Morgunblaðið - 16.12.1975, Síða 38

Morgunblaðið - 16.12.1975, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1975 Ástralía: Efnahagsmálin fyrsta verkefni stjórnar Frasers (,’anhurra — 14. des. — Reuter ÞEGAR Ijóst var að kosningasigur Malcolms Frasers, forsætisráð- herra og leiðtoga Frjálslynda flokksins, var hinn mesti f sögu Astralfu, lét hann svo um mælt, að fyrsta verkefni hinnar nýju stjórnar hans yrði að takast á við efnahagsvandann. Hann skoraði á lanðsmenn að leggja sig fram við að koma efnahag landsins á réttan k.jnl . Um leið lofaði hann áframhaldi á þjóðfélagsumbótum, og lok fram, að sérstaklega yrði hugað að velferðarmálum þeirra, sem sjúkir væru og minna mættu sfn. Sir Robert Menzies, fyrr- yerandi forsætisráðherra og stofnandí Frjálslynda flokks- ins, sagði kosningaúrslitin vera persónulegan sigur fyrir Maleolm Fraser. Sagði hann, að kosningabarátta hans hefði verið aðdáunarverð frá upphafi til enda. Viðbrögð við kosn ingaúrslitunum í Astralíu eru síður en svo á eina lund. Lundúnablöðin lýsa flest ánægju sinni með úrslitin, en rfkisstjórnir ýmíssa viðskipta- landa Ástralíu hafa látið i ljós ótta við að aukinnar fastheldni eigi eftir að gæta í utanríkisvið- skiptum. Ford Bandaríkjafor- seti sagði, er honum bárust fregnirnar um hinn mikla kosningasigur Frasers: Banda- ríkjamenn munu hér eftir sem hingað til leggja rækt við vin- áttu þjóðanna, hina nánu sam- vinnu og tengsl, er byggjast á svipuðum skoðunum og gildis- mati.“ I Suður-Afríku hafa ráðamenn látið í ljós bjartsýni um að hin nýja ríkisstjórn muni stuðla að vinsamlegri samskipt- um ríkjanna en ríkt hafa um skeið, en Verkamannaflokkur Whitlams var mjög andsnúinn Suður-Afríku vegna aðskilnaðarstefnunnar, sem þar ríkir í kynþáttamálum. Gough Whitlam, forsætisráð- herra stjórnar Verkamanna- flokksins, sem hrundið var af stóli í sfðasta mánuði, átti í dag fund með Bob Hawke, sem er Malcolm Fraser, forsætisráð- herra Astralfu. formaður Verkamannaflokks- ins og forseti verkalýðshreyf- ingarinnar i landinu, en Hawke hefur komið sterklega til greina sem eftirmaður Whit- lams, hætti hann afskiptum af stjórnmálum. Þegar Ijóst var orðið að flokkur hans hafði tapað kosningunum, sagði Hawke, að Fraser yrði að taka sanngjarna afstöðu til málefna iðnaðarins og sjá til þess, að verzlunin fengi ekki frjálsar hendur um verðhækkanir. Hann sagði um leið, að kosningaúrslitin myndu ekki hafa í för með sér allsherjar- verkfall, eins og margir höfðu óttazt. Sunday Mirror: „Hegðun Breta til stórskammar” London 15. desember AP. STJÓRNMALAFRÉTTARITARI Sundav Mirror, Woodrow Wvatt, .lýsti eindregnum stuðningi við málstað lslands I landhelgisdeil- unni við Breta f grein f blaði sfnu í gær. Þar sagði hann m.a.: „Hegð- un Breta f landhelgisdeilunni við fslendinga er til stórskammar, Is- lendingar hafa algerlega á réttu að standa og við algerlega rangt fvrir okkur. Staðhæfing Islend- inga um að áframhaldandi veiðar Breta mvndu þurrka út fiskstofn- ana er rétt. En hvað gerum við? Sendum freigátur á miðin og högum okkur eins og sjóræningj- ar. Aður en langt um Ifður mun skiljanleg reiði f okkar garð á Islandi leiða til þess að okkur verður ekki boðið um á 1 tonn af þorski, hvað þá 65 þúsund tonn.“ Blaðið Sun skrifar einnig í rit- stjórnargrein, að tslendingar hafi þjófstartað i 200 mílna málinu og Bretar, með sína miklu fisk- neyzlu, geti ekki látið þá komast upp með það á sama hátt og v-þýzku kjötæturnar. Hins vegar hljóti málstaður tslendinga, virðing fyrir umhverfinu og Kuldinn var lestar- ræningjunum erfiður Ný fimm ára áætlun Sovétríkjanna: Hægfara þróun - áherzla lögðá utanríkisverzhin og landbúnað Moskvu — 14. dcs. — Rculor. I NÝRRI fimm ára áætlun Sovét- rfkjanna er gert ráð fyrir hæg- fara þróun og minni aukningu þjóðarframleiðslunnar en verið hefur. Þó er gert ráð fyrir mikilli aukningu utanrfkisverzlunar. f áætluninni er fvrst og fremst lögð áherzla á að Ijúka framkvæmd- um, sem þegar eru hafnar. f iðnaði verður miðað við fram- leiðniaukningu með endurbótum á þeim tækjakosti, sem þegar er fyrir hendi. Landbúnaðurinn virðist enn vera stærsta vandamálið í þjóðar- búskap Sovétríkjanna, en í áætluninni er gert ráð fyrir 215—220 milljón tonna kornfram- leiðslu á ári, þrátt fyrir uppskeru- brestinn í ár, sem gizkað hefur verið á að hafi verið i mesta lagi 137 tonn. í áætluninni er gert