Morgunblaðið - 26.10.1975, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. OKT0BER 1975
45
VELVAKANDI
Velvakandi svarar ! síma 10-100
kl 1 4— 1 5. frá mánudegi til föstu-
dags.
0 Kvikmynda-
gagnrýni
Kona nokkur bað okkur fyrir
eftirfarandi pistil:
„Það var ánægjuefni þegar
Morgunblaðið og reyndar fleiri
blöð tóku að birta fasta þætti um
kvikmyndir, þar sem aðalinntakið
er raunar kvikmyndagagnrýni.
Sjálf hef ég alla tíð verið mikil
„biómanneskja" og hef þvi mikla
ánægju af þessum þáttum. Þó er
fjarri því að~eg sé alltaf sammála
þvi áliti, sem fram kemur i þess-
um þáttum — reyndar mun það
nú víst sjaldnast, en það gerir
ekkert til, — alla vega er gaman
að lesa þetta og skemmta sér við
að vera á móti þvi, ef ekki vill
betur.
Það, sem mér finnst hins vegar,
er að kvikmyndagagnrýnendur
blaðanna ættu að taka til gaum-
gæfilegrar athugunar að fjalla
nokkuð um kvikmyndir, sem ætl-
aðar eru börnum.
Þótt ekki þyki það ævinlega til
fyrirmyndar, þá er það samt svo,
að upp til hópafara reykvisk börn
— sem og börn víðar um Iand, ef
að líkum lætur — i bió um helgar.
Þá verður þrjú-bíó yfirleitt fyrir
valinu, bæði tímans vegna og eins
vegna hins, að þá bjóða kvik-
myndahús sérstök kjör. Myndirn-
ar, sem sýndar eru á þessum tíma,
eru yfirleitt svokallaðar barna-
myndir.
Þótt skömm sé frá að segja þá
er ég ekki iðin við að sækja þessar
sýningar með börnum mínum, þó
hefur það komið fyrir að ég hef
farið með. Það eitt er kapituli út
af fyrir sig hvers konar samkom-
ur þessar barnasýningar eru út
frá umgengnis- og kurteisissjón-
armiði, en að mínum dómi er þar
um alvarlegt mál að ræða. Þar á
hver og einn fótum fjör að launa
.— og um leið olnbogum — i troðn-
ingnum þegar farið er út og inn.
Svo þegar inn er komið þá upp-
hefst hinn æðisgengnasti öskur-
kór og popppokasprenginga-
keppni, þannig að aðalskemmtun-
in virðist í þessu fölgin.
Ég ætlaði eitt sinn með fimm
ára dreng i kvikmyndahús i Ösló,
þar sem sýnd var ný mynd frá
afgreiðsluborðinu. En það hafði
ekki verið gert betur og rækilegar
en svo að við fundum bæði hár og
bióð á öxinni.
Ég starði full af hryllingi á
axirnar.
— Meinarðu að hann... hafi
þurrkað af öxinni og hengt hana
aftur hjá hínum verkfærunum
eins og ekkert væri...?
— Já ég meina það... En það er
engin af þessum sem eru þar
núna, svo að þér er óhætt að
slappa af... Því miður er ýmis-
legt annað i sambandi við þetta
morð sem okkur gengur ekki eins
vel að upplýsa.
Hann tók fram pípuna sína og
stakk henni milli varanna en
gleymdi að kveikja f.
— Sandell og morðingi hans,
sagði hann — hafa að öllum Ifk-
indum staðið f svipuðum sporum
og við gerum núna. Trúlega hafa
þeir farið að rffast, morðinginn
hefur gripið öxina á veggnum og
reitt hana til höggs... höggið hitti
Sandell f höfuðið rétt við vinstra
eyra og hann hefur áreiðanlega
hnigið niður samstundis. Við höf-
um ekki fengið enn niðurstuðu úr
krufningunni, en læknirinn telur
að hann hafi misst meðvitund
Walt Disney. Þá komst ég að því,
mér til mikillar furðu, að óleyfi-
legr var að koma með börn yngri
en sjö ára í kvikmyndahús og
yngri börn en tólf ára fengu ekki
aðgang nema þau væru i fylgd
með fullorðnum. Þegar ég fór að
hugsa það mál, fannst mér þetta
alls ekki svo vitlaus ráðstöfun, —
sérstaklega ekki þegar ég minnt-
ist barnasýninga hér á íslandi.
