Morgunblaðið - 26.10.1975, Side 25
24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. OKTÖBER 1975
Logi Kristjánsson bæjarstjóri:
Iðnaðar- og þjónustuhverfi
,,Það er ekki búið að ganga
endanlega frá skipulagi nýja
iðnaðar- og þjónustusvæðisins
fyrir innan Naustahvamm, nema
hvað búið er að ganga frá því á
hafnarsvæðinu. Þar er ákveðið að
risi sildarbræðsla, frystihús og eða
vöruskemmur. Einnig hefur verið
ákveðin staðsetning tveggja fyrir-
tækja, Bifreiðaþjónustunnar og
Vélsmiðjunnar Gigju," sagði Logi
Kristjánsson, bæjarstjóri, þegar
við ræddum við hann.
Logi sagði, þegar Morgunblaðið
ræddi við hann, að þetta innsta
svæði bæjarins væri eingöngu
hugsað sem þjónustu- og iðnaðar-
hverfi og fyrir fyrirtæki, sem myndu
þjóna fiskiskipaflotanum. Þá gæti
emnig komið til mála, að þarna yrðu
byggð fyrirtæki í léttum iðnaði og
trésmíði, en endanleg ákvörðun
hefði ekki verið tekin enn í þessum
efnum „Verið er að vinna að
heildarskipulagi fyrir Neskaupstað
og er.það Arkitektastofan s.f. sem
annast það Umrætt svæði, sem
nær frá Naustahvammi inn að Aura-
læk, þar sem landamæri Nes-
kaupstaðar og Norðfjarðar eru."
— Hvert er höfuðmálið í upp-
byggingu fyrirtækja staðarins um
þessar mundir?
„Stærsta spurnmgin er hvort
síldarbræðslan kemst í gang fyrir
loðnuvertíðina. Tíminn er knappur
en verkið hefur samt gengið ótrúlega
vel. Það verður að koma þessu fyrir-
tæki af stað þar sem það hefur ávallt
haft mikil áhrif á efnahag bæjarins
og ennfremur þarf að koma Steypu-
sölunni og Bifreiðaþjónustunni á
réttan rekstursgrundvöll á ný. Þá er
geysilega mikilvægt að hægt verði
að halda áfram með höfnina. Ef það
tekst ekki eru milljóna verðmæti í
hættu eða fara jafnvel til spillis.
Kostnaður við hafnargerðina var
áætlaður 140 millj kr. seint í
sumar, að meðtöldu stálþili og frá-
gangi hafnarbakka til bráðabirgða.
Þetta verk hefur einnig sótzt mjög
vel og er einingarverðið mun minna
en almennt er.
Rekstur hafnarinnar hefur venju-
legá verið þungur róður og svo
verður áfram eftir þetta stórátak.
Ríkissjóður greiðir 25% af
kostnaðinum, en sveitarfélagið 25%
og hafa sveitarfélögin farið þess á
leit við ríkissjóð að hann sjái um
framkvæmdir og rekstur þessara
hafna, sem öll þjóðin nýtur góðs af "
Séð yfir hluta af nýju höfninni og hvar verið er að reisa nýju síldarverksmiðjuna.
Má ekki koma
stöðvist, því l
Ég held, að ef veður haldast sæmileg f haust og ekkert annað truflar
okkur, þá takist okkur að koma nýju síldarverksmiðjunni f gang fyrir
loðnuvertíð," sagði Ólafur Gunnarsson, framkvæmdastjóri Síldar-
vinnslunnar h.f. f Neskaupstað þegar Mbl. innti Ólaf eftir gangi mála.
Þó svo að mikið sé búið, er mikið eftir og ekkert má út af bregða svo
að þessi ásetningur Norðfirðinga — ný síldarverksmiðja fyrir næstu
loðnuvertíð — takist. —
Ólafur Gunnarsson sagði f upphafi samtalsins, að um þessar mundir
væri verið að smíða alls konar hluti vfða um land, sem myndu svo
streyma til Neskaupstaðar á næstu vikum, og í næsta mánuði hæfist
samsetningarvinna af fullum krafti. Reyndar væri mjölhúsið við
verksmiðjuna komið mun styttra á veg en sjálft verksmiðjuhúsið, en
þar sem það væri miklu einfaldara í byggingu yrði fljótlegt að loka þvf.
Yfirsmiður við byggingu nýju
síldarverksmiðjunnar er Hjálmar
Ólafsson. Hann hittum við að máli
þar sem hann var að stúdera
teikningar af mjölhúsinu ásamt
Róbert Jörgensyni smið. Hann
sagði, að um tuttugu manns hefðu
unnið að staðaldri við byggingu
l'ppbjggingin “
í
Neskanpstað
húsanna tveggja frá þvi að fram
kvæmdir hófust i byrjun júli og
unnið af eins miklum krafti og
hægt hefur verið hverju sinni.
Nú eru þessi hús reist úr stein-
steyptum bitum, er eitthvað af
þessu steypt i Neskaupstað?
,.Við höfum steypt alla bita og
sperrur hér, nema hvað rifjaplöt-
urnar, sem fara á þakið og eru úr
strengjasteypu, koma að
sunnan."
— Hvaðeru húsin stór?
,,Verksmiðjuhúsið er um 1700
fermetrar að stærð og að hluta á
tveimur hæðum, en mjölhúsið er
hins vegar um 1400 fermetrar.
