Morgunblaðið - 26.08.1975, Blaðsíða 36
au<;lVsin<;asíminn er:
22480
3R**0t
;lVsin<;asíminn er:
22480
JRflrflMnblabií)
ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGUST 1975
Fastafloti
NATOí
heimsókn
Fastafloti Atlantshafs-
bandalagsins er f opinberri
heimsókn á Islandi um
þessar mundir. 1 flotanum
eru að þessu sinni sex her-
skip, — frá Kanada,
Bandarfkjunum, Hollandi,
Portúgal, Vestur-
Þýzkalandi og Bretlandi.
Yfirmaður flotans er
bandarfskur, Arie C.A.Sig-
mond, en hann er af holl-
enzkum ættum.
Fastaflota Atlantshafsbanda-
lagsins var komið á fót árið 1968.
Fram að þeim tima höfðu flotaæf-
ingar skipa aðildarríkja banda-
lagsins farið fram án þess að eig-
inlegur NATO-floti væri starf-
andi. í flotanum eru 4—9 skip
hverju sinni, en verkefni flotans
er einkum tvíþætt — að floti und-
ir sameiginlegri stjórn NATO sé
tiltækur ef á þarf að halda og að
þjálfa saman flota aðildarríkj-
anna. Eru skipaskipti tíð í flotan-
um af þessum ástæðum.
Flotinn kom hingað til lands s.l.
sunnudag og tók þá olíu í Hval-
firði. Til Reykjavíkur kom flotinn
í gær. Tvö skipanna lögðust þá við
bryggju í Sundahöfn, Iroquois frá
Kanada og hollenzka freigátan
Evertsen. Hin skipin liggja við
festar á ytri höfninni, Gago Cout-
inho frá Portúgal.vestur-þýzka
skipið Schleswig-Holstein, Argo-
naut frá Bretlandi og flaggskip
flotans, Macdonough frá Banda-
ríkjunum.
Margeir tap-
aði biðskák
MARGEIR Pétursson tapaði bið-
skák sinni gegn Israelsmanninum
David Bronstein úr áttundu um-
ferð heimsmeistaramóts unglinga
I skák I Júgóslavíu í gær: Hefur
hann þannig dregizt nokkuð aftur
úr fremstu mönnunum.
Fjögur herskipanna I fastaflota Atlantshafsbandalagsins á ytri höfninni f Reykjavík f gærdag.
Ljósmynd Sv. Þorm.
100% innborgunarskylda á
saltfisk í Brasilíu
Hefur lamandi áhrif á þurrfiskframleiðslu íslendinga
2 árekstrar
TVEIR árekstrar urðu á Miklu-
braut í gærkvöldi, annar við Háa-
leitisbraut,. en hinn inni við
Elliðaár. Ekki urðu veruleg
meiðsl á mönnum, en mjög mikið
eignatjón hins vegar.
ÖVÆNLEGA horfir nú með salt-
fisksölu til Brasilfu, þvf stjórn-
völd þar f landi hafa nú fyrirskip-
að 100% ínnborgunarskyldu f 180
daga, sem þýðir að kaupendur
saltfisks ,þar f landi verða að
leggja jafnháa upphæð vaxtalaust
inn á banka þar f landi og þeir
borga fyrir vöruna, sem þeir
kaupa erlendis frá. Islendingar
hafa á undanförnum árum ein-
göngu selt þurrkaðan 1. flokks
saltfisk til Brasilfu og á árinu
1973 seldum við þangað t.d. 3000
lestir, en að meðaltali hafa um
2000 lestir farið þangað á ári s.I.
10 ár og f fyrra seldum við fyrir
um 360 millj. kr.
Friðrik Pálsson hjá Sölusam-
Iagi íslenzkra fiskframleiðenda
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær, að fyrir kaupendur í Brasilíu
engu síður en seljendur hér og í
Noregi væri þetta geysilegt
kjaftshögg, og kaupendur í
Brasilíu teldu innborgunarskyld-
una samsvara 20—30% verð-
hækkun þar, þar sem allur kostn-
aður við innborgunarskylduna
væri mjög mikill. Því hefði þetta
lamandi áhrif á þurrfiskfram-
leiðsluna að vissu leyti.
Friðrik kvað Norðmenn, sem
yrðu fyrir barðinu á þessu eins og
tslendingar, leggja á það áherzlu
að þeir keyptu miklu meira af
Brasilíumönnum en þeir af Norð-
mönnum. Það sama mætti segja
um Island, sem hefði keypt um
50% meira þaðan f fyrra en
Brasilía af Islandi.
Óseld rœkja fgrir 300 milljónir króna:
Astandið versnar stöðugt
segir Björgvin Bjarnason
ENN HORFIR mjög erfiðlega
með sölu rækju og f lok júnf voru
til yfir 520 tonn af óseldri rækju f
landinu að verðmæti um 300
m.kr. Það sem veldur þessu er
fyrst og fremst hinir háu tollar
E.B.E. landanna á fslenzkum vör-
um og um leið hafa aðrar þjóðir
kippt að sér höndum með kaup á
fslenzkum vörum f von um að
tslendingar lækkuðu verðið.
