Morgunblaðið - 09.01.1976, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 09.01.1976, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANUAR 1976 18 Minning: Barbara Moray Williams Árnason 19. IV. 1911 31. XII. 1975 Það var íslandi mikill ávinning- ur á kreppuárunum er hin list- haga og gáfaða breska kona Bar- bara Moray Williams heillaðist svo af sögu lands og þjóðar að hún kom hingað út, giftist íslenskum listamanni og starfaði hér síðan. Segir svo frá menntabraut henn- ar og þeim viðburði í verki Björns Th. Björnssonar, Islensk myndlist (II. bindi, bls. 229): „Hún er ætt- uð úr Hampshire í Suður- Englandi, fædd hinn 19. apríl 1911 i Peterfield, dóttir A. Moray Williams, málvisindamanns og fornfræðings. Það lá því nærri að hún færi í listaskólann í Winchester er hún hafði lokið al- mennri menntun, en sú borg er í senn höfuðstaður Hampshire og fræg listaborg að fornu fari, bygg- inga, kirkjulegra málverka, hann- yrða og bókaskreytinga. Eftir þriggja ára nám í Winchester School of Art fluttist hún í Royal College of Art í Lundúnum, þar sem hún stundaði nám i önnur þrjú ár, og þá einkum á sviði málmristu og tréstungu. Þaðan lauk hún prófi vorið 1935. Hin stutta heimsókn Barböru til íslands varð henni æði afdrifa- rík, því hér festist hún ekki að- eins með annan fótinn heldur hjartað allt. Hún kynntist Magnúsi Á. Árnasyni, hinum list- fenga þúsundþjalasmið...“ Hamingjusamt hjónaband þeirra entist nær fjóra áratugi og Island átti i henni einn sinn besta borgara í hópi listamanna. Hag- leiksverk hennar, sem hún vann kappsamlega að allt þetta tímabil, eru fjölmörg og öll í flokki ágætustu listaverka, hvort sem um er að ræða bókaskreytingar, vatnslitamyndir, málverk á gler og tré, veggskreytingar, mynstur- tjöld, klippingar eða lopavinnu. Barnamyndir Barböru þóttu lengi með albestu verkum hennar, en hún var einlægur barnavinur, skemmtin og gestrisin svo af bar. Barbara Árnason var víðförull heimsborgari og mátti sjá verk hennar á listaverkamarkaði víða erlendis, og jafnan hjá bestu fyrirtækjum sinnar greinar i Paris, London og Edinborg. Bar hún hróður tslands um öll lönd þar sem hún sýndi og seldi lista- verk sfn. Myndskreyting Barböru á Passíusálmaútgáfu Menningar- sjóðs (1961) er einstætt lista- verkasafn, sem hún vann að í sjö ár (1944—1951) og sem betur fer eru frummyndirnar i eigu Lista- safns íslands. Með því stórverki einu saman hefur Barbara heitin reist sér óbrotgjarnan minnis- varða. Barböru Árnason verður sárt saknað af íslenskum listunnend- um og vinum, en hún snart með menningu sinni og fágaðri fram- komu viðkvæmustu strengi þeirra, sem áttu því láni að fagna að eignast vináttu hennar. Blessuð sé minning Barböru Moray Williams Árnason. H.F. Kveðja frá Félagi fslenskra myndlistarmanna ísienskir myndlistarmenn og fjölmargir vinir kveðja í dag Bar- böru Árnason. Þótt starfsævi hennaryrði alltof stutt, varð dags- verk hennar drjúgt vegna sjálfs- aga og ötullar vinnu. Hún var velmenntaður listamaður, sem auðgaði íslenska list með fjöl- breytilegum og fáguðum mynd- verkum sínum. Hún stundaði að aukinni listmennt með því að veita félögum sínum um árabil utanfararstyrkj, svo að þeir mættu víkka sjóndeildarhring sinn. Ungum myndlistarmönnum varð hún oft aflgjafi með hvatningarorðum, sem mælt voru af víðsýni og góðvild. Hún var óbrigðull stuðningsmaður félags síns í blíðu og stríðu. Barbara vann hugi allra, sem kynntust henni og störfuðu með henni. Félag íslenskra myndlistarmanna sendir Magnúsi Á. Árnasyni og fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur. In memoriam Á skrifborðinu mínu liggur lítil mynd af hýreygri hnokkintátu. Hún er eftir Barböru Árnason. Ég hafði hugsað mér einhvern dag- inn að keyra í Kópavog og biðja um áritun, sem hafði láðst. Nú er það of seint. Mannvinur er látinn. En minning mun lifa í þessari litlu telpu, sem heldur á logandi