Morgunblaðið - 26.10.1975, Síða 48
SILFUR-
SKEIFAN
BORÐSMJÖRLÍKI
SMJÖRLÍKW
SEM ALUR ÞEKKJA
Fékkst þú þér
trdpicana
■ i morgun ?
SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 1975
Evrópubikarkeppnin í handknattleik:
V íkingur fékk
Gummersbach
I (i/ER var drejíið um það hvaða
lið leika saman í 2. umferð
Kvrópubikarkeppninnar í hand-
knattleik, en sem kunnugt cr
hafa þrjú fslenzk lið (ilkvnnt
þátttöku sína I þessari keppni:
Islandsmeistarar Víkings í
Evrópuhikarkeppni meistaraliða;
lslandsmeistarar Vals I kvenna-
flokki f Evrópubikarkcppni
meistaraliða og bikarmeistarar
FII í bikarmeistarakcppnina.
Verða mótherjar fslenzku liðanna
ekki af xerri endanum, þar sem
Vfkingur dróst á móti hinu fræga
liði Gummersbaeh frá Vcstur-
Þýzkalandi, FII dróst á móti
norsku bikarmeisturunum
Oppsal frá Osló og Valur dróst á
móti dönsku mcisturunum IIG
frá Kaupmannahöfn. A Vfkingur
heimaleik sinn á undan, en Valur
og FH eiga að leika úti fvrst.
Fyrri lcikur í karlakcppninni á
að fara fram á tfmabilinu frá
11.—20. nóvembcr og seinni
lcikurinn á tfmahilinu frá 5.—11.
desember. Fyrri umferð f kvenna-
keppninni á að leika frá 2.—8.
janúar 1976 og seinni umferðin á
að fara fram á tfmahilinu 16.—22.
janúar.
árum, og útkoman úr þeim leik
var ekki slæm hjá okkur, 2-3
marka ósigur ef ég man rétt.
Þrátt fyrir allt er ég þó ekkert
kvíðinn að mæta þessum körlum,
en hitt er svo annað mál að von-
irnar um að komast í gegnum
þetta eru ekki miklar, ef maður
íf'tur raunsæjum augum á málið.
1 liði Gummersbach er einn
mesta skyttan sem um getur i
handknattleik. Hans Schmidt.
Rósmundur var að því spurður
h\ ort hann væri ekki hræddur við
skot hans:
— Nei, það er ég ekki, svarði
Rösmundur, — maður er í mark-
inu til þess að reyna að verja, en
ekki til þess að vera hræddur við
skotin.
— Það er ekkert vafamál að lið
Oppsal er eitt af fjórum sterkustu
liðunum í keppni bikarmeistara,
sagði Geir Hallsteinsson, FH-
ingur þegar hans álits var leitað á
andstæðingum FH í Evrópubikar-
keppni bikarhafa. — Oppsal liðið
er frægt fyrir góða frammistöðu í
Evrópubikarkeppni og er þess
skemmst að minnast að litlu
munaði að því tækist að slá út Iið
Gummersbach í meistarakeppn-
inni 1972.
10 manns slösuðust
í einum árekstri
GEYSIIIARÐL'R árekstur varö milli þriggja fólksbfla á Suöurlands-
braut uni klukkan hálf tvö í fyrrinótt. I þessum árekstri slösuðusf 10
manns ’’eira og minna og var mikið annrfki á slysadeild Borgarsjúkra-
hússins þá um nóttina eins og nærri má geta. Enginn mun hafa slasast
Iffshættulega.
Áreksturinn varð með þeim
hætti. að stór Buick-bifreið sem
ók austur Suðurlandsbraut
beygði skyndilega yfir á rangan
vegarhelming á móts við Ask og
lenti þar á Peugot-leigubifreið
sem kom á móti og á eftir henni
kom Saab-bifreið sem einnig lenti
í þessum mikla árekstri. I Buick
bílnum voru fjögur ungmenni
auk ökumanns og slösuðust allir í
bílnum. Sömuleiðis voru fimm
manns í leigubílnum og slösuðust
allir meira og minna, hlutu m.a.
beinbrot. 1 Saab-bifreiðinni
slasaðist enginn en hann er mikið
skemmdur eins og raunar allar
bifreiðarnar. Ökumaður
Buickbílsins var grunaður um
ölvun við akstur.
Þess má geta hér, að í tveimur
árekstrum sem urðu í Reykjavík á
fimmtudaginn varð að flytja 8
manns á slysadeildina til með-
ferðar, en enginn mun hafa
slasast alvarlega í þeim
árekstrurr.
