Morgunblaðið - 26.10.1975, Qupperneq 27
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. OKTOBER 1975
UPPBYGGING atvinnulífsins í Neskaupstað hefur mikið mætt á einum
manni í sumar, en það er Ragnar Sigurðsson hafnarstjóri. Hann hefur
bæði verið i forsvari fyrir hinum miklu hafnarframkvæmdum. sem
nauðsynlegt var að fara út i vegna flutnings sildarverksmiðjunnar og
svo hefur Ragnar verið fulltrúí Viðiagasjóðs i Neafcawystað. Ragnar
sagði, þegar við ræddum við hann á sfcrifstofu hans i fófegsheimilinu
Egilsbúð, að í upphafi hefði bæjarstjérn fcosið 9 manna uppbyggingar
nefnd og í henni ættu sæti: Logi Kristjánsson, bæjarstjóri, Reynir
Zoéga, bæjarfulltrúi, Haukur Ólafsson, bæjarfulltrúi, Jóhann K. Sig-
urðsson, bæjarfulltrúi frá bæjarstjórn, Jóhannes Stefánsson og Ólafur
Gunnarsson frá Sildarvinnslunni, Gylfi Gunnarsson frá Steypusölunni,
Eirikur Ásmundsson frá Bifreiðaþjónustunni og Sigfinnur Karlsson frá
Verkalýðsfélagi Norðfirðinga. Það var svo þessi nefnd, sem kaus
Ragnar sem framkvæmdastjóra. og til þess að létta sér siðan störf við
hafnargæzluna var Gisli B. Gislason ráðinn sem hafnarvörður. Fyrir
utan þessa uppbyggingarnefnd Norðfirðinga kaus alþingi 3ja manna
þingmannanefnd til þess að vera tengiliður milli nefndar heimamanna
og stjórnvalda og i henni eiga sæti þeir Sverrir Hermannsson, sem er
formaður nefndarinnar, Tómas Árnason og Lúðvik Jósepsson. ..Siðan
þessari skipan var komið á hefur samvinna verði að milli okkar hér
heima, þingmannanefndarinnar og hins vegar Viðlagasjóðs," segir
Ragnar.
hafnarverkaframkvæmdirnar, sem
nauðsynlegt var að fara út i, eftir að
ákveðið var að flytja ætti bræðsluna
i botn fjarðarins
,,Það var Ijóst strax um áramót,
þegar sýnt þótti. að bræðslan yrði
ekki byggð upp á sínum fyrri stað,
að gera yrði nýja höfn. Á s.l ári
hafði verið samþykkt í hafnarstjórn
að smiða bryggju fram af húsum
Síldarvinnslunnar Átti það að vera
stálþilsbakki með fyllingu inn af
Vilyrði hafði fengizt fyrir því, að
þessi framkvæmd yrði hrundið af
stað 1976—7 7 Þegar stjórn SVN
hafði tekið sina ákvörðun um að
flytja bræðsluna í botn fjarðarins,
þar sem reyndar var byrjað á höfn
fyrir nokkrum árum, ákvað hafnar-
stjórn að halda hafnargerðinni þar
áfram. Að þessu verki hefur nú verið
unnið I sumar og segja má að þessi
framkvæmd komi i stað fram-
kvæmdanna, sem fyrirhugaðar voru
á næsta ári og þar næsta, en það var
framkvæmd upp á nokkuð á annað
hundrað millj. kr á núverandi verð-
'lagi. Allir telja þessa ákvörðun til
hagsbóta og hefur framkvæmdum
aðeins verið flýtt, en þær eru af
svipaðri stærðargráðu og fyrirhug-
aðar voru úti af húsum SVN, ', segir
Ragnar.
— Hvað tók langan tima að
hanna höfnina fyrir botni fjarðar-
ins?
