Morgunblaðið - 20.09.1975, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 20.09.1975, Blaðsíða 24
IWIHURÐIR Cæði i fyrirrúmi SIGURÐUR ELÍASSON HE ÍS5AVOAUÐBREKKU 52, KÓPAVOGI SÍMI 41380 jFHoujuubTflíiiö LAUGARDAGUR 20. SEP.TEMBER 1975 Síldarverðið of hátt segja kaupendur: Tekið á móti síld í eina viku á Höfn EINS OG Morgunblaðið sagði frá f gærmorgun þá er nýja sfidar- verðið nú 40 kr. kg af sfld stærri en 32 em og fyrir sfld styttri en 32 cm er það 26 kr. Var þetta sam- þykkt á fundi Verðlagsráðsins f fyrrinótt með atkvæðum sfidar- seljenda og oddamanns, gegn at- kvæðum kaupenda. Ennfremur er gert ráð fyrir að verðið sé uppsegjanlegt frá og með 15. október og sfðar með viku fyrir- vara. Þegar verðákvörðunin var tek- in, lá fyrir, að sjávarútvegsráð- herra myndi beita sér fyrir því, að við greiðslu útflutningsgjalds af saltsíld verði heimilt að draga frá fob.-verðmæti kr. 2.500 krónur vegna umbúðakostnaðar og enn- fremur að beitt verði heimild 4. mgr. ákvæði til bráðabirgða í lö^- um nr. 55 frá 27. mai 1975 um almennt 6% útflutningsgjald skv. lögum nr. 19/1975 verði endur- greitt vegna saltsíldarframleiðslu á árinu 1975. Morgunblaðið hafði samband við Hermann Hansson hjá Söltun- arstöðinni á Höfn í Hornafirði i gær og spurði hann hvort byrjað væri að salta á ný þar. „Við ákváðum á fundi í dag,“ sagði Hermann, „að kaupa síld aðeins f eina viku til viðbótar, því með þessari verðlagningu hefur áhættunni af þessari verkun al- Framhald á bls. 13 Meðalskiptaverð skuttogaranna: Tæpum 5 kr. hærra hjá minni togurunum LANDSSAMBAND fslenskra út- vegsmanna hefur nú sent frá sér skýrslu um aflamagn, aflaverð- mæti og úthaldsdaga togara frá 1. janúar s.l. til 15. september s.l. Þar kemur fram, að úthaldsdagar stóru skuttogaranna 18 að tölu voru orðnir 2.396 frá áramótum og heildarafli þeirra er orðinn 28.574 tonn. Meðalskiptaverð pr. kg. er kr. 26.23, en heildarskipta- verðmæti kr. 749.525.613. Meðal- afli pr. úthaldsdag er 11.93 tonn og meðalskiptaverð pr. úthalds- dag er 312.823 krónur. — Minni skuttogararnir eru orðnir 40 tals- ins og frá áramótum eru úthalds- dagar þeirra orðnir 7.931. afla- magn þeirra samanlagt er 75.070 tonn og skiptaverðmætið 2.338.230.937 kr. Meðalskiptaverð þeirra er kr. 31.15 pr. kg sem er nokkru hærra en hjá stóru skut- togurunum, en meðalafli pr. út- haldsdag, er 9.5 tonn og meðal- skiptaverðmæti pr. úthaldsdag 294.821 króna. Síðutogararnir eru aðeins 5 eft- ir og úthaldsdagar þeirra voru orðnir 619 þann 15. september. Aflamagnið var þá orðið 5.129 tonn og skiptaverðmætið kr. 123.424.126 kr. Meðalskiptaverð- mætið pr. kg. er kr. 24.06 og maðalafli pr. úthaldsdag 8.3 tonn, en meðalskiptaverð pr. úthalds- dag er 199.392 kr. 1 þessari aflaskýrslu Landssam- bands íslenskra útvegsmanna seg- ir að tilgangur þessarar skýrslu sé ekki að gera samanburð á heildar- aflamagni né heildarverðmæti einstakra togara. Miklu fremur sé