Morgunblaðið - 26.10.1975, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. OKTÖBER 1975
Minning:
Gunnar Olafsson
véltœknifrœöingur
Fæddur 6. janúar 1922
Dáinn 15. október 1975
Kveðja frá ferðafélögunum.
Mánudaginn 27. október verður
ferðafélagi okkar og vinur um
áratugi jarðsettur frá Fossvogs-
kapellu.
Gunnar varð Tiráðkvaddur 15.
okt. er hann var á rjúpnaveiðum.
Alla sína ævi var hann mikill
áhugamaður um ferðalög .og þá
helst í óbyggðum íslands. Þær eru
ófáar ferðirnar, sem við höfum
farið saman og alltaf var hann
hress og kátur á hverju sem gekk.
Betri ferðafélaga og vin er erfitt
að hugsa sér. Nú þegar hann er
allur er hætt við að skarð það,
sem hann skilur eftir, verði seint
fyllt og erfitt verði að sætta sig
við það. Þannig er lífið og tilveran
„hittast og gleðjast hér um fáa
daga, heilsast og kveðjast það er
lífsins saga.“
En þá er að ylja sér við endur-
minningarnar um ógleymanlegar
samverustundir, sem fylgja okkur
til æviloka. Ekki erum við á einu
máli um hvort við hittumst hinum
megin á þeim himnesku veiði- og
skíðaslóðum, en gaman væri það.
Að lokum okkar dýpstu sam-
úðarkveðjur til systranna þriggja
,og annarra aðstandenda.
Gunnar Ölafsson tækni-
fræðingur við Siglingamálastofn-
un ríkisins lést 15. október s.l.
Gunnar var fæddur 6. janúar 1922
á Hvammstanga, sonur hjónanna
t
Kveðjuathöfn um móður mina
MARÍU HALLGRÍMSDÓTTUR,
Brávallagötu 1 6 A,
fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 28. október kl. 1 3.30.
Jarðsett verður frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 29 október kl
13 30
Astrid Sigfrid Jensdóttir.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma
ÁGÚSTA KRISTÍN INGIMUNDARDÓTTIR ANDERSEN
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 28 október kl
15 00
Adda Andersen Vilhelm Andersen
Ásta Andersen Jórunn Andersen
Stella Andersen Edith Andersen
tengdabörn og barnabörn
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi
ÞORSTEINN ÞORKELSSON,
Bólstaðarhlíð 39,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 28 okt. kl. 13.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hans er bent
á líknarstofnanir.
Friðgerður Friðfinnsdóttir, Sigriður Helga Þorsteinsdóttir,
Jóhann Þorsteinsson, Kolbrún Guðmundsdóttir,
Gunnar Þorsteinsson, Kolbrún Hreiðarsdóttir,
Þorsteinn Jóhannsson.
t
Innllegar þakkir til allra þeirra sem heiðruðu minningu systur okkar
SVÖVU THORDERSEN,
Olduslóð 4, Hafnarfirði,
sem andaðist 14 okt s.l Sérstakar þakkir til Ragnars Pétursonar,
kaupfélagsstjóra svo og stjórnar og starfsfólks kaupfélags Hafnfirðinga
Sigríður Thordersen,
Helga Thordersen
Stefán Ó. Thordersen
og aðrir aðstandendur.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður ömmu og langömmu,
ÓLAFÍU KRISTRÚNAR MAGNÚSDÓTTUR,
Fálkagötu 25,
Sérstakar þakkir tiMækna og hjúkrunarfólks á deild A5 Borgarspitalan-
um.
Þuríður Helgadóttir,
Sigrún Helgadóttir.
Hálfdán Helgason,
Kristján Bjarnason,
Benedikt Bjarnason,
Ólafia Kr. Butler,
Magnús Bjarnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Rósa Bjarnadóttir,
Bjarni Sæmundsson,
Þórdís Hansdóttir,
Guðrún Guðmundsdóttir,
Ólafia Sigurðardóttir
John Butler,
Lilljan Bjarnason,
Olafs Gunnarssonar læknis og
Rögnu Gunnarsdóttur konu hans.
