Morgunblaðið - 26.10.1975, Side 26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. OKTOBER 1975
25
fyrir að framkvæmdir
»á fer allt úr skorðum
* gömlu verksmiðjunnar
Rætt við Ólaf Gunnarsson,
framkvæmdastjóra Síldarvinnslunnar
má ekki koma fyrir, að framkvæmd-
irnar stöðvist á neinn hátt, þá fer allt
úr skorðum Þessi rhál öll verða
tekin til athugunar I þessari viku, þar
eð upprunalega upphæðin er búin
Persónulega tel ég, að það takist að
leysa fjárhagsvandræðin Ef það
tekst ekki, þá hefur verið illa farið
með þá fjármuni, sem hafa farið til
þessara framkvæmda og þegar hafa
verið veittir."
— Hvernig verða löndunarað-
stæður við nýju verksmiðjuna f
vetur?
„Löndunaraðstaðan verður svipuð
og áður. Við munum flytja vigtarnar
frá gömlu verksmiðjunni inn að
þeirri nýju Hins vegar flytjum við
ekki kranana, sem þar eru að þessu
sinni, þar sem ekki þarf að nota þá
við löndun, nema þegar verið er að
landa feitfiski eins og t d síld og
makríl."
— Má ekki búast við, að bilanir
verði meiri f nýju verksmiðjunni
fyrst i stað, ef miðað er við gömlu
verksmiðjuna?
,,Að sjálfsögðu má búast við ein-
hverjum byrjunarörðugleikum, en
vonandi gengur vel að bræða strax I
byrjun Það má líka koma fram, að I
gömlu verksmiðjunni var mjög sam-
valinn mannskapur og höfðu margir
starfað þar I fjölda ára. Sumir hafa
nú skipt um starf og öllum ér
kunnugt um afdrif nokkurra manna,
en engu að siður höfum við enn
úrvalsmannskap, þó að sumir muni
reyndar vera óvanir bræðslustörfum
i upphafi."
— Hvað verðið þið með stórar
mjöl- og lýsisgeymslur?
5000 LESTA MJÖLGEYMSLA
„Mjölgeymslan verður álika stór
og sú gamla og mun taka um 5000
lestir af sekkjuðu mjöli. Lýsisgeym-
arnir verða nú heldur minni, en þeir
eiga að taka 3000 lestir, en þeir
gömlu tóku 4000 lestir. Á ,meðan
ekki er bræddur feitari fiskur en
loðnan i stórum stil, þurfum við ekki
á stærri geymum að halda Mest
höfum við brætt 40 þús. lestir af
loðnu á einni vertið áður."
-— Hvenær hófust framkvæmd-
irnar við bræðsluna f sumar?
„Þær hófust i byrjun júli. Veturinn
var notaður til að gera allar teikn-
ingar að nýju verksmiðjunni og
síðan urðum við að bíða nokkuð
með að hefja framkvæmdir, þar sem
ekki var búið að fylla upp það land,
sem bræðslan stendur á fyrr en þá,
og þegar við hófum framkvæmdir,
voru aðeins 3 metrar frá syðri
grunni verksmiðjunnar út í sjó."
— Flestar fiskimjölsverksmiðjur
landsins eru stálgrindahús, en þið
reisið steinsteypt hús. Hver er or-
sök þess?
,,Já, bæði verksmiðjuhúsið og
mjölgeymslan eru reist úr stein-
steypu. Við fengum tilboð I stál-
grindahús, en þegar til kom reyndist
aðeins 12% verðmunur á stál-
grindahúsum og steinsteyptum Við
höfum alla tið átt I erfiðleikum með
okkar gömlu stálgrindahús, því
gaflar þeirra hafa viljað bogna inn I
slæmum veðrum og viðhaldskostn-
aður á þeim hefur verið mikill Verk-
smiðjuhúsin eru reist úr bitum og
strengjasteypu og eru allir bitar
steyptir I Neskaupstað, nema hvað
rifjaplötur I þakið og burðarbitar eru
fengniraf Reykjavfkursvæðinu."
— Standast framkvæmdirnar
áætlun?
3 VIKUM Á
EFTIR ÁÆTLUN
„Það verður að viðurkennast að
sem stendur erum við 3—4 vikum
á eftir áætlun. Sjálft verksmiðju-
húsið á að vera fokhelt í lok næstu
viku og þá þegar hefjumst við handa
við að klæða þakið."
— Eru mörg stig útboða eftir?
„Nýbúið er að bjóða út raflagnir
og frágang alls rafmagns Tilboð
bárust frá sex aðilum og verða þau
opnuð i lok næstu viku Rafmagns-
vinnan er verulega mikið verk og má
búast við að 1 2 — 1 3 menn þurfi til
að vinna verkið, ef allt á að vera
tilbúið á réttum tima "
— Hvað hafa margir menn
unnið að byggingarframkvæmd-
unum I sumar?
„Yfirleitt 30—40 manns, fyrst og
fremst húsasmiðir, járnsmiðir og
verkamenn og flestir þessara manna
eru frá Neskaupstað. Nokkuð mis-
jafnlega hefur gengið að fá menn til
vinnu, og höfum við óneitanlega
orðið varir við stórframkvæmdir
rikisvaldsins, og kaup og vinnutími
farið eftir'þvi."
