Morgunblaðið - 09.01.1976, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 09.01.1976, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANUAR 1976 Atvinnu skipting Hlutfallsleg skipting atvinnu eftir starfsgrein- um I landinu er Ihugun- arefni. Samkvæmt „ Hagtölum iðnaðarins" var hlutur iðnaðarins (mannár 1973) 25.1% af heildaratvinnusköpun I landinu. Að vlsu verður að hafa það I huga, að frumatvinnuvegir þjóð- arinnar. sjávarút- vegur og landbúnaður, leggja iðnaðinum til mikilvæg hráefni, svo erfitt er að draga skörp skil milli þessara at- vinnugreina. Þessir frumatvinnuvegir kalla og á umfangsmikinn þjónustuiðnað. Þannig eru atvinnugreinar þjóðarinnar hver annarri háðar og byggja á sameiginlegum grunni. þegar grannt er skoðað. Engu að siður er iðnaðurinn (vinnsla inn- lendra hráefna með- talin) lang drýgsti þáttur atvinnusköpunar I landinu. Þetta er vert að hafa I huga, einkum á erfiðum timum i efna- hagslifi þjóðarinnar, þegar saman þarf að fara það tvennt, að vinna gegn verðbólgu. óhagstæðri viðskipta- og greiðslustöðu þjóðar- búsins út á við og halda uppi fullri atvinnu i land- inu. þ.e. að sigla fram á þeim skerjum efnahags- kreppunnar, sem viða um lönd hafa komið fram i víðtæku atvinnu- leysi. Það er þvi meir en timabært að byggja að þvi sem styrkt gæti stöðu iðnaðarins I land- inu. Stærstur er hlutur iðnaðar i Reykjaneskjör- dæmi, reiknað I mannár- um 1973, eða 34.8% en fer lægst i Suðurlands- kjördæmi eða 18.4% Útflutnings- iðnaður Hlutur iðnaðarfram- leiðslu i heildarút- flutningi ársins 1974 er talinn 21.6% Þar er hlutur álverksmiðjunnar langstærstur eða 4.7 milljarðar af rúmlega 7 milljarða útflutningi. Annar útflutn- ingsiðnaður var sem hér segir þetta ár: 1) Loðsútuð skinn og húðir 439 m.kr., niður- soðnar og niðurlagðar sjávarafurðir 491 m.kr. kisilgúr 329 m.kr., prjóna- og ullarvörur 770 m.kr. og ýmsar iðnaðarvörur 212 m.kr. Enginn vafi er á þvi að hlutur iðnaðar i út- flutningi þjóðarinnar getur farið mjög vaxandi ef rétt er á málum haldið. Á1 og kísilgúr Þeim, sem harðast deildu á ál- og kisilgúr- verksmiðjur á sinni tið, hefur efalaust gengið gott eitt til, sumum hverjum, og varnaðar- orð þeirra sjálfsagt orðið jákvæð varðandi fyrir- byggjandi mengunar- varnir. En skylt er einnig nú i Ijósi reynslunnar að lita á hinar jákvæðu hliðar. ^ — Miðað við erfiða gjaldeyris- og viðskipta- stöðu þjóðarinnar hefur um fimm milljarða út- flutningsverðmæti þessara verksmiðja (árið 1974) haft mjög jákvæð áhrif. S — Orkufrekur iðnaður (álverksmiðjan) var beinlinis forsenda þess að ráðizt var i Búr- fellsvirkjun og ýtti veru- lega undir og flýtti orku- . rannsóknum og fram- kvæmdum, þann veg. að | við stóðum betur að vigi | en ella i orkukreppunni i (hækkun oliuverðs) og búum við mun lægra I rafmagnsverð en ella | væri. 0 — Álverksmiðjan . er I raun atvinnu- 1 skapandi vtðar en i I nágrenni sinu. Fram- | leiðslugjald frá henni er i helztur tekjustofn , Byggðasjóðs, sem fjár- 1 magnað hefur og mun I marga atvinnufram- | kvæmdina viðs vegar i um landið. 0 — Þessar verk- ' smiðjur hafa haft vlðtæk | tekjuöflunaráhrif fyrir | viðkomandi sveitar- i félög, bæði sveitarsjóði og hafnarsjóði, en Húsa- I vikurhöfn og Hafnar- | fjarðarhöfn hafa allt I aðra og betri rekstrar- i stöðu en aðrar hafnir I | landinu, sem flestar eru I þungur baggi á sveitar- | félögum sinum. | Þannig mætti fleira til . tina. En reynslan, sem 1 fyrir liggur, hefur sem I betur fer afsannað i j aðalatriðum þær þröng- | sýnu og neikvæðu full- . yrðingar sem á sinni tið var á loft haldið gegn I þessum verksmiðjum, einkum í Þjóðviljanum ■ og þingræðum fulltrúa Alþýðubandalagsins. Á I erfiðum atvinnutímum eins og nú eru verður | gildi þessara fyrirtækja 1 auðsærra öllum. i EF ÞAÐ ER FRÉTTNÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU JAZZDANSSKÓLI IBEN SONNE KENNSLUSTAÐIR REYKJAVÍK: Skúlagötu 32 Kennsla byrjar 1 3. janúar BREIÐHOLTI: Fellaskóla (Fellahellir) Kennsla byrjar 9. janúar. Barnafl. — unglingafl. Innritun og upplýsingar daglega i sima 1 2384. ( DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS «*<► , . , Laugardag 10. janúar hefst BÚTASALA IJTSALA mikið niðursett verð 7 Keflavík Til sölu glæsileg húseign við Tjarnargötu. Á efri hæð er 5 herb. vönduð íbúð með stórum suðursvölum. Sérinngangur. Á neðri hæð er 127 fm verzlunarhúsnæði sem má stækka um 80 fm. Húseignin selst í einu lagi eða hvor hæð fyrir sig. Fasteignasala Vilhjálms og Guðfinns, Vatnsnesvegi 20, Keflavik, símar 1263 og 2890. Enginn kemst hjá æfingu ef hann vill tala erlend tungumál. Æfinguna færðu hjá okkur. Hin vinsælu kvöldnámskeið fyrir fullorðna hefj- ast 1 2. janúar. Síðasti innritunardagur! sími 10004 og 11109 Málaskólinn Mímir Brautarholti 4. Til sölu Flugvél af gerðinni HELIO SUPER C0URIER H. 295 vélin er af STOL gerð og hentar vel til flugs á litlar og ófullkomnar flugbrautir. Vélin hefur verið notuð í tæpt ár hér á landi við sjúkra-, póst- og farþegaflutninga á Vestfjörð- um og hefur reynst mjög vel. Með vélinni getur fylgt nýr skíðabúnaður af fullkomnustu gerð sem völ er á. Einnig getur fylgt nokkuð af varahlutum. Nánari upplýsingar veitir: Flugfélagið Ernir h. f., ísafirði. Tilkynning um breytta verzlunartíma Um leið og við óskum viðskiptavinum okkar gleðilegs árs og þökkum ánægjuleg samskipti á liðnu ári, viljum við vekja athygli á breyttum verzlunartíma, á föstudögum og laugardögum. Framvegis verður Kaupgarður opinn sem hér segir: Mánudaga — fimmtudaga: 9-12 og 13-18. Föstudaga 9-12 og 13-20 Laugardaga 10-12 Kaupgarður ■ Smiöjuvegi9 Kópavogi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.