Morgunblaðið - 11.12.1975, Blaðsíða 40
13
DAGAR
TIL JÓLA
SERVERSLUN
MEÐ
SVÍNAKJÖT
SILD FISKUR
FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1975
Einar ræðir
við Luns og
Callaghan
EINAR Agústsson utanríkisráð-
herra kom til Brtissel í gær, en
hann mun sitja þar ráðherrafund
Atlantshafsbandalagsins, sem
hefst í dag. Morgunblaðið hafði
samband við Einar í gær og
sagðist hann mundu eiga fund
með Joseph Luns, aðalfram-
kvæmdastjóra Atlantshafsbanda-
lagsins, klukkan 9.30 fyrir hádegi
í dag. Munu þeir ræða um fisk-
veiðideilu Breta og Islendinga.
Klukkutíma síðar hittir Einar svo
James Callaghan, utanríkisráð-
herra Breta. Ekki kvaðst Einar
búast við neinum nýjum tillögum
frá Callaghan til lausnar fisk-
veiðideilunni, né heldur kvaðst
hann hafa nokkuð nýtt að bjóða
Bretum.
Týndi Brighton
klippuklippunum?
ALLT bendir til þess að freigátan
Brighton hafi týnt klippuklipp-
unum sinum nú fyrir nokkrum
dögum — að því er Helgi
Hallvarðsson, skipherra á Þór
tjáði Mbl. Eftir að fréttist af
þessu tæki, sem Bretar hafa ætlað
að nota til þess að klippa á klipp-
ur varðskipanna hafa varðskipin
búizt við að verða þess vör.
I átökunum, er Þór klippti á
togarann St. Giles, sáu varðskips-
menn að eitthvað hékk aftan úr
skut freigátunnar, sem kom á
miklum hraða, um 28 mílum, að
Þór. Klippunum í freigátunni var
varpað f sjóinn og nú átti að láta
hart mæta hörðu, en að öllum
líkindum hefur freigátan verið á
of miklum hraða og þegar brezku
klippurnar komu f sjóinn og mót-
Baldur
bilaður
Áhöfn Landhelgisgæzlunnar, sem
verið hefur á Árvakri og flytjast
átti yfir á skuttogarann Baldur
fer ekki út á Baldri um sinn held-
ur Arvakri, þar sem alvarleg bil-
un hefur enn komið fram í Baldri.
Spilin, sem voru biluð og voru
ástæða þess að togarinn fór utan
tif viðgerðar, eru ekki betri við
heimkomuna en þau voru áður.
Jafnframt er eitthvað að vélum
skipsins. Viðgerð getur tekið ein-
hvern tíma og á meðan verður
Höskuldur Skarphéðinsson skip-
herra og skipshöfn hans með Ar-
vakur. Með bilað spil er ekki unnt
að klippa togvíra.
staðan jókst skyndilega, mun allt
hafa slitnað aftan úr Brighton.
Þannig fór um sjóferð þá.
Klukkan fimm f gær var haldinn fyrsti samningafundur samtaka launþega og vinnuveitenda. Bjern
Jónsson, forseti ASl, er formaður samninganefndar Alþýðusambandsins. Tveir af forystumönnum
launþega, þeir Björn og Jón Sigurðsson, sjást hér áður en fundurinn hófst ræða við nokkra
forystumenn vinnuveitenda, þá Barða Friðriksson Jón H. Bergs og Gunna^ Guðjónsson.
Átök Falmouths og Þórs í fyrrakvöld:
Freigátan reyndi að
slá Þór með íshnífum
Freigátuskipherrarnir þyrftu aldrei að standa fyrir almennum dómstól-
um ef eitthvað kæmi fyrir — segir Helgi Hallvarðsson, skipherra á Þór
ROLEGT var á miðunum fyrir
austan ( gærdag og hamlaði veður
veiðum fyrst framan af degi. Átta
vindstig voru og haugasjór, en
eftir þvf sem á daginn leið, gekk
veður niður. llm 40 til 50 togarar
voru á miðunum og f einum tog-
arahópnum var varðskipið Týr og
tókst honum að mestu að halda
þeim hópi frá veiðum. Varðskipið
Þór fór f gær inn á Seyðisfjörð til
þess að huga að þremur brezkum
duflum, sem slitnað höfðu upp úr
kafbátagirðingu, sem verið hefur
f firðinum frá strfðsárunum.
Morgunblaðið náði í gær tali af
Helga Hallvarðssyni, skipherra á
Þór, þar sem hann var á Seyðis-
firði. Helgi sagði, að brezku
verndarskipin og freigáturnar
sérstaklega brytu allar alþjóð-
legar siglingareglur. Hann kvað
freigáturnar ekki víla fyrir sér að
virða siglingareglur að vettugi,
enda gætu þær það í skjóli þess
að sjóliðsforingjarnir, sem stjórn-
uðu þeim, þyrftu aldrei að koma
fyrir dómstól og standa reikning
gerða sinna. Kæmi eitthvað fyrir
þá á siglingu, yrði settur yfir þá
herdómstóll, sem hefur sérstakan
skilning á hernaðaraðgerðum, og
hernaðarnauðsyn bryti lög og þeir
yrðu þvf sýknaðir. Varðskips-
menn væru ekki f neinum her, og
ef þeim yrði eitthvað á í
messunni, yrðu þeir að standa
ábyrgir gerða sinna fyrir sjódómi.
Þetta kvað Helgi meginskýringu
þess að brezki flotinn hagaði sér
svo dólgslega.