„Þegar allar ákvarðanir höfðu ver-
ið teknar, var fengið leyfi stjórnvalda
fyrir því að gera straumfræðiathug-
un á höfninni. Var það gert vegna
þess, að reynslan, sem fengizt hafði
af 1 áfanga bátahafnarinnar fyrir
botni fjarðarins, var ekki nægilega
góð Þessar athuganir önnuðust
Gísli Viggósson og Bergsteinn Giss-
urarson verkfræðingar hjá hafnar-
málastjórn, ásamt starfsmönnum
Straumfræðistofnunarinnar. Jafn-
framt þessu var farið að vinna að því
að skipuleggja byggingarsvæði á
hafnarstæðinu og fyrir ofan höfnina,
og þá með það fyrir augum að velja
Síldarvinnslunni, olíustöð og fleiri
þjónustufyrirtækjum lóðir. Það, sem
háði einna meSt straumfræðirann-
sóknunum, var hve litlar tölfræðileg-
ar og veðurfræðilegar upplýsingar
lágu fyrir. Úr þessu var þó bætt með
því að setja upp ófullkomna veðurat-
hugunarstöð á hafnarstæðinu og
bylgjumæla í firðinum.
Árangur þessara athugana var þó
minni en búizt hafði verið við þar
sem eftir mikil óveður I janúar komu
tiltölulega mjög mild veðurog mæli-
tækin voru ekki sett upp fyrr en
þetta var allt um garð gengið. Hins
vegar tókst að fá nothæfar niður-
stöður og komu þær að miklu gagni
við straumfræðirannsóknirnar ''
FRAMKVÆMDIR
HÓFUST ( APRÍL
— Hvenær var svo ákveðið,
hvar bræðslan skyldi standa?
„Það var tiltölulega fljótlega, sem
ákveðið var að hún skyldi standa
austan við hafnargarðinn, sem kom-
inn var og fylla þurfti upp mikið
svæði út i sjó til að byggja undir
þetta fyrirtæki og olíustöðina. Höf-
uðástæðan fyrir því, að þessi staður
varð fyrir valinu, er, að menn töldu
að með þvi að hafa bræðsluna á
þessum stað myndi sparast timi, þar
sem stefnt er að því að Ijúka bygg-
ingu bræðslunnar fyrir næstu loðnu-
vertið. Um leið og þessi ákvörðun
var tekin, var Ijóst, að búa þyrfti
þeim bátum, sem ekki eru tengdir
loðnuveiðum, aðstöðu annars ataðar
í höfninni. Framkvæmdir við þetta
hófust ekki fyrr en i lok april og
hefur undirbúningsstarfið skilað sér
— En hvernig gekk hreinsunin
fyrir sig?
„Jafnhliða endurreísn fyrirtækj-
anna var unnið að hreinsun eftir þvi
sem hægt var, en það gekk þó seint
vegna mikilla snjóalaga Fyrstu vik-
urnar var unnið að björgun verð-
mæta, en það gekk erfiðlega, enda
veður í janúar með afbrigðum slæm
eins og flestir muna Þó tókst ótrú-
lega vel að bjarga verðmætum hlut-
um út úr brakinu. Milljónahlutir
fundust af lager Síldarvinnslunnar,
sem siðan eru notaðir um þessar
mundir í nýju bræðsluna, og Bif
reiðaþjónustan náði i varahluti og
Spjallað við Ragnar Sigurðsson
um uppbygginguna og höfnina
fengið 420 millj. kr. til endurreisn-
ar, en þar sem endanlegt tjónmat
liggur ekki fyrir, veit maður ekki
hver endanleg niðurstaða verður.
Hins vegar er augljóst að aukið
fjármagn þarf til, þar til að stofnlán
liggja frammi og önnur fyrirgreiðsla
fæst Og ég á von á að Norðfjarðar-
deild Viðlagasjóðs starfi áfram á
meðan hlutirnir eru ekki komnir í
það horf sem þeir eiga að vera f."
420 M. TIL ENDUR
STARFS
— Nú er hreinsun ekki að fullu
lokið, hvert verður framhald
hreinsunarstarfsins?
