Morgunblaðið - 20.09.1975, Page 5

Morgunblaðið - 20.09.1975, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1975 5 Borgarleikhús tt i • i ,alla mögulei^a sem Þekktir eru f ijreinargero Leikielags Reykiavikur ieikiirtarflutnin8l ti! þessa da^s ° J mg er ekki of flókið í tæknibúnaði, Leikfélag Reykjavíkur leyfir sér að mótmæla þeim skrifum, sem birtust um væntaniegt Borgarleikhús f Þjóðviijanum miðvikudaginn 3. september og iaugardaginn 13. september 1975, og telja til vanhugs- unar. Slfkum skrifum getur hvorki verið ætlað að hafa né haft aðrar afleiðingar en að vekja tortryggni hins almenna borgara, sem les frásögur f biöðum, án þess að þekkja málavöxtu til hlftar. Bæði vegna þessara skrifa og vegna umræðu um byggingu Borgar- ieikhúss, sem Reykjavfkurborg reisir f samvinnu við Leikfélag Reykjavfkur f nýja miðbænum, vill Leikféiag Reykjavfkur gera grein fyrir eftirfarandi; 1. Leikfélag Reykjavfkur hefur barizt fyrir þvf í meir en tvo áratugi, að nýtt leikhús fyrir starfsemi þess rísi f Reykjavík. Allir áfangar f byggingarmálum féiagsins hafa verið rækilega kynntir og ræddir á almennum félagsfundum og allar endanlegar ákvarðanir verið teknar þar. Auk þess var málið jafnóðum borið undir álit annarra sérfróðra manna, bæði listamanna og tæknimanna, svo sem úr Þjóðieik- húsinu og frá Sjónvarpinu. Þá var einnig frá upphafi höfð náin sam- vinna við fyrirtækið Theatre Projects í London, sem hefur í þjónustu sinni sérfræðinga á öll- um sviðum í hönnun leikhúsa og eru nefndir meðal farsælustu leikhúsbyggingaaðila í heimi á síðari árum. 2. Stefnt var að því í 20 ár að fá leikhúsið reist í gamla miðbæn- um. Þegar séð varð, að þar yrði ekki unnt að gera ráð fyrir lóð undir nútímaleikhús, var sú á- kvörðun tekin á félagsfundi Leik- félags Reykjavíkur að taka tilboði um lóð í nýjum miðbæ, þar sem rými er nægjanlegt til að uppfylla allar óskir um hagkvæmt leikhús. Þar hefur leikhúsinu nú verið valinn staður. 3. Frá upphafi hefur verið stefnt að því, að reist yrði Ieikhús, sem viðheldur sögu Leikfélags Reykjavíkur og er í tengslum við starfsemi þess fram á þennan dag, þ.e. leikhús, sem spannar breidd í verkefnavali, allt frá sí- gildum leikverkum fyrri tima til nútimaverka og framúrstefnu- verka, og hefur margar leiksýn- ingar á dagskrá i senn (repertoir- leikhús). Einnig var það ásetning- ur félagsmanna, að í húsinu yrði sköpuð sú aðstaða að á hverjum tima yrði þar unnt að brydda upp á nýjum sköpunarháttum og túlk- unaraðferðum í leiklist, — og að þar mætti nýta þá reynslu, sem Leikfélag Reykjavíkur hefur af leikhúsrekstri, og ekki sízt að halda þeim nánu tengslum, sem ríkt hafa milli listamanna og á- horfenda i gamla húsinu við Tjörnina. 4. Strax og vitað var að hægt yrði að hefjast handa um að teikna bygginguna, var um það fjallað hvort efna ætti til samkeppni um uppdrátt ieikhússins. Sú ákvörð- un var tekin á félagsfundi, að farsælla myndi að ráða arkitekta til að hanna húsið. Um er að ræða mjög flókna og sérhæfða bygg- ingu, sem fyrst og fremst þurfti að hanna innanfrá, þ.e. með hag- kvæmni til leikhúsreksturs f huga varðandi allan innri búnað, og krefðist ftarlegrar könnunar og samvinnu við leikhúsfólk, sem og við erlenda ráðgjafa um leikhús- byggingar. 