Morgunblaðið - 16.12.1975, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 16.12.1975, Qupperneq 1
40 SIÐUR MEÐ 8 SIÐNA IÞROTTABLAÐI 288. tbl. 62. árg. ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1975 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Mál íslands fer Öryggisráðið í fyrir dag Kosningasigur Mal- colms Frasers í öllum kjördæmum Ástralíu hefur vakið óskipta athygli víða um lönd. Myndin er frá kosninga- fundi Frasers í Perth, þar sem voru 8 þúsund manns. (Sjá frétt á bls. 38) New York. 15. des. — Frá Elfnu Pálmadóttur Höfuðpaurinn setti lát sitt á svið fyrir 2 árum LtKLEGT ER talið að mál tslands komi fyrir Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sfðdegis á morgun, þriðjudag, skv. upplýsingum blaðafulltrúa S.Þ. en gæti þó breytzt. Þó á ráðið enn eftir að taka ákvörðun um hvort málið sé nægilega stórt og merkilegt til að vera tekið fyrir. Það er ekki gert fyrr en opinber fundur hefst. Bretar eru þar viðstaddir, en ekki tslendingar. t öryggisráðinu eru 15 þjóðir. og eru hingað Bretar eru meðal fastafuil- trúanna fimm, sem eru Kina, Bandarikin, Sovétríkin, Frakk- land og Bretland, og hafa þau hvert fyrir sig neitunarvald. Á opinbera fundinum tekur tsland sæti og fær ambassador okkar tækifæri til að skýra málstað tslendinga. En tillaga sem tslendingar geta samið verður að flytjast af einhverri af þjóðunum, sem sæti eiga f ráðinu. Aðrar, sem þar eiga sæti nú, eru Costa Rica, ttalia, Guyana, Irak, Japan, Máritanía, Sviþjóð, Kamerún, Hvíta-Rússland og Tanzanía. Hafa þeir Ingvi Ingvarsson ambassador og Hans G. Andersen ambassador verið að sitja fyrir fulltrúum þess- ara þjóða og ræða við þá, til að afla fylgis við málstað Islands. Ivory Richard, fulltrúi Breta, er nú forseti öryggisráðsins og ræður sjálfur hvort hann víkur úr því sæti meðan um þetta mál er fjallað. Geri hann það, mun Salim, fulltrúi Tanzaníu, væntan- lega setjast í forsetastól. En þjóðirnar skiptast á um að vera i forsæti. Blaðafulltrúi Breta sagði mér að hann væri að hugleiða þetta enn. öryggisráðið hefur haft i mörg horn að líta að undanförnu og fjallað um stór mál og mikilvæg, árás tsraela á þorp i Libanon þar sem drepnir voru tugir manna. Kýpurmálið sem fjallað var um allan daginn á laugardag og nú málefni Timor og innrás Indónesa I það land, það verður tekið fyrir á fundi siðdegis i dag 138 pílagrímar fórust í bruna nálægt Mekka eru hingað komnar sendi- nefndir með fulltrúum frá ýms- um hópum þar, Malayum og Indónesum. Hversu mikilvægt mál tslendinga virðist innan um slíkt er erfitt að gera sér grein fyrir. Blöð hér hafa varla minnzt á deiluna og um 100 blaðamenn á fundi i aðalstöðvunum hér spurðu aðeins hvenær tsland kæmi fyrir og kvikmyndin af árekstrunum á miðunum fyrir austan, sem kom í sjónvarpi hér um hélgina, reyndist að þeirra dómi ekki not- hæf vegna þess að hún endar áður en áreksturinn við varðskipið raunverulega varð og myndin náði varla þeim gæðaflokki, sem sjónvörp hér vilja. Aftur á móti var franski sjávarkönnuðurinn Cougteau í sjónvarpi um helgina og fjallaði um hafréttarmál og sagði m.a. að útfærsla allra landa i 200 mílur væri næstum glæpsamleg, það jafngilti þvi að skipta höfunum öllum I 140 eignarhluta og að þjóðirnar ættu að halda sig við samþykktir Sameinuðu þjóðanna frá 1970 um að allur heimur ætti að njóta góðs af höfunum. Nefndi hann að for- dæmi tslands og Mexikó væri slæmt fordæmi. Svo erfitt yrði að ná skynsamlegum skiptum af auð- æfum hafsins eftir þetta. En hann var aðallega að ræða um mengunarmál og síðan hafið í heild. Um úrslit máls tslands ef og þegar um það verður fjallað i öryggisráðinu er erfitt að spá Ekki verður fram hjá því gengið að minnast þess að í sáttmála Sameinuðu þjóðanna stendur að þegar um lagalegt atriði er að ræða i deilu, sem vísað er til Öryggisráðsins. þá skuli ráðið mæla með að vísað sé til alþjóða- dómstólsins í Haag, og af að fylgjast með umræðum í Öryggis- Framhald á bls. 27 IRA-mennirnir í London: London 15. desember AP. LÖGREGLAN í London hefur staðfest, að maður, sem gengið hefur undir nafninu Michael Wilson og hefur verió mest eftirlýsti maðurinn f Bretlandi undanfarna mánuði, sé f varðhaldi í London, eftir að hann og þrfr félagar hans úr IRA gáfust upp á föstudag. Fjórmenningarnir höfðu þá haldið miðaldra hjónum f