Morgunblaðið - 20.09.1975, Side 1

Morgunblaðið - 20.09.1975, Side 1
24 SÍÐUR OG LESBÓK 304. tbl. 62. árg. LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1975 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Norskir fréttamenn spurðu mikið um landhelgismálið Fjölmennur blaðamannafundur Geirs Hallgrímssonar í Osló Ósló, 19. september. Frá Þorbimi Guðmundssyni ritstjómarfulltrúa Mbl. A FJÖLMENNUM blaðamanna- fundi, sem Geir Hallgrímsson for- sætisráðherra hélt f dag hér í Óslð, snérust spurningar norsku blaðamannanna nær eingöngu um landhelgismálið og út- færsluna f 200 mflur. Svo var einnig f samtali sem hann átti við norska útvarpið og fcjónvarpið. Gerði forsætisráðherra skýra grein fyrir afstöðu tslendinga og ástæðum fyrir þvf að tsland gat ekki beðið með að færa land- helgina út. Bæði tslandingar og Norðmenn væru sammála um að stefna bæri að 200 mflna lögsögu þótt leiðir skildu í aðferðum við að ná þvf marki. í morgun hélt Geir Hallgríms- son áfram viðræðum sínum við Bratteli forsætisráðherra Noregs og hafði nú Jens Evensen haf- réttarmálaráðherra bæst í við- ræðuhópinn. Norðmenn ákváðu á sl. hausti að stefna að útfærslu í 50 mílur nú á þessu ári, en Geir Hallgrfms- son sagði að sér hefði skilist á þeim nú, að þeir væru hættir við það og stefndu þess í stað að 200 mílum. Myndu þeir í því sambandi ræða við 12—15 þjóðir og skýra sjónarmið sín. Þá fyrst táekju þeir ákvörðun um, hvort og þá hvenær af slfkri útfærslu yrði. tslenzku blaðamennirnir sem nú eru f Ósló hittu Jens Evensen að máli í morgun. Kom þar ekkert nýttvfram um stefnu Norðmanna í landhelgismálum. Itrekaði ráð- herrann, að einhliða útfærsla hentaði ekki Norðmönnum, þeir yrðu að fara samningaleiðina. Hún yrði reynd til þrautar áður en nýtt skref yrði stigið. Þá sagði forsætisráðherra Geir Hallgrfmsson, að norsku forystu- mennirnir hefðu skýrt frá því að þeir hefðu falið fulltrúum sínum f Moskvu að lýsa yfir áhyggjum Norðmanna vegna flugskeytaæf- inga Rússa, sem færu fram á svæði, sem Rússar og Norðmenn deildu um á Barentshafi. Hér væri þó ekki um opinber mótmæli að ræða. Framhald á bls. 22 Geir Hallgrfmsson á blaðamannafundinum f Ósló f gær. sfmamynd ap Bandaríkjamenn hefja viðræður um aflatakmarkanir fyrir útlendinga Brúa á bilið fram til 200 mílna útfærslu — ágreiningur stjórnarinnar og þingsins um málið Washington, 19. september AP SNÖRP orðaskipti áttu sér stað í dag á fundi viðskiptamálanefnd- ar bandarfsku öldungadeildar- innar milli formanns hennar, Warrcns Magnussonar og Caryle E. Maws aðstoðarutanríkisráð- herra vegna landhelgismála og er ljóst að djúpur ágreiningur er Verðhrun á gulli Únsan komin í 134 dollara London, 19. september. AP—Reuter GULLVERÐ hélt áfram að hrapa á gullmörkuðum heims í dag og hefur nú verðið lækkað um 25 dollara fyrir hverja únsu á sl. 19 dögum. Sérfræðingar segja að ógerningur sé að spá um hvenær verðið hætti að lækka, en margir eru þeirrar skoðunar að fólk hafi misst trú á gulli. Gullverð við lokun markaða f dag var hið lægsta frá því í júlf 1974, en þá byrjaði verðið að hækka upp úr ÖIIu valdi og náði hámarki, 197 dollarar únsan f desember sl. I kvöld var