skýrslan gerð til að sýna meðal- tölur hvers togara og þá raun- tekjur hvers skips, en til þess að sjá sanna mynd af afkomu hvers skips þyrftu einnig helztu gjalda- Iiðir hvers skips að koma fram, en svo sé ekki. Af stóru skuttogurunum er Ögri RE 72 með hæsta meðal- skiptaverð pr. úthaldsdag eða kr. 410.766, þá kemur Ingólfur Arnarson RE 210 með 362.473 kr. og Sléttbakur EA 304 er með 316.444 kr. Ef meðalafli pr. út- Framhald á bls. 13 RÉTTIR — Þessa fjöllum og til rétta. rétt s.l. fimmtudag þúsund fjár. Ljósm. dagana koma stórir hópar fjár af Þessi mynd var tekin í Hrunamanna- en þar voru þá réttuð milli 10 og 12 Mbl. t.g. Fjögurra ára dreng- ur lézt í um- ferðarslysi BANASLYS varð á Reykjanes- braut gegnt Alfaskeiði f Hafnar- firði um klukkan 11 f gærmorg- un. Fjögurra ára drengur varð fyrir bifreið og er talið að hann hafi látizt nær samstundis. Nafn litla drengsins, sem var úr Hafnarfirði, verður ekki birt að svo stöddu. Slysið gerðist með þeim hætti, að Volkswagenbifreið ók suður Reykjanesbraut. Þegar hún var á móts við hús númer 70 við Álfa- skeið varð litli drengurinn fyrir bílnum. Ber bílstjórinn því við, að drengurinn hafi skyndilega kom- ið hlaupandi út á veginn úr skjóli við stóran malarbing sem er vest- anvert við veginn vegna hita- veituframkvæmda. Kvaðst hann ekki hafa orðið drengsins var fyrr en hann skall framan á bifreið- inni. Var höggið mjög mikið og er talið að drengurinn hafi látizt samstundis. Töluverðar skemmd- ir urðu á bílnum við höggið. Ráð- stafanir voru strax gerðar til að koma drengnum á slysadeild Borgarsjúkrahússins en hann var látinn þegar komið var með hann þangað. Engin vitni hafa gefið sig fram að slysinu, og eru það tilmæli rannsóknarlögreglunnar í Hafn- arfirði að vitni gefi sig fram ef einhver eru. Gjaldeyrisstaðan 1. september: Rýrnunin í ágúst aðeins 10,3% rýrnunarinnar 1 fyrra GJALDEYRISSTAÐAN var í ágústlok, að því er Seðlabanki íslands upplýs- ir, neikvæð um 2.216 millj- ónir króna og hafði hún versnað um 222 milljónir króna í ágústmánuði. Rýrn- un gjaldeyrisstöðunnar f ágúst nú er þó aðeins 10,3% af þeirri rýrnun, sem var í ágústmánuði í fyrra, en þá versnaði gjald- eyrisstaðan um hvorki meira né minna en 2.148 milljónir króna í þessum eina mánuði. Norræna þýðingarmiðstöðin: Hefur veitt styrk til þýðinga 5 ísl. bóka Islendingar hafa ekki enn sótt um þá fjárupphæð sem þeir eiga kost á til þýðinga erlendra bóka ISLENZK bókaforlög sóttu ekki um alla þá upphæð sem þau eiga kost á hjá Norrænu þýðingarmiðstöðinni til þýð- inga á erlendum bókum yfir á fslenzku, en þar sem umsóknar- fresturinn var framlengdur til septemberloka er möguleiki á að það breytist. Þýðingarmiðstöðin sem út- hlutar nú I fyrsta sinn hefur veitt styrki til þýðinga og út- gáfu á 5 bókum íslenzkra höf- unda og nokkrar bfða ákvörð- unar sfðari úthlutunar á þessu ári. £ð frumkvæði forystumanna íslenzkra rithöfunda var fyrir 3—4 árum hafizt