Björgvin Bjarnason, sem er
einn helzti útflytjandi landsins á
frystri rækju, sagði í samtali við
Morgunblaðið f gær, að ástandið
væri orðið mjög alvarlegt og nú
yrði að takast að selja eitthvað til
Englands, sem verið hefur okkar
helzti markaður, ef illa ætti
Framhald á bls. 34
Boða verkfall á Grund-
artanga frá 2. sept
SJÖ verkalýðsfélög og samtök
hafa boðað vinnustöðvun við
undirbúningsframkvæmdir
Stuðningsmenn
indóms” fglkja
„frjálslynds krist-
liði í Nessókn
Lýsa yfir stuðningi við sr. Örn Friðriksson — Sr. Guðmundur
Óskar Ólafsson segir: Aðferðin samvizkuspurning hvers og eins
samþykkta
Skálholti.
Prestastefnunnar f
PRESTKOSNING fer fram f
Nesprestakalli f Reykjavfk f
næsta mánuði, 14. eða 21.
september. Kosið er um emb-
ætti sem sr. Jóhann Hlfðar
sagði lausu og eru umsækjend-
ur tvcir, sr. Guðmundur Óskar
Ólafsson prestur f Hafnarfirði
og sr. örn Friðriksson prestur á
Skútustöðum f Mývatnssveit.
Enda þótt ekki sé endanlega
ákveðið hvaða dag prest-
kosningin fer fram er
kosningabarátta hafin.
Morgunblaðið hefur undir
höndum dreifibréf undirritað
af 12 fbúum Nessóknar en bréf
inu hefur verið dreift í öll hús f
sókninni. I bréfinu er þvf lýst
yfir, að þeir sem undir það rita
vilji stuðla að kosningu sr.
Arnar Friðrikssonar „sem boð-
bera hins frjálslynda kristin-
dóms“, enda „hljótum vér að
telja það réttlætismál, að f Nes-
söfnuði skipi frjálslyndur
prestur embætti við hlið prests-
ins, sem þar er fyrir,“ eins og
segir orðrétt f bréfinu. Prestur
Neskirkju er nú sr. Frank
Halldórsson. Af orðalagi dreifi-
bréfsins má ráða, að átökin sem
hafin eru f Nessókn séu f fram-
haldi af þeim deilum innan
kirkjunnar sem fylgdu f kjöl-
far skrifa Skálholtsrektors f
Kirkjuritið og umræðna og
Sr. Guðmundur O. Ólafsson.
Sr. örn Friðríksson.
Orðrétt hljóðar dreifibréfið á
þessa leið:
Af trúmálaumræðum, sem
fram hafa farið í sumar bæði í
fjölmiðlum og manna á meðal,
sýnist ástæða til að ætla, að
mikill hluti safnaðafólks
fslenzku þjóðkirkjunnar að-
hyllist frjálslynda túlkun trú-
mála.
Þessvegna hljótum vér að
telja það réttlætismál, að í Nes-
söfnuði skipi frjálslyndur
prestur embætti við hlið prests-
ins, sem þar er fyrir.
Af því að oss er kunnugt að
séra Örn Friðriksson sóknar-
prestur á Skútustöðum muni
reynast boðberi hins frjáls-
lynda kristindóms, viljum vér
stuðla að kosningu hans í Nes-
prestakalli, þegar þar verður
Framhald á bls. 34
málmblendiverksmiðju á
Grundartanga f Hvalfirði frá mið-
I nætti að kvöldi þriðjudagsins 2.
september nk., hafi samningar
við vinnuveitendur ekki náðst
fyrir þann tfma.
Félögin og samtökin, sem hér
um ræðir, eru: Verkalýðsfélag
Akraness, Verkalýðsfélagið Hörð-
ur f Hvalfirði, Sveinafélag málm-
iðnaðarmanna á Akranesi, Tré-
smiðafélag Akraness, Verka-
mannafélagið Dagsbrún f Reykja-
vfk, Verkamannafélagið Hlff f
Hafnarfirði og Landssamband^
vörubifreiðastjóra. Félagsmenn
Framhald á bls. 34
Bíll velti öðrum
bíl út af vegi
NÆSTA óvenjuleg bílvelta varð
laust eftir kl. 17 á sunnudag í
Biskupstungum, er fólksbifreið,
sem var að fara fram úr annarri
bifreið, rakst á hlið hennar og
velti henni út af veginum. 1 bif-
reiðinni sem valt voru 4 farþegar,
en þeir slösuðust lítið. Þó var ein
kona flutt í sjúkrahús. Bifreiðin
stórskemmdist. Hin bifreiðin,
sem tjóninu olli, hvarf á braut og
er ófundin. Talið er að þar hafi
verið um að ræða ameríska fólks-
bifreið, brúna að neðan, en ljósari
að ofan. Þeir, sem kynnu að hafa
orðið ferða hennar varir, eru
beðnir um að láta lögregluna á
Selfossi vita.