Morgunblaðið - 16.12.1975, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1975
Velta fYjálsíþróttasambandsins
var uiii 6 milljónir króna árið 1975
og tapið nam um 1 milljón króna
VELTA Frjálsíþróttasambands
Islands var meiri á árinu 1974—
1975 en nokkru sinni fvrr 1 sögu
sambandsins. Niðurstöðutölur á
rekstrarreikningi þess voru 6.162
milljónir króna og var rekstrar-
tapið rösklega 1 milljón króna
eða 1.053.390,00. Nema skuldir
sambandsins nú rösklega 3 millj-
ónum króna.
Helztu liðir á gjaldahlið rekstr-
arreikningsins eru utanferðir
frjálsíþróttafólks sem samtals
kostuðu 3,930 milljónir króna. Af
því kostaði ferð Kallott-
keppninnar í Tromsö í Noregi
2,456 millj. króna og þátttaka í
Evrópubikarkeppninni í Portúgal
911 þúsund kr. Kostnaður við mót
innaniands nam 489 þús. kr., út-
breiðslukostnaður var rösklega
511 þúsund krónur og stjórnunar-
kostnaður rösklega 623 þúsund
krónur. Stór Iiður á gjaldahlið
rekstrarreikningsins voru einnig
vextir, en þeir námu rösklega 281
þús. kr. á árinu.
Tekjur Frjálsíþróttasambands-
ins af mótum voru aðeins um 320
þúsund krónur á árinu. Lands-
keppnin við Skota gaf mest, eða
196 þúsund krónur. Helztu tekju-
liðir sambandsins voru styrkir frá
ISI samtals að upphæð um 500
þúsund krónur, utanfararstyrkur
frá IBR, 352 þúsund krónur, en
auk þess fékk svo FRl 150 þúsund
króna styrk frá Reykjavíkurborg,
og 200 þúsund króna styrk frá
Olympíunefnd. Auglýsingar í
leikskrár og á Laugardalsvellin-
um gáfu sambandinu um 1200
þúsund krónur í tekjur og tekjur
frá útvarpi og sjónvarpi námu 715
þúsund krónur.
Eins og flestum mun í fersku
minni hugðist FRl standa fyrir
söfnun tómra vindlingapakka á
árinu, en féll frá því er efnt var
til hinnar svokölluðu ,,tóbaks-
lausu söfnunar“. Afrakstur þeirr-
ar söfnunar var 458 þús. kr., en
Rolf Johansen, sá er ætlaði að
greiða FRl fyrir vindlingapakka-
söfnunina, lagði sambandinu til
500 þúsund krónur, þannig að alls
hafði það tæplega eina milljón
króna út úrþessu ævintýri.
Greinilega er það höfuðverkur
FRI í sambandi við fjármálin og
KEHARtRNII!
ÁTRIÍMRlRliRB
rœtt við Hilmar Hafsteinsson
OHÆTT mun að fullyrða að
körfuknattleikur er hvergi hér-
lendis jafn vinsæl íþrótt og i
Njarðvíkum. Þar er yfirleitt troð-
fullt hús á öllum leikjum UMFN
liðsins í 1. deildinni, og áhugi
unglinganna er jafnvel það mikill
að þeir sækja einnig æfingar liðs-
Hilmar Hafsteinsson
ins af kappi til að fylgjast með.
Það var árið 1969 að UMFN tók
sæti ÍKF í 1. deild, og þar hefur
liðið leikið síðan. Núverandi
form. Körfuknattleiksdeildar
UMFN er Hilmar Hafsteinsson en
hann þjálfar einnig alla flokka
félagsins í körfunni. Hilmar er
mættur í viðtal vikunnar í dag.
Hvað veldur þessum aukna
ðhuga á körfuknattleik 1 Njarð-
víkum á sfðustu árum?
