Morgunblaðið - 20.09.1975, Page 22

Morgunblaðið - 20.09.1975, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1975 — Norskir Framhald af bls. 1 Samvinna Evrópuþjóða var einnig rædd á fundum ráð- herranna og þá fyrst og fremst það óréttlæti, sem Island er beitt af EBE-löndunum á sviði við- skiptamála. Isiand hefði náð betri samningum en Norðmenn við EBE, en I reynd hefði aðstaða Norðmanna orðið betri, þar sem þeir væru engum þvingunar- aðgerðum beittir. „Þá fóru og fram fróðlegar um- ræður um alþjóðamál," sagði for- sætisráðherra. Frú Erna Finnsdóttir, eigin- kona Geir Hallgrímssonar, fór í skoðunarferð um borgina og nágrenni á meðan maður hennar ræddi við norska stjórnmála- menn, en um hádegi í dag gengu forsætisráðherrahjónin á . fund Ólafs Noregskonungs og snæddu síðan hádegisverð í boði hans í konungshöllinni. í upphafi ræðu sinnar í veislu norsku ríkisstjórnarinnar í gær- kvöldi bauð Geir Hallgrímsson norsku forsætisráðherrahjón- unum frú Randi og Trygve Bratteli að heimsækja ísland, hvenær sem þeim hentaði. Ræða fslenzka forsætisráð- herrans vakti mikla athygli meðai veizlugesta í Akershus og verður hún birt í heild í Morgunblaðinu síðar. í kvöld halda forsætisráðherra- hjónin veislu fyrir gestgjafa sína og aðra gesti. Heimsókninni lýkur síðdegis á morgun, er forsætisráð- herrahjónin fljúga frá Fornebu- flugvelli, en fyrir hádegi fara þau í skoðunarferðir. — Gunnar Geir Framhald af bls. 2 hef verið að þróa. Þessi þrjú verk eru fantasíur úr þjóðsög- unum og eru fiskur á steini, hönd upp úr dýinu og skrímsli. Þau munu fljóta á vatninu og liggja fyrir stjóra. Verkin eru unnin í verðbólgustíl, það er gerð úr tveimur tegundum af frauðplasti sem tútnar út og maður ræður þá lögun forms- ins. Verkin eru um 1 m í þver- mál og 50—100 sm á hæð. Ég vona að fólk komi og kíki á þetta hjá mér en það er ef til vill rétt að geta þess að ég fékk góðfúslegt leyfi lögreglustjóra til þess að halda þessa sýn- ingu.“ Um þessar mundir sýnir Gunnar Geir málverk eftir sig á Mokka, alls 32 myndir. — Varið land Framhald af bls. 2 vangi þar sem þú átt sjálfur beinan hlut að máli? — Ég mun ekki reka mín persónulegu mál þarna. Að sjálf- sögðu mun ég rekja málsatvik þ.e.a.s. undirskriftasöfnun Varins lands, en það mál sem ég mun fyrst ög fremst fjalla um er mál Einars Braga, en Rithöfundasam- baridið skipaði á sínum tíma 12 manna nefnd til að fjalla um það. Sjálfur skrifaði ég ekki um þetta mál, helur srieri Þjóðviljinn sér til mín og spurði mig álits vegna skrifanna í Þjóðviljann á sínum tíma og þannig hófust mín af- skipti af þessu máli. Rithöfunda- sambandið hefur látið þýða grein Einars Braga, sem málið snýst um, og er hún nú komin í hendur þingfulltrúa. Norræna rithöf- undaráðið hefur áður fjallað um svipuð mál og þetta, t.d. FIB- málið í Svíþjóð, en þar áttu blaða- menn að vísu hlut að máli en ekki rithöfundar. Ég var á fundi nýlega vegna ársþingsins og þar kom fram eindregin ósk um að ég fjallaði um þetta mál á þinginu, sagði Sigurður A. Magnússon að lokum. — Minning Framhald af bis. 23 framfaramála byggðarlagsins og ekki sízt hinum brennandi áhuga sem hann hafði á mönnum og málefnum, leiftrandi