handa um það innan Norðurlandaráðs að koma Norrænu þýðingarmið- stöðinni á laggirnar eftir að til- laga þar að lútandi frá Matthí- asi Jóhannessen og Indriða G. Þorsteinssyni hafði verið sam- þykkt á Rithöfundaþingi. Á þessu ári úthlutar þýðingarmið- stöðin í fyrsta sinn styrkjum til gagnkvæmra þýðinga á bókum innan Norðurlandanna. Einar Bragi rithöfundur var i nefnd er lagði drög að reglum fyrir Þýðingarmiðstöðina og hvert málsvæði innan Norðurland- anna á fulltrúa í úthlutunar- nefnd. Fulltrúi Islands er Sveinn Skorri Höskuldsson. Ákveðið var að hafin yrði fjögurra ára tilraunastarfsemi til þess að Sjá hvernig fyrir- komulagið gæfist. Fjárveiting til hvers lands er til þess að þýða verk úr öðrum málum yfir á heimamálið. Þeir peningar sem ísland getur fengið I út- hlutun eiga þannig að renna til þess að þýða verk annarra Norðurlandamála yfir á ís- lenzku. Á þessu ári er ákveðið að úthluta 650 þús. kr. dönsk- um á vegum Þýðingarmið- stöðvarinnar og skiptist það þannig að Grænlendingar og Samar geta fengið 6% hvor af upphæðinni eða 39 þús. dansk- ar, Islendingar og Færeýingar geta fengið 9% hvor eða 58.500 kr. danskar, Danmörk, Noregur og Svíþjóð geta fengið 17% eða 110,500 kr. danskar og Finnar geta fengið 19% út á bæði málin í landinu, eða 123,500 kr.d. 1 samtali við Svein Skorra Höskuldsson sagði hann að styrkurinn væri veittur bóka- forlögum og það væri því bóka- útgefenda í hinum ýmsu lönd- um að sækja um styrkinn. Styrkupphæðin miðast við þýð- ingarlaun, en þó er unnt að veita hærri upphæðir á sérstak- ar útgáfur, t.d. sérlega skreytt verk og fjárveitingin miðast við verk sem eru ókomin út á það mál sem þýða á til. Úthlutunarnefnd kom fyrst saman um miðjan júní og þá var veittur styrkur til margra bóka, en frestað var að taka ákvörðun um aðrar. „Meðal annars," sagði Sveinn Skorri, „var frestað samkv. ósk fær- eyzka fulltrúans að taka Framhaid á bls. 12. Allar þessar tölur sem hér er um rætt eru sambærilegar, þ.e. miðað við gengisskráningu í ágústlok 1975. Frá áramótum og til ágústloka hafði gjaldeyrisstað- an versnað um 4.545 milljónir króna eða að jafnaði um 568 millj- ónir á mánuði. Sambærilegar töl- ur frá í fyrra, og þá á ágústloka- gengi 1975, eru 9.198 milljón króna rýrnun gjaldeyrisstöðunn- ar fyrstu 8 mánuði árins 1974. Góð síldveiði í Norðursjó MJÖG góð síldveiði mun hafa verið hjá íslenzku síldveiðiskip- unum i Norðursjónum í fyrrinótt. Skipin fengu síldina vestan við Hjaltland og er þetta I fyrsta skipti á þessu ári, sem eitthvað fæst af síld á þeim slóðum. Að sögn skipstjóra skipanna er síldin einnig sú fallegasta, sem þeir hafa séð i Norðursjónum á þessu Alþingi sett 10. okt FORSETI tslands hefur sam- kvæmt tillögu forsætisráðherra kvatt Alþingi til fundar föstudag- inn 10. október n.k., og fer þing- setning fram að lokinni guðs- þjónustu í Dómkirkjunni, er hefst kl. 13.30.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.