gfslingu í 6 daga, eða frá þvf að þeir gengu f gildru lögreglunnar fvrir framan veitingahús f Mayfair laugardaginn 6. þessa mánaðar. Lögreglan telur vist að fjórmenningarnir hafi borið ábyrgð á hryðjuverkunum í Lond- on undanfarna 2 mánuði, en i þeim létu 8 manns lífið í sprengingum og tugir særðust. Lögreglan hefur nú einnig fundið bækistöðvar mannanna, þar sem talið er að sprengjurnar hafi ver- ið framleiddar. Þeir eru einnig taldir hafa myrt Ross McWhirter, ritstjóra metabókar Guiness, en hann var einn harðasti gagn- rýnandinn á IRA og hafði heitið 100 þúsunda dollara verðlaunum fyrir upplýsingar, sem leiddu til Ríkisstjórn Navarros: Lýðræðislegt stjórnarfar að vestrænni fyrirmynd 138 pílagrímar fórust í bruna nálægt Mekka Jeddah — 14. des. — Reuter. 138 pflagrímar fórust f bruna skammt frá Mekka s.l. föstu- dag. 151 særðist f eldsvoðan- um, sem varð þegar gasgeymir sprakk f tjaldborg pflagrfm- anna. 1 tjaldborginni voru um 52 þúsund manns, en nú eru alls um 2 milljónir pflagrfma komnar til að vera við fórnar- hátfðina Idd Al-Adha, sem er mest hátfða múhameðstrúar- manna. Tjaldborgin, sem brann, var ein af mörgum, er risið hafa f borginni Mina, sem er f 10 kflómetra fjarlægð frá Mekka. Fréttin barst frá innanrfkis- ráðuneyti Saudi-Arabfu er tveir dagar voru liðnir frá at- burðinum. Þar var ekki greint hvaðan hinir látnu pflagrfmar voru, en þeir, sem komnir eru til Mekka, eru frá öllum þjóð- um, þar sem múhameðstrú er við lýði. Madrid — 15. des. — Reuter. STEFNUYFIRLÝSING hinnar nýju rfkisstjórnar Spánar, undir forsæti Carlos Arias Navarro var birt að loknum fyrsta rfkis- stjórnarfundinum f kvöld. Þar er lofað umbótum, sem færa munu rfkið f átt til lýðræðislegra stjórnarhátta að vestrænni fvrir- mynd. Þá segir, að stjórnin muni beita sér fyrir auknum borgara- legum réttindum, sérstaklega hvað viðkemur félagafrelsi og endurskoðun ýmissa stofnana, svo sem þingsins. I yfirlýsingunni sagði, að stjórnin mundi leyfa „gagnrýni, sem borin væri fram af ábyrgðar- tilfinningu“, auka frjálsræði fjöl- miðla og leggja áherzlu á að efla tengsl við Efnahagsbandalag Evrópu. Stjórnin lýsti því yfir, að unnið yrði að endurbótum á starfi stjórnmálasamtaka og verkalýðs- hreyfingarinnar, þannig að þessir aðilar gætu gegnt hlutverki sínu í efnahagsuppbyggingu landsins. „Ríkisstjórnin telur virka þátt- töku borgaranna og félagasam- taka ómissandi, án greinarmunar eða forréttinda," sagði í yfir- lýsingunni. Stjórnin greindi ekki nánar frá áformum sínum um endurbætur, en sagði, að þær mundu bíða betri tíma. Um leið kom fram, að um skyndilega breytingu á stjórnar- háttum þeim, sem tíðkuðust í tíð Frankos, yrði ekki að ræða. Þau öfl í landinu, sem andstæð eru stjórninni, hafa gagnrýnt harðlega, að einungis fimmti hluti fulltrúa á spánska þinginu, Cortes, er kjörinn beinni kosningu, og segja það sönnun Framhald á bls. 27 handtöku hryðjuverkamannanna. Talsmaður Scotland Yard skýrði fréttamönnum frá því að lögreglan teldi að Wilson sem gengur undir öðru nafni nú, hefði sett dauða sinn á svið fyrir tveimur árum til þess að geta hafið nýtt lif og óhultur innan IRA. Telur lögreglan að hið rétta nafn Wilsons sé Harry Duggan, en ekkert hefur spurzt til hans i tvö ár og fengu foreldrar hans taugaáfall er þeim var sagt að hann væri á Iífi og hvað hann hefði gert. Móðir hans, Bridget Duggan sem er 60 ára að aldri, sagði við fréttamenn að hún yrði niðurbrot- in manneskja ef fregnirnar reyndust sannar. Hún sagðist aldrei hafa vitað til þess að sonur sinn hefði haft afskipti af stjórn- málum. Faðir Duggans sagði við fréttamenn, að hann hefði aldrei trúað að sonur sinn væri látinn. Hjónin sem fjórmenningarnir héldu í gíslingu í ibúðinni, John og Sheilu Matthews, sneru heim i gær eftir að hafa dvalizt í sjúkra- húsi í 2 daga til að jafna sig eftir martröðina. SÖgðu þau að fjór- menningarnir hefðu aldrei beitt þau ofbeldi, en notað hroðalegt orðbragð. Sheila var látin sitja upprétt í hægindastól allan tím- ann og var svo stirð, er henni var sagt að hún mætti fara, að hún gat varla hreyft sig. Maður hennar var bundinn og látinn liggja á sófa beint á móti hurðinni inn i stofuna, þannig að hann var í beinni skotlínu ef lögreglumenn hefðu gert tilraun til að brjótast inn í fbúðina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.