„Ætli þá sé ekki fyrst og fremst
það að við höfum nú fengið fyrsta
fl. íþróttahús, áður þurftum við
að sækja æfingar upp á Kefla-
víkurflugvöll auk þess sem við
æfðum I gamla Krossinum. En
með tilkomu nýja hússins breytt-
ist þetta allt. Við gátum byrjað á
fullum krafti með yngri fl. og í
síðasta Islandsmóti eignuðumst
við okkar fyrstu Islandsmeistara,
það var 3. fl. félagsins. Annar
hlutur sem skiptir miklu máli
fyrir okkur er að margir kennarar
eru í liðinu, og krakkarnir koma
mikið á leiki okkar vegna þess.“
Hafið þið gert eitthvað sérstakt,
sem hefur skapað þennan mikla
áhuga á körfuboltanum?
„Nei, ekki held ég það, en skýr-
ing á vinsældum körfubolta í
Njarðvík ert e.t.v. sú að þetta er
eina íþróttagreinin sem við höf-
um náð umtalsverðum árangri í.
Það er mikið af unglingum sem
kemur á leikina hjá okkur og ég
tel það stafa mikið af þvf hversu
margir kennarar eru í Iiðinu. Þeir
eru nánast sem átrúnaðargoð í
augum þessara unglinga."
Njótið þið mikils stuðnings
sveitarfélagsins?
„Já við fáum gífurlegan fjár-
hagslegan stuðning. Félagið fær
900 tíma í íþróttahúsinu yfir
veturinn án endurgjalds, auk þess
sem félagið fær 600 þús. kr. styrk
árlega. Þetta er mikill stuðningur
við okkur sem störfum að fþrótt-
um.“
Hverja telur þú ástæðuna fvrir
þvf að UMFN liðið hefur ekki náð
þeim árangri f 1. deildar keppn-
inni sem búist var við?
„Ég held að við höfum hrein-
lega ætlað okkur of mikið. Við
stefndum vissulega hátt, og
strákarnír voru yfirspenntir f
fyrstu leikjunum. Liðið hefur æft
mjög vel og eru flestir með 100%
æfingasókn enda liðið fyrst og
fremst valið eftir henni. Við höf-
um ekki náð upp neinni hittni í
liðinu að ráði hvað sem veldur.
E.t.v. er einhverju ábótavant við
þjálfun liðsins en það er ekki mitt
að dæma um það. Við höfum nú
misst af lestinni hvað varðar efstu
sætin í Islandsmótinu, og ég á
ekki von á að við verðum ofar en í
fimmta sæti.“
Ég hef frétt að þið ætlið í utan-
landsferð um áramótin, hvert
ætlið þið?
„Við förum fyrst til Luxem-
borgar og tökum þar þátt í 4 liða
keppni sem hefst 28. des. síðan
höldum við til Trier í V-
Þýskalandi og leikum einn eða
tvo leiki þar. 2. fl. verður einnig
með í ferðinni, og mun leika
nokkraleiki. gk—.
reyndar flestra annarra sam-
banda, hversu litlar mótatekjurn-
ar eru. Er það af sem áður var er
flestir öfunduðu frjálsíþrótta-
hreyfinguna af gífurlega mikilli
aðsókn að mótum sínum. En þró-
unin hefur nær allsstaðar orðið
hin sama á þessu sviði, áhorfend-
um hefur stöðugt fækkað á frjáls-
íþróttamótum, og einkum þó eftir
að sjónvarp og aðrir fjölmiðlar
fóru að sinna íþróttamótum svo
mikið sem raun er víða á. Það er
aðeins í Finnlandi þar sem aðsókn
að frjálsíþróttamótum er jöfn og
stöðug, enda má segja að frjálsar
íþróttir sé þjóðaríþrótt þeirra.
KKI
Af óviðráðanlegum orsökum er
drætti I happdrætti Körfuknatt-
leikssam bands fslands frestað til
15. janúar 1976.
Þrír stjórnarmenn FRl á Evrópuþingi frjálsfþróttaleiðtoga er haldið var f Róm f
haust, en þar var ákveðið að næsti fundarstaður yrði Reykjavík. Fulltrúar FRÍ eru:
Sigurður Björnsson, varaformaður, Svavar Markússon, gjaldkeri og Örn Eiðsson,
formaður.
