Morgunblaðið - 09.01.1976, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 09.01.1976, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANUAR 1976 19 Barbara bað sjálfri sér einskis en veitti öðrum án bónar. Ein- stakt framlag hennar til okkar hóps er geymt en ekki gleymt. Mætti það verða öðrum til eftir- breytni. Auðna réð ekki að ég gæti þakkað henni á borði það sem ég gerði í orði á aðalfundi Amnesty í síðasta mánuði. Fjar- vera hennar gat aðeins átt eina ástæðu. Og nú er hún öll — eða hvað? Við tókumst í hendur og mér fannst ég þekkja hana. Er þá kannski til eitt eilífðrarhandtak .? Björn Þ. Guðmundsson. Barbara Árnason var einn af brautryðjendum islenskrar grafíklistar, með um fjögurra ára- tuga starfsferil að baki. Hún var fjölhæfur listamaður, vann jafnt að grafík, vefnaði og vatnslita- myndum, gerði veggskreytingar meðal annars í Melaskóla og Sundlaug vesturbæjar að ógleymdum myndskreytingum í bækur, þar á meðal all margar barnabækur. Innan grafíklistarinnar er Bar- bara þekktust fyrir tréstungur og tréristur sínar, enda náði hún á þessu sviði ótrúlegri tækni og list- rænum þroska. Myndir hennar einkennast af sterkri þéttofinni myndbyggingu samfara dekora- tivum finleika sem gerir þær sér- stæðar í íslenskri list. Barbara var óþreytandi við að leita að nýjum grafískum leiðum, en ávöxt þess- ara tilrauna mátti meðal annars sjá á sýningunni Islensk grafík síðastliðið vor. Við fráfall Bar- böru er stórt skarð skilið eftir í röðum íslenskra grafíklista- manna, skarð sem seint verður fyllt. íslensk grafík vottar fjöl- skyldu Barböru sína dýpstu samúð. Félagar I Islenskri graffk. I hartnær fjörtíu ár hefir Bar- bara Árnason listakona lifað og starfað á Islandi. Um fjölda Iistaverka henn- ar veit enginn. Þó þau séu dreifð um vfða veröld, bæði á söfnum og í einkaeign, mun þó stærri hlutinn vera hér á landi, þjóðinni allri til gleði, lærdóms og lífsfyllingar. Þegar á unga aldri vakti Bar- bara athygli vegna frábærra hæfi- leika sinna. Við listaháskólann í London bar hún af öðrum nemendum og hlaut heiður og mikið lof, einkum fyrir tréristur sínar. Tuttugu og fjögurra ára gömul kom þessi hæfileikum prýdda stúlka til íslands. Móðurbróðir hennar sagði henni sögur af jökl- um og fjöllum, hraunum og grænku þessa eylands, og unga stúlkan heillaðist af frásögn hans. Asýnd landsins hafði þegar mikil áhrif á hana. Sagði hún mér síðar, að vatnslit- irnir hefðu orðið sterkari þáttur í listtúlkun sinni við þau áhrif. Þessi fyrsta ferð hingað skipti sköpum í lífi Barböru Moray Williams. Þá mætti hún Magnúsi A. Arnasyni iistmálara. Skömmu síðar yfirgaf hún Bretland sem eiginkona Magnúsar og hélt með honum til íslands sem varð henn- ar ástjörð. Þau reistu bú að Lækj- arbakka, hérna við sundin þar sem útsýnið til Esjunnar er hvað fegurst. Við erum mörg, sem minnumst nú í hljóðlátu þakklæti þeirra stunda sem við áttum með lista- hjónunum á Lækjarbakka og síð- ar í Kópavogi. Saga stórbrotinnar konu verður ekki sögð, né hinni margþættu listgáfu gerð nein skil í fáeinum kveðjuorðum, en ég þakka henni fyrif göfuga vináttu og þann undraheim fegurðar, sem hún gaf okkur ríkulega. Hún sá allt og gaf öllu líf, hvort sem það var visið blað eða mosa- þemba. Snigill á steini og ungi í hreiðri urðu að ógleymanlegum listaverkum, ef Barbara leit það með blað og liti í hendi. Þrátt fyrir þungbær spor eigin- Fædd 18.03.1915 Dáin 02.01.1975 Af eilífðarljósi bjarma ber sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en augað sér mót öllum oss faðminn breiðir. E.Ben. Æskuvinkona er kvödd. Uppí hugann leita minningar, frá björt- um bernskuárum. Bjartar, ljúfar minningar um gleðirík ár í leik og stárfi. Síðar um ár þroska og lífs- fyllingar, ár uppskeru, gleði yfir börnum og heimilum, sameigin- legar ánægjustundir, við hátíðleg tækifæri og t.vllidaga. Síðar komu stundir, sem fylla hug minn innilegu þakklæti, til þessarar elskulegu vinkonu minnar, fyrir samúð og vináttu sem hún veitti mér á erfiðum stundum, við ástvinamissi, sanna hlýju og hugulsemi, sem kom frá hjartans innsta þeli, og munu aldrei gleymast. Jenna var ætíð glöð og hress í bragði, og flutti með sér yl og lífsgleði. Léttur hlátur hennar og fas var síungt og smitandi. Jensína var fædd 18. marz 1915. Foreldrar hennar voru Lísebet Guðmundsdóttir frá Hópi í Grindavik, og seinni maður hennar Jón Jónsson ættaður úr Borgarfirði, var lengi ökumaður við kolaverzlun Þórðar Ólafs- sonar. Þau bjuggu að Laugavegi 75 hér í borg, og ólst Jenna þar upp. Þar var gestrisni og góðvild i öndvegi. Oft komum við ung- lingarnir þar saman, sungið var og spilað og oft glatt á hjalla. I einkalífi sínu var Jenna hin mesta gæfumanneskja. Hinn 20. maí 1939 giftist hún eftirlifandi eiginmanni sínum Birni Öfeigs- syni, siðar stórkaupmanni — hin- um ljúfasta drengskaparmanni. Jafnt til orðs og æðis. Hjónaband þeirra var svo af bar ástúðlegt, farsælt og hamingju- ríkt, held ég þar hafi aldrei borið skugga á, til hinstu stundar. Saman unnu þau af lífsgleði og áhuga að því að byggja upp líf sitt og framtíð barna sinna, sem nú eru öll uppkomin. Ber heimili þeirra í Brekkugerði 7 og sumar- bústaðurinn og landið við Elliða- vatn, vitni um atorku þeirra, vinnugleði og smekkvísi. Barnaláner einstærsta ogbezta gjöf þessa lífs, þess naut Jenna f ríkum mæli. Börnin urðu fjögur. Elstur Jón arkitekt, kvæntur Sunnu Guðnadóttur, þá Jóhanna flugfreyja hjá Loftleiðum ógift i föðurgarði, Ófeigur silfursmiður kvæntur Hildi Bolladóttur, yngst Anna Lísa gift Hauki Alfreðssyni verkfræðinema. Barnabörnin eru orðin fimm. Ég veit að sárt er saknað í Brekkugerði 7. En minningarnar um hina lífsglöðu og elskulegu eiginkonu móður og ömmu mun lifa og bregða birtu á veginn. Hún manns, sonar og tengdadóttur, er fylgja henni nú að hinstu hvílu, ljóma endurminningarnar. Og í þeirri birtu þykir mér sem myrk- ur dauðans sé ekki lengur til. Barbara hefir sjálf megnað að létta því af okkur með lífi sínu og starfi. Línev Jóhannesdóttir. hefur skilið eftir hjá okkur öllum ógleymanlegar minningar hetju- legrar baráttu og hugrekkis gegn því ofurefli sem ekkert mannlegt gat sigrað. Síðast þegar ég kvaddi hana, stuttu fyrir andlát hennar — sár- þjáða, — á Landspítalanum, var hugur hennar fullur af þakklæti til ástvinanna, lækna og hjúkrunarfólks. Þakklæti til lífs- ins sjálfs, fyrir það sem það hafði fært henni af gleði og hamingju- stundum, sem hún hafði notið, bæði heima og á ferðalögum er- lendis með sfnum elskulega eigin- manni og ástvinum. Nú var hún þreytt og þjáð, óskaði þess eins að mega hvílast. Bað fyrir kveðjur til vin- kvennanna af Laugaveginum og allra vina og kunningja. Hún var ókvíðin að leggja inn á nýjar brautir f nýrri veröld, sem hún vissulega trúði á að biði hennar, handan við gröf og dauða. Eg bið góðan guð að blessa og styrkja eiginmann hennar, börn, barnabörn og alla ástvini. Blessuð sé minning hennar. Ingibjörg Vilhjálmsdóttir. Jensína E.S. Jónsdóttir and- aðist að morgni 2. janúar s.l. Hún hafði þá f u.