Morgunblaðið - 26.10.1975, Síða 1

Morgunblaðið - 26.10.1975, Síða 1
48 SIÐUR c 245. tbl. 62. árg. SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 1975 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Annaðgeimfar lent á Venusi Moskvu, 25. október. Reuter. — AP. ANNAÐ sovézkt geimfar lenti mjúkri lendingu á Venusi f morg- un og sendi aðra ljósmynd af yfir- borði plánetunnar til jarðar að sögn Tass. Fréttastofan sagði að lending- arferja geimflaugarinnar Venus- 10 hefði fent 2.200 kflómetra frá lendingarferju Venus-9 sem lenti fyrir þremur dögum og sendi til jarðar fyrstu ljósmyndina sem hefur borizt frá yfirborði annarr- ar plánetu. Talið er að sfðari lendingarferj- an sé svipuð og sú fyrri að gerð. Venus-10 var skotið frá geimstöð- inni í Baikonur í Mið-Asíu 15. júní, sex dögum eftir Venus-9, og ferðin til reikistjörnunnar hefur því tekið rúma fjóra mánuði. Báð- um geimskipunum var komið á braut um Venus. Venus-9 sendi upplýsingar til jarðar í 53 mínútur unz tækin eyðilögðust af völdum hita sem er um 500 gráður á selsíus á reiki- stjörnunni. Rússum hefur áður tekizt að láta geimför lenda mjúkri lend- ingu á Venusi þótt þeim hafi ekki tekizt að ná ljósmyndum fyrr en nú. Venus-7 lenti 1970 og tæki geimfarsins störfuðu i 20 mínútur og Venus-8 sendi upplýsingar i 50 mínútur 1972 áður en tækin eyði- iögðust. Jim Slater segir af sér London, 25. október. Reuter. JIM Slater, sem greiddi úr flækj- unni er stóð f vegi fyrir þvf að heimsmeistaraeinvfgi Bobby Fischers og Boris Spasskys gæti farið fram f Reykjavfk, hefur komið af stað miklu uppnámi í fjármálaheiminum með þvf að segja af sér stöðu formanns fyrir- tækisins Slater Walker. pore, Haw Par, hefur verið ásakað um. Slater á hlut í þvi fyrirtæki og stjórn Singapore hefur hafið rannsókn á starfsemi þess. Eftirmaður Slaters er Jimmy Goldsmith, vellauðugur iðnrek- andi, sem Slater teflir oft við. Goldsmith, er vinur Lucans lávarðar sem er eftirlýstur vegna morðs á barnfóstru barna hans. Hinn fjölmenni útifundur kvenna í Reykjavík á föstudaginn og samstaða ísl kvenna hefur vakið mikla athygli víða um lönd. Fríið á forsíðum stórblaða — mikil hrifning með samstöðu íslenzkra kvenna — bandarískar konur hvattar til að fylgja fordæmi íslenzkra kynsystra Fyrirtæki hans hefur verið stór- veldi í fjármálalífinu og Slater byggði það upp frá grunni. Hann var eitt sinn kallaður „undra- barn“ viðskiptalífsins og fyrir- tækjasamsteypa hans var metin á rúmlega 200 milljón pund. Samstarfsmaður hans framan af var þingmaðurinn Peter Walker. Það er talið til marks um áhrif Slaters á fjárfestingarmarkaðn- um að Englandsbanki gaf þá óvenjulegu yfirlýsingu að Slater Walker væri ekki í fjárhagskrögg- um. Orðrómur um að Slater mundi segja af sér hafði komið af stað miklum óróa í kauphöllum. Slater tók fram að hann segði af sér af heilsufarsástæðum og vegna neikvæðra skrifa um Slater Walker sökum ásakana um að fyrirtækið hefði verið viðriðið hneyksii sem fyrirtæki í Singa- Portúgal: Sprengingar í Oporto Lissabon 25. okt. Reuter. MIKIL spenna er í Portúgal, um landið þvert og endilangt og stöðugar sögusagnir á kreiki um að yfirvofandi sé valdarán kommúnista í landinu. Gagnrýni á rfkisstjórnina frá öfgaöflum til vinstri hefur mjög magnast og er stjórnin sökuð um að hafa vikið frá hugsjónum byltingarinnar. Öflug sprengja sprakk í morg- un í Oporto og eyðilagði