Morgunblaðið - 11.12.1975, Qupperneq 14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1975
Rafmagnstruflan-
ir í Stykkishólmi
Stykkishólmi, 6 des. 1975
I GÆR var hér rafmagnslaust f
um 3 klst, vegna bilunar við
Andakflsárvirkjun. Var þetta á
tfmabilinu kl. rúml. 2 til rúml. 5
eða á versta tíma. Varð að hætta
afgreiðslu á opinberum stöðum
eða afgreiða við kertaljós. Var
það mjög erfitt, t.d. á pósti og
sfma. Hefir nokkrum sinnum
komið fvrir að rafmagn hafi farið
af og einnig er það oft að spennu-
fall verður og er það ekki gott
fvrir viðkvæm rafmagnstæki. Er
þessi raforka þvf ekki eins trygg
og þegar dfselstöðvarnar voru
hér. Vonandi verður hægt að bæta
úr þessu.
S.l. fimmtudagskvöld lagði m.b.
Sæljón S.H. 103 af stað frá
Reykjavík til Snæfellsness. Var
þá suðaustan strekkingur. Þegar
keyrt hafði verið f 2 klst. breyttist
veður og gerði suðvestan af-
spyrnuveður með éljagangi, og
haugasjó. Þegar báturinn átti
u.þ.b. 2 stunda siglingu eftir að
Malarrifi kom á hann brotsjór og
færði í kaf að aftan og braut skjól-
borð bakborðsmegin. Þá hafði
byrðingurinn slegið úr sér sem
kallað er og kom leki að bátnum,
en þó ekki það mikill að dælur
höfðu að mestu við. Þegar til
Ölafsvíkur kom var veður farið að
ganga niður og þar var báturinn
þurrausinn. Hafði sjór lítilsháttar
komist f lest, en ekki í vélarrúm
svo vélar gengu eðlilega. Farið
var með bátinn í slipp í Stykkis-
hólmi þar sem gert verður við það
sem aflaga fór, en skemmdir eru
ekki eins miklar og álitið var í
fyrstu. Fréttaritari.
Sagan af Dúdúdú
eftir Öm Snorrason
BÓKAUTGAFA Þórhalls Bjarna-
sonar hefur sent frá sér bókina
„Sagan af Dúdúdú" eftir Örn
Snorrason með myndskreytingu
Halldórs Péturssonar, en myndir
hans hafa löngum hitt f mark.
Á bókarkápu segir að Örn
Snorrason móðgi ekki unga
lesendur með því að bjóða þeim
tæpitungu eða halda frá þeim
hverju sem þarf umhugsunar við.
Hann leiki sér að alls konar hug-
myndum úr nútíð og fortíð: skrifi
ævintýri þar sem minnzt er á
kosningar, mengi og mengun.
Hann yrkir jafnvel kostuleg atóm-
Ijóð sem ein sögupersónan flytur
konungi að fornum sið. Sífrjó
gamansemi höfundarins og
skringileg fyndni leika lausum
hala. En þó hlátursefnin séu mörg
og óvænt á hverri sfðu, gleymir
höfundur ekki alvörunni. Sagan
hefur lærdóm að flytja eins og
allar góðar sögur.
Sagan af Dúdúdú er 88 bls. að
stærð, sett og prentuð i Víkings-
prenti, en bókband er unnið í
Bókfelli.
IFANNAKLOM
eftir
Desmond
Bagley
Ný skáldsaga frá liendi þessa geysivin-
sæla höfundar. Margir telja að hér sé á
ferðinni skemmtilegasta og besta bók
Desmond Bagleys til þessa.
SUÐRI
Ljósmynd Sv. Þorm.
NC STENDUR yfir sýning á alls kyns listmunum á Háteigsvegi 30. Það er frú Guðrún Guðjónsdóttir,
sem stendur fyrir sýningunni en á henni er að finna fjölbreytt úrval listmuna, svo sem málverk eftir
vini Guðrúnar, vefnað, prjónavörur, útsaum, bækur og gamla þjóðlega muni. Guðrún hefur sjálf gert
marga af þessum munum.
Reglur um erlend-
ar lántökur hertar
Skulduðum tæpa 60 milljarða í júnílok
HINUM mikla viðskiptahalla
undanfarinna tveggja ára hefur,
svo sem kunnugt er, fylgt veruleg
aukning erlendra skulda þjóðar-
búsins og mun greiðslubyrði
vegna vaxta og afhorgana af þess-
um skuldum þyngjast mjög á
næstu árum. I júnflok s.l. skuld-
uðu tslendingar 58 milljarða f
erlendum skuldum til eins árs
eða lengri tfma.
Til þess að stemma stigu við
þessari þróun hefur reglum um
veitingu leyfa til að taka lán er-
lendis til lengri tíma en eins árs
verið breytt. Með breytingunum
eru reglur um lántökur af þessu
tagi hertar frá þvi, sem gilt hefur.
Helztu breytingarnar eru þær,
að framvegis mega erlend lán
vegna kaupa á skipum og flugvél-
um, nýjum sem notuðum, ekki
vera hærri en sem nemur % hlut-
um samnings- eða kostnaðarverðs.
Ríkisstjórnin hyggst með
þessum breytingum draga úr
frekari skuldasöfnun erlendis og
takmarka erlendar lántökur svo
sem frekast er unnt.
AlKa.ÝSINCASÍMINN ER:
22480
.
X-x-v.v
'
:::::::::
•:•:•:•■
ÞÉR TRYGGIÐ RÉTT LJÓSMAGN OG
GÓÐA LÝSINGU MEÐ ÞVÍ AÐ VELJA
RÉTTA PERU
Engin ein pera getur fullnægt öllum kröfum yðar. Þess vegna
býður OSRAM yður fjölbreytt úrval af hvers konar perum, til þess
að þér getið valið rétta peru og það Ijósmagn sem þér þarfnist.
Peru-úrval OSRAM gerir yður kleift að velja rétta lýsingu.
OSRAM
vegna gæðanna