þ.b. ár, þjáðst af þeim sjúkdómi, sem að lokum dró hana til bana. Allt til þess hafði hún verið mjög heilsuhraust, enda jafnan reynt að lifa lifinu skyn- samlega, njóta þess besta sem líf- ið hefur uppá að bjóða. Hún var mikill unnandi gróðurs og út-i- veru, þess bera garðarnir hennar m.a. glöggt vitni. En f jölskyldan var henni þó það mikilvægasta. Hún giftist eftirlif- andi manni sinum, Birni Ófeigs- syni, 20. maí 1939. Eignuðust þau fjögur fyrirmyndarbörn sem öll eru uppkomin. Ættartölum verða gerð betri skil af öðrum, enda þessi fáu og fátæklegu orð fyrst og fremst skrifuð sem örlítill þakklætisvottur til Jensínu, fyrir elskulega viðkynningu og vináttu, sem hún ávallt sýndi okkur hjón- unum og börnum okkar, en við tengdumst Jensínu og Birni fjöl- skyldu- og vinaböndum fyrir nokkrum árum. Það teljum við okkur mikla gæfu. Marga ánægjustund höfum við átt á fallegu heimili þeirra og ekki síðri í sumarbústaðnum og hinu undurfagra umhverfi hans,' þar sem þau hafa árum saman með frábærum árangri, eytt frístundum sínum við blóma- og trjárækt. Slíkum árangri ná aðeins þeir, sem óbilandi áhuga og ánægju hafa af starfi sínu. Þar undi fjölskyldan sér líka vel f faðmi náttúrunnar, ekki síst barnabörnin. Jensína var hreinskilin en létt og frísk að eðlisfari. Þannig viljum við minnast hennar. Hafi hún hjartans þakklæti fyrir sam- veruna. Við hjónin biðjum Birni og börnunum allrar blessunar um leið og við sendum þeim okkar dýpstu samúðarkveðjur. BoIIi A. Ólafsson — Vona. . . . Framhald af bls. 2 hefði gífurlega mikið að segja f svona átökum. Hvað varðaði Óðinn, þá væri það skip að mörgu leyti Ifkara Tý og Ægi en Þór. Þó væri sá galli á þvf, að það væri með fasta skrúfu eins og Þór. Nýverið hefðu ver- ið sett tæki f Óðin, þannig að nú væri hægt að stjórna vél og skrúfu úr brú, en áður þurfti að hringja niður í vél. Þetta væri mikill kostur, þar sem skipting frá áfram í afturábak eða öfugt tæki nú miklu skemmri tima en áður. Sams konar tæki hefðu verið keypt til að setja f Þór, en fjárveiting til þess að setja þessi sjálf- virku stjórntæki niður ekki fengizt. Sagði Pétur, að hann gerði sér vonir um að sú fjár- veiting fengist nú á næstunni. — Hef von um.... Framhald af bls. 3 kauphækkun komi ekki til greina. — Nú hefur sú skoðun komið fram, að erfitt verði að tryggja atvinnu samfara þvi sem veru- lega sé dregið úr verðbólgu. Hvað vilt þú segja um þetta atriði? — Það er alveg ljóst, að það er ákaflega vandasamt að sigla þarna á milli og eitt er vist, að ekki viljum við kaupa minnkun verðbólgunnar með atvinnu- leysi. — Og að lokum Björn, hverjar eru Iikurnar á því að til verkfalls komi? — Ég get ekkert fullyrt um það, það verður þróun samning- anna að skera úr um. Við eigum ennþá eftir að fá svör frá ríkis- stjórninni við ýmsum punktum sem við höfum lagt fram. Ég hefur áður í þessu viðtali nefnt nokkra af þessum punktum og til viðbótar mætti nefna aðgerðir i húsnæðismálum og skattamál. Atvinnurekendur hafa lagt fram umsögn sína um þessa punkta okkar og kemur þar fram að sumir þeirra eru sameiginlegt áhugamál Alþýðu- sambandsins og Vinnu- veitendasambandsins og geta samningaviðræðurnar að nokkru þróazt út í sameigin- legar viðræður þessara tveggja aðila við rikisstjórnina. Og enda þótt alþingi hafi gert ýmsar ráðstafanir fyrir jól, sem ekki juku á bjartsýnina, og má þar nefna hækkaðar álögur