Hann nam plötu- og ketilsmíðaiðn
í Landssmiðjunni og lauk þaðan
sveinsprófi árið 1946. Að því
loknu hélt hann til Svíþjóðar til
framhaldsnáms, og lauk véltækni-
fræðiprófi þar í desembermánuði
árið 1948. Að því námi loknu
starfaði hann í tæp 2 ár erlendis,
hjá skipasmíðastöðinni Eriksberg
f Gautaborg, en kom heim árið
1951. Fljótlega eftir heimkomuna
hóf Gunnar störf sem tækni-
fræðingur við Landssmiðjuna en í
aprílmánuði 1958 fór hann til
starfa í Velsmiðjunni Héðni og
var þar við véltæknifræðings-
störf allt til júlímánaðar árið
1967, að hann gerðist starfsmaður
Vatnsveitu Reykjavíkur. Þann 1.
júlí 1969 var hann skipaður f starf
véltæknifræðings við Skipaskoð-
un rikisins en nú Siglingamála-
stofnun rfkisins þar sem hann
starfaði þar til hann andaðist.
Ekki kynntist ég Gunnari Ólafs-
syni fyrr en hann hóf störf við
Siglingamálastofnunina en þar
hefur hann starfað sl. 6 ár. Áður
hafði Björn Ólafsson skipatækni-
fræðingur, bróðir Gunnars,
starfað við sömu stofnun, en hann
andaðist fyrir nokkrum árum f
Svíþjóð.
Gunnar Ölafsson hefur ávallt
verið vinsæll meðal samstarfs-
manna og ég hygg að svo hafi
einnig verið hjá þeim, sem sam-
skipti höfðu við hann utan Sigl-
ingamálastofnunarinnar. Hann
var gæddur jafnaðargeði, ávallt
reiðubúinn að taka upp léttara
tal. Hnyttinn gat hann verið f
andsvörum en aldrei særandi eða
móðgandi, og getur því varla hafa
átt sér nokkurn óvildarmann.
öllum brá okkur samstarfsmönn-
um hans er okkur barst þessi
óvænta frétt að hann hefði orðið
bráðkvaddur á rjúpnaveiðum, en
það var eitt af hans áhugamálum í
tómstundum, og hafði þess vegna
geymt sér viku af sumarfríi til
haustsins, þegar rjúpnaveiði yrði
leyfð. Hann hefur þannig kvatt
þennan heim í þvf umhverfi, sem
honum var einna kærast, enda
voru fjallaferðir og öræfaferðir
um óbyggðir Islands mjög mikið
áhugamál Gunnars.
Við á Siglingamálastofnun
ríkisins munum sakna þessa dag-
farsprúða drengs, sem gæddur
var svo miklu jafnaðargeði, að
þótt á móti blési féll honum varla
nokkurn tfma styggðarorð af vör.
Grunnt var hinsvegar á gáska- og
gamanmál.
Systrum hans og öðrum ættingj-
um vil ég votta innilega samúð
mína.
Reykjavík, 21. október 1975
Hjálmar R. Bárðarson.
Agústa Hildibrands■
dóttir—Minning
Fædd 27. júlf 1906
Dáin 18. október 1975.
Á morgun, mánudag, verður
frænka mfn lögð til hinztu hvilu.
Ágústa Kristín Ingimundardóttir
Andersen hét hún, en fyrir mér
er hún alltaf Dadda.
Þegar mér barst fréttin um and-
lát Döddu frænku hvarflaði
hugurinn til liðinna barns- og
unglingsára minna, því á þeim
árum var ég jafnan aufúsugestur
á heimili hennar og manns
hennar, Kai Andersen, naút þar
ástar og umhyggju, og átti vináttu
stóra barnahópsins, sem ég leit
+
Eiginkona min
ÁGÚSTA HILDIBRANDSDÓTTIR,
Stóragerði 13,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 27. október kl. 3
e.h Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hennar
er bent á liknarstofnanir.
Sigurður Árnason.
t
Eiginmaður minn,
INGÓLFUR ÖRN ÁSBJÖRNSSON.
