Morgunblaðið - 20.09.1975, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 20.09.1975, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1975 Gunnar S. Björnsson: Byggingariðnaður og þróunarskýrsla Rannsóknarráðsins Þegar skýrsla sú, sem Rannsókn- arráð rlkisins hafði forgöngu um að gerð væri, kom út nú um siðustu mánaðamót, tel ég að gert hafi verið gott átak I málefnum byggingarstarf- semi. Það hlýtur að hafa vera mikil lyfti- stöng fyrir jafnstóran atvinnuveg og byggingarstarfsemin er að fá fram á einum stað ábendingar um alla meg- inþaetti hennar og það sem henni er tengt á einhvern hátt. Ekki getur farið hjá þvi að F slíkri skýrslu komi fram ýmsar ádeilur á þau kerfi sem viðgengist hafa und- anfarin ár, enda væri annað furðu- legt i því þjóðfélagi sem við búum við. Þeir sem lesa þessa skýrslu og hafa jafnframt einhverja þekkingu á málinu sjá fljótt að viða þarf að athuga okkar skipulagningu á bygg- ingarstarfsemi ef vel á að fara. Það sem þó vekur furðu mlna er, hversu ranga og óljósa mynd nefndarmenn hafa gefið af skýrslunni i blaðaskrif- um og viðtölum. Þar hefur fátt ann- að komist að en ádeilur á meistara- kerfið og iðnaðarmenn i heild. MEISTARAKERFIÐ Þótt vafalaust megi margt finna að byggingarmeisturum og iðnaðar- mönnum almennt, þá held ég að það sem ábótavant sé I byggingariðnaði sé langtum viðfeðmara og eigi sér rætur á mörgum sviðum sem tengd eru þessari starfsemi, enda kemur það glöggt i Ijós i skýrslunni. Ef litið er á ýmsa þætti þess sem fram er sett í skýrslu þessari má segja að þar sé fátt nýtt að finna, frá þvi sem rætt hefur verið um á und- anförnum árum. Nefndin virðist hafa tekið upp slagorð iðnnema um afnám meist- arakerfisins, þar sem það kerfi er að hennar dómi höfuðmeinsemd bygg- ingarstarfsemi i dag. Þeir telja að endurskoðun löggjaf- ar um iðju og iðnað geti opnað Gunnar S. Björnsson. möguleika til fjöldaframleiðslu og iðnvæðingar. Eflaust getur rýmkum þeirrar lög- gjafar átt þar einhvern hlut að máli svo f ramarlega að sveinasamtök sýni þar réttan skilning á málum. En eins og vinnulöggjöfin er uppbyggð i dag geta launþegasamtök verið erfiður þröskuldur hvað snertir allar nýjung- ar. Sú skoðun nefndarinnar að ekki sé hægt að koma við fjöldafram- leiðslu vegna laganna er algjör mis- skilningur, má i þvi sambandi benda á mörg húsgagnaverkstæði sem nýta heimild laganna um verk- smiðjurekstur. Ekki virðast nefndarmenn hafa kynnt sér til fullnustu þær kröfur og Vinsamlega birtið eftirfarandi smáauglýsingu í Morgunblaðinu þann:......... i l I l I I I I I I_______________|__|__|___|__|___|__|__|__1__| Fyrirsöan 150 1 I I I I I I I I I I___I__I__I___I__I---1--1--1__I__I___I__I--1--1--1---1 300 I I I I I I I I I I I I I I___I__I__I___I__I__I__I___I__I__I__I__I___I 450 I I 1 I I I I I I 1 I I..................................I I I I_________|__|__|___|__1 600 I I I I 1 I I I I__I I I__I__\___I__I___J__I__I__1__I___I__I__I__I__!___l 750 I I I I__I___1__I___1__I__1__I___I__I__I___I__I___I__\__I__I__I___I__I__\__I___I__I 900 I I I I I I I 1 I I I___I__I__I___I__I___I__I I I__I___I__I__\__\___I__I 1050 I 1 ) I J. .1. 1 .1 1 .1 ) 1 Hver lína kostar kr. 150 '&^K'A JJL/Æk. Meðfylgjandi er greiðsla kr. 1200 l l l l—l JJUCA JJ/P- j£Ú£>, ,/, S/f/í/A /y/ifl-y !