og hækkaðan lyfja- og sjúkra- kostnað, hef ég von um að ná megi fram friðsamlegum samn- Minning: Jensína E.S. Jónsdóttir ingum. Verkföll eru óæskileg, bæði þjóðhagslega og fyrir verkafólkið sjálft. Verkfalls- vopnið er neyðarúrræði sem ekki er gripið til fyrr en í síð- ustu lög. — SS. — Meistararnir Framhald af bls. 26 son skoruðu flest mörk Víkings í þess- um leik, en Páll að vfsu tvö marka sinna úr vítaköstum Viggó gerði mikið af mistökum l þessum leik og Páll var óvenju lítið notaður, enda ekki í sfnu bezta formi. Vfkingarnir áttu i mestu erfiðleikum með leikaðferð sína og gekk hún sjaldan upp. Það var helzt að leikmenn eins og Erlendur Hermanns- son kæmust vel frá þessum sorglega leik fyrir Vikinga, en hann gerði þó einnig sfn mistök i vörninni. — áij. — Víkingur — Þróttur Framhald af bls. 26 33. Viggó 11:12 34. 11:13 Friðrik 35. Stefán (v) 12:13 36. 12:14 Friðrik 37. Erlendur 13:14 38. 13:15 Gunnar 39. 13:16 Gunnar 40. Skarphéðinn 14:16 41. 14:17 Björn 42. 14:18 Konráð 43. Erlendur 15:18 43. 15:19 Friðrik (v) 45. 15:20 Björn 46. 15:21 Björn 48. Stefán 16:21 49. 16:22 Friðrik (v) 49. Jón 17:22 50. 17:23 Trausti 51. 17:24 Björn 51. 17:25 Friðrik 52. Sigfús 18:25 53. Páll (v) 19:25 53. Páll (v) 20:25 54. 20;26 Halldór 55. 20:27 Friðrik 55. Þorbergur 21:27 58. Páll 22:27 58. 22:28 Friðrik 59. Páll 23:28 60. Jón 24:28 MÖRK ÞRÖTTAR: Friðrik 10, Bjarni Trausti, Björn, Konráð og Gunnar 3 hver, Halldór og Jóhann 1 hvor. MÖRK VlKINGS: Páll og Viggó 5 hvor, Er- lendur 4, Stefán 3, Jón og Sigfús 2 hvor. Skarphóðinn, ólafurog Þorbergur 1 hver. MISHEPPNUÐ VlTAKÖST: Rósmundur varði 2 vftaköst frá Friðrik Friðrikss.vni f fyrri hálfleik og í seinni hálfleik skaut Stefán í þverslá úr vftaksti. BROTTVlSANIR AF LEIKVELLI: Trausti og Þorbergur máttu báðir vfkja af velli í 2 mfnútur fyrir grófan leik. DÓMARAR: Jón Friðsteinsson og Gunnlaug- ur Hjálmarsson dæmdu lejkinn nokkuð vel. Leikhlé — Fram-Haukar Framhald af bls. 26 26. Andrós 9:8 26. Andrós 9:8 27. 9:9 Ólafur 30. Andrés 10:9 31. 36. Pálmi 40. Hannes (v) 40. 43. 44. Guðmundur 45. Jón Arni 50. Hannes 50. 51. Hannes 51. 52. 55. Hannes 55. Gústaf 57. Hannes 58. 59. 60. Hannes 60. MÖRK FRAM: Hannes 8. Andrés 3, Arni og Pálmi 2 hvor, Arnar, Sigurbergur, Guð- mundur, Gústaf og Jón Arni 1 hvor. MÖRK HAUKA: Stefán 7. Hörður 4. Elfas og Ingimar 2 hver, Sigurgeir, ólafurog Arnór 1 hver. BROTTVÍSANIR AF LEIKVELLI: Pétur Jó- hannsson. Fram, Pálmi Pálmason, Fram, Gústaf Björnsson, Fram, Sigurgeir Marteins- son, Haukum — öllum vikið af velli f 2 mfnútur. MISHEPPNUÐ VlTAKÖST. Engin. DÓMARAR: Georg Arnason og Geir Thor- steinsson. Dæmdu þeir þennan leik illa. voru óöruggir og ósamkvæmir sjálfum sér — án þess þó að dómgæzla þeirra bitnaði meira á öðru liðinu. 10:10 Hörður 11:10 12:10 12:11 Arnór 12:12 Hörður (v) 13:12 14:12 15:12 15:13 Stefán 16:13 16:14 Stefán 16:15 Stefán 17:15 18:15 19:15 19:16 Ingimar 19:17 Stefán 20:17 20:18 Stefán OKKAR LANDSFRÆGA ÚTSALA HEFST mánudaginn 12.janúar Terelyne buxur frá kr. 2.200- — íslenzk alullarteppi kr. 1.950-, 1,50 x 2 m. Geysilegt úrval af skyrtum frá kr. 1.490- Herrajakkaföt frá kr. 8.900 — einnig stakir jakkar frá kr. 3.000-. Bolir í úrvali frá kr. 750- ásamt fjölbreyttu úrvali af peysum á ýmsum veröum. Stórkostleg útsala á hljómplötum — allar aðrar nýjar hljómplötur með 10% afslætti. laugavegi 89-37 hafnarstræti 17 13008 12861 13303

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.