Vaxandi áhngi víða nm land en fjár-
liapinn sníáu'staifinn þröngan stakk
Rætt við Örn Eiðsson, formann FRÍ
— ÞINGIÐ var mjög vel sótt og
umræöur i þvt og málflutningur báru
ótvlrætt vitni þeim áhuga sem nú er
á málefnum Iþróttarinnar hérlendis.
sagSi Örn Eiðsson I viStali viS
Morgunblaðið. en Örn var endurkjör-
inn formaður Frjálslþróttasambands-
ins á þingi þess er haldiS var fyrir
skömmu. Öll stjóm sambandsins var
endurkjörin á þinginu, en hana skipa
auk Arnar þeir SigurSur Björnsson,
Þorvaldur Jónasson, Páll Ó. Pálsson,
Magnús Jakobsson, sem formaSur
laganefndar, og SigurSur Helgason,
sem formaSur útbreiSslunefndar. f
varastjórn eiga svo sæti Einar Frl-
mannsson, Sveinn Sigmundsson,
Glsli Magnússon og Sigfús Jónsson.
— FramtlS frjálsra Iþrótta hér-
lendis kom mjög til umræSu á þing-
inu, sagSi Örn, — og má segja aS
bjart ætti aS vera yfir henni. Greini-
lega er mjög vaxandi áhugi á frjáls-
um Iþróttum og fjöldinn sem iSkar
Iþróttina vlSs vegar á landinu fer
stöSugt stækkandi. Hins vegar er
ekki eins bjart yfir fjárhagslegri hliS
málsins. SambandiS er mjög fjár-
vana. eins og flest önnur sérsam-
bönd ISÍ. og setur þessi fjárskortur
okkur mjög miklar hömlur bæSi I
samskiptum viS aSrar þjóSir og eins I
útbreiSslustarfi hér innanlands.
Styrkur hins opinbera til Frjáls-
iþróttasambandsins nam ekki nema
um 1 milljón króna á árinu, öll önnur
fjáröflun varS aS fara fram á vegum
sambandsins og stjórnarmenn mjög
bundnir af þvl starfi. Tap á rekstri
sambandsins var rösklega 1 milljón
króna á starfsárinu. en reyndar eig-
um viS þá eftir aS fá okkar hluta af
hagnaSi Evrópubikarkeppninnar sem
ef til vill gæti orSiS allt aS 500
þúsund krónur.
Öm sagSi. aS meSal tillagna er
samþykktar voru á þinginu hefSi
veriS ályktunartillaga um aS stjórn
sambandsins beitti sér fyrir meiri
stuSningi viS afreksfólk I Iþróttinni
en veriS hefSi til þessa. — Stjórnin
hefur ekki komiS saman slSan hún
var kjörin, og þvl ekki farin aS forma
þetta mál, sagSi Öm, — en til álita
kemur aS halda þessari fjáröflun
utan viS hin almennu fjármál sam-
bandsins t.d. meS sérstakri sjóSs-
stofnun. Frjálsiþróttasamböndin á
NorSurlöndunum t.d. leggja mjön
mikiS upp úr þvl aS stySja vel viS
bakiS á slnu mesta afreksfólki og
viljann skortir ekki hjá okkur. heldur
fremur getuna.
Örn sagSi, aS á þinginu hefSi veriS
samþykkt aS breyta fyrirkomulagi
Bikarkeppni FRÍ. Var ákveSið að
stofna 3. deild og verða framvegis 6
liS I 1. deild og 6 liS I 2. deild og
verSur 2. deildar keppnin framvegis
tveggja daga mót. 3. deildar xeppnin
verSur svo opin öllum til þátttöku.
Efstu og neSstu liSin I deildunum
flytjast svo á mlli. — Þetta er gert
vegna slaukins áhuga á bikarkeppni,
sagSi Öm, en s.l. sumar var t.d. um
metþátttöku aS ræða I 2. deildar
keppninni. ViS teijum aS þessi
keppni hafi átt mikinn þátt I aS
stórauka áhuga á frjálsum Iþróttum
vlSa úti á landi.
