Morgunblaðið - 09.01.1976, Qupperneq 5
MORCUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1976
5
Sjómenn mótmæla
seinagangi á endur-
skoðun sjóðakerfis
Samstarfsnefnd sjómanna hefur afhent rfkisstjórninni lista með
undirskriftum 120 áhafna fiskiskipa og 42 fundarmanna á fundi hjá
Sjómannafélagi Grindavfkur 3. janúar s.l.
Eru sjómenn að mótmæla seinagangi varðandi endurskoðun sjóða-
kerfis sjávarútvegsins, en eitt af þeim skilvrðum, sem sjómenn settu
fram til þess að róðrar hæfust
endurskoðun sjóðakerfisins lægi
desember.
í fréttatilkynningu frá sam-
starfsnefndinni segir síðan: „Við
þetta hefur ekki verið staðið af
hálfu ríkisstjórnarinnar og fisk-
verð samkvæmt breytingum á
sjóðakerfinu er ekki til ennþá.
Því sáu sjómenn sig tilneydda til
að kalla saman samstarfsnefnd
sjómanna til að gæta hagsmuna
að nvju 26. október s.l. var að
fyrir um mánaðamótin nóvember-
þeirra og taka ákvorðun um
næsta þátt i málinu. Sá undir-
skriftalisti, sem nú hefur verið
afhentur ríkisstjórninni, er
aðeins sýnishorn af afstöðu sjó-
manna varðandi launamál þeirra,
því fleiri undirskriftir eiga eftir
að berast nefndinni hvaðanæva
að af landinu.“
Skipstjóri Ingólfs
Arnarsonar kærður
fyrir veiðarfærabúnað
LANDHELGISGÆZLAN hefur kært skipstjórann á Ingólfi Arnarsvni
fvrir ólöglegan útbúnað veiðarfæra um borð f skipinu, og hefur málið
verið sent bæjarfógetanum í Hafnarfirði, þar sem skipstjórinn hefur
lögheimili.
Að sögn Benedikts Guðmunds-
sonar, starfsmanns Landhelgis-
gæzlunnar, fór hann um borð í
skipið og kannaði veiðarfæri
skipsins er það kom hingað til
hafnar eftir að hafa fengið ábend-
ingu um að eitthvað væri athuga-
vert við þau frá einum blaða-
manna Dagblaðsins, er lesandi
hafði haft samband við. Benedikt
sagði, að við þessa athugun hefði
komið í ljós við athugun, að tvö
troll voru um borð og þau bæði
ólögleg, annað raunar á tvenns
konar hátt.
Bæði trollin hefðu verið þannig
útbúin, að klæðning var yfir pok-
um þeirra. Að vísu væri heimilt
að hafa klæðningu ofan á pokan-
um til að hlífa netinu en hún
yrði að vera opin við sjálft poka-
hornið. Klæðningarnar á pokun-
um í þessum báðum tilfellum
hefðu aftur á móti verið með koll-
línu til að hnýta fyrir og það væri
ólöglegt. Einnig hefði möskva-
stærðin á öðrum pokanum verið
fyrir neðan leyfileg mörk — und-
ir 120 mm og allt niður í 110 mm.
Sagði Benedikt, að þessi niður-
staða hefði því leitt til þess að
skipstjórinn á Ingólfi Arnarsyni
var kærður fyrir að vera með
ólöglegan útbúnað veiðarfæra og
málið sent til bæjarfógetans í
Hafnarfirði, þar sem skipstjórinn
er búsettur.
Leiðrétting:
Vistmenn á
Grund og Ási
I frétt i Mbl. slðast liðinn mið-
vikudag var greint frá vfirliti yfir
fjölda vistmanna á Elli- og
Álfabrenna
í Garðabæ
A SUNNUDAGINN gangast
skátar í Garðabæ fyrir álfa-
brennu. Safnast verður saman við
skátaheimilið, en þaðan verður
farin blysför og gengið á Valda-
tún, þar sem álfadans og brenna
hefjast. Hefst athöfnin kl. 5 síð-
degis.
„Deleríum
Búbonis”
í Garðabæ
NEMENDUR í Gagnfræðaskólan-
um i Garðabæ hafa að undan-
förnu æft „Deleríum Bubónis"
eftir Jón Múla og Jónas Árnasyni.
Leikurinn verður sýndur í skól-
anum í kvöld kl. 8.45.
hjúkrunarheimilinu Grund og
Dvalarheimilinu Ási/Asbvrgi í
Hveragerði árið 1975.
Vegna misritunar i fréttinni
verður hér greint frá efni hennar
aftur. Á árinu komi 89 nýir vist-
menn á Grund en 30 fóru. 53
vistmenn létust á árinu. í ársbyrj-
un voru vistmenn á Grund 361 en
voru í árslok 367, konur voru 269
og karlar 98. Á Dvalarheimilið
As/Ásbyrgi komu 92 vistmenn á
árinu en 75 fóru. Á árinu lézt einn
vistmaður. 1 ársbyrjun voru vist-
menn 169 en í árslok 185, konur
102 en karlar 83. Samtals voru
vistmenn á þessum tveimur stofn-
unum í árslok 1975 552.
Leiðrétting
ÞAU MISTÖK urðu í Morgun-
blaðinu í gær, er skýrt var frá því,
hverjir hefðu tekið myndir um
borð í varðskipinu Þór, að sagt
var að Friðgeir Olgeirsson hefði
tekið hana en myndina tók Magn-
ús Finsson blm. Mbl. um borð í
Þór.
Fjórir sækja
um Mosfelí
FJÖRIR umsækjendur eru um
prestsembættið f Mosfellspresta-
kalli, sem losnaði, þegar sr.
Bjarni Sigurðsson var skipaður
lektor við guðfræðideild Háskól-
ans.
Umsækjendurnir eru: Sr. Auð-
ur Eir Vilhjálmsdóttir, sr. Bragi
Benediktsson, félagsmálafulltrúi
i Hafnarfirði, sr. Kolbeinn Þor-
leifsson og sr. Sveinbjörn Bjarna-
son, sem hefur verið starfandi
prestur i Skotlandi.
Kosning fer væntanlega fram
um miðjan febrúar.
j-SiÍMiísí!
STRAX EFTIR ÁRAMÓTIN
TÓKUM UPP NÝJAR STÓRGLÆSILEGAR VÖRUR í MORGUN.
HNAUSÞYKKAR MJÚKAR GALLABUXUR, GALLABUXNABELTI
STÓRGLÆSILEGT ÚRVAL. KJÓLAR, MUSSUR, DÖMUPEYSUR,
TARTAN VESTI, „DRAPE LINE" (MJÓAR) GALLABUXUR, FÍN-
RÖNDÓTT FÖT M/VESTI. TEYGJUBELTI MEÐ FLAUELSÁFERÐ
O.M.M.FL.
10% afsláttur
af öllum vörum í verzlunum
okkar til mánaðamóta
L/ÍKJAHCiOTU 2 SIMI F HA SKIPTIBOROI 281SS TIZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS (SLtí) karnabær W AUSTURSTHA li „*. L AUtiAVl (,bl> iA ; i, A v 1 t, .’ i) i
Simi frá skiptiborði 28155