hún nánast eina helztu prentsmiðju kommúnista þar f borg, en þar hafa verið prentuð öll helztu áróðursgögn kommúnista sem hefur verið dreift f norðurhluta landsins. Eldur kviknaði út frá sprengingunni og tók nokkrar klukkustundir að ráða niðurlög- um hans. Azevedo forsætisráðherra Framhald á blc. 47. London, Kaupmannahöfn, Stokkhólmi, Filadelfiu, 25. okt. ^ LJÓST er að kvennaverk- ur vakið mjög mikla athygli víða erlendis. í Filadelflu lýsti formaður stærstu kvenna- þvi að bandariskar konur ættu að fylgja fordæmi islenskra kvenna, á Norður- löndum birtust mjög itarlegar fréttir um atburði föstudags- ins og sama er að segja um blöð í Bretlandi. STÆRSTU og áhrifamestu kvennasam- tök I Bandaríkjunum NOW, hvöttu i dag bandariskar konur til að skipu- leggja eins dags verkfall i næstu viku, hliðstætt þvi sem íslenzkar konur höfðu i gær, föstudag Samtökin örvuðu félaga sina til að leggja niður störf á heimilum sínum og á öðrum vinnustöðum á miðvikudag i næstu viku til að sýna andstöðu sina við „kerfið" eins og segir í Reuterfrétt Mótmælin eru ætluð til að sýna körlum og konum áþreifanlega fram á að ..kerfið" kúgi konur og sýni þeim á allan hátt hina mestu Utilsvirðingu á hverju sviði," sagði formaður samtak- anna i dag ..Konur verða að skilja að þær eru að veita stuðning þjóðfélags kerfi sem veitir þeim ekki stuðning' . sagði Davlyn Jones, formaður NOW í fréttinni er siðan vikið að kvenna- fríinu á íslandi og sagt að þátttaka i þvi hafi verið þvi sem næst alger^blöð hafi ekki komið út, leikhús og verzlanir verið lokuð, en reynt hafi verið að halda starfsemi uppi í nokkrum fyrir- tækjum með karlmannaliði einu saman Kaupmannahafnarblöðin Berlingske tidende, Politiken og Kristeligt dagblad segja ýtarlega frá kvennadeginum og útifundinum í Reykjavik á forsíðum sinum i gær BERLINGSKE TIDENDE sendi blaðamann til Reykjavfkur og segir hann að aðgerðir kvennanna hafi tekizt sérlega vel Lögð hafi verið sérstök áherzla á að þetta hafi verið framlag islenzkra kvenna til baráttu fyrir jafn- rétti undirokaðra kvenna hvar sem er i heiminum, ekki sizt f þróunarlöndun- um, en þetta sýni Ijóslega að islenzkar konur eins og raunar aðrir íslendingar fylgist mun betur með þvi sem gerist i heiminum, en t.d Danir Blaðamaðurinn spyr þó Hvað gerist svo i dag og dagana. sem á eftir koma, þegar kvennadagurinn er lið.ið tlð? Varla er við því að búast að dagurinn marki timamót þegar i stað, þrátt fyrir þá velvild, sem aðgerðirnar hafa tvi- mælalaust mætt, en sem jafnframt má ætla að risti ekki ýkja djúpt Eitt er þó áreiðanlegt Þessi dagur fellur ekki í gleymskunnar dá fyrst um sinn Blaðamaður Politiken skrifar frá Reykjavik Aldrei — aldrei nokkurn tima i 1001 árs sögu sinni hafa islenzkar konur verið svo glaðar, svo margar og svo sterkar i einu á einum stað og 24 október 197 5 Nú hafa islenzkar konur sýnt. að þær þorðu. Framhald á bls. 47. Hinzta blessun Francos Madrid, 25. októbcr. Rcuter. AP. PRESTUR Franciseo Francos hershöfóingja veitti honum hinztu blessun f dag að við- staddri fjölskyldu hans. Þjóðarleiðtoginn var með meðvitund í morgun en kunn- ugir sögðu að læknar teldu að hann ætti f mesta lagi þrjS daga ólifaða. falliðá Islandi á föstudag hef- samtaka 1 Bandaríkjunum yfir Dönsk blöð sögðu vel og rækilega frá kvennafrfdeginum, eins og sjá má af meðfylgjandi mynd.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.