Morgunblaðið - 26.10.1975, Síða 37

Morgunblaðið - 26.10.1975, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. OKTÖBER 1975 37 Þing Alþýðusambands Vestfjarða 22. þing Alþýðusambands Vestfjarða var haldið á Isafirði 10. og 11. okt. s.l. A þinginu voru samþykktar ályktanir um verkalýðs- og kjaramál, heilbrigðismál, sam- göngumál, landhelgismál, orku- mál o.fl. Þingið telur að með óbreyttri stefnu sé gjaldþrot alþýðuheim- ila fyrir dyrum og lýsir yfir stuðningi við uppsögn kjara- samninga landverkafóiks fyrir 1. des. n.k. — Þingið lýsir yfir óánægju með hlutaskipti sjó- manna, „þar sem nær helm- ingur raunverulegs fiskverðs rennur beint til útgerðarinnar og sjóða hennar og kemur ekki til skipta.“ Þá telur þingið að hvetja eigi frekar en nú er til öflunar gæðafisks með sér- stakri hækkun á línu- og hand- færafiski. — Þingið lýsti yfir óánægju með verðákvörðun á steinbít, sem er þýðingarmikið hráefni við útgerð vestfirzkra línubáta. Þingið telur að stjórnvöld hafi gert sig sek um alvarlega kjaraskerðingu úti á lands- byggðinni með tilfærslu á fjár- magni til suðvesturhorns lands- ins og hvetur þingmenn Vest- fjarða til þess að vera enn betur á verði um, að sú atvinnuupp- bygging, sem átt hefur sér stað að undnförnu á Vestfjörðum, fái eðlilega fjármagnsfyrir- greiðslu. Þingið skorar á stjórnvöld að vinna að verðtryggingu lífeyris- sjóða verkalýðshreyfingar- innar. Þingið hvetur til bættrar heilbrigðisþjónustu og bættra samgangna bæði á sjó og landi. Þingið mælir gegn því að samið verði við aðrar þjóðir um veiðiheimildir innan 50 mflna fiskveiðilögsögunnar og bendir á að brýn nauðsyn sé til að nýta fiskimiðin skynsamlega. Þá skorar þingið á þingmenn kjör- dæmisins að vinna að raunhæf- um úrbótum í orkumálum. I stjórn Alþýðusambands Vestfjarða voru kjörnir: Pétur Sigurðsson, ísafirði, forseti, Karvel Pálmason, Bolungarvik, varaforseti, Guðmundur Frið- geir Magnússon, Þingeyri, ritari, Bjarni L. Gestsson, Isafirði, gjaldkeri og Hörður Snorrason, Bolungarvfk, með- stjórnandi. — í varastjórn: Hendrik Tausen, Flateyri, Jónas Helgason, ísafirði, og Guðmundur Einarsson, Isa- firði. Yfir hafið með HAFSKIP SKIP VOR MUNU LESTA ERLENDIS Á NÆSTUNNI SEM HÉR SEGIR: Skip vor munu lesta erlendis sem hér segir: HAMBORG: Langá 3. nóvember + Skaftá 14. nóvember + Langá 24. nóvember + Skaftá 1. desember + Langá 1 1. desember + ANTWERPEN: Langá 6. nóvember + Skaftá 12. nóvember + Langá 27. nóvember + Skaftá 4. desember + Langá 1 5. desember + FREDRIKSTAD: Selá 6. nóvember Laxá 12. nóvember Laxá 24. nóvember. GAUTABORG: Selá 5. nóvember. Laxá 13. nóvember. Laxá 28. nóvember. KAUPMANNAHÖFN: Rangá 27. október. Selá 3. nóvember Laxá 14. nóvember Laxá 26. nóvember HELSINGBORG: Selá 4. nóvember Laxá 27. nóvember HELSINKI: Rangá 1 7. nóvember VENTSPILS: Rangá 14. nóvember. Rangá 9. desember GDYNIA/GDANSK Rangá 19. nóvember. Rangá 11. desember Le Havre: Skaftá 10. nóvember. + Skipin losa/lesta á Akureyri og Húsavik. HMSKIP H.F. HAFNARHUSINU REYKJAVIK sImNTFN;. HAFSKIP SIMI 21160 MEKKA Stórglæsileg ný skápasamstæða með höfðingjasvip Nýja skápasamstæðan frá Húsgagnaverksmiðju Kristjáns Siggeirssonar hefur vakið sérstaka athygli fyrir smekklega hönnun, fallega smíði og glæsilegt útlit. Sérstök hillulýsing í kappa. Þér getið valið um einingar, sem hæfa yður sérstakiega, hvort sem þér óskið eftir plötuhillum, vín-og glasaskáp, bókaskáp, hillum fyrir sjónvarp og hljómburðartæki, o.s.frv. Mekka samstæðan er framleidd úr fallegri eik í wengelit, sem gefur stofunni höfðinglegan blæ. Mekka er dýr smíði, sem fæst fyrir sérstaklega hagkvæmt verð. Skoðið Mekka samstæðuna hjá: UTSÖLUSTAÐIR: Reykjavík: Kristján Siggeirsson hf. Jón Loftsson hf. Híbýlaprýði Akureyri: Húsavík: Selfoss: Keflavík: Augsýn hf. Hlynur sf. Kjörhúsgögn Garðarshólmi hf. Borgarnes: 1 Verzl. Stjarnan Bolungarvík: Verzl. Virkinn, Bernódus Halldórsson FRAMLEIÐANDI: KRISTJÁN SIGGEIRSSON HF. HÚSGAGNAVERKSMIÐJA Nýkomið mikið úrval af tréklossum fyrir dömur og herra. V E R Z LU N I N GEYTiBP

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.