Þetta eru fyrstu húsin, sem steypt
eru í einingum í Neskaupstað og
þegar er svo til öll steypuvinna
búin. Nú á aðeins eftir að raða
saman og ætti það að ganga vel,
ef veður haldast góð."
— Með hverju verða húsin
klædd?
„Á þak húsanna verður sett
timburkfæðning og járn, en veggir
verksmiðjuhússins verða síðan
einangraðir innan frá, en það
verður vart gert í haust og látið
bíða betri tima."
— Hvað eru margir smiðir starf-
andi hér?
„Sem stendur eru þeir 8—9
og núna verða þeir að ganga í öll
venjuleg störf eins og mokstur.
þar sem erfitt er að fá verka-
menn."
Fyrstu húsin steypt í
einingum í Neskaupstað
Hjálmar Ólafsson og Róbert Jörgensen athuga teikningu af nýja mjölhúsinu.
— Að hvaða verkefnum er
unnið af mestum krafti þessa
dagana?
„Jafnhliða verksmiðjubygging-
unni er verið að reisa lýsis- og
svartolíutanka Ekki vitum við enn
hvort tekst að Ijúka þessu verki I
tæka tíð, en I það minnsta mun
okkur takast að koma upp svartolíu-
tankinum og öðrum lýsistankinum
Það ætti að vera hægt að bjarga sér
um stundarsakir með einn lýsistank
með því að láta afskipa nógu ört. Þá
er annað atriði nokkuð óljóst, enn en
það er flutningur á gömlu hráefnis-
tönkunum frá rústum gömlu verk-
smiðjunnar að nýju verksmiðjunni
Tankarnir eru fjórir og verða þeir
fluttir landleiðina, og er vegalengdin
um kílómetri Hver geymir er talinn
vera um 36 tonn að þyngd og því
vitum við ekki enn hvernig þetta
verk gengur, en slikir flutningar hafa
ekki átt sér stað áður á Islandi."
ÖLL HEILLEG
TÆKI NOTUÐ
— Gátuð þið notað mikið af
tækjunum úr gömlu verksmiðj-
unni?
„Við notum öll heilleg tæki eins
og þau leggja sig. Einu tækin, sem
við kaupum er pressa og sjóðari frá
Noregi, tæki sem framleidd voru
árið 1968, en þessi tæki koma I
stað þriggja sjóðara og tveggja
pressna. Þannig verða nú tvö stykki
í stað fimm og með því sparast
mikið gólfpláss. Þá voru pressurnar
tvær i gömlu verksmiðjunni, sem
við nú hendum, orðnar ævagamlar,
smiðaðar i Kaliforniu sem ávaxta-
pressur fyrir tugum ára. Fyrir utan
þessi tæki kaupum við ný soðkjarna-
tæki, mun stærri og fullkomnari en
þau sem við höfðum áður og eyði-
lögðust í snjóflóðinu. Öll önnur tæki
eins og kyndarar, skilvindur, þurrk-
arar og fl verða úr gómlu verksmiðj-
unni."
AÐEINS KEYPT
EINN RAFMÓTOR
— Þurftuð þið ekki að kaupa
alla rafmótora nýja?
„Það hefur tekizt að gera við alla
mótora, sem voru i gömlu verk-
smiðjunni. Og mér vitanlega hefur
aðeins verið keyptur einn rafmótor
fyrir nýju verksmiðjuna. Þá var
einnig gert við alla snigla er heillegir
voru, en nokkra þarf þó að smíða."
„Hver verða afköst verksmiðj-
unnar?"
„Þau verða svipuð og i gömlu
verksmiðjunni eða um 700 tonn á
sólarhring."
— Hvað er til f því, sem ein-
staka menn hafa haldið fram, að
verið væri að reisa mjög full-
komna síldarverksmiðju í Nes-
kaupstað?
„Það er hrein fjarstæða. Við
notum allt, sem hægt er að nota úr
gömlu verksmiðjunni og var þar
margt komið til ára sinna. Ef við
hefðum byggt verksmiðju eins og
Danir og Norðmenn gera nú, þá
hefðu öll tæki verið úr rústfriu stáli.
Sérstök mengunartæki sett upp og
þar fram eftir götunum "
— Verður gert eitthvað sérstakt
til að koma f veg fyrir mikinn
mökk frá verksmiðjunni?
TVÆR REYKSKILJUR
í STAÐ FJÖGURRA
„Tvær reykskiljur verða i þessari
verksmiðju, en á þeirri gömlu voru
þær fjórar. Enn vitum við ekki, hvað
sett verður ofan á þær. Heilbrigðis-
eftirlitið hefur krafizt, að hár skor-
steinn verði settur á verksmiðjuna.
Hins vegar vitum við ekki hvort
fjármagn fæst til þess eða á hvaða
hátt annan þetta á að gerast "
„Hvernig hefur gengið að fjár-
magna þessar miklu framkvæmdir
og er öruggt að nægt fé verði fyrir
hendi þar til verksmiðjan er komin
upp?
ÁÆTLUNARTÖLURNAR
OFLÁGAR
„Um þessar mundir stöndum við
á krossgötum, Áætlunartölur sölu-
skattsstigsins, sem við áttum að fá
til uppbyggingarinnar, hafa reynzt
eins og allir vissu of lágar miðað við
tjón Við erum nú búnir að fá það fé,
sem gert var ráð fyrir og tekjustofn
Viðlagasjóðs er að ganga til þurrðar
Hugmyndin er að reyna að fá
þessum stofni framlengt og viður-
kennt að tjónið hafi verið meira Það
Notum öll heilleg 1