Meðvitundar-
laus eftir um-
ferðarslys
ALVARLEGT umferðarslys varð
á mótum Laufásvegar og Njarðar-
götu um klukkan hálf fjögur í
fyrrinótt. Maður á mótorhjóli
missti vald á hjóli sínu og féll
harkalega í götuna. Hann slasað-
ist mjög alvarlega, hlaut m.a. höf-
uðkúpubrot og liggur nú á gjör-
gæzludeild Borgarsjúkrahússins.
Maðurinn mun ekki hafa verið
með öryggishjálm.
— Þetta var erfiðasta liðið sem
við gátum fengið, sagði Rós-
mundur Jónsson, hinn kunni
markvörður Víkingsliðsins, þegar
Morgunblaðið spurði hann f gær,
hvernig honum litisí á að fá
Gummersbach sem andstæðing f
keppninni. — Þeir tapa ekki leik
á heimavelli fyrir þýzkum liðum,
þannig að róðurinn hjá okkur
verður örugglega erfiður þar.
Annars lék Víkingur við
Gummersbach ekki fyrir mörgum
Heygæði mun
lakari en
í meðalári
RANNSÓKNIR hafa sýnt, að nær-
ingargildi töðu af óþurrkasvæð-
unum í sumar er miklu niinna en
í meðalári. Rannsóknastofnun
landbúnaðarins framkvæmdi
þessar rannsóknir.
I tilkynningu frá stofnunni seg-
ir, að sýni hafi borizt frá vestan-,
sunnan- og austanverðu landinu,
alls 82 sýni. Meðal annars kom
fram, að taðan á vestanverðu
landinu er mun blautari en hún
hefur verið á undanförnum árum
og taða á Austurlandi er betri en
úr hinum landshlutunum, þótt
hún sé lélegri en í meðalári.
Rannsóknastofa Norðurlands
rannsakar töðu úr þeim lands-
hluta.
millj. króna. Hilmar Rósmunds-
son sagði, að útflutningsgjaldið
væri að meðaltali um 17% eða 8.5
millj. kr. Útflutningsgjaldinu
væri ráðstafað á margvfslegan
Hilmar Rósmundsson.
Ljósmynd Ol.K.M.
„Töpuðum 4.9 millj. króna
í sjóðakerfið á 203 dögum”
—segir Hilmar Rósmundsson skipstjóri á Sæbjörgu VE
Tvö varðskip
ráku tvo út
Landhelgisgæzlan fann tvo v-
þýzka togara innan við 200 mílna
mörkin á Reykjaneshryggnum í
gærmorgun. Tvö varðskip voru
þegar í stað send til að stugga við
þeim og munu þeir hafa verið
fljótir út fyrir landhelgismörkin
þegar þeir sáu til ferða varðskip-
anna.
Hauststemmning á Þingvöllum.
SlÐUSTU daga hefur mikið verið
rætt um hvernig sjóðakerfi
sjávarútvegsins hefur leikið
fslenzka útgerðarmenn og
sjómenn og dæmi eru um það að
einstaka skip, sem notað hafa
litla olfu en fiskað ágætlega þurfi
að borga um það bil 100 krónur
fyrir hvern olfulftra og önnur
skip, skuttogarar, sem brenna
svartolfu, ekki nema kr. 1.13 kr.
pr. lftra. Til þess að sýna hvernig
sjóðakerfið virkar, fékk Morgun-
blaðið f hendur uppgjör tins
fslenzks fiskibáts af minni gerð,
en sem er þó marg frægt aflaskip,
Sæbjörg VE 56, sem margar
vertfðar var aflahæst fslenzkra
fiskibáta undir stjórn Hilmars
Rósmundssonar, skipstjóra og út-
gerðarmanns. Uthaldstfmi báts-
ins var 203 daear.
Aflaverðmæti bátsins upp úr
sjó var u.þ.b. 25 millj. króna og
útflutningsverðmætið um 50
hátt. 21.5% fer i tryggingasjóð
fiskiskipa eða 1.827.500.00 kr.,
7.9% fara til Fiskveiðasjóðs
Islands eða 671.500.00 kr., 7.6%
fara til Aflatryggingasjóðs eða
646.000.00 kr. 9.15% fara til Afla-
tryggingasjóðs, áhafnadeild eða
777.750.00 kr. og 51.81% fara til
oliusjóðs fiskiskipa eða alls
Framhald á bls. 47.