Þá ákvað þingið aS stofna til sér-
stakrar afrekskeppni barna og ungl-
inga á aldrinum 11 —18 ára. VerStir
gefin út sérstök stigatafla og fá þeir
sem flest stig hljóta samkvæmt
henni verðlaun frá sambandinu. —
Það er greinilegt að keppni eins og
Þrlþraut æskunnar og FRf og
Andrésar Andar leikarnir hafa aukiS
mjög áhuga ungmenna á frjálsum
Iþróttum, sagði Örn, — og er t.d.
gleðilegt til þess að vita að margir
þeir sem nú eru aS komast I fremstu
röS I frjálsum Iþróttum hérlendis
hófu feril sinn I þessum mótum.
Öm EiSsson sagði aS fræðslumálin
hefðu komiS mikiS til umræSu á
FRÍ-þinginu, en þar flutti GuS-
mundur Þórarinsson erindi um
þennan málaflokk. — ViS álltum.
sagði Örn. aS Grunnskóli fSf sé
stærsta skrefiS sem stigiS hefur
verið I fræðslumálum Iþróttahreyf-
ingarinnar hérlendis og erum
ákveðnir I að efna til B-námskeiðs
eins fljótt og mögulega verSur unnt.
Að lokum var talinu vikið að undir-
búningi frjálslþróttamanna undir
Ólympluleikana I Montreal 1976:
— ÞaS hlýtur aS vera stefnumál
okkar að gera það sem I okkar valdi
stendur til þess aS þeir frjálslþrótta-
menn sem ná lágmörkum og munu
keppa á leikunum fái sem bezta aS-
stöðu til þess aS búa sig undir
keppnina, sagði Örn. Nú I marz-
mánuSi munu 4—5 Iþróttamenn,
aSallega kastarar, fara til Vestur-
Þýzkalands til æfinga. og Örn sagði
llklegt aS Stefán Hallgrlmsson tug-
þrautarmaSur myndi fara I æfinga-
búðir um jólin og svo seinna I vetur
til Spánar. Þrlr fslendingar sem
möguleika eiga á Ólympiulágmörk-
um dvelja nú I Englandi, Sigfús Jóns-
son. Ágúst Ásgeirsson og Vilmundur
Vilhjálmsson og eina Islenzka frjáls-
Iþróttakonan, sem virSist llkleg til
þess að ná lágmarki, Lilja GuS-
mundsdóttir, er I SvlþjóS. SagSi Örn
það stefnu sambandsins að reyna
einnig aS veita þessu fólki stuðning,
— en hér gildir hiS sama og um svo
margt annaS hjá FRf, sagSi hann, —
fjárhagurinn snlður okkur alltof
þröngan stakk.
Bikarkeppni FRl hefur orðið frjálsum fþróttum vfða á landinu mikil lyftistöng og hvatning. Það hefur
vfðavangshlaup tslands, er FRl efnir til, einnig orðið, en fjöldi þátttakenda f hlaupi þessu er jafnan
mikill. Meðfylgjandi mynd er tekin f sfðasta vfðavangshlaupi og eins og sjá má skortir greinilega ekki
áhuga hjá keppendum. — Ef tíl víll eru þarna á ferðinni hlauparar sem eiga eftir að gera garðinn
frægann.
KR og Fram
nnnn í kvenna-
flokknum
UM helgina fóru fram tveir leikir I
fslandsmóti kvenna I körfuknatt-
leik. Fyrst léku KR og ÍR og urSu
úrslit leiksins þau, að KR-
stúlkurnar sigruðu meS nokkrum
mun eða 71—59, eftir að leikur-
inn hafSi veriS mjög jafn allan
fyrri hálfleikinn. Var staSan aS
honum loknum 30—29 fyrir KR.
f seinni hálfleiknum náSu svo
KR-stúlkurnar sem flestar eru
mjög ungar að árum og efnilegar,
góðum leik og sigu frammúr jafnt
og þétt. Var hittni þeirra I leikn-
um góð svo sem bezt sést á
stigafjöldanum, en fremur er
fátltt hérlendis að svo mörg stig
séu skoruð I kvennaleik.
Þá léku Fram og UMFS. Var
þar um mjög jafna og tvlsýna
baráttu aS ræða. UMFS hafði yfir
I hálfleik 22—18, en I seinni
hálfleiknum náSu Framstúlkurnar
sér betur á strik og unnu sigur
37—35.
