Morgunblaðið - 16.12.1975, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 16.12.1975, Qupperneq 40
8 DAGAR TIL JÓLA SÉRVERSLUN MEÐ SVÍNAKJÖT SÍLD & FISKUR ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1975 MYND þessi er tekin 12. desember, er varðskipið Týr tilkynnti að freigátur brezka flotans væru með mann- aðar byssur á miðunum. Freigátan Falmouth F 113 er hér á ferð og einhver fsing er á skipinu, en yfirmaður — Ljósm.: Markus Loosli brezka flotans sagði, að sjóliði hefði verið að berja fsingu af byssu freigátunnar. Ef myndin prentast vel sjást menn við byssurnar. Breyting á almannatryggingalögum: 1% af brúttótekjum til sjúkrasamlaga Hækkun lyfjaverðs, sérfræðiþjónustu o.fl. MATTHlAS Bjarnason, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, lagði í gær fvrir efri deild Alþingis frumvarp til laga um breytingu á almannatryggingalögum, sem gerir ráð fyrir hækkun á greiðslum fyrir sérfræðingslæknishjálp, hækkun á þeim hluta lyfjaverðs, sem neytendur greiða, og hækkun á röntgengreiningu og geislameðferð. Þá er gert ráð fyrir því að sveitarfélög taki aukinn þátt í rekstrarkostnaði sjúkrahúsa og eiga þau að fjármagna þá útgjaldaaukningu með því að leggja 1% álag á gjaldstofna útsvara. Þetta felur í sér að gjaldstofn útsvars verður 12% og að einstaklingur, sem hefur 2 milljónir f brúttótekjur, það er að segja tekjur til útsvars, greiðir 1% þeirra eða 20.000 krónur til sjúkrasamlags, auk þess hluta af annarri skattgreiðslu hans, sem þangað rennur. Er álitið að þessar ráðstafanir lækki útgjöld rfkisins vegna sjúkratrygginga um 1.667 milljónir króna. 2 togarar á hvert verndar- skip ÖRT fækkar nú brezkum togur- um á mióunum fyrir austan og er nú svo komið að í gærkveldi voru aðeins 16 togarar að veiðum innan fiskveiðilögsögunnar. Þeirra er vel gætt af 8 verndar- og aðstoöarskipum, þremur freigátum, þremur dráttarbátum og tveimur aðstoðarskipum. Eru þvf tveir togarar á hvert verndar- skip. Skömmu eftir hádegi í gær var varðskipið Oðinn að fara að at- huga 7 togara sem voru að veiðum í hóp við Langanes. Er Oðinn nálgaðist togarana, komu tvær freigátur, Oalatea og Brighton, á vettvang og dráttarbátarnir Lloydsman og Euroman. Gerðu þessi fjögur skip tilraun til þess að umkringja Oðin, sem slapp með því að sigla inn til landsins. Nokkrir fleiri togarar voru dreifðir í nágrenni þessa togarahóps. í gærdag var varðskipið Ár- vakur á Breiðafirði að flytja gas- hylki i Höskuldseyjarvita. Vildi þá svo illa til að einn skipverja datt og meiddist þannig að flytja varð hann í sjúkrahús i Stykki-s- hólmi. Við rannsókn þar mun skipverjinn ekki hafa reynzt mikið slasaður, en hann mun hafa fengið heilahristing og liggur enn í sjúkrahúsinu, en verður von bráðar fluttur til Heykjavfkur. Hrapaði 9 m af þaki húss Akureyri, 15. desember — SMIÐUR hrapaði ofan af þaki Gróðarstöðvarinnar við Aðal- stræti klukkan 15.20 í dag og meiddist mjög mikið, en ekki er enn vitað hve meiðslin eru alvar- leg. Hann mun þó ekki hafa misst meðvitund. Smiðurinn var að gera við þak Framhald á bls. 39 Gert er ráð fyrir þvf að greiðslur fyrir viðtal við sér- fræðing sarnkvæmt tilvísun sjúkrasamlagslæknis hækki úr 300 krónum í 600 krónur. Þáttur sjúkrasamlaga f sérfræðikostnaði lækkar því úr 80 til 85% eins og hann er nú í 60 til 70%. Þá hækkar röntgengreining og geislameðferð úr 250 krónum í 600 krónur, en eftir þá breytingu greiða neytendur 17% af meðaltals kostnaði við röntgen- greiningu utan sjúkrahúsa í stað 7% eins og nú er. Þá er gert ráð fyrir því að greiðslur neytenda fyrir lyf hækki um 50%. Greiða neytendur samkvæmt frumvarpinu fyrstu 300 krónurnar af verði lyfja i lyfjaverðskrá I, í stað 200 króna og fyrir lyf i lyfjaverðskrá II hækkar greiðsla neytenda úr 400 krónum i 600 krónur. Þeir sjúklingar sem hingað til hafa fengið ókeypis lyf koma til með að gera það áfram. Hér er um að ræða fólk með lftt læknandi eða langvarandi sjúkdóma eins og asma, gláku, berkla, flogaveiki, hjartasjúkdóma á sumum stigum, efnaskiptasjúkdóma og krabba- mein. Þá geta ýmsir aðrir sjúklingar eins og geðsjúklingar, Fjós fauk ofan af 24 kúm Akureyri, 15. desember — MIKIÐ hvassviðri gekk yfir Ak- ureyri og Eyjafjörð um helgina og náði hámarki um hádegi á Iaugardag. Þá urðu nokkrir skaðar á húsum í Öngulstaða- hreppi, plötur fuku af fbúðarhús- inu á Þverá og mikið af járni af Framhald á bls. 39 Parkinsonsjúklingar og psoriasis og exemsjúklingar fengið áfram ókeypis lyf að ráði læknis og með samþykki trúnaðarlæknis sjúkra- samlags. Talið er að hækkun lyfja- greiðslna lækki útgjöld sjúkra- trygginga um 280 milljónir króna og breytingar á greiðslum fyrir Framhald á bls. 39 Neitaði að greiða 1000 kr._~ Á nú að borga 100 þús. NVLEGA kvað hæstiréttur upp dóm f máli manns nokk- urs, sem ekki vildi sætta sig við að greiða 1000 krónur í sekt fyrir of hraðan akstur, þar eð mæling lögreglu f um- ræddu tilviki hefði verið ótraust. Málið hefur gengið f gegnum öll dómstig og hefur maðurinn alls staðar tapað þvf og er kostnaður við málarekst- urinn orðinn nær 100 þúsund krónur. Málavextir eru þeir, aé maðurinn var tekinn fyrir of hraðan akstur á Keflavíkur- vegi 1. desember 1973. Lög- reglumenn á bifreið stöðvuðu manninn og kváðu hann hafa verið á 110 km hraða sam- kvæmt hraðamæli lögreglubif- reiðarinnar. Maðurinn möt- mælti þessu algerlega, kvaðst hafa verið á mun lægri hraða og vefengdi rétt lögreglu til að sekta menn samkvæmt hraða- mælum lögreglubifreiða. Var manninum boðið að ljúka mál- inu með 1000 króna lögreglu- Framhald á bls. 39 Freigátumar eru ekki NATO-skip — segir sendiherra íslands í Briissel FREIGÁTURNAR, sem eru á Islandsmiðum, eru ekki undir stjórn Atlantshafsbandalagsins, enda gæta Bretar þess mjög vendilega að vera ekki með NATO-freigátur á Islandsmiðum — sagði Tómas Tómasson, sendiherra í Briissel og hjá Atlantshafs- bandalaginu. í viðtali við Mbl. í gær. Tómas sagði, að „freigáturnar. sem stæðu að þessum illvirkjum, að þvf er okkur fyndist" xæru ekki einu sinni markaðar NATO — þær væru aðeins á Islandsmiðum af brezkum þjóðlegum ástæðum. Tómas Tómasson sagði, að sá floti, sem yfirmaður NATO hefði yfir að ráða, væri mjög lítill, svokallaður fastafloti, en í honum væru ekki nema 6 til 7 skip af ýmsu þjóðerni, en tals- vert kvað hann vera um að skip skiptust á um að vera í fasta- flotanum. Talsverður floti Atlantshafsþjóðanna væri sið- an markaður NATO sem kallað er, þ.e. að ef hernaðarspennan í heiminum kemst á ákveðið stig, þá fara þeir herir, sem markað- ur eru undir stjórn NATO. Kvað hann þennan markaða flota alls ekki vera allan flota viðkomandi ríkis og hann kvað sendiráðið í Brtissel hafa geng- ið úr skugga um það að engin freigátanna, sem væru á Islandsmiðum, væri mörkuð bandalaginu. Fastafloti NATO er yfirleitt á æfingum en er rneiri háttar æfingar væru, kvað Tómas hina mörkuðu heri koma inn og verða undir yfirstjórn NATO á Framhaid á bls. 39

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.