Morgunblaðið - 20.09.1975, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1975
3
Fjöllistaheimsókn frá Kína
KlNVERSKI fjöllista-
flokkurinn TIENTSIN
sem kemur hingað til
lands í heimsókn um
miðjan næsta mánuð til
þess að sýna listir sínar,
fléttar saman sýningar-
atriði sem eru mjög ný af
nálinni og einnig atriði
sem byggjast á allt að
2000 ára gamalli hefð. 70
manns eru í sýningar-
flokknum, sem mun sýna
í Laugardalshöllinni á
tímabilinu frá 16.—24.
október. Ljónið og
drekinn leika gjarnan
stór hlutverk í hátíða-
sýningum Kínverja, en á
meðfylgjandi mynd eru
nokkrir af félögum
TIENTSIN í hlutverki
dýra, dansandi á kúlum,
en jafnvægislist er eitt
af undirstöðuatriðum
margra sýningaratrið-
anna.
„íslenzk fyrir-
Ueki ’ í sjötta sinn
NÝLEGA kom út uppsláttarbókin
„Islenzk fyrirtæki" en tilgangur
hennar er aó koma á framfæri
ítarlegum upplýsingum um fvrir-
tæki, félög og stofnanir sem
leggja áherzlu á tengsl við al-
menning og aöra aóila í viðskipta-
lífinu og stjórnsýslu — að því er
segir í fréttatilkynningu frá út-
gefanda.
Bókinni er skipt niður í þrjá
meginflokka, fyrirtækjaskrá, við-
skipta- og þjónustuskrá og um-
boðsskrá. I heild gefur hún upp-
lýsingar um eftirfarandi: Nafn,
heimilisfang, síma, pósthólf,
stofnár, telex, nafnnúmer, sölu-
skattsnúmer, stjórn, stjórnendur,
starfsmenn, starfssvið, þjónustu
og umboð. Þá veitir bókin einnig
upplýsingar um Alþingis og al-
þingismenn, félög og stofnanir,
sendiráð og ræðismannsskrif-
stofur erlendis o.fl. í bókinni eru
upplýsingar um 1.600 fyrirtæki
víðs vegar um land.
Þetta er sjötta árið sem islenzk
fyrirtæki koma út og aldrei hafa
fyrr verið jafnmörg fyrirtæki á
skrá í bókinni. Utgefandi er
Frjálst framtak h.f. og hafa full-
trúar þess ferðast um land allt til
þess að safna upplýsingum í
bókina beint frá forráðamönnum
fyrirtækja.
Ráðinn for-
stjóri BÚH
A bæjarstjórnarfundi hjá Bæjar-
stjórn Hafnarfjarðar 9. sept. 1975
var samþykkt að ráða Guðmund
R. Ingvason forstjóra Bæjarút-
gerðar llafnarfjarðar frá og með
15. sept. 1975, en eins og fram
kom f Mbl., hafði útgerðarráð
BÚH mælt með honum.
i Guðmundur er viðskipta-
fræðingur að mennt, þritugur að
aldri og hefur starfað sem skrif-
stofustjóri Bæjarútgerðarinnar
um 1 árs skeið. Frá sama tíma
Iætur af störfum Einar S.M.
Sveinsson, eftir um 5 ára starf
sem forstjóri fyrirtækisins. Einar
tekur þá við starfi forstjóra
Bæjarútgerðar Reykjavíkur.
100 vinninga leik-
fangahappdrætti
Fjáröflunarherferð í tilefni 100 ára
afmælis Thorvaldsensfélagsins
I TILEFNI af 100 ára afmæli
Thorvaldsensfélagsins hafa
félagskonur hrundið af stað stór-
fjáröflun, því snemma á þessu ári
ákváðu þær að allt það er þær
gætu safnað rynni óskert til van-
heilla barna. Eru þær nú að
hleypa af stokkunum sfnu vin-
sæla leikfangahappdrætti, en
dregið verður um 100 vinninga
16. okt. n.k. Munu þær verða
vfðast hvar f bænum með miðana;
f kvikmyndahúsum, stórverslun-
um og auðvitað á Thorvaldsens-
basarnum, Austurstræti 4, en þar
verður hluti af vinningunum til
sýnis.
Seinni partinn í október er
væntanlegur á markaðinn postu-
linsplatti sem framleiddur er hjá
Bing og Gröndahl í tilefni af af-
mælinu. Hinn góðkunni lista-
maður Halldór Pétursson teikn-
aði myndina, sem er af Austur-
stræti séð til austurs.Upplagið er
takmarkað og er hægt að panta þá
á Thorvaldsensbasarnum.
Jólamerkin koma út að venju,
með mynd af gamla Austurvelli
og styttunni af Thorvaldsen.
Póststjórnin ætlar eins og áður
er tilkynnt að gefa út frímerki í
tilefni afmælisins.
Heita félagskonur á borgarbúa
að bregðast nú vel við að hjálpa
þeim til þess að hrinda af stað
átaki er gæti munað um til heilla
og hjálpar vanheilum og hjálpar-
þurfi börnum.
Strætóferðir í vetrarbúninginn
VETRARAÆTLUN SVR tekur
gildi mánudaginn 22 þ.m. Verður
um smávægilegar breytingar frá
sumaráætlun að ræða. Snerta þær
raunar aðallega leiðir nr. 2 og 12,
auk smá lagfæringa á nokkrum
öðrum leiðum.
A leið 2 tekur gildi ný tímatafla
á virkum dögum, þ.e. mánudaga
til föstudaga fram til kl. 19. Verða
framvegis 12 mínútur á milli
ferða. Er með þessu reynt að
girða fyrir, að vagnar á þessari
leið fari út úr áætlun á mestu
anna- og umferðartimum.
Að því er varðar leið 12. verður
sú breyting gerð á akstursleið-
inni, að ekið verður um Breið-
holtsbraut, í Seljahverfi í stað
þess að gjka um Breiðholt I. Nánar
tiltekið mun leiðin liggja um Mið-
skóga, Seljabraut á Norðurfell og
sömu leið til baka.
Af þessu tilefni hefur verið
prentuð ný leiðabók. Verður hún
til sölu á Hlemmi, Lækjartorgi og
i skrifstofu SVR að Hverfisgötu
115. Kostar hún fimmtiu krónur.
Electrolux
eldavélin NOVA160
Hún hefur 4 hellur með stigalausri
stillingu (2 hraðhellur, 1 steikarhellu, 1
hellu með sjálfvirkum hitastilli). Tveir
ofnar. Sá efri rúmar 54 lítra. Hraðræsir
hitar ofninn í 200 gráður C á 6V2 mín.
Gluggi á ofni með tvöföldu gleri. Grill
með teini og rafmótor. Sjálfvirkt stjórn-
borð með rafmagnsklukku, viðvörunar-
bjöllu og steikarmæli. HxBxD =
850x695x600 mm.
LITIR: Ljósgrænt (kr. 109.800.-),
koparbrúnt (kr. 126.900.-) og
hvítt (kr. 1 1 1 .400.-). Athugið sér-
staklega' hið hagstæða verð á
grænu vélinni.
Eigum enn nokkurt magn á þessu
hagstæða verði
Vörumarkaðurinn hf.
Ármúla 1A. Húsgagna og heimilisd. S-86-112
Matvörudeild S-86-111, Vefnaðarv.d. S-86-113