Morgunblaðið - 16.12.1975, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1975
Pn venv
^and'P'
Igreenmetis-^
Í'JvaxtaKvörn''1
,moV?"
16.870
*»■*•<*"
(\\is££uir
Sðo***'
• i.;a í*/ja
PiNjiffiifi
KENWOOD ”
electronic blender = W^
Lao9a',e^1
Bðkmennllr
Minningar og sagnir úr Hornafirði
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
Jónsson). Formáli er eftir
Vilmund Jónsson (son
Guðrúnar) og Þórhall Vil-
mundarson (son Vilmundar).
Nafnaskrá fylgir og kort af
söguslóðum.
Guðrún Guðmundsdóttir
hefur verið kona greind og vel
máli farin. Minningar hennar
bera hvorki mærð né til-
finningasemi vitni. Allt er sett
fram á skýran og umfram allt
hljóðlátan hátt. Við erum leidd
inn í liðinn tfma, sem vegna
hins góða leiðsögumanns
verður nálægur í gleði sinni og
sorg. Einkum er það sorgin og
voveiflegir atburðir sem fá
lesandann til að átta sig á því
lífi, sem lifað var í Hornafirði.
Barnadauði hefur til dæmis
verið algengur þar. Þegar
Bergur, bróðir Guðrúnar deyr,
fær það mjög á hana. Hún æðir
um gólfið með líkið f fanginu og
kveðst vilja deyja líka:
„Kaiynski þú fáir það,“ anzaði
móðir mín. Annað sagði hún
ekki mér til huggunar.
Síðan var sent eftir föður
mfnum og Bergur lagður til.
Ekki sá ég foreldra mína gráta,
og sjálf grét ég ekki lengur.“
A öðrum stað er sagt frá
Guðrún Guðmundsdóttir
manni, sem fylgt hefur níu
börnum sinum til grafar án
þess að tárfella.
Við lestur minninga
Guðrúnar Guðmundsdóttur
hvarflar að manni að Skaft-
fellingar séu búnir óvenjulegm
frásagnarhæfileikum. Nú í
haust komu einnig út
minningar Þórbergs Þórðar-
sonar: I Suðursveit. Ekki
verður þeim jafnað saman Þór-
bergi og Guðrúnu. En er ekki
frásagnarlist þeirra sprottin úr
sama jarðvegi?
I formálanum segir Vilmund-
ur Jónsson frá sérkennileg-
um talsháttum eða orðskvið-
um móður sinnar. Síðasta
veturinn, sem hún lifði, fékk
hann hana til að skrá horn
firskar sagnir og færði hún
• honum f rúmið á sunnu-
• dagsmorgnum blað og blað:
„Svo gekk móðir mín frá sögn-
um sínum, að nokkrar skráði
hún orði til orðs, en aðrar laus-
lega, þannig að mér mætti
skiljast efni þeirra. Hef ég
orðið að ljá þeim sögnum að
nokkru leyti orðfæri mitt en
með blygðun hlýt ég að játa, að
það þolir engan samanburð við
orðfæri móður minnar um
lipurð og látleysi, allra sízt,
þegar henni tekst bezt upp“.
Sagnirnar eru 60 og hver
annarri skemmtilegri auk þess,
sem þær eru merkilegar þjóð-
lífslýsingar. Ein þeirra, Rassinn
í stoðina, verður látin standa
hér að Iokum um leið og þakkað
erfyrirgóðabók:
„Eitt sinn um háttatíma,
þegar kona Péturs paura er að
ljúka eldhússtörfum, kennir
hún, að hún er að taka léttasótt,
og biður bónda sinn að bregða
nú skjótt við óg sækja yfirsetu-
konuna. Hann segir: „Mikill
pauri, settu rassinn í stoðina, og
bídu til morguns."
Pétur pauri mun hafa búið
einhvers staðar á Mýrunum."
úr Hornafirði, Hornfirzkar
sagnir, Tveir frásöguþættir,
Skýringargreinar eftir Vil-
mund Jónsson, Bókarauki
(Ferð um Skaftafellssýslur
sumarið 1935 eftir Vilmund
Q Guðrún Guðmundsdóttir:
□ MINNINGAR UR
HORNAFIRÐI
Q Með skýringargreinum og
bókarauka eftir Vilmund
Jónsson landlækni.
Q Þórhallur Vilmundarson
sá um útgáfuna.
Q Hið fslenzka
bókmenntafélag 1975.
MINNINGAR úr Hornafirði er
dálítil bók, sem Hið íslenzka
bókmenntafélag hefur gefið út.
Bókin lætur lftið yfir sér, en er
hin vandaðasta að allri gerð.
Efni hennar greinist í eftirfar-
andi hluta: Bernskuminningar
i Kenwood
thorn mtm
GRÆNMETIS-
OG
ÁVAXTA-
KVÖRN
v-
Blandar hrásalat,
drykk, súpur,
ungbarnamat,
malar möndlur
og ísmola -
Malar rasp úr
brauði á
nokkrum
sekúndum.
Verð kr.
7.920
13.475
HEKLAhf
Laugavegi 1 70—172 — Sími 21240