Morgunblaðið - 20.09.1975, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 20.09.1975, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1975 11 Evrópubikarkeppnin I fyrrakvöld fóru fram nokkrir leikir f Evrópubikarkeppninni i knattspyrnu og urðu úrslit þeirra sem hér segir: Bikarkeppni meistaraliða: Benfica, Portúgal — Fenerbahce, Tyrklandi 7—0 Real Madrid, Spáni — Dinamo Búkarest, Rúmeníu 4—1 UEFA-bikarkeppnin: AIK, Svíþjóð — Spartak Moskca, Sovétrikjunum 1—1 Carl Zeiss Jena, Austur-Þýzkal. — Olympique Marseille, Frakkl. 3—0 Molde, Noregi — öster, Svíþjóð 1—0 Bohemians Prag, Tékkólsóvaíku — Honved, Ungverjal. 1—2 Rapid Vín, Austurríki — Galatasaray, Tyrklandi ♦,—0 Inter Bratislava, Tékkóslóvakíu — Real Zaragoza Spáni 5—0 Levski Spartak, Búlgariu — Eskisehirspor, Tyrklandi 3—0 Athlone Toe, Irlandi — Valerengen, Noregi 3—1 FC Porto, Portúgal — Avenir Beggen Luxemburg 7—0 Olympique Lyonnais, Frakklandi — FC Brúgge, Belgiu 4—3 FC Köln, V-Þýzkalandi — B 1903 Danmörku 2—0 Feyenoord Rotterdam, Hollandi — Ipswich Town, Englandi 1—2 Bikarkeppni bikarhafa: Eintracht Frankfurt — Coleraine FC, Irlandi 5—1 KSÍ hefur hug á að ráða þjálf- ara í fullt starf A STJÓRNARFUNDI Knatt- spyrnusambands Islands á fimmtudaginn voru ýmis mál tekin til mcðferðar og m.a. var rætt um skipan þjálfaramála landsliðsins næsta sumar. Voru allir stjórnarmenn sammála um að stefnt skyldi að þvf að ráða næsta sumar þjálfara sem ekki hefði starf hjá einhverju félags- liði. Myndi sá þjálfari þá sinna öllum landsliðunum en ekki aðeins þeirra elztu, sömuleiðis væri möguleiki á að hann sæi um stutt þjálfaranámskeið úti á landi. Ákveðið hefur verið að ársþing KSl verði haldið dagana 6.—7. desember næstkomandi á Hótel Loftleiðum. Á því þingi má búast við miklum umræðum um ýmis mál, sem ofarlega hafa verið á baugi í herbúðum knattspyrnu- manna undanfarið. Þá hefur heyrzt að tveir þeirra stjórnar- manna, sem ganga eiga úr stjórn, Jón Magnússon og Páll Bjarna- son, muni ekki gefa kost á sér til endurkjörs. Þriðji stjórnarmaður- inn, sem á að ganga úr stjórn er Jens Sumarliðason. Þórdís Gfsladóttir f hástökki. Þórdís náði 1 verðlaun ÞÓRDlS Gflsadóttir stóð sig mjög vel á sænsku Andrésar Andar- leikunum, sem fram fóru fyrir nokkru. Varð Þórdfs f þriðja sæti f hástökki og var hún þó nokkuð frá sfnu bezta, en hún stökk 1.60. Sigurvegarinn stökk 1.70 og er það frábær árangur þegar það er haft f huga að keppcndur máttu ekki vera eldri en 14 ára. Lfta má á þessa leika sem Norðurlandamót yngsta frjáls- íþróttafólksins og þeir þrír aðrir Islendingar sem þátt tóku i mót- inu stóðu sig sömuleiðis mjög vel. Þorsteinn Aðalsteinsson, FH, varð 10. í spjótkasti kastaði 43.04 Guðmundur í FH GUÐMUNDUR Sveinsson, hinn bráðefnilegi handknatt- leiksmaður sem undanfarið hefur leikið með Fram, hefur nú tilkynnt félagaskipti yfir f FH. og mun leika með liðinu f vetur. Er ekki að efa að hann mun styrkja FIMiðið veru- lega, ekki sfzt með tilliti til þess að það skortir tilfinnan- lega skyttur eftir að þeir bræð- ur Gunnar og Ólafur Einars- synir héldu til Þýzkalands. og han varð 12. í há$tökki með I. 60. Magnús Haraldsson komst ekki í úrslit í 1000 m hlaupi, en fékk tímann 3:02.9 Ingibjörg Ivarsdóttir varð 9. í 800 m hlaupi á 2:28.9 og í langstökki varð hún II. með 4.83 m. Keppendur voru um 30 í hverri grein. Bjóða unglinga- liði til Svíþjóðar KNATTSPYRNUSAMBANDI