/\S\/i/1 i£\//TA fi\6\0\0\6\. i| I..1.J I L 1. J 1 I J 1 I I 1 1 L 1 -1- SkrifiS meS prentstöf- um og setjið aSeins 1 staf í hvern reit. Áriðandi er að nafn, heimili og sími fylgi. i i i i i i ' i i________________________________________________________________________________' ' ■ i ■ ■ i i i i i i ■ i ■ i ■ i Nafn: Heimili: .................................... Sími: Auglýsingunni er veitt móttaka á eftirtöldum stöðum: REYKJAVÍK: Kjötmiðstöðin, Laugalæk 2, Sláturfélag Suðurlands, Háaleitisbraut 68 Kjötbúð Suðurvers, Stigahlíð 45—47, Hólagarður, Lóuhólum 2—6 Sláturfélag Suðurlands, Álfheimum 74, Árbæjarkjör, Rofabæ 9 HAFNARFJORÐUR: Ljósmynda og gjafavörur, Reykjavíkurvegi 64 Verzlun Þórðar Þórðarsonar, Suðurgötu 36, KÓPAVOGUR: Ásgeirsbúð, Hjallabrekku 2, Borgarbúðin, Hófgerði 30. Eða senda í pósti ásamt greiðslu til Smáauglýsinga deildar Morgunblaðsins, Aðalstræti 6, Reykjavík. skoðanir sem iðnmeistarar hafa sett fram á undanförnum árum, um að iðnnám fari að mestu fram i skólum, um aukna menntun til handa iðn- meisturunum og að slik mennt- un t.d. Meistaraskóli verði gerð að skilyrði fyrir veitingu meistarabréfs. Ég held að slik menntun myndi gera menn hæfari til að gegna hlut- verki sínu, jafnt sem almenna meist- ara og byggingarstjóra. ÁKVÆÐISVINNA OG SAMNINGAR. Varðandi seinvirka tæknivæðingu byggingarfyrirtækja tel ég að ekki sé við byggingarmenn eina að sakast, þótt ákvæðisvinna eigi þar vafalaust einhverja sök, heldur vegi þar þyngst á metunum ýmsir aðrir þættir s.s. smæð verkefna, lóða- og skipulags- mál og erfiðleikar fyrirtækja með fjármagnsfyrirgreiðslu, ásamt þeim reglum sem gilt hafa fyrir álagningu á vinnu þessara greina, þannig að fyrirtæki hafa ekki getað byggt sig umm án utanaðkomandi aðstoðar. Ákvæðisvinnutaxtar iðnaðar- manna eru talsvert gagnrýndir I skýrslunni, eflaust á sú gagnrýni talsverðan rétt á sér, þegar um er að ræða nýjungar og fjöldaframleiðslu. Aftur á móti höfum við mörg dæmi þess að ákvæðisvinna kemur hag- stæðar út fyrir verkkaupa heldur en timavinna og væri miður ef ekki væri hægt að halda við þvi vinnuformi á heilbrigðan hátt. Þess má geta að allar breytingar á ákvæðisvinnutöxt- um eru samningamál og þvi er við ramman reip að draga varðandi lag- færingar, þarsem launþegasamtökin eru annars vegar og oft ekki of mikill skilningur á þeim nýjungum sem til koma. Hvað kjarasamningum iðnaðar- manna viðkemur þá má geta þess að þeir fara fram á sama grundvelli og aðrir samningar, undir yfirstjórn Vinnuveitendasambands íslands og Alþýðusambands íslands og eru þvi háðir sömu forsendum og aðrir samningar. SKIPULAGS- OG LÓÐAMÁL í skýrslunni er talsvert minnst á stöðlun eininga og húshluta. Þar er ég sammála nefndarmönnum um að gera þurfti stórátak. Mætti eflaust lækka byggingarkostnað talsvert með skipulögðum aðgerðum á því sviði. Jafnframt þarf að efla skilning almennings á hagkvæmni slikrar stöðlunar. Einnig má nefna að svo til útilokað er að beita meiri verk- smiðjuframleiðslu nema stöðlun komi til Kafli sá er fjallar um skipu- lags- og lóðamál er svo til samhljóða áliti sem fram kom á aðalfundi Meistarasambands byggingarmanna á s.l. vori. Sá seinagangur og skipu- lagsleysi sem rikt hefur i lóðaúthlut- unum hjá allflestum sveitarfélögum hefur gert byggingaraðilum svo til útilokað að gera raunhæfar rekstrar- áætlanir fram i tímann og þ.a.l. dreg- ið úr áhuga fyrirtækja á tæknivæð- ingu þar sem ekki er hægt að sjá fyrir hvaða verkefni verða fyrir hendi á næstu árum. Eðlilegra væri að byggingarfyrir- tækjum væri úthlutað skipulega á- Framhald á bls. 21 Fimleikar ÍR Æfingar hefjast í íþróttahúsi Breiðholts- skóla sem hér segir: Flokkur 7 — 9 ára: Laugardag 20. sept. kl. 13.50. Flokkur 10—12 ára: laugardag 20. sept. kl. 1 5.00. Stúlkur (1. fl.) Þriðjudag 23. sept. kl. 18.50. Kennari Olga B. Magnúsdóttir. Upplýsingar í síma 74364. Stjórnin. 26200 Seljendur lesið þetta Við erum með á skrá hjá okkur kaupendur að flest öllum stærðum fasteigna. Látið skrá eign yðar hjá okkur. Verðmetum íbúðir samdægurs. Hafið samband STRAX í DAG. HELGARSfMINN ER 27925. FASTEIGMALM MOR»mLAD$Hl]SIAIIi Öskar Kristjánsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.