Um atburðina á laugardag sagði
Helgi að fregnir brezkra blaða-
manna, sem væru um borð í að-
stoðarskipum brezka togaraflot-
ans, hefðu ekki átt við rök að
styðjast. Aldrei hefði verið hreyft
við yfirbreiðslum á byssum Þórs
og hann hefði aldrei hótað að
skjóta, hvað þá móttekið nokkra
orðsendingu frá yfirmanni
Brighton. Skýringu Hálfdans
Henrýssonar, sem birtzt hafi í
Morgunblaðinu, hafi hins vegar
verið rétt, menn hefðu staðið í
námunda við aftari byssuna af því
að þar hafi verið skjól og þar sem
mikill sjór hafi verið og Þór þvi
oltið talsvert, hafi ef til vill ein-
hver stutt sig við byssuna, enda
væri hún til þeirra hluta ágæt.
Helgi sagði að engin orðaskipti
hefðu farið fram á milli freigát-
anna og Þórs utan í fyrrakvöld, er
Þór hafi hitt Falmouth á Vopna-
fjarðargrunni. Þá hafi freigátan
verið uppi með flögg, sem merktu
Framhald á bls. 22
Ráðherra ákvarðar gildi
framlagðra gagna frá Sunnu
GUÐNI Þórðarson, forstjöri
Sunnu og Air Viking, lagði f gær
fram f samgönguráðuneytinu
gögn varðandi getu fyrirtækisins
til að annast Kanarfeyjaferðir
fram til 10. janúar er ferðaskrif-
stofuleyfi Sunnu rennur endan-
Flugleiðir gera samning
um vöruflutninga í Afríku
FLUGLEIÐIR h.f. hafa gert stór-
an samning við aðila f Nfgerfu um
flutninga á farangri pflagrfma,
sem eru á heimleið frá Meeca.
Flogið verður frá horginni Jidda f
Saudi Arabiu til borganna Kano
og Lagos f Nígerfu. Alls verða
flognar 45 ferðir.
Samningurinn hljóðar upp á 1,6
milljónir dollara eða 271,5
milljónir króna. Er eingöngu um
að ræða flutninga á varningi, sem
pflagrfmar hafa með sér heim.
Pflagrfmarnir, sem kallast Hadji-
menn hafa heimild til að taka
með sér til Nfgerfu ótakmarkað
magn af tollfrjálsum varníngi,
svo sem litsjónvörp, heimilistæki
og slfkt.
Til þessara flutninga munu
Flugleiðir nota leiguflugvél frá
Seaboard í Bandaríkjunum, af
gerðinni DC-8. Flugmenn frá
Loftleiðum munu fljúga henni og
verða þeir staðsettir í Kano.
38 ferðanna verða til Kano en 7
til Lagos. Lfklegt er að leiguvélin
anni ekki ferðunum til Lagos og
að flugvél frá Cargolux verði látin
sjá um þann hluta flutninganna.
Þórarinn Jónsson hefur að
miklu Ieyti annast samningagerð-
ina fyrir hönd Flugleiða. Flutn-
ingarnir hefjast 1. desember og
standa til 11. janúar.
lega út samkvæmt leyfissviptingu
ráðuneytisins. Sagði Guðni f sam-
tali við Morgunbiaðið f gær að
hann vissi ekki betur en þessi
gögn hefðu verið tekin góð og
gild.
Brynjólfur Ingólfsson ráðu-
neytisstjóri staðfesti f samtali við
Morgunblaðið að Guðni hefði
komið með ýmis gögn f ráðuneytið
rétt fyrir lokun þess í gær, svo að
eftir væri að skoða þau betur og
myndi ráðherra taka ákvörðun
um hvort hann teldi þau fullnægj-
andi.
Ráðuneytisstjórinn kvaðst alls
ósmeykur við fullyrðingar Guðna
um að leyfissvipting Sunnu væri
lögleysa — hann væri þess full-
viss að sú ákvörðun gæti á allan
hátt staðist lagalega. Hann kvað
einnig fullyrðingu Guðna um að
hvergi lægi neitt fyrir hjá sam-
gönguráðuneytinu um vanskil af
hálfu Sunnu ekki rétta, þar eð
ráðuneytið hefði fengið upplýs-
ingar um fjárhagsstöðu Sunnu er
sýndi vanskil bæði í formi fall-
inna víxla og innstæðulausra
tékka.
Ráðuneytisstjórinn var þá
spurður um sannleiksgildi stað-
hæfinga Guðna um að ákvörðun
samgönguráðuneytisins um
leyfissviptingu Sunnu væri að
frumkvæði Seðlabankans. Ráðu-
neytisstjórinn svaraði því til, að
ráðuneytinu hefði borizt reikn-
ingar frá Seðlabankanum um
stöðu fyrirtækisins í nóvember en
tók fram að þá hefði ráðuneytið
ekki enn verið búið að fá í hendur
uppgjör Sunnu fyrir árið 1974,
sem þó hefði átt að berast fyrri-
hluta þessa árs. Hefði ráðuneytið
þrívegis ítrekað það við ferða-
skrifstofuna að fá þetta uppgjör
en árangurslaust. Hins vegar stað-
festi ráðuneytisstjórinn að-
spurður að það hefði ekki verið
að frumkvæði ráðuneytisins sjálfs
að reikningar Sunnu bárust því
nú í nóvember. Hins vegar kvaðst
hann líta svo á, að það væri í
verkahring Seðlabankans að
fylgjast með viðskiptum lána-
Framhald á bls. 22