Islands barst fyrir nokkru bréf frá sænska knattspyrnufélaginu Flagg og segjast forráðamenn félagsins í þvi bréfi hafa fylgzt með sfbatnandi árangri islenzka landsliðsins í knattspyrnu undan- farin ár með mikilli ánægju og aðdáun. Vilja þeir sýna góðan hug sinn í verki og bjóða íslenzku unglingaliði til Svíþjóðar næsta sumar til þátttöku f knattspyrnu- móti, sem þeir gangast nú fyrir f 16. skipti. Verður mótið haldið i Malmö dagana 28. júnf — 4. júlí og er fyrir pilta á aldrinum 15—16 ára. Þaim knattspyrnu- félögum, sem áhuga hafa á að sinna þessu boði er bent á að snúa sér til skrifstofu KSl. Auk íslenzka liðsins munu væntanlega 10 sænsk lið og eitt frá V- þýzkalandi taka þátt í mótinu. Leikmenn IBK eiga 89 landsleiki að baki LEIKMENN Keflavfkur sem mæta Dundee United f Keflavfk á þriðjudaginn hafa samtals 89 landsleiki fyrir tsland að baki, og ef landsleikjum þjálfaranna beggja er bætt við hækkar talan upp í 122. Nfu leikmenn liðsins hafa leikið landsleiki, og þar af hafa sumir verið fastamenn f landsliðinu f sumar. Það eru þvf engir nýgræðingar á knattspyrnu- sviðinu sem hlaupa inn á völlinn í guIu-Keflavfkurpeysunum á þriðjudagskvöldið, og mikið má vera ef reynslan verður ekki Kefl- vfkingunum dýrmæt f leiknum. Oftsinnis hefur Keflavfkurliðið sýnt að nái það fram baráttuanda og ákveðni, er það mjög erfitt viðureignar, jafnvel fyrir hin sterkustu atvinnumannalið, og auðvitað vonast allir eftir þvf að Keflvíkingarnir verði f sfnum bezta ham í leiknum á þriðjudag- inn. Gfsli Torfason og Einar Gunnarsson hafa leikið flesta landsleiki Keflvíkinganna, eða 20 hvor. Var Gísli í landsliðinu í sumar, -og það hefði Einar örugg- lega einnig verið, hefði hann gefið kost á sér. Að öllum öðrum leikmönnum liðsins ólöstuðum eru þessir tveir leikmenn traustustu stoðir liðsins, ásamt Þorsteini Ólafssyni markverði, en það var aðdáunarverð frammi- staða þessara þremenninga sem öðru fremur færði Keflvíkingum bikarsigurinn yfir Akranesi á dögunum. Þorsteinn Ólafsson hefur leikið 10 landsieiki og aðrir Keflvfk- ingar sem hafa leikið lands- leiki eru Ástráður Gunnars- son með 8 leiki, Karl Her- mannsson með 8 leiki, Grétar Magnússon 8 leiki, Jón Ólaf- ur Jónsson 2 landsleiki, Ólafur Júlíusson 12 landsleiki og Steinar Jóhannsson 1 landsleik. enginn landsliðsmaður í liði Dundee United. Einn leikmanna liðsins, Dave Narey, hefur þó að undanförnu verið fastur maður í landsliði Skota 23 ára og yngri og þar er örugglega á ferðinni leik- maður sem á eftir að komast í A-landsliðið. Þá hefur marka- kóngur liðsins, Andy Gray éinnig leikið i landsliði 23 ára og yngri, og verður þess sennilega ekki langt að bíða að hann komist í aðalliðið. Telja sumir að hann eigi þar heima nú þegar, jafnvel þótt hann sé ekki nema 19 ára. Barnaflokkar — unglingaflokkar. Flokkar fyrir fullorðna einstaklinga. Flokkar fyrir hjón. Byrjendur og framhald. Innritun daqleqa frá kl. 10 —12 oq 1 —7. REYKJAVÍK Brautarholt 4 símar 20345 og 24959. Breiðholt. Kennt verður í nýju húsnæði að Drafnarfelli 4 simi 74444. KÓPAVOGUR Félagsheimilið slmi 84829. HAFNARFJÖRÐUR Góðtemplarahúsið sími 84829. SELTJARNARNES Félagsheimilið simi 84829. KEFLAVÍK Tjarnarlundur sími 1 690 kl. 5. — 7. UNGLINGAR Allir nýjustu táningadansarnir — svo sem Hustler, Bump (Boom), Kung Fu, El Bimbo, Brazilian Carneval, Harlem og margir fleiri. DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.