lifsfjöri hans og skarpri hugsun. Ég vil þakka Árna vini mínum einlæga vináttu hans og þann mikla lífskraft sem hann hefur miðlað mér og öðrum yngri og eldri samferðamönnum sínum og vinum svo ríkulega af. Ég þakka honum brautryðjendastarf i heimabyggð okkar. Ég flyt eftir- lifandi konu hans og ástvinum innilegustu samúðarkveðjur við fráfall hans og bið Guð að blessa minningu hans að eilífu. Lárus Jónsson. — Sexmanna- nefndin Framhald af bls.7 því að þetta „óhæfa kerfi“, sem Björn kallar svo, skuli hafa verið óbreytt í 9 ár. Björn hælist um yfir þvi að ASl hafi dregið fulltrúa sinn út úr Sex-mannanefndinni, en kvart- ar síðan yfir því að hinir „svokölluðu neytendafulltrúar" skuli ekki gera ASÍ grein fyrir sfnum málum. Björn vill ekki taka þátt i því að reyna eins og hægt er að hamla gegn verð- hækkunum nauðsynjavara, hann vill bara sitja flekklaus í sínu hásæti og skamma þá sem skít- verkin vinna. Gunnar Ilallgrfmsson. — Athugasemd Framhald af bls.7 I samræmi við þetta lýsum við hér með öll skrif um óeðlilega aðstöðu Bf. Ármannsfells h.f. rakalaus ósannindi og í þeim til- gangi gerð að ófrægja fyrirtækið fyrir almenningi og draga það inn í pólitískt hnútukast, sem er því algerlega óviðkomandi. Forráðamenn Bf. Ármannsfells h.f„ fyrst Ármann Guðmundsson, byggingameistari, sem nú er lát- inn og síðan synir hans, hafa talið að félaginu hafi tekist að spara borgurum Reykjavíkur álitlegar fjárhæðir með starfsemi sirini. Við leyfum okkur að fullyrða að fyrirtækinu hafi tekizt betur en öðrum verktökum borgarinnar að stand við gerða samninga þegar á heildina er litið, og vitum við að borgarverkfræðingurin. í Reykjavík og þeir ráðamenn borgarinnar, sem hafa fylgst með byggingum hennar gætu staðfest það. Varðandí mynd I opnu Tímans, sem fylgir grein borgarfulltrúans af „Milljónahöllinni við Espi- gerði“ hefur honum erin skotizt fyrir með sannleikann, því Bf. Ármannsfell h.f. hefur alls ekki byggt hús það, sem myndin er af og er heldur ósmekklegt að draga byggingarfélagið Óskar & Braga s.f. inn í svokallaðan „milljóna- gróða“ hluthafa Ármannsfells h.f. Vegna margumræddrar lóðaút- hlutunar hefur Bf. Armannsfell h.f. þegar skýrt það mál m.a. I Þjóðviljanum nú i dag og telur þessi mál útrædd fyrir sitt leyti. Opiö í kvöld Opið í kvöld Opið í kvöld HÖT4L ÍAGA SÚLNASALUR Haukur Morthens og hljómsveit og söngkonan Linda Walker Dansað til kl. 2 Borðapantanir eftir k/. 4 í síma 2022 1 Gestum er vinsamlega bent á að áskilinn er réttur til að ráðstafa fráteknum borðum eftir 130. LÆKJARHVAM MUR ÁTTHAGASALU R LÚDÓ OG STEFÁN SKEMMTA DANSAÐ TIL KL. 2 Opið í kvöld Opið í kvöld Opið í kvöld Galtarlækjamótið — starfsfólk Laugardaginn 29. þ.m. verður haldið í Templarahöllinni skemmtun fyrir þá er unnu á mótinu. Fjölmennið. Nefndm. LEIKHUSKJnLLflRinn Skuggar leika fyrir dansi til kl. 2. Borðapantanir frá kl. 15.00 isíma 19636. Kvöldverður framreiddur frá kl. 18. Spariktæðnaður áskilinn. Með þökk fyrlr blttingun* F.h. Bf. ArgiíuinBfells h.f. J~>* ~ 1 i «§ yM í ■ T 3M ■ . . - r ^ ;■ § -■* WmmBr [r Jj l # . Vll ' - > L'lj jíj|F| 4 |(L Mfík SjL.,., / IB 'hjjk •M®t WM *■■

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.