kerti í hvorri hendi og beinir til himins. Er ég nú lít þessa mynd enn eitt sinn finnst mér hún geyma ákall til almættis um aukna mannúð og miskunn á jörð. Það var eftir heitstrengingu slíkra hugsjóna að ég hitti Bar- böru fyrst. Hlýtt handtak hennar jók mér hug til fyrstu starfa á vegum Amnesty International á Islandi — samtaka sem vonum seinna hösluðu sér völl hér i harð- býli norðurhjara. Barbara og eig- inmaður hennar, Magnús A. Árnason, listamaður, voru ein af stofnfélögum íslandsdeildar þess- ara samtaka sem fyrir fórnfúst starf þúsunda þegna um gjörvall- an heim eru orðin að virtu og áhrifamiklu afli í viðleitni verald- ar barna til varnar og varðveislu æðsta markmiðs mannlegs lífs: Frelsis til orðs og æðis. + Útför GUÐBJARGAR SIGURBJÖRNSDÓTTUR MYRVANG, Turistvejen 42, Tromsdal, Tromsö, Noregi fer fram í dag 9 janúar Fyrir hönd barna hennar og annarra aðstandenda Sigurlaug Sigurbjörnsdóttir. Sigbjartur Sigurbjörnsson, Guðmundur Sigurbjörnsson, Marla S. Óskarsdóttir. + Systir mín MARGRÉTBJORNSSON (GUÐMUNDSDÓTTIR), Lundar Manitoba, Canada, andaðist 2 jan 1 976 Útförin hefur farið fram Rannveig Guðmundsdóttir, Laufásvegi 38, Reykjavfk. Móðir okkar + ÞÓRDÍS HALLDÓRSDÓTTIR frá Neðra Nesi lézt miðvikudaginn 7 janúar Sigurður Þorbjörnsson Þórdfs Þorbjörnsdóttir Halldór Þorbjörnsson + GUÐJÓN GUÐBJÖRNSSON fyrrv. skipstjóri, Ránargötu 14, Reykjavlk lést I Vífilsstaðarspitala 8 janúar, Matthea Jónsdóttir, Þuríður Guðjónsdóttir, Páll Ólafsson, Helga Guðjónsdóttir, Sigvaldi Jóhannsson. + Eíginmaður minn, faðir, sonur og bróðir okkar, RAGNAR GUÐNASON vatnsmaður hjá Reykjavlkurhöfn, Langholtsvegi 89. sem lézt 29 desember, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, laugardaginn 10 janúarkl 10 30, Laufey Hermannsdóttir, Ólafur Rangarsson, Jórunn Magnúsdóttir og systkiní hins látna. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar , , JÓNFRIÐAR ELÍASDÓTTUR frá Miðhúsum I Vatnsfjarðarsveit. Árni Stefánsson, Arndls Stefánsdóttir. Kristln Stefánsdóttir, Páll Stefánsson. + Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför LÚÐVÍKS JÓNSSONAR, meinatæknis. Guðrún Sæmundsdóttir og börnin. Skrifstofur okkar verða lokaðar eftir hádegi í dag, föstudag, vegna jarðarfarar Hjartar Jónssonar gjaldkera. Bæjarútgerð Reykjavíkur. + Eiginmaður minn og faðir okkar. STEINGRÍMUR GUÐBRANDSSON, Hjaltabakka 22, andaðist 5 janúar. Sigrún Gunnarsdóttir og börn. + Eiginmaður minn, GUNNLAUGUR ÁSGEIRSSON kaupmaður verður jarðsettur frá Fossvogskirkju, mánudaginn 1 2 janúar kl 3. e.h Blóm vinsamlegast afbeðin. Valgerður Apdrésdóttir + Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför, föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, ÞÓRÐAR GUÐMUNDSSONAR, Skipstjóra, Vlfilsgötu 21. Sigurjón Þórðarson, Guðmundur Þórðarson, Sigrún Sigurðardóttir. Esther Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum af alhug samúð og hlýhug við andlát og útför HJARTAR E. GUÐMUNDSSONAR. forstjóra, Hrlsateigi 27, Guð blessi ykkur öll. Eygló V. Hjaltalln, Vigfús Hjartarson, Pálmi G. Hjartarson. Sigursteinn Hjartarson, Guðmundur B. Hjartarson, Jytte Hjartarson, Björg D. Snorradóttir. og barnabörn. + Hjartanlegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og jarðarför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu ÁSTRÍÐAR S. SIGURÐARDÓTTUR, Kristinn Guðnason, Helga Kristinsdóttir, Ólafur Magnússon, Ása Kristinsdóttir, Svavar Björnsson, Ólafur Kristinsson, Auður Linda Zebitz og barnabörn. + Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, MARTIN TÓMASSON, forstjóri, frá Vestmannaeyjum, verður jarðsunginn frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn 1 0 janúar kl 2 e h Bertha Gfsladóttir, Eyjólfur Martinsson, Sigrfður Jakobsdóttir, Rósa Martinsdóttir, Ársæll Lárusson, Emilia Martinsdóttir. Sigurður Skarphéðinsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.