Er llklegt aS baráttan um fs-
landsmeistaratitil kvenna I ár
verði nokkuð tvlsýn. en I fyrra
báru ÍR stúlkurnar nokkuS
öruggan sigur úr býtum.
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1975
21
• «
STÁÐAN
Staðan I 2. deild karla:
fR
KR
KA
Leiknir
Fylkir
f BK
Þór
UBK
187:105
164:141
108:91
139:152
78:98
109:132
108:114
89:149
Táp og fjör er Valur
marði sigur gegn FH
VALUR vann FH I 1. deild kvenna I
jþróttahúsinu I HafnarfirSi á sunnudag-
inn með 14 mörkum gegn 12 eftir að
staSan I leikhléi hafði verið 6:5 fyrir Val.
Var leikur þessara liSa fjörugur mjög,
jafn og spennandi, þar sem sigur Vals
byggSist fyrst og fremst á meiri reynslu.
Munurinn á liounum I 1. deild er mikill
Valur, Fram og FH verSur aS telja sterk-
ari hlutann, en á góðum dögum eiga
Ármann og KR einnig heima þar. Hjá
toppliSunum má hins vegar oft sjá
skemmtilega takta og ágætlega leikinn
handknattleik. Þannig var þaS I leik Vals
og FH. bæði liSin léku á köflum mjög vel
bæSi I vöm og sókn.
FH-stúlkurnar byrjuSu leikinn mjög
vel. komust I 5:3 og áttu góð tækifæri til
að auka það forskot sitt. en á klaufa-
legan hátt klúðruSu þær góðum tækifær-
um. FH skoraði ekki mark slSustu 12
mlnútur fyrri hálfleiksins og Valur seigl-
aðist framúr og hafði eitt mark yfir I
leikhléi, 6:5. f seinni hálfleiknum juku
Valsstúlkurnar forskot sitt. sem mest
varS 4 mörk. FH-liðið gafst þó ekki upp
og náSi að minnka muninn niður I 1
mark, 12:13 og voru þá þrjár mlnútur til
loka leiksins. Fengu FH-stúlkurnar m.a.
hraSaupphlaup, sem hefSi átt að gefa
mark, ef þær hefðu þolaS spennuna. ÞaS
gerSu þær hins veqar ekki og slSasta
mark leiksins var frá Val og sigurinn þvl
innsiglaður.
A8 þessu sinni voru þær Margrét,
GySa og Kristjana sterkastar I liSi FH, en
Sylvla og Svanhvlt voru ragar viS aS
skjóta að þessu sinni. Sigrún GuSmunds-
dóttir er yfirburðamanneskja I liSi Vals
og skoraSi hún 7 mörk að þessu sinni
þrátt fyrir stranga gæzlu. Björg átti einn-
ig mjög góðan leik að þessu sinni, sinn
bezta I langan tlma.
MÖRK VALS: Sigrún 7, Björg 2, Elln
2, RagnheiSur 1, Harpa 1, Hrefna 1.
MÖRK FH: Margrét 4, Sylvfa 2.
Guðrún 2, Svanhvlt 1, Katrln 1.
— áij.
Hilmar Björnsson hefur staðið sig mjög vel f leikjum KR f vetur og haldið KR-liðinu & floti f leikjum
liðsins. I leiknum við Breiðablik var það þó ekki aðeins Hilmar Björnsson, sem sést f skotfæri á
myndinni, sem átti góðan Ieik. Yngri KR-ingarnir stóðu sig eins og þeir gerðu bezt f Revkjavfkurmótinu.
(Ljósm. Friðþjófur).
Nú vanmat
KRekki
mótherjann
MEISTARAFLOKKUR karla hjá KR
lét það ekki henda sig f leiknum við
UBK að vanmeta andstæðinginn eins
og þeir gerðu svo illilega f leiknum
við IBK á dögunum. Nú var leikið á
fullu allan tfmann og ekkert gefið
eftir. Urslitin urðu Ifka f samræmi
við það, öruggur KR-SIGUR 29:14.
15:6 íhálfleik.
