Morgunblaðið - 20.09.1975, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1975
23
Minning:
Hallgrímur Pétursson
skósmíðameistari
Hallgrímur Pétursson skó-
smíðameistari, sem lézt að heimili
sínu miðvikudaginn 10. sept. s.l.
verður jarðsettur f dag frá kapell-
unni I Fossvogi.
Hallgrímur var f. 4. desember
1916 að Ártúni á Hellissandi. For-
eldrar hans voru þau Guðrún Þór-
arinsdóttir frá Saxhóli í Breiða-
víkurhreppi og Pétur Guðmunds-
son frá Brennu á Hellissandi.
Börn þeirra hjóna voru níu, átta
drengir og ein stúlka. Hallgrímur
var þriðju elzti af systkinunum.
Hallgrímur er annar úr systkina-
hópnum, sem fellur frá en bróðir
hans Ágúst fórst af slysförum fyr-
ir nokkrum árum.
Hallgrímur var alinn upp í glað-
værum hópi á mannmörgu heim-
ili. Fjölskyldan að Artúni var stór
eins og barnahópurinn gefur til
kynna og þurfti því mikla út-
sjónarsemi til þess að afla náegjan
lega til heimilisins, enda var Pét-
ur, faðir Hallgríms, sérstaklega
dugmikill sjósóknari. Hann var
formaður á eigin báti og var ávallt
heppinn og góður aflamaður. Þá
var siður að drýgja tekjur sfnar
einnig með búskap og það gerði
hann af framsýni. Guðrún kona
hans var manni sínum samhent í
því, að barnahópinn skorti ekk-
ert. Hallgrimur heitinn ólst upp f
heimahúsum við algeng störf eins
og tftt var um unglinga á þeim
dögum. Arið 1929 varð hann fyrir
því óhappi að veikjast það illa í
fæti, að hann varflutturá spítala
suður til Reykjavíkur. I þessum
veikindum átti hann lengi og
segja má að hann hafi aldrei náð
sér til fulls eftir þetta.
1938 fluttist hann til Reykjavfk-
ur og byrjaði nám i Verzlunar-
skólanum. Sennilega hefur fjár-
hagurinn ekki leyft áframhald-
andi nám við Verzlunarskólann,
því 1939 fór hann í iðnnám hjá
Friðjóni Sigurðssyni skósmfða-
meistara. Hallgrímur lauk námi
þar og starfaði hjá Friðjóni um 14
ára skeið, en siðar rak hann sitt
eigið skósmfðaverkstæði.
Á námsárum sínum hjá Frið-
jóni kynntist hann eftirlifandi
konu sinni Kristínu Aðalsteins-
dóttur. Það var hans mikla gæfa í
lífinu enda dáði og virti Hallgrfm-
ur konu sína mjög.
Kristín missti föður sinn af slys-
förum, þegar hún var á unga aldri
og ólst hún upp hjá móður sinni
Helgu, systur Friðjóns Sigurðs-
sonar, en hann reyndist þeim
mæðgum hin mesta hjálparhella.
Þau Kristín og Hallgrimur eign-
uðust fjögur börn. Þau eru Aðal-
steinn vélstjóri giftur Sigurborgu
Ragnarsdóttur, Friðjón verzlun-
armaður giftur Ólöfu Einarsdótt-
ur, Pétur vélstjóri, búsettur í
Kanada, giftur sænskri konu
Lenu Anderson, Helga ógift í for-
eldrahúsum. öll eru þau vel gerð
og mikið dugnaðarfólk eins og
þau eiga ætt til.
Ég sem skrifa þessar línur átti
því láni að fagna að eiga Hallgrím
að vini allt frá unga aldri.
Við störfuðum saman að félags-
málum i Ungmennafélaginu
Reyni á Sandi og seinna hér í
ReykjdVík á vegum Breiðfirðinga-
félagsins.
Margar góðar minningar á ég
frá þessum árum. Þegar ég læt
hugann reika til baka þá man ég
Halla — eins og við félagarnir
kölluðum hann alltaf — þar sem
hann spilaði fyrir dansi, en það
gerði hann iðulega á samkomum
hjá okkur fyrir vestan. Hann var
söngmaður góður og var alltaf
þátttakandi í söngkór félagsins á
Sandi og hér fyrir sunnan söng
hann í kór Breiðfirðingafélagsins
um tíma.
Það má með sanni segja um
Halla vin minn, að þótt hann legði
kannski ekki mikið upp úr því að
safna veraldlegum auði eins og
svo margir keppa að nú á dögum,
þá náði hann því marki að eignast
sitt eigið húsnæði að Laugarás-
vegi 29. Kristín kona hans var
honum þá eins og ævinlega mikil
stoð með dugnaði sfnum.
