Morgunblaðið - 19.12.1975, Page 17
7 /
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1975
Vilja láta skrá sölu áfengis á nafn
— og stöðva innflutning bruggefnis
LANDSSAMBANDIÐ gegn
áfengisbölinu hélt fulltrúafund
sinn laugardaginn 15. nóv. s.l., og
var hann vel sóttur. Þar fluttu
mjög fróðleg erindi þeir Bjarki
Elíasson yfirlögregluþjónn og
Ólafur Haukur Árnason áfengis-
varnaráðunautur.
Á fundinum voru eftirfarandi
ályktanir samþykktar.
„Fulltrúafundur Lands-
sambandsins gegn áfengisbölinu
haldinn 15. nóv. 1975 beinir því
enn á ný til stjórnvalda, að alger-
lega verði stöðvað að hafa um
hönd áfengi í móttökum á vegum
ríkisins og fara í því efni að dæmi
menntamálaráðherra, en það hef-
ur reynzt vel og verið til fyrir-
myndar.“
„Fulltrúafundur Lands-
sambandsins gegn áfengisbölinu
haldinn 15. nóv. 1975 leggur enn á
ný ríka áherzlu á, að öll áfengis-
sala frá útsölum Áfengis- og
tóbaksverzlunar ríkisins verði
skráð á nafn og væntir þess, að
jákvæður árangur verði af þeim
athugunum, sem fjármálaráð-
herra er að láta gera í þessu efni.“
„Fulltrúafundur Lands-
sambandsins gegn áfengisbölinu
haldinn 15. nóv. 1975 skorar á
Alþingi og ríkisstjórn að stöðva
öll tollfríðindi á áfengi og tóbaki.
Frfðindi þessi stuðla að aukinni
áfengis- og tóbaksneyzlu, auk þess
sem það er mismunun á aðstöðu
þegnanna.“
„Fulltrúafundur Lands-
sambandsins gegn áfengisbölinu
haldinn 15. nóv. 1975 beinir þeirri
áskorun til menntamálaráðherra,
að hann hlutist til um að vínveit-
ingar verði bannaðar í skólahús-
næði á hvaða árstfma sem er. Þá
telur fundurinn að áfengisveit-
ingar skuli óheimilar á sam-
komum, sem haldnar eru á vegum
skóla, enda þótt þær séu haldnar
utan skólahúsnæðis.
Vfnveitingar verði ekki leyfðar
í sumarhótelum skólahúsnæðis."
„Fulltrúafundur Lands-
sambandsins gegn áfengisbölinu
haldinn 15. nóv. 1975 heitir á alla
ábyrga aðila — heimili, skóla og
kirkju — að vinna markvissar að
ýmsum fyrirbyggjandi aðgerðum
gegn sfvaxandi reykinga- og
áfengisnautn ungs fólks, svo sem
með staðreyndafræðslu og félags-
legum tómstundastörfum."
Þá lýsti fundurinn því yfir, að
49
nauðsynlegt væri að hækka veru-
lega gjald fyrir vínveitingaleyfi
og óeðlilegt væri að veita félags-
stofnun stúdenta slíkt leyfi. Þá
taldi fundurinn að taka þyrfti til
athugunar að koma í veg fyrir
persónulega hagsmuni í sam-
bandi við áfengissölu svo og að
stöðva þyrfti innflutning brugg-
efnis, sem fólki væri óbeint kennt
hvernig ætti að nota til fram-
leiðslu áfengis.
Ennfremur tók fundurinn und-
ir áður framkomna ályktun
íslenzkra ungtemplara til útvarps-
ráðs, þar sem vakin er athygli á
áfengisáróðri, sem fram kemur i
sjónvarpsefni.
„Húgó” eftir
Mariu Gripe
Út er komin hjá bókaútgáfunni
Iðunni þriðja og síðasta bókin um
Jósefínu og Húgó eftir Mariu
Gripe. Nefnist hún Húgó.
Maria Gripe er einn fremsti
barnabókahöfundur Svía og hef-
ur hún hlotið margvíslegar viður-
kenningar. Fyrir bækurnar um
Húgó og Jósefínu hlaut hún Nils
Holgersson verðlaunin, og
„Húgó“ hlaut vérðlaun sænska
dagblaðsins Expressen sem besta
barnabókin árið sem hún kom út.
Auk þess hlaut Maria Gripe árið
1974 H. C. Andersens verðlaunin.
Vilborg Dagbjartsdóttir þýddi
bókina.
„Gustur — og svo
kom stórhríðin’,
„GUSTUR — og svo kom stórhríð-
in“ nefnist ný barnabók eftir
Albert G. Miller, sem komin er út
í íslenzkri þýðingu.
Gustur er hestur, sem búinn er
að dvelja nokkurn tíma á Myllu-
bæ. Hann og vinur hans, Jöi
Clark, hafa átt saman margar
góðar og ánægjulegar stundir, en
einnig ratað í margar hættur og
ævintýri, þar sem Gustur hefur
alltaf bjargað málunum, oft á síð-
ustu stundu. En svo hverfur
Gustur — en sögunni er ekki
lokið.
Bókin er 153 bls. að stærð með
mörgum teikningum. Útgefandi
er Siglufjarðarprentsmiðja h.f.
Nýtt bindi af
„Vísnasafninu”
ÚT ER komið hjá bókaútgáfunni
Iðunni þriðja bindi af „Vísnasafn-
inu“ sem Sigurður Jónsson frá
Haukagili hefur valið í úr vísna-
sjóði sínum sem hann hefur
safnað í um áratugaskeið. 1 þessu
bindi eru yfir 700 lausavísur 250
höfunda.
Sigurður Jónsson frá Haukagili
er þjóðkunnur af vísnasöfnun
sinni og ást á góðri stöku. A
árunum 1959—1970 flutti hann
vísnaþætti í útvarp og síðar hófst
útgáfa „Vísnasafnsins". „Má
fullyrða að mörg vísan, sem er að
finna í safni Sigurðar væri glötuð
ef ekki hefði notið við hinnar
sívökulu elju hans ásamt góðum
stuðningi fjölda manna,“ segir í
fréttatilkynningu frá útgefanda.
VE RZLUNIN
GEYSiPP
—
Wmmm
: ■
■
1 v
•i
w> ■ Kf
/í§» &
immSmmm&m.
'■v,« Hfesi
.
aðeins kr. 1.980,
Rúllukragapeysur í 6 litum, V,
■
v . av ' 7J‘ - ,
MM