200 MANNS STARFA
HJÁ SÍLDARVINNSLUNNI
— Tókst ykkur ekki að koma
frystihúsinu i gang á ótrúlega
skömmum tima eftir snjóflóðið?
„Það má segja, að það hafi kofnizt
af stað á tiltölulega mjög stuttum
tíma. Framleiðslan hefur gengið
mjög vel, frá þvi að það tók til starfa
á ný i byrjun apríl og þess má geta,
að framleiðslan er orðin svo til hin
sama og var á sama tlma i fyrra t d
vantar okkur aðeins 100 lestir af
flökum til að vera með sömu flaka-
framleiðslu Frystihúsið stöðvaðist I
þrjá mánuði, en meðan það var
stopp, rákum við niðurlagningar-
verksmiðjuna. Jafnhliða viðgerðum
á húsinu voru framkvæmdar breyt-
ingar á þvi, sem byrjað var á, er
náttúruhamfarirnar áttu sér stað og
leiddu af sér."
— Hvað starfar margt fólk hjá
Sildarvinnslunni um þessar
mundir?
„í landi starfa um 130 manns,
sem er óvenjulega fátt, en fólki
fækkar nokkuð er skólar byrja og
einnig fáum við minni fisk á haustin
Þá eru um 50 manns að staðaldri á
skipunum þrem, en 10—15 menn
eru ávallt I fríi á skipunum, þannig
að við þau starfa um 65 manns,"
sagði Ólafur Gunnarsson að lokum
tæki úr gömlu verksmið junni
Fjórir 36 tonna
geymar fluttir
einn kílómetra
EITT viðamesta verkið, sem eftir
er í endurreisn síldarverksmiðj
unnar er flutningur gömlu hrá-
efnisgeymanna frá rústum gömlu
verksmiðjunnar inn að nýju verk-
smiðjunni, en þessi leið er um 1
kílómetri. Hráefnisgeymarnir eru
fjórir tafsins og hefur Gísli H. Guð-
laugsson tekið að sér flutning
þeirra, en hver geymir er talinn
vera 36 tönn að þyng.
,,Við gerum ráð fyrir að vera 40
daga að þessu,” sagði Gísli þegar
Mbl. Ræddi við hann og bætti. við,
„það verður ekki auðhlaupið að
þessu, en við flytjum þá landleiðina.
Til að byrja með þarf að lyfta hverj-
um geymi 2,5 metra af þeim stað,
sem þeir standa nú Síðan þarf að
setja sleða undir þá og grind inn í
þá, þannig að þeir falli ekki saman
og svo er hugmyndin að beita
tveimur jarðýtum fyrir sleðann og
draga geymana inneftir veginum
Þegar þeir verða komnir að undir-
stöðunum við nýju bræðsluna þarf
að lyfta þeim á ný í rétta hæð og
slaka þeim niður, en til þess erum
við með sérstakan útbúnað.”
— Væri ekki hægt að flytja þá
sjóleiðina eða *með einhverjum
öðrum hætti?
„Það kom til tals að flytja þá
sjóleiðina, en horfið var frá því ráði,
þar sem geymarnir hefðu strandað
nokkuð langt frá uppfyllingunni hér
Auðvitað væri líka hægt að flytja þá
með öflugri þyrlu, en slík verkfæri
fyrirfinnast ekki á íslandi, við erum
það langt á eftir, því miður Og
einnig væri hægt að flytja þá með
stórum krönum, en það yrði mikið
fyrirtæki að flytja þá til Neskaup-
staðar."
Ippbyggingin
i
\eskaupstað
Gísli H. Guðlaugsson.
Verksmiðjan
ekki fullkomnari
en gengur og gerist
Þa5 er nóg að gera hjá járn-
iðnaða rmönnum I Neskaupstað
þessa dagana við að koma fyrir
tækjum í nýju síldarverksmiðj-
unni. Verkstjóri þar er Ólafur
Hauksson og sagði hann að búið
væri að koma fyrir báðum sjóð-
urunum og annarri pressunni. Þá
væri einnig búið að koma upp
ofnunum við þurrkarana og báð-
um kötlunum.
Þá sagði Ólafur. að 15—25
manns ynnu við niðursetningu vél-
anna dag hvern og um leið og húsið
væri komið undir þak færi verkið að
sækjast vel
— Verður mikið af nýjum
tækjum i verksmiðjunni?
„Mjög litið, ný soðkjarnatæki hafa
verið keypt í stað þess, sem eyði-
lagðist. ennfremur gömul pressa og
sjóðari og annar ketillinn "
— Verður mikill munur á hús-
næðinu frá þvi sem var?
„Eðlilega verður hann mikill Öll-
um tækjum er komið fyrir á mjög
hagkvæman hátt og þau standa öll
hátt yfir gólfi, þannig að auðvelt
verður að komast að til að þrifa, sem
er nauðsyniegt í verksmiðjum sem
þessum, en þessi verksmiðja verður
ekkert fullkomnari né glæsilegri en
gengur og gerist "
>. fli J> . —~M~ ■■
Qlafur Hauksson: