Morgunblaðið - 19.12.1975, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1975
35
Herbergi 213
sýnt í Noregi
1 LOK síðasta mánaðar var leikrit
Jökuls Jakobssonar — Herbergi
213 — frumsýnt á litla sviðinu
eða Teaterloftet í Tröndelag
teater í Þrándheimi. Leikstjóri er
Jens Bolling en Ida Fredriksen
hefur gert leikmyndir. Ivar Eske-
land hefur þýtt leikritið á norsku.
1 leikskrá er gerð ítarleg grein
fyrir höfundinum, Jökli Jakobs-
syni, og birtist þar m.a. grein sem
Sveinn Einarsson hefur samið um
rithöfundinn.
A.D.2000?
Hafliði
í 6 vikna
ferð með
Menuhin
HAFLIÐI Hallgrfmsson selló-
leikari lauk fyrir skömmu sex
vikna hljómleikaför um
Ástralíu, Nýja-Sjáland, Fiji-
evjar og Bandarfkin. 1 blaðinu
Islendingi á Akureyri segir, að
hinn heimsfrægi fiðlu'eikari
Yehudi Menuhin hafi farið
þess á leit við Hafliða að hann
færi í þessa ferð með hijóm-
sveit sinni, Menuhin Festival
Orchestra. Hljómsveitin er
ekki stór f sniðum, en Menu-
hin ræður gjarnan viður-
kennda listamenn til aðstoðar
þegar farið er f langar hljóm-
leikaferðir og þykir heiður af
þvf að verða fyrir valinu.
Hljómleikaförin hófst í októ-
berbyrjun með hljómleikum í
Ástralíu, en þar var m.a. leikið
í hinu fræga óperuhúsi í
Sydney. Frá Ástralíu var farið
til Nýja-Sjálands og þaðan til
Fiji-eyja og siðan til Banda-
ríkjanna þar sem leikið var í
San Francisco og New York.
Menuhin Festival Orchestra
hefur verið mjög vel tekið á
öllum hljómleikunum í ferð-
inni og blaðadómar um hljóm-
sveitina verið lofsamlegir.
Hafliði Hallgrímsson er
fæddur og uppalinn á Akur-
eyri, en hann býr nú í London,
en þar hefur hann búið síðan
hann lauk námi í sellóleik i
Englandi og á Italíu. Fæst
Hafliði við kennslu og leikur
auk þess með hljómsveitum og
sjálfstætt.
I fyrra fór Hafliði í svipaða
för og þá sem hann hefur ný-
lega lokið við, en þá var það
píanóleikarinn og stjórnand-
inn frægi Daniel Barenboim,
sem óskaði eftir því við Haf-
liða að hann færi í hnattför
með hljómsveitinni The
English Chamber Orchestra.
FÁST M.A. HJÁ:
Revkjavfk.
Amalörverzlunin
Laugaveg 55
Filmurog vélar,
Skólavörðustfg 41.
Fókus, Lækjargötu 6B
Hans Petersen,
Bankastræti og Glæsibæ.
Myndiðjan Ástþór,
Hafnarstræti.
Akranes.
Bókaverzlun
Andrésar Nielssonar.
Borgarnes
Kaupfélag Borgfirðinga.
Flateyri
Kaupfélag Húnvetninga.
Patreksfjörður
Verzlun Laufeyjar
Tálknafjörður
Bókaverzlun
Ölafs Magnússonar
Isafjörður
Bókaverzlun
Jónasar Tómassonar.
Blönduðs
Kaupfélag Húnvetninga
Sauðirkrókur
Bókaverzlun Kr Blöndal
Slglufjörður
Aðalbúðin
Verzl. Gests Fanndal.
Selfoss:
Karl Guömundsson,
úrsmiður.
ólafsfirði
Verzlunin Valberg.
Akureyri
Filmuhúsið,
Hafnarstræti 104.
Húsavfk
Kaupfélag Þingeyinga.
Vestmannaeyjar
Verzlunin Kjarni
Verzlunin Miðhús.
Keflavfk
Stapafell
Víkurbær
Hafnarfirðf
Ljósmynda og gjafavörur,
Reykjavíkurveg 64.
Polarokl
kynnir SX-70
myndovélina
POLAROID SX-70 myndavélin
er árangur djörfustu og dýr-
ustu áætlunar sem ráð-
ist hefur verið í á sviði Ijós-
myndatækni. Það kostaði
yfir 40 milljaðra króna að
hanna þessa einu mynda-
vél með tilheyrandi filmu.
Frá upphafi hefur nafn
POLAROID verið sveipað
Ijóma ævintýralegra tækni-
framfara í Ijósmyndun SX-70
er meistaraverkið — mynda-
vélin sem markar þáttaskil.
Enginn sem sér og reynir SX-
70 getur verið ósnortinn.
ÖRFÁAR vélar ennþA til A gamlaverðinu
Hin nýja POLAROID SX-70 er fullkom-
in gegnumsjáandi (single lens refles)
myndavéi Hún hefur sjálfvirka ljós og
hraðastillingu og myndin sjálf skýst
fram úr vélinni með sjálfvirkum út-
búnaði, aðeins 1,5 sek. eftir að smellt
hefur verið af. Fyrst þegar m.vndin
kemur út úr vélinni sér aðeins á föl-
grænan flöt. Eftir andartak byrja lita-
skil að koma í Ijós og hefur birtan
umhverfis myndina engin áhrif á fram-
köllunina. Hún heldur áfram að skýr-
ast í nokkrar mínútur þar til hún hefur
náð litum og skýrleika sem engu öðru
stendur að baki.
Heildsölubirgöir
MYNDIR HF.
Austurstræti 17 S 30150