5. I ljósi ofangreindra atriða voru stærðir ákvarðaðar, innri skipan leikhússins og rými: áhorfenda- salur fyrir 500 manns, með návist þeirra við leiksviðið í huga, þ.e. 17 sætaraðir. (I gömlu Iðnó eru 14 sætaraðir í sal og 4 á svölum, eða alls 18 sætaraðir). Leiksvið, sem gerir ráð fyrir ítrustu rekstr- arhagkvæmni f framtíð, rúmgóð hliðarsvið fyrir leiktjaldageymsl- ur; smíðaverkstæði, málarasalur, saumastofa og hagkvæmar vistar- verur starfsfólks. Auk þess annar salur, sem tekur um 200 manns í sæti og væri f senn hægt að nýta sem æfingasal og leikhússal með breytilegu leiksviði, þar sem nota mætti hvers kyns aðferðir í flutn- ingi leikrita, nýjum sem gömlum, flytja til sæti og palla að vild. I húsinu verður því að sjálfsögðu hægt að sýna leikrit öðru vísi en í ramma hins sfgilda leikhúss. Ákvörðun Leikfélagsins beinist þannig að því að mynda hóp arki- tekta og leikhúsmanna, sem hefði alla möguleika á að kynna sér á sem rækilegastan hátt allar hliðar nútímaleikhúss. Eftir að arkitektar höfðu verið ráðnir, heimsóttu þeir, ásamt tæknisérfræðingum, öll helztu ný leikhús í Vestur-Evrópu, skoðuðu þar ótal afbrigði af ýmsum til- raunum, sem gerðar hafa verið í leikhúsbyggingum síðari ára, og ræddu við staðarmenn um hvað hefði lánast vel og hvað miður. Áðurnefnt fyrirtæki, Theatre Projects f London, var ráðið sem leiðbeinandi um tæknibúnað. 6. I einu og öllu hefur verið leit- ast við að teikna leikhús, sem er hagkvæmt í rekstri, býður upp á skapar góða aðstöðu fyrir starfs- fólk og hugar að vellíðan áhorf- enda, Reykjavík, 18. september 1975. ! leikhúsráði, stjórn og vara- stjórn Leikfélags Reykjavfkur Vigdfs Finnbogadóttir leikhússtjóri Jón Hjartarson Baldvin Tryggvason Kjartan Ragnarsson Gissur Páisson Steinþór Sígurðsson Steinþór Hjörleifsson formaður L.R. Pétur Einarsson Þorsteinn Gunnarsson Ásdfs Skúladóttir Guðmundur Páisson framkv.stj. L.R. Stuðningsmenn Sr. Arnar Friðrikssonar umsækjanda um Nessókn hvetja fólk til að kjósa snemma. Skrifstofan er að SÓLVALLAGÖTU 25 símar 20570 — 19836 — 25121 — 25123 - 25135 — 25201 - 25319 Að mörgu er að hyggja, er bú barft að trvaqia Dagur dýranna Á SUNNUDAGINN kemur, þann 21. september er Dagur dýranna. Hann hefur verið haldinn nú í nokkur ár til fjáröflunar fyrir dýravernd á Islandi. Merki verða seld í Reykjavfk og víða úti á landi og er það von stjórnar Sambands dýraverndun- arfélaga Islands, að sem flestir sjái sér fært að styðja málefnið með því að kaupa merki. Þó að einn dagur sé valinn sem baráttu- og fjáröflunardagur í þessu skyni þýðir það ekki að alla aðra daga ársins megum við gleyma dýrunum. Stjórn S.D.Í. vill eindregið beina þvi til lands- manna í sveit og borg að þeir láti hvergi viðgangast að illa sé farið með dýr, smá eða stór, tömd eða villt, þarfadýr eða gæludýr. Betur sjá augu en auga og þó að forða- gæzlumenn séu skipaðir í hverri sveit og dýraverndunarféiög starfandi í nokkrum kaupstöðum eru það ekki bara þeir sem eiga að gæta að velferð dýranna, heldur ALLIR. Það er sjálfsögð skylda hvers einasta vitiborins manns að vaka ýfir veiferð dýr- anna og vernda þau fyrir harð- ýðgi þeirra manna, sem finnast í Merkin sem seld verða á „degi dýranna" á morgun. hverju þjóðfélagi og nfðast á dýrum á einn eða annan hátt, ýmist vegna fégræðgi, fákunn- áttu, kæruleysis, eða mannvonzku og geta þvf ekki flokkazt undir vitiborna menn. Fréttatilkynning frá Sambandi dýraverndunarfélaga. lASÍMINN ER: 22480 JH«r0nn(ilnbib iaiýiwiái Heimilistrygging SJOVÁ bœtir tjón ó innbúi af völdum eldsvoóa, vatns, innbrota og sótfalls, einnig óbyrgóar- skyld tión - svo nokkuó sé nefnt. 82500 SUÐURLANDS8RAUT 4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.