verðið komið niður f 134 dollara únsan og hafði lækkað um 6 dollara frá þvf f morgun. Verðlækkunin nú hófst er Al- þjóðagjaldeyrissjóðurinn ákvað í ágústlok, að selja 1/6 af gulli sínu, eða um 25 milljón únsur og var verðið þá um 160 dollarar únsan. Salan var fyrsta skrefið í áætlun sjóðsins um aðstoð við þróunarlöndin með því að taka gull út úr peningakerfi heimsins og selja það á markaðsverði til þess að meira raunsæi verði í hlutfalli milli gjaldmiðla þjóð- anna. Áætlar sjóðurinn að losa sig Framhald á bls. 13 milli þingsins og stjórnarinnar um meðferð málsins. Maw kom fyrir nefndina í dag og sagði þá að utanrfkisráðuneytið væri þeirrar skoðunar að einhliða út- færsla bandarísku fiskveiðilög- sögunnar f 200 mflur myndi skapa deilur við aðrar þjóðir og ráðuneytið hvetti eindregið til að Bandarfkjamenn biðu niðnrstöðu hafréttarráðstefnu S.Þ. Warren Magnusson sagði hi.ns vegar, að Bandaríkjamenn yrðu að færa fiskveiðilögsöguna f 200 mílur til að koma í veg fyrir að fiskstofn- um f Atlantshafi og Kyrrahafi yrði eytt. Maw sagði að Bandaríkjastjórn væri enn þeirrar skoðunar, að ein- hliða aðgerðir myndu hafa mjög alvarlegar afleiðingar f för með sér fyrir bandaríska túnfisk- rækju- og laxveiðimenn og eyði- leggja tilraunir stjórnarinnar til að ná samningum fyrir þeirra hönd á hafréttarráðstefnunni og annars staðar. Hann sagði að Bandaríkjastjórn myndi á næstu vikum hefja viðræður um bráða- birgðasamninga við þjóðir um veiðitakmarkanir áður en til 200 mílna útfærslu kæmi. Þær tak- markanir stefndu að því að vernda bandaríska fiskstofna og koma á forréttindum fyrir banda- ríska fiskimenn til að nýta þá. Einnig yrði í viðræðunum stefnt að kvótafyrirkomulagi, sem myndi draga mjög úr aflamagni erlendra veiðiskipa á banda- rískum miðum. Warren Magnusson var mjög á öndverðum meiði við Maw um hafréttarráðstefnuna sem hann sagði að væri kolflækt af ágreiningsmálum og sjómenn gætu ekki borðað samningsupp- köst, „né er hægt að byggja fisk- stofna upp á þeim, og biðlund okkar er mjög takmörkuð af þess- um orsökum.“ Magnusson sagði að NV-Atlantshafsfiskveiði- nefndin hefði ekki rifist um það á fundi sínum í ár hvort stöðva ætti ofveiði, heldur hvort það ætti að halda henni áfram í 5 eða 13 ár. Þeir komust loksins að samkomu- lagi um að leyfa veiðar á 650 þúsund lestum á ári, sem vísinda- menn segja að muni koma í veg fyrir að fiskstofnar á Atlantshafi geti náð eðlilegum styrkleika næstu 10 árin. Bandaríkin verða að færa fiskveiðilögsögu sina ein- hliða út, því að við getum ekki beðið eftir niðurstöðum ráðstefnu sem býður ekki upp á nokkra von um að ákvörðun verði tekin i tima til að vernda fiskstofna.“ Patty Hearst féll grát- andi í faðm foreldra sinna San Francisco 19. september AP—Reuter. — sjá grein á bls. 13 LANGRI ferð bandariska milljónaerfingjans Patriciu Hearst um undirheima Banda- rfkjanna í andrúmslofti byltingar og ofbeldis lauk f gær er banda- Portúgal: Ríkisstjórn tók við völdum í Azevedos gærkvöldi Lissabon, 19. september. AP—Reuter RlKISSTJÓRN Jose Pinheiros de Azevedos aðmfráls sór f kvöld em- bættiseið sinn og er þá lokið þriggja vikna stjórnarkreppu, sem upp