Morgunblaðið - 26.10.1975, Page 32

Morgunblaðið - 26.10.1975, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. OKTOBER 1975 TÍZKUTAL Já, það má víst með sanni segja, „tízkan er harður húsbóndi“, og þeir sem allsráðandi eru í þeim heimi, virðast Kvöldkjóllinn er perlu- skrýddur. stundum leika sér aó því að skapa andstæður frá einu ári til annars. Pilsfaldurinn hefur verið á skikkanlegum stað síðpstu misseri, hulið hnéð og oft meira af fótleggjum. Gleðileg breyting frá hinum ör- stuttu, óklæðilegu pils- um, sem voru allsráðandi um tíma. Á síðasta hausti fóru að ryðja sér til rúms víð pils, skáskorin eða sniðin í mörgum dúkum. Gæti ég trúað, að varla hafi feng- izt önnur gerð af pilsum hér í búðum síðustu mánuði. Þessir kjólar eru frá Vves Sainl Laurent, og er þessi Jína ein- kennandi fyrir hans föt. Nýlega hafa verið birt- ar myndir af „haustlínu" tízkuhönnuðanna í París, en þar fóru fram tízku- sýningar hjá þeim þekktustu í þessari grein, um mánaðamótin júlí og ágúst. Og hvað blasir við? Það er kannski bezt að minnast fyrst á það, sem er algjörlega and- stætt víðu pilsunum, þröng pils á kjólum, stuttum og síðum, jafn- vel svokallaðir „strokkar". Það er ekki annað að sjá en að það sem við gáfum á flóa- markaðinn í hitteðfyrra og hafði verið óhreyft í skápunum okkar í langan tíma, sé nú bara í fullu gildi. í staðinn fyrir víðar, lausar flíkur, eru sniðin nú flest aðskorin, þröng. Það er mikið af svörtu flaueli, chiffon og moire í kvöldfatnaði, sem við eru notuð slæður, sjöl og jakkar. Kvöldkjólar eru jafnvel bróderaðir með silki og perlum eins og í gamla daga, og pífur sjást aftur. Síður, svartur „strokkur" úr silkijersey með örmjóum perluskrýddum hlýrum og jakka yfir var eitt af því, sem Dior sýndi. Dag- kjólar eru úr jersey, þröngir peysukjólar með rúllukraga, tvískiptir kjólar þar sem sameinað er jersey og prjónaefni. Kápur eru af ýmsum gerðum, stórar tjaldlaga með hettu eða með bundnu belti, þröngar og með skinni, skinnkragar eru jafnvel á regnkápum. Svo eru stakkar, anorak- Kjólarnir eru beinir, axlirnar breiðar, og pilsin eru styttri en hjá hinum tfzkuhönnuðunum. ar og ,,poncho“ af öllum gerðum hátt á listanum, og peysur koma nú í stað jakkanna, sem svo mikið hafa verið notaðir yfir kjóla. Skór og stígvél virtist vera notað jöfnum hönd- um, en hælarnir á skón- um eru nú hærri en áður. Og hinn frægi Alex- andre, hárgreiðslu- meistari í París, gerði auðvitað nýja hár- greiðslu í tilefni sýning- anna, greiðslu svona dá- lítið í stíl við árið 1930, slétt að ofan en krullur í hliðunum. Málið — frystið svo Málið — frystið svo. Allir kannast við það, að því fylgir töluverð aukavinna að hreinsa penslana eftir notkun, sérstaklega ef nota á pensilinn aftur daginn eftir. Við heyrðum um það ráð um daginn, að pakka penslunum inn í plast og frysta þá svo. Þegar nota á penslana aftur, eru þeir látnir þiðna í e.þ.b. Ví klst, og þá getum við aftur farið að mála. Ullarhúfur og treflar, langir og miklir, eru enn sem fyrr notuð við þessar nýju tízkuflfkur. Þá má segja, að treflarnir hafi verið margvafðir utan um sýn- ingarstúlkurnar og leit auðvit- að ákaflega vel út á þeim. Kvöldkjóll með hettu frá Dior. Kvöldkjóll frá Dior tfzkuhús- inu, sem Marc Bohan er höf- undur að. KjóIIinn er úr silki, en jakkinn er úr svörtu flaueli. Sagt, er að allar konur vilji eignast svona jakka, en hann vakti einna mesta aðdáun á hans sýningu. Anorak og kápa frá Dior. Yfirhöfn frá Mme Grfs. Tómatar TÓMATARNIR eru upprunnir í Mexico, þar sem þeir voru fyrrum ræktaðir til skrauts, en ávextirnir álitnir eitrað- ir. Seinna komust menn að því, að tómatar voru mjög bragðgóðir. Frakkar kölluðu tómata „ástarepli“, Pomme d’amour, endur fyrir löngu og trúðu því jafn- vel að það yki ástríður manna að neyta þeirra. Tómata er getið í garð- yrkjubókum á 16. öld en síðustu 50 árin hefur neyzla þeirra fyrst orðið almenn. Tómatar eru Ijúffengir eins og þeir koma fyrir og einnig í alls konar mat, sósum og sem safi. Vatnsinnihald þeirra er mikið, en úr þeim fáum við bæði C og A og B vítamín, og síðast en ekki sízt, hitaeiningarnar eru fáar, eða 20 hitaeiningar í 100 g af tómötum. Steiktir tómatar Bornir fram með steiktu kjöti, heitu eða köldu. 8 tómatar, 4 matsk matarolía, salt og pipar. Tómatarnir þvegnir og þerraðir, settir í eldfast fat, matarolíu hellt yfir, kryddað með salti og pipar. Settir í ofninn í u.þ.b. 15 mfn. Fylling í tómata Blandað saman 2 dl af hveitibrauðsmylsnu, 1 dl saxaðri steinselju, einu hvítlauksrifi, Ví tsk. salti, VÆ tsk. basilikum og dálítið af svörtum pipar. Olífuolíu lA—% dl hrært saman við til að fyllingin verði ekki þurr. Tómatarnir skornir í tvennt, kjarninn tekinn úr og fyllingin látin í staðinn, síðan bakað í ofni (175—200° c) I 25 mínútur. Borið fram heitt með brauði, hrís- grjónum eða spaghetti. Fylling f tómata. Skinka smáttskorin, blandað saman við saxaðan lauk, pipar og sinnep. Þessu er blandað saman við hálfþeyttan rjóma og notað sem fyll- ing í tómata, mjög ljúf- fengt sem smáréttur eða með öðrum mat.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.