Við áttum mjög góðan og á-
nægjulegan fund.“ Kaunda tók I
sama streng og sagði „Viðræðurn-
ar hafa verið einstaklega gagnleg-
ar.“
Abel Muzorewa biskup, forseti
ANC, sagði í setningarræðu sinni
að viðræðurnar væru „sfðasta
tækifærið til að afstýra frekari
blóðsúthellingum." Hann sagði að
framhald viðræðnanna ætti að
geta farið fram á stöðum sem
vektu ekki deilur. „Við ættum að
geta fært löndum okkar f Rhódes-
fu fallega jólagjöf: heiðarlegt
samkomulag," sagði hann.
Lagt hefur verið til að svæðinu
við Viktoríufossa verði breytt i
hlutlaust eða alþjóðlegt svæði, að
samningamenn ANC og Rhódesíu
búi f Livingstone Zambíumegin
landamæranna og í bænum við
Viktoríufossa og haldi fundi sína
til skiptis f Zambíu og Rhódesíu.
Rhódesíustjórn mun hins vegar
hafa tekið dræmt f hugmyndina
og krefst þess að staðið verði við
Pretoriu-samninginn.
— Israel
Framhald af bls. 1
Jafnframt herma fréttir að eg-
ypzkt herlið muni sækja inn á
svæði sem nú eru á valdi Israels-
manna samkvæmt samningnum.
Diplomatar segja að þetta sé gjald
sem Israelsmenn verði að greiða
fyrir að fá að halda eftirlitsstöð
vestast í Giddi-skarði.
Samningurinn mun' einnig
heimila Egyptum að fjölga skrið-
drekum sinum á þvi svæði sem nú
er á valdi friðargæzluliðs Samein-
uðu þjóðanna úr 36 í 75. Egyptar
eiga að taka við þessu svæði og
sækja 7.5 til 15 km lengra f austur
þegar ísraelsmenn hörfa frá
Giddi og skarðinu Mitla.
Sadat hefur verið mjög tregur
til að fallast opinberlega á nokkr-
ar tilslakanir gagnvart Israels-
mönnum af ótta við gagnrýni
harðlfnumanna f Arabaheimin-
um, þar á meðal Hafez Assad,
forseta Sýrlands. Hins vegar fór
Kissinger til Damaskus á laugar-
dag til að fá fullvissun frá Assad
um að hann mundi ekki grafa
undan samningnum.
— Skipaður
Framhald af bls. 2
Elías I. Elíasson bæjarfógeti á
Siglufirði, Erlendur Björnsson
bæjarfógeti á Seyðisfirði, Halldór
Þ. Jónsson fulltrúi á Sauðárkróki,
Hallvarður H. Einvarðsson vara-
rfkissaksóknari, Jón A. Ölafsson
sakadómari, Jón Thors deildar-
stjóri í dómsmálaráðuneytinu,
Jónatan Þórmundsson prófessor,
Kjartan Ragnars deildarstjóri í
utanríkisráðuneytinu, Már
Pétursson héraðsdómari í Hafnar-
firði, Steingrímur Gautur
Kristjánsson héraðsdómari í
Hafnarfirði og Sverrir Einarsson
sakadómari.
— Umbúðalager
Framhald af bls.2
stjórn auk Lárusar: Heimir Hann-
esson, sem er varaformaður, aðrir
í stjórn eru Hörður Vilhjálmsson,
Jón Arnason og Tryggvi Jónsson
og eru tveir þeir síðasttöldu til-
nefndir af framleiðendum.
Fráfarandi stjórn var skipuð í
ársbyrjun 1972 til þriggja ára og
var skipunartími hennar á enda.
— Rússar
Framhald af bls. 35
um hætta af maósismanum hvort
sem þær búa við sósíalfskt eða
kapitaliskt hagkerfi."
Greinin í Kommunist er sú síð-
asta í Iangri röð áróðursgreina
gegn kínverskum kommúnistum,
en áróðurinn hefur magnazt frá
því kommúnistar sigruðu í Indó-
kína f vor.
I greinum í sovézku blöðunum
hefur verið lögð áherzla á and-
stöðu Kínverja við öryggisráð-
stefnuna og fyrirætlanir þeirra í
Suð-austur-Asíu.
Kfnverjar hafa einnig aukið
árásir sínar á Sovétmenn og segja
þá vera að reyna að koma sér f
mjúkinn hjá Asiuþjóðum eftir að
bandaríski herinn fór þaðan og
ógni með því öryggi allra landa.
2 þús. kr. olíustyrkur