Morgunblaðið - 19.12.1975, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 19.12.1975, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1975 55 Lennard Bernadotte greifi f gróðurhúsi sfnu á Mainau-eyju. sögu. Kastalinn og kapellan, sem honum fylgir, eru byggð á 18. öld. Frá hallarveröndinni er útsýni yfir garðana og vatnið. Svo er engu likara en þar blasi við hita- beltislandslag, þó staðurinn sé í 400 m hæð og norðan Alpafjalla. Mainau-eyja kom f.vrst við sögu Svia í 30 ára striðinu, er sænski herinn byggði 30 skip og tók eyjuna. 1740 var höllin byggð af riddarareglu einni, en staðurinn gekk kaupum og sölum, þar til eyjan komst í eigu þjóðhöfð- ingjans. Viktoría Sviadrottning, amma Lennard Bernadottes, erfði hana eftir föður sinn, Friðrik II. Þegar Lennard Bernadotte kom þangað fyrst með unga konu sina, Karin Nissvandt, árið 1930, var eyjan eins og frumskógur, svo fer vaxandi í réttu hlutfalli við fosfatmagnið i sápunni og aukið þéttbýli við vatnið og árnar, sem í það renna. Um 60% af fosfötum kemur frá fólkinu, sem býr við vatnið, en 40% með ánum, sem í það renna. Annað vandamál þarna í Bodensee, sem Rin rennur úr, eru sportbátarnir, sérstaklega bátar með tveggja strokka vélum. Taldi prófessorinn að 15—20 tonn af olíu færu i vatnið árlega frá bát- unum. Olian kemur smám saman, safnast og sekkur til botns og hægt er að sjá hin slæmu áhrif hennar á lifið á botninum. Með vaxandi komu ferðamanna, eykst slík bátaumferð um vatnið og hafa menn af því áhyggjur. Jafnframt má finna mjög aukna mengun frá Iffrænum efnum yfir ferðamannatímann, mest á stöðum þar sem tjaldstæði eru við vatnið og árnar. Því þyrfti við hvert tjaldstæði að hafa litla hreinsistöð. Ekki eru komnar nægilega margar skolphreinsi- stöðvar við Bodensee fyrir alla byggðina, en þær eru að smá- koma. Við Konstanz er náð um 1000 tonnum af fosfötum úr vatn- inu, en árlega fara um 800—900 tonn niður Rín frá Bodensee. En Rín flytur nokkuð mikið af þessum efnum Svisslandsmegin f vatnið og á botninum er bundið talsvert magn, sem ekki þykir fengur I að uppleysa. Þrátt fyrir allt þetta tal um óhreinindi f Bodensee, er hrein- asta ánægja að sigla um vatnið. Eyjan Mainau rís upp úr því eins og gimsteinn, áföst við land með brú. Þarna hefur sænski greifinn og náttúruunnandinn Lennard Bernadotte komið upp einhverj- um fjölbreyttasta og fegursta grasgarði á meginlandi Evrópu. Á vorin eru þar yfir milljón teg- undir af fágætum jurtum af ýmsu tagi, t.d. yfir 1000 rósategundir, 500 þúsund blómstrandi hita- beltisplöntur, 800 tegundir af túlipönum, stór orkideugarður, fjöldi af fágætum plöntum frá Argentínu, Ástraliu, Venezuela o.s.frv. og yfir 1000 trjátegundir. Þar á meðal eru tré, sem aðeins höfðu fundist steinrunnin i brún- kolanámum, en standa nú þarna aftur eftir milljónir ára f fullri stærð, 33—37 m há. í Kina hafði enn verið til runni af þessari tegund og þaðan var fengin 10 sm há planta 19*50, sem tókst að rækta upp. Tekið var á móti okkur þremur erlendu gestunum í Mainau-höll, sem er ákaflega falleg og vel við haldið. Tengdadóttirin í höllinni, Annegrete Bernadotte, og yfir- garðyrkjumaðurinn sýndu okkur garðana. Sjálfur er Lennard Bernadotte orðinn fullorðinn maður. Faðir hans var Wilhelm prins, sonur Gústavs V Svía- konungs, en Mainau eyju erfði hann 1930 eftir ömmu sína, Viktorfu drotningu, konu hans. .... Mainau-eyja er eins og gröðurvin f vatninu bodensee. Höllin sést utan frj vatninu milli trjánna. Dr. Einsle tekur botnsýni úr vatninu til að sýna að mengunin hefur mikið minnkað þar. Vlð Boflensee slunda vlslndamenn rannsöknlp og Bernadotle grelfi raeklar grasgarð Þessi gróðurmikla éyja er alger- lega hans verk, eins og hún er nú. Áhugi hans á verndun náttúru og landslags er óbilandi, enda hefur hann gert slikt að ævistarfi sínu. Arið 1955 var hann kjörinn for- seti Samtaka jurtaræktenda og 1961 skipulagði hann og varð for- maður stofnunar þeirrar, sem sér um Iandslagsvernd og landslags- sköpun í Þýzkalandi. Margar mikilvægar hugmyndir og ákvarð- anir hafa komið frá hinum árlegu Mainau-ráðstefnum, þar sem rætt er um verndun og fegrun. Berna- dotte veitir lika forstöðu nefnd þeirri, sem sér um svokallaðar „Lindau-umræður“, en það er ár- legur umræðufundur Nobelsverð- launahafanna. Og hann er höf- undur hins svonefnda Græna Mainau sáttmála frá 1961, þar sem sett eru upp í 12 greinum ákvæði um það, hvernig unnið skuli að samræmingu náttúru- verndar og tæknialdar. í fram- haldi af því beitti hann sér 1971 fyrir hinum svokallaða Bodensee- sáttmála, sem felur i sér áform um að stefna að hreinu vatni sam- fara aukinni útivist, náttúru- vernd og góðri nýtingu landslags- ins. Bernadotte greifi dvelur meginhluta ársins i höllinni á Mainau-eyju við störf sin, en kvaðst í sumarleyfinu sigla með fjölskyldu sinni um sænska skerjagarðinn á snekkju, sem hann geymir á Álandseyjum. Mainau eyja er hreinasta Paradís. Hún á sér nokkuð langa varla sást I höllina. Hann hugðist láta höggva þar tré, en starfs- fólkið neitaði. Engu hafði mátt breyta þar svo Iengi. Þá sendi hann aumingja yfirgarðyrkju- manninn i fri og tók sjálfur við stjórninni. Á stríðsárunum varð Bernadotte greifi að dvelja heima f Svíþjóð 1938—48. Þegar hann kom aftur, kom í ljós, að nær allt hans verk var unnið fyrir gíg. Hann hófst þá handa aftur, en kostnaðurinn var gifurlegur, svo farið var að opna garðana fyrir almenning, gegn aðgangseyri. Fólk streymir að þessum fallega bletti. Nú koma þangað árlega 1,7 milij. gestir. Veitingahúsi hefur verið komið fyrir i gömlu húsi i garðinum, og m.a. hægt að fá þar sænska rétti. En til þess að slíkur staður skiptist ekki milli margra erfingja, hefur Bernadotte gert hana með öllu sem þar er að sjálfseignarstofnun, sem eftir hans dag gengur til þýzka ríkis- ins. Hann átti tvo syni með fyrri konu sinni, og með síðari kon- unni, Sonju, á hann tvö ung börn. öll eyjan er einn botaniskur garður, sem fyrr er sagt. En uppi á landi er eignin notuð til akur- yrkju. Kostnaður er orðinn mikill við að halda görðunum, við og bæta i þá. Aðallega eru þar þrjár árstíðir, sem mismunandi blóm setja svip á. Á vorin eru það t.d. túlipanar, hyasintur og narsissur, og svo tekur hver tegundin við af annarri, liljur og rósir um há- sumarið og daliur í september. En um háveturinn eru settir gríðar- miklir glerhjálmar yfir allan hita- beltisgarðinn, sem verður þá ekkert smáræðis gróðurhús. Slíkar gróðurvinjar eru ákaf- lega dýrmætar i þéttbýlu landi. Það er Bodensee ekki siður, ef tekst að vernda vatnið fyrir óhreinindum og mengun. Það sama gildir raunar fyrir Rinar- fljót allt og öll önnur vötn. — Nútímafólk úr þéttbýli sækist einkum eftir þrennu sér til hvíld- ar og upplyftingar — vatni, fjöllum og skógi, sagði einhver góður maður við mig i ferðinni og ég held að það sé rétt. En vatnið er enn mikilvægara manninum. 1 sáttmála Evrópuráðsins um vatn segir m.a.: Að valda mengun á vatni er sama sem að vinna mann- inum tjón, svo og öðrum lífverum sem vatni eru háðar. Og í þeim sama sáttmála eru fleiri greinar, sem eiga við það efni, sem hér hefur verið fjallað um. I 9. grein segir: Verndun vatnsforðans kallar á auknar vísindalegar rannsóknir, þjálfun sérfræðinga og bætta upplýsingaþjónustu fyrir almenning. Og 12. og siðasta greinin hljóðar svo: Vatnið þekkir engin landamæri, sem sameiginleg auðlind krefst það al- þjóðlegrar samvinnu. Annegret Bernadotte og yfirgarðyrkjumaðurinn f Mainau eyju (t.h.) spjölluðu við gestina og sí ndu beir hægrir Ljðsm E Pá' sj6nvarpsmenn kv*mynduðu. Stjörnandi sjónvarpsþáttarins, Maudner', lengst ti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.