Sólheimum, Grfmsnesi.
lézt að heimili okkar aðfararnótt 23. október
Arnþrúður Sæmundsdóttir.
+
Útför föður okkar,
KARLS JÚLÍUSSONAR,
ættuðum frá Fagurey, Breiðafirði,
fer fram frá Dómkirkjunni, á morgun mánudag 27 þ.m. kl. 1.30. e.h.
Þröstur Karlsson,
Harpa Karlsdóttir,
Sigrún Stella Karlsdóttir,
+
KRISTJÁN ÓLASON
frá Húsavik
lézt í Landspítalanum aðfaranótt föstudagsins 24. október. Jarðarförin
auglýst síðar.
Eiginkona og synir.
+
Systir min
SIGURBJÖRG JÓNSDÓTTIR
fyrrv. kennslukona
Fálkagötu 30
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 28 október kl 3 e.h.
Blóm eru afþökkuð en þeim sem vildu minnast hennar er bent á
Liknarstofnanir.
Ingibjörg Jónsdóttir.
+
Hjartanlegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og
jarðarför
HALLDÓRS HALLDÓRSSONAR,
Efstalandi 14.
Sigriður Friðriksdóttir,
Jón Berg Helldórsson, Helga Sigurgeirsdóttir,
og barnabörn
oft eftir meðan pabbinn og
mamman voru að vinna. Þvt
vinnusemi, dugnaður og atorka
var það sem einkenndi þessa
frænku mfna mest.
Nokkur síðustu árin átti hún
við mikla vanheilsu að stríða, erí
hún var svo lánsöm að eiga góðan
mann og góð börn, sem reyndu af
fremsta megni að létta henni
sjúkdómsbyrðina.
Þessar fátæklegu línur eiga
ekki að vera nein eftirmæli, að-
eins lítill vottur þakklætis einnar,
sem löngum var tíður gestur á
heimili hennar.
Börnum hennar votta ég mína
dýpstu samúð við fráfall móður
þeirra og föður, en hann lagði upp
í sína hinztu för 1. október s.l. Ég
sé hann í anda bíða við Gullna
hliðið og taka á móti henni Döddu
minni, og það er hugarfró þrátt
fyrir harminn að vita þau núna
saman og sæl.
Margs er að minnast, margs að
sakna. Hafðu þökk fyrir allt og
allt frænka mín.
Unna.
ÞAÐ mun hafa verið hamingju-
dagur í Móhúsum í Garði þann 24.
ágúst 1894, er hjónunum þar,
Steinunni Jónsdóttur og Hildi-
brandi Tómassyni fæddist dóttir,
sem skírð var Ágústa. Foreldrar
hennar hafa ábyggilega beðið Guð
um farsæld og blessun henni til
handa, og einnig bróður hennar
Sigurjóni, sem fæddist rúmu ári
seinna. Nú hefur Ágústa, sem
varð amma mín tæpum 55 árum
seinna, lokið blessunarríku ævh
starfi sinu, en hún lést 19.
október s.l.
Mesti gleðidagur í lífi ömmu
var án efa sumardagurinn 10.
júní 1916, er hún giftist afa, Sig-
urði Árnasyni, eftirlifandi eigin-
manni sínum, sem lengi var
kenndur við Nordalsíshús.
Stofnuðu þau heimili að Lindar-
götu 3, sem nú er Lindargata 15.
Amma og afi eignuðust fjögur
börn, sem öll eru á lífi. Árni
fæddist 1917, Aðalsteinn 1922,
Hjördís Þorbjörg 1925 og Bryndís
Ágústa 1929. Barnabörnin eru
orðin 11 og barna-barnabörnin
eru 5.
Alltaf var mannmargt í litla
húsinu á Lindargötunni og vina-
hópurinn var stór. Einlæg og
órjúfandi tryggð var með ömmu
og bróður hennar, Sigurjóni, og
eftir að hann kvæntist Jórunni
Björnsdóttur, sem jafnframt er
uppeldissystir afa, og hóf búskap
að Lindargötu 10, má segja að
heimilin tvö hafi verið sem eitt.