Morgunblaðið - 09.01.1976, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 09.01.1976, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1976 25 VELX/AKAIMDI iVelvakandi svarar í síma 1Ó-100 kl. 14—15, frá mánudegi til föstu- dags % Er bráðum fullsaddur „Miðaldra" skrifar eftirfarandi pistil og er hvassorður i garð sjón- varpsins. Nú hef ég þraukað með sjónvarpstæki allt frá þvf að við íslendingar eignuðumst okkar eigin sjónvarpsstöð; ég átti ekkert tæki meðan Kaninn sat einn að krásunum og langaði satt að segja ekkert að eiga það. Nú er hins vegar svo komið, að ég er kominn á fremsta hlunn með að selja þennan „imbakassa" minn, eða að minnsta kosti að fá rétta aðila til þess að innsigla hann. Maður hefði ekki haldið, að íslenska sjónvarpið gæti versnað, en þó sýnist mér sem yfir- standandi vetur ætli jafnvel að slá öll fyrri met í þessum efnum. Svo gersamlega er aumingja sjón- varpsforustan meira að segja bú- in að gefast upp, að hún er byrjuð að endursýna hversdagslegustu þætti jafnvel þremur fjórum vik- um eftir frumsýninguna! Nú á þriðjudag buðu þeir okkur til dæmis aftur í Færeyjatúr (og að auki með framhaldi daginn eftir), þó að upplýst sé i dagskrá, að þessi sami þáttur hafi verið á skjánum þann 10. desember. Satt að segja sýnist manni nú upp á síðkastið sem þeir sjón- varpsmenn séu hreinlega að gefast upp. Hvort er það peninga- leysi eða andleysi sem veldur — eða er það hvortveggja?“ 0 Forgangur „blikkbeljunnar“ Göngu-Hrólfur skrifar: „Þið fáið sjálfsagt margt bréfið þarna vegna færðarinnar hér á götunum undanfarna daga, en þó langar mig að leggja orð i belg. Ég er svo dæmalaust óánægður með það, hvað lítið er gert fyrir okkur þessi, sem kjósum að fara ferða okkar á tveimur jafnfljótum. Ég læt það vera þó að gangstéttirnar okkar séu ekki beinlínis skafnar og snurfusaðar jafnharðan og snjó festir á þeim, en hálf finnst mér það samt fautaleg vinnu- brögð þegar snjónum á bila- brautunum er beinlinis rutt upp á gangstéttirnar. Mér finnst eigin- lega stundum sem ég sé orðinn eins konar annar flokks borgari þegar ég sé vinnubrögðin. Þar sem ég bý eru snjógarðarnir hví- likir alveg undir húsunum, að þar er I rauninni engum fært nema djörfustu krökkum og fuglinum fljúgandi. Hins vegar er allt fint og fágað þar sem blikkbeljunni er ætlað að komast leiðar sinnar. Ég er sárgramur út af þessu og á eftir að verða reiðari ef þetta er — Hvernig fór þetta með njósnarann? Giftist hann Ijðsk- unni eða hinni? — Hann giftist hinni, sagði Helen Missal hirðulevsislega. — Þér vitið þessari sem spilaði á fiðiu. — Jæja, ég þarf ekki að tefja vður lengur, frú Missal. — Ég þarf iíka að flýta mér. Ég á pantaðan tfma í lagningu. — Ef þér vilduð nú bara segja mér nafnið á vini vðar — þessum sem var með vður f hfóinu... Helen Missal leit á þá til skiptis. Wexford kuðlaði pappfrs- örkina saman og henti henni f bréfakörfuna. — Já, en þér hljótið að skilja að það get ég ekki gert. Ég get ekki farið að blanda honum inn f þetta. — lhugið það nú aðeins nánar, frú Missal. Hugsið um það á meðan þér látið snyrta á vður hárið. Burden