Garðurinn í kringum hús þeirra
á Laugarásveginum var sérstak-
lega snyrtilegur enda unnu þau
hjónin mikið við að rækta blóm og
runna sem var þeim báðum til
mjög mikillar ánægju. Þeim var
eiginlegt að vilja fegra umhverfi
sitt.
Síðustu þrjú árin átti hann við
erfiðan sjúkdóm að stríða. Þótt
erfiðleikarnir væru miklir á þess-
um árum þá heyrði ég hann aldrei
kvarta né heldur að hann væri að
vorkenna sjálfum sér.
Með Hallgrími er horfinn af
sjónarsviðinu góður drengur sem
við hjónin viljum að lokum þakka
margar ánægjulegar stundir.
Við sendum konu hans og börn-
um og öðrum aðstandendum inni-
legar samúðarkveðjur.
Jóh. Olafsson.
’ mundsson, hreppsstjóri, og Ingi-
björg Grfmsdóttir, Hann bjó á
Syðri-Gunnólfsá alla tíð með
þeirri undantekningu að um
tveggja ára skeið dvaldist hann í
Reykjavik við afgreiðslustörf um
1918 hjá Helga Zoéga kaupmanni.
Árni kom víða við i útgerð á
þeim árum, sem sá atvinnuvegur,
útgerð og sjómennska var að
komast á legg í Ólafsfirði. Hann
gerði út í félagi við aðra m.a.
Gunnar á Búðarhóli eða á eigin
spýtur ýmsa báta af algengustu
stærð f Ólafsfirði á fyrri tugum
aldarinnar og var hann m.a. síðar
meðeigandi i 50 tonna skipi, sem
þá var fríðasti skipakostur i Ólafs-
Arni Jónsson útvegs-
bóndi - Minningarorð
Fæddur 15. febrúar 1888.
Dáinn 1. september 1975.
Skammt gerist nú stórra högga í
milli hjá manninum með ljáinn á
Kleifum í Ólafsfirði. Tveir aldnir
höfðingsmenn og forvígismenn
hafa þar fallið í valinn með aðeins
nokkurra daga millibili. Hinn
síðari þeirra, Arni Jónsson,
útvegsbóndi frá Syðri-Gunn-
ólfsá, andaðist hinn 1. sept.
s.l. Margir munu sakna
vinar og velgjörðamanns
þar sem Árni var og þeir
Ólafsfirðingar, sem þekkja til
fyrri tfðar, munu sakna forvígis-
manns um flest velferðar- og
framfaramál byggðarlagsins. Við
sem ung sáum álengdar Árna og
Sigurð Baldvinsson ryðja braut til
meiri hagsældar og betra mann-
lífs í Ólafsfirði og skynjuðum
síðar hvað erfiðleikarnir, sem
þeir stóðu andspænis voru miklir
— við finnum nú að með þeim og
fleiri samtímamönnum þeirra er
að kveðja heill heimur. Veröld
þeirra, sem slitu barnsskónum
upp úr aldamótunum og bjuggu f
haginn fyrir okkur — fólk sem
þekkti hvorki skóla eða því síður
uppmælingarkaup, en skilaði
þeim mun meiri og betri arfi til
nýrrar kynslóðar — þess heimur
er að kveðja.
Árni Jónsson var fæddur á
Syðri-Gunnólfsá 15. febr. 1888.
Foreldrar hans voru Jón Guð-
Eiginmaður minn. +
ÁRNI HINRIKSSON,
framkvæmdastjóri.
Bröttubrekku 5, Kópavogi
andaðist 1 London að morgni 1 8. þ.m.
Helga Henrýsdóttir.
t
Eiginmaður minn
STURLAUGUR SIGURÐSSON.
skipasmiður,
Hringbraut 86
lést I Borgarspitalanum þann 18. september.
Hallfriður Guðmundsdóttir.
t
Systir og fóstursystir okkar,
JÓNÍNA GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR,
Bræðraborgarstig 4.
andaðist I Landakotsspítalanum 18. september
Ina Wessman,
Dagný Wessman.
t
Bróðir okkar
KRISTMUNDUR SIGURBJARTUR ÞORLÁKSSON,
Snorrabraut 48,
verður jarðsunginn frá Hvammstangakirkju miðvikudaginn 24 sept kl
14,
Soffia Þorláksdóttir, Ásta Þorláksdóttir,
Sigurbjörg Þorláksdóttir.
firði. Samtímis þessu bjó hann
búi sínu á Syðri-Á og sinnti einnig
félagsmálum af fádæma dugnaði.
Hann varð hreppsnefndarmaður í
Ólafsfirði þegar 1919 og sýslu-
nefndarmaður frá 1934 til 1944.
