Morgunblaðið - 26.10.1975, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 26.10.1975, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. OKTOBER 1975 13 Útsölustaðir: SWEBA sænskir úrvals RAFGEYMAR Akranes: Axel Sveinbjörnsson h.f. Borgarnes: Bifreiða- og trésmiðja Borgarness h.f.. Búðardalur: Kaupfélag Hvammsfjarðar Ólafsvík: Vélsmiðjan Sindri ísafjörður: Póllinn h.f. Bolungarvik: Rafverk h.f. Dalvík: Bílaverkstæði Dalvíkur Akureyri: Þórshamar h.f. Húsavik: FoSS h.f., Seyðisfjörður: Stálbúðin Neskaupstaður: Eiríkur Ásmundsson, Eskifjörður: Viðtækjavinnustofan, Hornafjörður: Smurstöð B.P. Keflavik: Smurstöð- og hjólbarðaviðgerðir, Vatnsnesvegi 1 6. Selfoss: Magnús Magnússon h.f. Vestmannaeyjar: Áhaldahús Vestmannaeyja Reykjavík: stkf Siðumúla 7 — Simar 85185- -34995. FJÁRFESTING - ENDURMAT Á bak við hverja SELKÓ hurð er 25 ára reynsla í smíði spónlagðra innihurða. Skipulögð fram- leiðsla SELKÖ innihurða hófst hjá Sigurði Elías- syni h. f. fyrir 15 árum. í ár fögnum við því tvö- földum áfanga í hurðasmíði. Einkunnarorð framleiðslunnar hafa ætíð verið hin sömu: Vönduð smíði, góður frágangur og fallegt útlit. Enda hafa SELKÓ hurðir fyllilega staðizt erlenda samkeppni um árabil. Þess vegna er það mjög algengt að þeir, sem vilja endurnýja útlit eldra húsnæðis með t. d. tvöföldu gleri, nýjum húsgögnum, og fallegum teppum, fjárfesti einnig í nýjum SELKÓ inni- hurðum. SELKÓ innihurðir gefa heimilinu traustan og áferðarfallegan svip, samræma heildarútlit hús- næðisins við nýja búslóð, og hækka verðmæti íbúðarinnar, þegar meta þarf til skipta eða end- ursölu. Þér tryggið útlit og verðmæti íbúðarinnar með SELKÓ innihurðum. SELKÖ INNIHURÐIR — GÆÐI i FYRIRRÚMI SIGURÐUR ELÍASSON HF. AUÐBREKKU 52, KÓPAVOGI, SÍMI 41380 Fréttabréffrá Reyðarfirði YNGSTU börn barnaskólans byrj- uðu skólaárið 15. sept. Eldri deild- ir skólans hófu nám 1. október að undanskildri gagnfræðadeild sem byrjaði ekki fyrr en nú í vikunni. Gagnfræðadeild starfar nú í fyrsta skipti hér á Reyðarfirði, nemendur eru 14 talsins. Fastráðnir kennarar eru 9 auk skólastjóra þar af 2 1 hálfu starfi. Stundakennarar eru 3. Nemendur i skólanum öllum eru 171 í 11 bekkjardeildum. Samkvæmt grunnskólalögum hafa orðið nokkrar breytingar á kennsluháttum skólans, aðallega í elztu bekkjardeildum skólans, þar sem nemendur eiga 1 fyrsta sinn kost á vali námsgreina. Það sem nemendur geta valið um er „auk handavinnu og sjó- vinnu“ vélritun, bókfærsla, iðn- teikning, blokkskrift og vélfræði. f skólanum er verið að tilrauna- kenna námsefni í vélfræði, verk- legt og bóklegt, með leyfi skóla- rannsóknadeildar. Mikill áhugi er á þessum nýju námsgreinum. Með þessu styttist leið nemenda i iðn- skóla. Mikil lagfæring hefur staðið yf- ir á skólahúsinu og er óvist hve- nær þvi lýkur. Skólinn er orðinn of lítill hér. Kennt er i félagsheimilinu vegna þrengsla. Hér vantar 3—4 skóla- stofur til viðbótar við skólahúsið auk bókasafns og eldhúss. Iþróttahús og sundlaug eru í byggingu hér. Tónlistarskóli tók til starfa hér í haust og er það nýjung hér. Kennari er Pavel Smid frá Prag. Pavel er háskólamenntaður í orgel og pianóleik. Illa hefur gengið að útvega kennara á blásturshljóðfæri en vonandi stendur það til bóta. Skráðir nemendur tónskóla eru hér á Reyðarfirði 22 og álika margir á Eskifirði en tónskólinn er rekinn af Eskifirði og Reyðar- fjarðarhrepp sameiginlega. Auk tónkennslu er Pavel kirkjuorganisti og æfir kirkjukór- inn hér á staðnum. Bezta veður hefur verið hér undanfarið. Gréta. Líknarmorð skapa laga- legan vanda DÖMSTÓLL i fsrael hefur dæmt sextuga konu í eins árs fangelsi fyrir líknarmorð á syni sínum. Konan, Aliza Helman, skaut son sinn, sem var 37 ára gamall krabbameinssjúklingur, er hann var sofandi eftir að hann hafði beðið hana um að binda enda á þjáningar sínar og sársauka. Dómararnir þrir, sem kváðu upp dóminn, viðurkenndu að þeir hefðu átt afar erfitt með að ákveða refsinguna og að vaxandi þörf væri á endurskoðun laga um liknarmorð. Spockhjónin í vandræðum DR. BENJAMIN Spock, banda- riski læknirinn, sem kennt hefur milljónum foreldra hvernig hann telji barnauppeldi bezt borgið, hefur nú sagt skilið við eiginkonu slna' Skrifstofa Spocks tilkynnti í vikunni að þau hjónin hefðu skil- ið að borði og sæng s.l. vor en ekki væri lögskilnaður á döfinni. Spock og kona hans, Jane Daven- port Cheney, hafa verið gift í 48 ár. Hann er 72 ára en hún 69. Þau eiga tvo syni. VOLVO ÞJÓNUSTA 1. Vélarþvottur 2. Hreinsun og feiti á geymissambönd 3. Mæling á rafgeymi 4. Mæling á rafhleöslu 5. Hreinsun á blöndung 6. Hreinsun á benzíndælu 7. Skipt um kerti 8. Skipt um platínur 9. Skoðuð viftureim 10. Skipt um olíu og olíusíu 11. Mæling á frostlegi 12. Vélastilling Verð: kr. 7333.- með söluskatti Innifalið í verði: Platínur, olíusía, þurrkublöð, ventlalokspakkning, vinna. Volvobónus: Ókeypis kerti í bílinn. VELTIR HF. Suóuriandsbraut 16 • Simi 35200

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.