kom f kjölfar herðferðar gegn kommúnistum f landinu er lauk með þvf að Goncalves hers- höfðingi neyddist til að segja af sér forsætisráðherraembættinu. Hin nýja stjórn er skipuð 15 ráð- herrum og segir það sfna sögu að kommúnistar eiga aðeins einn ráðherra, de Oliveira, sem gegnir embætti umhverfismála og opin- berra framkvæmda. Jafnaðar- menn eiga 4 ráðherra, land- búnaðar- og fiskimálaráðherra, Lopes Cardoso, samgöngu- og fjarskiptamálaráðherra, Walter Rosa, fjármálaráðherra, Salagado Zenha og utanríkisviðskiptaráð- herra Jorge Campinos. Alþýðu- demókratar eiga tvo ráðherra, félagsmála- Jorge Borges og við- skiptaráðherra Joaquim Mota. Aðrir ráðherrar eru Antunes, utanríkisráðherra, Almeida Costa herforingi, innanríkisráðherra, upplýsingamálaráðherra er Antonio Santos (óháður), verka- málaráðherra er Tomas Rosa her- foringi, iðnaðar- og tæknimálaráð- herra DoCarmo (óháður) mennta mála- og vísindaráðherra er Vitor Alves herforingi og Pinheiro Farinha Jóháður) er dómsmála- ráðherra. Þetta er 6. stjórnin í Portúgal sem fer með völd frá því að her- inn gerði byltinguna í landinu á sl. ári. Stefnuskrá stjórnarinnar og ráðherraskipting er mikið áfall fyrir kommúnista í landinu, en auk borgaralegu ráðherranna eru þeir Antunes utanríkisráðherra og Alves menntamálaráðherra báðir úr hópi hinna 9 hægfara herforingja, sem höfðu forystu í baráttunni gegn Goncalves for- sætisráðherra og stuðningsmönn- um hans úr hópi kommúnista. Við eiðtökuna lýsti Azevedos forsætisráðherra því yfir að stjórn sin væri mynduð til að bjarga portúgölsku þjóðinni og hét því að hún myndi þegar hefj- ast handa við að eyða þjóðfélags- legum klofningi í landinu, rétta við efnahagslífið og tryggja að lög og réttur verði virt f landinu. Stjórnin mun í utanríkismálum hallast að Vesturlöndum og lýst hefur verið áframahldandi stuðn- ingi við NATO. Antunes utanrík- isráðherra hefur einnig lýst því yfir að framtíð Portúgals sé tengd V-Evrópu. rfskir alrfkislögreglumenn hand- tóku hana og 2 aðra félaga f Sym- boniska frelsishernum f San Francisco eftir 19 mánaða elt- ingaleik. I dag heimsóttu foreldr- ar Patriciu blaðakóngurinn Randolph Hearst og Catherine kona hans, hana í fangelsið og féll hún grátandi í faðm þeirra og sagðist vera tilbúin til að koma heim. Voru þau hjónin djúpt snortin er þau ræddu við fréttamenn að heimsókninni lokinni. Randolph Hearst sagði að endurfundirnir hefðu verið mjög gleðilegir, þau hefðu öll tárast og Patty hefði sagst vilja koma heim. Aðspurður hvort hann væri reiðubúinn að hætta því að setja 500 þúsund dollara tryggingu til að fá dóttur ■V’na heim meðan beðið er eftir réttarhöldunum svaraði Hearst: „Það held ég. Það er okkur mikill léttir að þessu er lokið og hún er ómeidd. Ég hafði alltaf trú á því að hún myndi koma fram. Ég á ekki von á þvi að mikið gerist, hún var fórnarlamb mannræn- ingja og því getur enginn horft framhjá" Ákæruatriðin á hendur Patty Hearst og félögum hennar eru í 19 atriðum og hún á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi ef hún verður sek fundin. Meðal ákæruatrið- anna er vopnað bankarán.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.