Árni var mikill baráttumaður fyr-
ir framfaramálum á Kleifum í
Ólafsfirði. Hann var í forystu um
virkjun Gunnólfsár árið 1933
ásamt Finni og Antoni frá Ytri-Á,
Sigurði Baldvinssyni, Steingrími
og Gunnari á Búðarhóli, en þetta
var ákaflega merkilegt framtak á
þeim tfma, enda nutu þeir fram-
taksmenn aðstoðar Sveinbjörns
Jónssonar (f Ofnasmiðjunni) um
tæknileg atriði. Framangreindir
menn voru einnig i fylkingar-
brjósti um lagningu sfma að Kleif-
um, gerð lendingarbóta þar og
vegabóta. Allir þessir menn voru
fullhugar í framfaramálum Kleif-
anna á sínum tíma, í sérstæðu
samfélagi harðduglegs fólks, sem
býr um 3 til 4 kílómetra frá hin-
um eiginlega Ólafsfjaðarkaupstað
handan fjarðarins. Þvf samfélagi
helgaði Árni alla krafta sina, og
ég minnist þess að þaðan, sem ég
ólst upp horfðum við krakkarnir
úr myrkrinu, þegar slökkt var á
ljósavélinni, á upptendraða
Kleifabæina i rafmagnsljósum,
löngu áður en þorpið fékk raf-
magn frá vatnsaflsstöð. Þannig
sköruðu þessir menn fram úr á
sinni tíð, sem byggðu Kleifarnar,
og vörðuðu veginn fyrir öðrum
Ólafsfirðingum. Þar var Árni í
fyrirrúmi, óþreytandi, atorku-
maður, sem aldrei lá á liði sínu.
Kvæntur var Árni Ólínu Sig-
valdadóttur og áttu þau þrjá syni:
Jón, sem býr nú á Syðri-Á í Ólafs-
firði, kvæntan Ingibjörgu
Guðmundsdóttur frá Berghyl f
Fljótum, Helga Sigvalda, sem
drukknaði ungur að árum þá heit-
bundinn Guðrúnu Finnsdóttur,
og Inga Viðar, kennara í Reykja-
vík, kvæntan Katrfnu Sigurðar-
dóttur. Hjónaband þeirra Árna og
Ólinu var með eindæmum gott og
notalegt þótti vinum þeirra að
heimsækja þau og njóa hlýju og
alíslenzkra hressinga sem ætíð
var upp á að bjóða á Syðri-Á.
Árni á Syðri-A var eldhugi f
anda. Hann var ekki stór vexti en
andleg reisn hans var slfk að hver
sem kynntist honum og naut
návistar við hann hlaut að hrffast
af. Hann var með snjöllustu
mælskumönnum, sem ég hef
heyrt um dagana. Málflutningur
hans var svo þrunginn lífskrafti,
sannfæringu, gáska og orðsnilli
— allt í senn — að unun var á að
hlýða. Hann var hinn mesti mála-
fylgjumaður, þó talinn varfærinn
og jafnvel fhaldssamur, en samt í
raun ekki í öðrum skilningi en að
hann treysti mest á framtak hvers
og eins einstaklings og f því efni
gerði hann mestar kröfur til sjálfs
sín. Hann var einstaklega greið-
vikinn eins og hann raunar átti
kyn til, en faðir hans Jón Guð-
mundsson fyrrum hreppstjóri
varð frægur fyrir þá sömu eigin-
leika og er hann talinn hafa
bjargað Ólafsfirðingum frá svelti
fyrir aldamótin að því er munn-
mæli herma með einstökum og
sögulegum hætti.
Mikil og lærdómsrík er sú
reynsla að fá að kynnast manni
eins og Árna á Syðri-A, kynnast
viðhorfum hans til lífsins, til
Framhald á bls. 22
+
Þökkum ituðsýnda samúð og hlýhug við andlát og jarðarför móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu.
INGIBJARGAR GUÐMUNDSDÓTTUR
frá MiShrauni.
Böm, tengdabörn, barnaböm og barnabarnabörn.
+ Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður og ömmu
LAUFEYJAR EINARSDÓTTUR
Björg Finnbogadóttir Alexander Stefánsson
Þorbjörn Finnbogason Þórdls Karelsdóttir
Danival Finnbogason Guðný Ólafsdóttir
Hrafnkell Finnbogason og barnaböm.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
eiginmanns míns, föður, sonar og bróður.
HERMANNS HERMANNSSONAR
forstjóra
Unnur Jónasdóttir
Gunnfrfður Hermannsdóttir
Ragnheiður Hermannsdóttir
Hermann G. Hermannsson og börn.
+ Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
sonar míns, föður, bróður, mágs og frænda.
JÓNS JÓNSSONAR,
f ramkvæmdastjóra.
Hafnarfirði.
Anna G. Jónsdóttir,
Gísli Þór Jónsson,
Hallgerður Jónsdóttir, Örn Ingólfsson,
Jón Arnarson, Ingólfur Arnarson,
Anna Vala Arnardóttir.