„Það vitum við ekki gjörla, en
margt á eftir að hreinsa enn eins og
t.d. í sjónum. Þá verður að biða með
að taka alla vélarhiuti, sem skildir
voru eftir í bræðslurústunum, fram
til næsta sumars. Af þessum 420
millj. kr., sem runnið hafa til endur-
reisnarstarfsins, hafa um 50 millj.
kr farið í hreinsun, björgunarstörf
og annan rekstrarkostnað Sjálfur
gæti ég trúað, að það kostaði
10— 1 5 millj. króna að Ijúka hreins-
unarstarfinu og ganga þannig frá
svæðunum að sómi sé að, þannig
að heildarkostnaðurinn við hreins-
unina yrði um 70 millj. kr. samtals.
Þá vitum við ekki enn hve
mikilli olíu okkur tókst að bjarga,
en við höfum sent héðan
400 þús. lítra af svartolíu,
og eftir er töluverð olía i báta-
kvínni og nokkuð í grunni og göml-
um þróm bræðslunnar, sem enn
hefur ekki verið hægt að nálgast. Þá
vitum við að verulegt magn hefur
gufað upp úr bátakvinni, enda ekki
furða, þar sem steikjandi hiti var i
allt sumar. Að minu áliti verður
sennilega bezt að brenna þeirri oliu
sem eftir er þegar fer að hlýna
næsta sumar. Og þrátt fyrir, að
aðstæður hafi oft á tíðum verið hinar
erfiðustu, þá held ég að allir hafi
lagt sig fram við að leysa þessi verk
sem bezt af hendi."
I samtalinu við Ragnar kom fram,
að stærstu tjónþolarnir hafa mikið
séð um sin mál sjálfir, en önnur
stærsta framkvæmdin í Neskaup-
stað um þessar mundir, þ.e á eftir
byggingu sildarverksmiðjunnar, eru
Frá uppgreftinum f höfninni.
Þá sagði hann, að sér hefði verið
falið að taka á móti fjármagni frá
Viðlagasjóði, sem notað væri til
uppbyggingarinnar Matsmenn Við-
lagasjóðs hefðu verið lengi í Nes-
kaupstað og notið þeirrar aðstöðu,
sem hann hefði upp á að bjóða
— Hvert var aðalstarfið fyrstu
mánuðina eftir Náttúruhamfarirn-
ar?
„Fyrstu mánuðina var unnið eftir
þeim lögum, sem sett voru í upp-
hafi, en nokkur tími leið þar til hægt
var að fara að vinna eftir reglugerð-
inni, þar eð nokkurn tima tók að
semja hana eða 1 7 april s.l.. en þá
var sett reglugerð um Norðfjarðar-
deild Viðlagasjóðs. Siðan hefur ver-
ið náið samstarf milli min og aðal-
skrifstofunnar i Reykjavik Mats-
menn hafa enn ekki lokið störfum að
fullu, en þó er búið að meta öll
smærri tjón. Hins vegar er fullnaðar-
mati enn ekki lokið eins og á Síldar-
bræðslunni og frystihúsinu Þá hafa
bætur fyrir lausafjármuni ekki verið
ákveðnir endanlega, t d hefur ekki
náðst endanlegt samkomulega um
bætur til handa Steypusölunni h.f.
Þegar er búið að- greiða mestan
hluta þess, sem metið hefur veríð,
en nokkuð er samt eftir Þá hefur
dregizt að bifreiðaþjónustan hafi
getað byrjað á nýrri byggingu vegna
þess að ekki var að fullu lokið við
skipulag á svæðinu fyrir innan
Naustahvamm fyrr en fyrir skömmu.