ráð fyrir hækkun ríkisútgjalda vegna land- búnaðar úr 131 milljón rúblna í 171 milljón á næstu 5 árum. Lögð er áherzla á fóðurkornsræktun, en uppskerubresturinn veldur því, að búfénaður í milljónatali verður felldur í ár. Gert er ráð fyrir framleiðslu- aukningu neyzluvarnings um 2 prósent en í þungaiðnaði verður stefnt að 4 prósent aukningu. I áætluninni segir, að meginmark- mið iðnaðarins sé að koma enn frekar til móts við efnahagsþarfir Sovétríkjanna og þjóðarinnar með því að bæta gæði framleiðsl- unnar. Á sviði olíuframleiðslu er gert ráð fyrir mikilli aukningu — úr Framhald á bls. 39 Amstcrdam 15. dcscmbcr AP-Rcutcr. LÖGREGLAN f Amsterdam revnir nú af öllum mætti að fá s-Mólukkuevjamennina 7, sem halda 25 körlum og konum I gfsl- ingu í sendiráði Indónesfu f borg- inni, til að sleppa gfslunum og gefast upp. Vonir manna um að sjömenningarnir, myndu feta f fótspor félaga sinna f lestinni við Beilen, sem gáfust upp á laugar- dag og slepptu öllum gfslum sfn- um 23, hafa brugðizt að því er virðist eins og stendur. Sjömenningarnir í sendiráðinu hafa beiðið lögregluna um að koma sér aftur í samband við séra Semuel Metiarti frá S- Mólukkueyjum, sem fékk menn- ina í lestinni til að gefast upp, en Metiari hefur verið helzti samningamáðurinn. Hann gekk út úr sendiráðinu sl. föstudag eftir að skæruliðarnir höfðu neitað að verða við áskorun hans um að gefast upp, en hann hefur marglýst þvf yfir í viðræðum sín- um, að Mólukkumennirnir hafi náð tilgangi sínum með þvf að beina athygli heimsins að málum sinum og þeir geti aðeins eyðilagt fyrir sér með áframhaldandi þvermóðsku í umsátrinu. Lögregl- an í Amsterdam kallaði Metiari á sinn fund í dag og átti tæpra 2 klst. fund með honum og bað hann um að hefja viðræður á ný Framhald á bls. 39 Willy Brandt og Giinther Guillaume. Guillaume dæmdur 1 13 ára fangelsi Diisscldorf — 15. des. — AP. GUNTHER Guillaume var í dag dæmdur f 13 ára fangelsi fyrir njósnir f þágu Austur- Þjóðverja og uppljóstrun rík- isleyndarmála. Guillaume var náinn samstarfsmaður Willy Brandts, kanslara V- Þýzkalands, en njósnamálið Framhald á bls. 39 Ekki hægt að búast við ívilnun- um nema eitthvað komi í staðinn segir Austin Laing AUSTIN Laing framkvæmda- stjóri félags brezkra togaraeig- enda skrifaði grein f sunnudags- blað Guardian, þar sem hann segir að hugsanlegt sé að mála- miðlun utanaðkomandi aðila sé svarið f sambandi við fiskveiði- deilu Breta og tslendinga. Laing sagði, að takmarkið væri að koma samningaviðræðum á stað en vafalaust þvrfti að kalla herskip- in út fvrir 200 mflurnar áður en gæti orðið og það væri ekkert auðveldara ef gagnkvæmur skilningur væri á nauðsvn þess að hætta árekstrum. Hann sagði að samskipti þjóðanna hefðu versnað svo að lfklegt væri að utanaðkomandi málamiðlun væri nauðsvnleg. Hugsanleg byrjun á slfkri mála- miðlun væri að láta alþjóðlega nefnd vísindamanna gera úttekt á fslenzku þorskstofnunum. Sfðan CHAMFNN LEYNIVOPNIÐ UNDIR VÉLARHLÍFINNI er nýtt sett af Championkertum. Fáið úr vélinni þá orku sem henni er ætlað að gefa. , Laugavegi 118 - Sími 22240 EGILL VILHJALMSSON HF skrifar Laing: „Island hefur alltaf lýst deilunni sem Davíð á móti Golíat, en aldrei fyrr í sög- unni hefilr Davíð verið jafn her- skár og Golíat jafn hikandi." Laing segir, að íslendingar hafi boðið 65 þúsund lesta þorskkvóta, en Hattersley aðstoðarutanríkis- ráðherra lagt til 110 þúsund lestir. Hins vegar hafi enginn sagt af hálfu Breta að ekki væri hægt að komast að málamiðlunarsam- komulagi um 87.500 lestir, jafnvel þótt sá kvóti myndi hafa f för með sér aukið atvinnuleysi meðal sjómanna og starfsfólks fisk- iðnaðarins í landi. 65 þúsund lestir væru aftur á móti algerlega óaðgengilegur kvóti. Sfðan skrifar Laing: „Þrátt fyrir að við séum þjóð sem ekki er mjög háð fiskveiðum þýðir það ekki að við getum litið framhjá þeim félags- legu og efnahagslegu erfiðleik- um, sem atvinnuleysi hefur í för með sér í borgum, sem byggja mikið á fiskiðnaði." Laing sagði að Islendingar gerðu kröfur um verulegar viðskiptaívilnanir í sambandi við landanir íslenzkra skipa i Bret- landi og tollaívilnanir í EBE- löndunum. „Islendingar geta ekki búizt við að brezkir fiskimenn, sem eiga atvinnuleysi yfir höfði sér samþykki að ekkert komi í staðinn fyrir eftirgjöf, sem renni Framhald á bls. 39

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.