KR-ingar sýndu nú hvers þeir eru
megnugir, hraði í sókn, vörn vel á
verði — ef til vill helzt til gróf á
stundum — og markvarzla Eniils
ágæt. Breiðabliksliðið er engan veg-
inn sterkt og berst á botni deildarinn-
ar, þeirra frammistaða f leiknum við
KR var hvorki góð né slæm, þeir eru
bara ekki betri. Það skal þó tekið
fram að i fvrri hálfleiknum voru þeir
óheppnir með skot sfn.
MÖRK KR: Þorvarður 7, Hilmar 5,
Sigurður 4, Ingi Steinn 4, Ævar 3.
Sfmon 3, Asgeir 1, Kristinn 1, Friðrik
1.
MÖRK BREIÐABLIKS: Sveinn,
Bjarni, Daníel og Jóhannes 3 hver.
Arni og Kristján 1 hvor.
—áij
KR-stúlkurnar í ham
gegn máttlausum Blikum
Lið ÍBK að hressast -
tapaði |)ó ívrir Fram
HELDUR eru þær að koma til Kefla-
vfkurstúlkurnar f handknattleiknum
og á sunnudaginn stóðu þær meira f
liði Fram en búast hefði mátt við
eftir fyrri leikjum þessara liða. Fram
vann þó leikinn, úrslitin urðu 16:12
eftir að staðan f hálfleik hafði verið
9:5 — sem þýðir að seinni hálfleikn-
um lauk með jafntefli 7:7.
Nýting liðanna var slæm i þessum
leik og kvörtuðu bæði yfir þvf að fá
ekki að nota klístur, en bannað er að
nota það í íþróttahúsinu í Njarðvík-
um — heimavelli IBK-liðanna. Voru
ótalin skot í stengurnar í leiknum,
enn fleiri framhjá að ógleymdum
hraðaupphlaupum, sem fóru í súginn.
Beztar í Framliðinu að þessu sinni
voru þær stöllur Oddný og Helga, en
þær voru jafnframt markhæstar.
Hanna, Hildur og Jóhanna stóðu sig
bezt í liði IBK.
Mörk IBK: Hanna 4, Inga Lóa 3,
Guðbjörg 2, Jóhanna 2, Gréta 1.
Mörk Fram: Helga 5, Oddný 4, Jó-
hanna 3, Bergþóra 2, Jenný 2.
-áij.
Það var ekki burðugur handknatt-
leikur, sem Breiðabliksliðið sýndi
gegn KR í Asgarði í Garðahreppi á
sunnudaginn. Þrátt fyrir að KR-liðið
væri þunnskipað að þessu sinni var
sigur liðsins öruggur og varð á endan-
um mun stærri en nokkur hafði búist
við. Lokatölur urðu 16:5 en í leikhléi
var 9:2.
Breiðabliksliðið skoraði ekki mark
fyrstu 15 mínútur leiksins og staðan
var orðin 5:0 er Jónína KR-
markvörður, sem átti mjög góðan
leik, mátti í fyrsta skipti sjá á eftir
knettinum i netið og var markið held-
ur kiaufalegt. I síðari hálfleiknum
var ekki eins mikill munur á liðun-
um, enda KR-stúlkurnar farnar að
þreytast og hinar heldur að ranka við
sér.
Talsverður getumunur er á þessum
liðum, en þó varla eins mikill og
tölurnar segja til um. Góð byrjun
KR-liðsins kom Blikunum hins vegar
úr jafnvægi og þá ekki siður góður
varnarleikur, þar sem Anna Lind lék
stórt hlutverk, sem framliggjandi
senter. Hún átti ásamt Hansínu,
Hjálmfríði og Jónínu beztan leik í liði
KR, en yfirleitt stóð allt liðið sig með
sóma að þessu sinni.
Mörk KR: Hansína 7, Hjálmfríður,
Hjördfs, Soffía og Anna 2 hver, Sig-
rún 1.
Mörk Breiðabliks: Þórunn 2, Björg
2, Kristín 1. —áij.
Svanhvft Magnúsdóttir er ein af hinum skemmtilega leikandi stúlkum
f FH-liðinu og hér sést hún ógna vörn Vals.