En þetta var nú útúrdúr.
Aðalerindið var að skora á kvik-
myndagagnrýnendur að láta
barnamyndir til sín taka, ekki síð-
ur en þær myndir, sem ætlaðar
eru öðrum aldursflokkum.
% Sömu myndirnar
ár eftir ár
Hér hefur viljað brenna við, að
sömu myndirnar séu sýndar ár
eftir ár, og ber þar mest að svo-
kölluðum hasarmyndum. Tarsan-
myndirnar eru náttúrlega eftir-
sóttar, enda virðist börnum þykja
þær mjög svo spennandi og
skemmtilegar. En þegar þær
sömu eru sýndar í mörg ár sam-
fleytt, þá fer ekki hjá þvi að spurt
sé um tilganginn.
Svo mikið vita þeir, sem eitt-
hvað fylgjast með því, sem gerist í
kvikmyndaheiminum, að mikið er
gert á ágætum barnamyndum,
sem aldrei sjást hér. Ég er ekki í
nokkrum vafa um á fólk myndi
með ánægju greiða heldur meira
fyrir aðgöngumiða á barnasýning-
ar ef úrvalið væri meira og betra
en nú er. Það er talað um að
kvenfólk sé annars flokks þjóðfé-
lagsþegnar, en hvað má þá segja
um börnin?"
# Helgistund
í barnatíma
sjónvarpsins
E.B., sem er móðir á Akureyri
skrifar:
„Ágæti Velvakandi.
Lengi hefur mig langað til að
skrifa þér um sérstakt áhugamál
mitt, þótt ekki hafi ég látið verða
af þvi fyrr en nú.
Mig langar sem sé til þess að
sjónvarpið taki til athugunar
hvort ekki eigi að flytja stutta
helgistund I lok hvers barnatima.
Sjálf hef ég reynt að kenna
börnum mínum vers og les alltaf.
með þeim bænir. Þau fara i
sunnudagaskóla og ég treysti mér
til að fullyrða, að af þessu hafi
þau ekki haft nema gott, þótt á
siðari árum hafi talsvert borið á
þvi, að fólk sé á móti því að guðs-
orð sé haft fyrir börnum og telji
að með þvi sé verið að innprenta
þeim eitthvað, sem enginn geti
tekið ábyrgð á að standist.
Ég hef hugsað talsvert um
þetta, þvi að það er svo langt í frá
að ég sé staðföst í trúnni. Miklu
fremur tel ég mig vera efasemda-
manneskju, en þó treysti ég börn-
unum mínum alveg til að hlusta á
guðsorð og trúa því svo, sem þau
vilja trúá. Mér finnst hraðinn og
óskapagangurinn svo mikill i
þessu þjóðfélagi, að ekki veiti af
að hafa eilthvað gott fyrir börn-
unum, og þess vegna datt mér i
hug þetta með barnatímann.
Mér þætti vænt um að heyra
skoðun fleiri foreldra á þessari
hugmynd.
E.B.“
HOGNI HREKKVISI
;
tmmmm
ÓDVRIR OG HENt GIR
I mörgum stærðum serður
Sendum hvert á land •• »•
Biðjlð um myndalista
STIL-HÚSGOGN
AUDRRFKKU 63 KÓPAVOG Ml 44600
INGÓLFS - CAFÉ
Bingó kl. 3 e.h.
Spilaðar verða 11 umferðir.
Borðapantanir í síma 1 2826
HÖTfL /A<iA
LÆKJARHVAMMUR/
ÁTTHAGASALUR
Hljómsvert Ragnars Bjarnasonar
söngkona Þuríður Sigurðardóttir
Dansað í kvöld til kl. 1
oq rattfat
TRÚLOFUNARHRINGA
rífl nfHthmt
MYNDAUSTA
PÓSTSENDUM,
ttMMffnna
^ulismibur
Uóbannta Itifsson
laugabtgi 30
BtiHnabife .
SjMI ^
EF ÞAÐ ER FRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
SIG€A V/öGA É VLVtm*
LKí 0 6GL0