opnaði dvrnar riddara- Iega fvrir henni og hún gekk hratt út og án þess að Ifta um öxl. — Ég var að tala við einn nágranna minn, sagði Burden — Það er frú Joncs sem býr við Tabard road númer nfu. Hún sem sú skipan sem okkur er ætluð í framtiðinni." ^ Mínusum veiðiþjófana S.B. skrifar af tilefni þorska- stríðsins: „Nú eru Bretarnir byrjaðir að stæra sig af þvf, að þeir afli jafn- vel óvenjuvel undir herskipa- verndinni, og í Morgunblaðinu las ég svo í gær, miðvikudag, að þeir gerðu ráð fyrir að hirða hérna af miðunum okkar allt að 150 þúsund tonn í ár, sem er vitanlega langt yfir það aflamagn, sem telj- ast má forsvaranlegt, ef fiskur á' ekki að ganga hér til þurrðar áður en lýkur. Kannski það vaki fyrir þessum undarlegu nágrönnum okkar að eyðileggja i eitt skipti fyrir öll þá auðiind, sem gerir okkur kleift að búa hér, þvf að maður er svei mér þá farinn að halda, að það sé eftir öðru. Við megum heldur ekki gleyma því, að við eigum i höggi við gamalt nýlenduveldi, og ég held að þegar veidi Bretans var mest, hafi þeir einmitt kært sig kollótta um, hver yrðu afdrif hinna arðrændu, ef „stóri bróðir“ sjálfur hafði bara nóg upp úr krafsinu. Við getum víst því miður ekki bægt rányrkjumönnunum frá ströndum okkar, en við gætum nú kannski samt komið þeim í skiining um, að sá aflahlutur, sem HÓGNI HREKKVÍSI g®3 SIG6A WóGA £ SIMI I MIMI ER 10004 Fjölbreytt og skemmtilegt tungumálanám Fiskiskip Til sölu er 1 60 tonna stálskip, velútbúið með nýrri vél til afhendingar á vertíð strax. Fasteignamiðstöðin Hafnarstræti 11. Simi 14120, 14174 heima 30008. þeir stæra sig af núna, sé geymd- ur en ekki gleymdur. Það kom auðvitað aldrei til mála að sam- þykkja það aflamagn, sem Bretarnir ætluðust til að fá hér á miðunum, góð eitt hundrað þúsund tonn ef ég man rétt. Svo langt ætluðum við samt að seilast sjálfir til sátta að leyfa þeim að taka hér 65,000 tonn. Nú finnst mér það hins vegar ekki koma til mála eins og nú er komið. Við eigum að gera Bretum það fullkomlega ljóst, að þegar þeir státa af þvf leynt og Ijóst, að þeir ætli sér að taka hér úr sjónum tugþúsundir tonna af fiski um- fram það magn, sem meira að segja þeirra eigin fiskifræðingar telja forsvaranlegt, þá verði sú tala tekin með í reikninginn, þegar sá dagur rennur upp — og hann mun renna upp — að bresk útgerð verður að sætta sig við það aflamagn sem við skömmtum henni. Við eigum að mínusa Breta fyrir hvern þann fisk sem þeir draga nú á miðum okkar i full- komnu trássi við afleiðingarnar fyrir okkur og raunar öll grann- riki okkar." # Þvf miður Orðsending til „Aldraðrar": Bréf þitt er þvi miður allt of langt, og þar sem tekið er fram, að ekki megi „saxa það i sundur", þá getum við ekki birt það að svo stöddu — nema þér snúist hugur. Athugið Breyttur opnunartími Föstudaga til kl. 8 Laugardaga frá 10-12 SKEIFUNN115■ I SlMI 86566 Utsala — Útsala á hljómplötum, aðeins í 2 daga. Úrval af stórum hljómplötum á verði frá aðeins kr. 295 Fást eingöngu í verzlun okkar Hafnarstræti 3 1= Hljómplötudeild Hafnarstræti 3 - 20455.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.