i samráði við stjórnvöld var lögð
mest áhersla á að Bifreiðaþjónustan
og Steypusalan kæmu yfir sig
bráðabirgðahúsnæði, og var það
gert á kostnað fyrirtækjanna i húsi
steypusölunnar. Endurbætur húss-
ins eru vandaðar, þannig að það
verður áfram í fullu gildi. Siðan fór
Steypusalan i að endurbæta og nýja
tækjakost sinn En eitt aðalverkefnið
fyrstu vikurnar var að leggja áherzlu
á frystihúsið og koma því i gang svo
fljótt sem auðið yrði Þar sem þetta
var stærsta atvinnustöð bæjarins var
ekki talið vansalaust að láta það
stanza lengi og eftir þrjá mánuði
hófst rekstur þess á ný Fram að
þeim tima hafði sá fiskur er hingað
barst farið i saltfiskverkun. Og einn-
ig var unnið í niðurlagningarverk-
smiðjunni, sem er á efstu hæð frysti-
hússins, og slapp að mestu við
skemmdir i snjóflóðunum."
MILLJÓNAHLUTIR FUNDUST
heileg tæki fyrir 15—2 millj.
króna. Kostnaður við björgun þess-
ara verðmæta var tiltölulega lítill.
Okkar aðalhöfuðverkur var svart-
olian. Við stóðum ráðþrota út allan
janúarmánuð og vissum ekki hvað
gera skyldi. Þá var unnið af miklum
vanmætti, bæði vegna tækjaskorts
og eins var ekki vitað hvernig ætti
að standa að málinu. Meðan á þessu
stóð var ekkert hægt að komast að
sildarverksmiðjunni f lok janúar
kom stór krani til Neskaupstaðar frá
vitamálastjórn og eftir það var hægt
að vinna skipulega að hlutunum.
Snjór blandaður svartolíu, var settur
i hráefnisgeymana og það, sem ekki
komst þar fyrir, var sett í smábáta-
kvina i höfninni, en hún var sérstak-
lega búin til þess Þetta var erfitt
verk, en gekk vel."
— Hvernig var aðkoman, þegar
búið var að moka snjónum frá
verksmiðjunni?
SKEMMDfRNAR MINNI
EN HALDIÐ VAR
„Það kom fljótlega i Ijós, að
skemmdir höfðu ekki orðið eins
miklar á mörgum stykkjum og hald-
ið var i fyrstu. T.d. kom í Ijós, að
hægt var að nota stóru pressuna og
sjóðarann, sem hefðu ekki kostað
undir 50—60 millj. kr. ný. Viðgerð-
arkostnaður á þessum hlutum er
aðeins brot af nývirði. Aftur á móti
tókst á ná í samskonar tæki frá
Noregi á tiltölulega lágu verði, keypt
úr gamalli verksmiðju þar og voru
þau keypt i stað eldri pressa og
sjóðara, sem löngu voru orðin úrelt
áður en slysið varð. Rafmóturum
tókst flestum að bjarga i tiltölulega
góðu ástandi, ennfremur eru raf-
magnstöflur að mestu heilar og
sumar þurfti aðeins að hreinsa "
— Hver er heildarkostnaðurinn
við endurreisnarstarfið orðið?
„Um s.l mánaðamót höfðum við
Höfnin byggð á þurru
og því mun ódýrari
vel. í upphafi var Ijóst að verulega
landaukningu þyrfti undir bræðsl-
una og oliustöðina Og til þessaðfá
nægilegt landrými var Ijóst að aka
þyrfti a.m.k 1 50 þús rúmmetrum á
þennan stað, auk þess sem miklar
grjótfyllingar þarf utan á kantana
sjávarmegin. Nú var ákveðið að
grafa höfnina á þurru og til þess að
komast að uppgraftarefninu þurfti
að fjarlægja um 20 þús. rúmmetra
af mold. Hún var sett á hliðarbrautir
flugvallarins og jafnað þar út, þann-
ig að völlurinn breikkaði.
Með þvi að nýta efnið úr höfninni
i landfyllinguna spöruðust gifurlegir
fjármunir og um þessar mundir að
búið að aka 190 þús rúmmetrum á
þetta svæði. Samkvæmt kostnaðar-
áætlun, sem nú liggur fyrir, var
kostnaðurinn orðinn 79 millj. kr.
um s.l. mánaðamót og ef frá.er
dreginn ýmis kostnaður eins og t.d.
við kaup á stálþili og hönnunar-
kostnaður hafnarinnar, þá er eining-
arverð rúmmetra með útjöfnun á
nýju uppfyllingunni og frágangi i
kringum 360 krónur Miðað við þá
tölu, var útreikningsverð hjá hafnar-
málastofnuninni um s.l áramót 400
krónur fyrir rúmmetrann. Þess má
einnig geta, að eftir tvær fyrstu
vinnuvikurnar i april hækkuðu allar
vélaleigur um 55% og akstur um
20% sem eru aðalgjaldaliðirnir i
framkvæmdinni."
HÖFNIN GRAFIN Á ÞURRU
— Hvernig hafið þið grafið upp
úr höfninni?
„Verkið er unnið i þurrkvi og til
þess þurfti að útbúa skilvegg sem er
nokkuð efnismikill, en kostnaður við
hann er innifalinn í þeim tölum, sem
fyrr voru nefndar, en eftir er að
moka honum upp, sem er nokkuð
verk, þannig að einingarverðið mun
hækka litillega. Nú er verkið vel á
veg komið, en eftir á að reka niður
stálþil, sem vafalaust verður mun
ódýrara með þessari aðferð og það
ætti að flýta fyrir niðursetningu
þess, þvi nú þarf ekki að sæta lagi á
flóði og fjöru og hægt að vinna í
flestum veðrum. Þá má geta þess,
að með því að vinna verkið á þenn-
an hátt, fékk vörubilafloti Norðfirð-
inga ærinn starfa og við höfum ekki
þurft að fá nema tvö aðflutt graftar-
tæki. Og ég tel að ef þessi aðferð
hefði verið notuð áður við hafnar-
gerð hér, þá hefði margt getað farið
betur t.d. í sambandi við dælingu úr
þurrkvinni."
— Hefur höfn aldrei verið gerð
á þennan hátt á islandi?
„Patreksfjarðarhöfn mun hafa ver-
ið gerð á þennan hátt á striðsárun-
um en kveikjan að þessu hérna kom
reyndar i fyrra þegar við gerðum
smábátakvina, en hún var grafin á
þurru og gekk mjög vel."
— Hafa margir unnið að þess-
um f ramkvæmdum f sumar?
„Tiltölulega fáir verkamenn hafa
unnið i höfninni, 3—4 venjulega,
en margir tækjamenn og bílstjórar
hafa unnið hér. Aðjafnaði eru 7—8
bilar í gangi, ennfremur tvær gröfur
og Lörain-krani. i sumar hefur verið
unnið frá 8—10 alla daga og á
laugardögum til kl 7. Vinna hefur
aðeins fallið niður á sunnudögum
og núna eftir að tók að dimma er
unnið frá kl 8—8 "
— Getið þið lokið við verkið á
þessu ári?
„Við verðum að gera það, annars
yrði hlaupið frá verkinu hálfkláruðu
og þá er hætt við að mikið fari til
spillis. Vitað er að allmikið fjármagn
þarf til viðbótar, en ef ekkert óvæTit
kemur fyrir, ætti að vera hægt að
Ijúka verkinu á næstu 4—5 vikum,
og er það bráðnauðsynlegt, þar sem
stíflugarðurinn var ekki gerður til að
þola vetrarveður.
Þegar búið verður að reka stálþilið
niður sem er 1 20 metrar, er fyrir-
hugað að dæla sjó inn i kvina og að
moka garðinum i burtu. Og ég verð
að segja að þetta hefur verið einstak-
lega skemmtileg framkvæmd og
væri betur að hægt væri að nýta
þennan verkhátt sem víðast við
hafnarframkvæmdir.
Á næsta ári er svo fyrirhugað að
reisa svonefndan brúsa fyrir framan
innsiglinguna, en hann á að draga
úr sjógangi í höfninni og síðan þurf-
um við að ganga frá þekjunni á
hafnarbökkunum," sagði Ragnar að
lokum.