Morgunblaðið - 21.02.1976, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.02.1976, Blaðsíða 1
I 28 SIÐUR 42. tbl. 63. árg. LAUGARDAGUR 21. FEBRUAR 1976 Prentsmiðja Morgunblaðsins. fíattersley með áhyggjur af íslenzku stjórninni! Væri nær að huga að sinni eigin ríkisstjórn — segir Ólafur Jóhannesson dómsmálaráðherra BREZKI aðstoðarutanríkisráðherrann Roy Hattersley sagði í Ziirich f gær að áður en miðað gæti í samkomu- lagsátt í fiskveiðideilu Islendinga og Breta yrði að jafna mikinn ágreining sem væri í íslenzku ríkisstjðrninni. Af þessu tilefni sneri Morgunblaðið sér til Ólafs Jóhannessonar dómsmálaráðherra. Ekki tókst að ná í Geir Hallgrímsson forsætisráðherra. Ólafur sagði: „Ég tek nú ekki mikið mark á honum og býst nú ekki við að ég geri það á næstunni nema hann breyti eitthvað um tóntegund. Ég held að þetta séu ímyndanir og ég er ósköp hræddur um að hann hafi aldrei komizt niður á jörðina í þessu máli.“ „Ég held að það sé meira verk- efni fyrir hann að huga að ástand- inu í brezku stjórninni en í þeirri íslenzku," sagði Ölafur enn- fremur. „Auðvitað hafa menn sínar mismunandi skoðanir en það er ekki nema eins og gengur og gerist i hverri rikisstjórn og ekki alltaf eftir flokkum. Ölafur: „fmyndanir“ Auðvitað getum við litið mismun- andi augum á ýmis mál. Þetta eru held ég hans eigin imyndanir, alveg algerlega, og ég veit ekki hvaðan hann ætti að hafa heimild- ir.“ UMMÆLI HATTERSLEYS Hattersley sagði að islenzka ríkisstjórnin stæði andspænis verulegum innbyrðis stjórnmála- erfiðleikum og þá yrði að leysa áður en hún gæti þokazt i átt til samkomulags við Breta. Hattersley fór lofsamlegum orðum um Geir Hallgrímsson for- sætisráðherra og sagði að hann væri „einstaklega heiðarlegur, ákveðinn og hugrakkur“. En Hattersley sagði að innbyrðis ágreiningur gerði aðstöðu hans erfiða. Jafnframt sagði Hattersley að Bretar væru reiðubúnir til við- ræðna hvenær sem væri, um hvað sem væri og hvar sem væri. Hann bætti því við að hann væri svart- sýnn á útlitið eftir slitin á stjórn- málasambandi Islands og Bret- lands. Roy Hattersley er í þriggja daga heimsókn í Sviss og talaði um fiskveiðideiluna í veizlu Chamber og Commerce Breta og Svisslend- inga í Ztirich. UGGUR iBRtJSSEL Slitin á stjórnmálasambandi Is- lands og Bretlands hafa engin áhrif á starfsemi Atlantshafs- bandalagsins að því er fréttaritari NTB hafði eftir NATO- heimildum í gær. Hins vegar er sagt af hálfu NATO að ef lengra sé horft fram á við geti þorskastríðið og stjórn- málaslitin haft hættulegar afleið- ingar i för með sér. Að þvi er spurt i aðalstöðvum NATO, segir fréttaritarinn, hvert næsta skrefið verði ef deilan leys- ist ekki fljótt. Oftast heyrir maður þá spurningu hvort islenzka ríkisstjómin muni nota Framhald á bls. 27 Sfmamynd AP. TIL PEKING — Nixon fyrrverandi forseti og frú við þotuna sem Mao formaður sendi eftir þeim til Los Angeles. Kinverskur embættismaður, Chu Chuan- haien, tekur á móti þeim. Hljóðið í brezkum sjómönnum og útgerðarmönnum dauft: Vilja þrauka hér en telja „stríðið” tapað segir Jón Olgeirsson „ÞAÐ ER ekki hægt að neita því, að skipstjórnar- menn og áhafnir togar- anna eru orðnar mjög þreyttar á þessu stríði við fslendinga, en þeim finnst betra að reyna að halda þessum veiðum áfram en að þurfa að koma heim í atvinnuleysið. Mottóið hjá útgerðarmönnum og sjó- mönnum er núna að þrauka við fsland eins lengi og auðið er, því Bret- ar séu í raun búnir að tapa stríðinu og munu þurfa að hverfa brott af fslandsmið- um fyrr en seinna,“ sagði Jón Olgeirsson, ræðis- maður fslands í Grimsby í samtali við Morgunblaðið í gær. Jón Olgeirsson sagði, aö í Mexíkó byr jar vörn 200 mílna sinna 6. júní n.k. San Diego, Kaliforníu, 20. febrúar. AP. JORGE T. Bouchan, fiskimálastjóri Mexíkó, sem nú er I heimsókn I Bandarfkjunum skýrði frá þvf I San Diego I dag, að Mexfkómenn myndu byrja að verja 200 mílna fiskveiðilögsögu sfna 6. júní nk. Bouchan sagði að á næstu mánuðum yrði aflakvóta fyrir fiskteg- undir á þessu svæði, sem taldar væru f hættu vegna ofveiði, og að hugsanlegt væri að engum rækjuveiðiieyfum yrði úthlutað, en Mexfkó- menn og Bandarfkja- menn hefðu ætíð verið góðir nágrannar og hugs- anlegt væri að stjórnir landanna gætu komist að að þvf unnið að ákvarða samkomulagi f þessu máli. Fiskimálast jórinn sagði að verið væri að fhuga hvernig leyfisveiting- um yrði háttað til veiða humars og á rækju, túnfiski og skelfiski og að sennilega yrðu leyfis- veitingarnar seldar ódvr- ar en sem næmi því gjaldi, 60—70 dollurum á lest, sem önnur S- Amerfkurfki setja upp við erienda veiðimenn. Það eru bandarfskir fiskimenn, sem mestra hagsmuna hafa að gæta f sambandi við útfærslu fiskveiðilögsögu Mexfkó og sagði formaður sam- taka bandarfskra túnfisk- bátaeigenda, að banda- rfskir fiskimenn gerðu sér ekki grein fyrir hvaða áhrif útfærslan gæti haft. Hann sagði að óljóst væri hversu mikið magn af túnfiski hefði veiðst innan 200 mflnanna og að framtfð ' bandarfskra fiskimanna byggðist nú algerlega á þeim samn- ingum, sem bandarfska Framhald á bls. 13 Grimsby og Hull segðu menn mjög lítið um stjómmálaslitin. Það eina sem hann hefði orðið var við, væri að einstaka menn hefðu hringt til sín og spurt hvort hans afstaða i málinu breyttist eitthvað við slitin. Fjölmiðlar hefðu gert mikið úr klippingu Ægis á Royal Incs I gær og haldið þvi fram að klippingaraðgerðin væri stór- hættuleg. Þá sagði Jón, að brezku togar- arnir, i það minnsta sumir hverj- ir, kæmu nú hálftómir heim aftur af Islandsmiðum. Togaraeigendur í Grimsby hefðu haldið fund til að ræða framtið fiskiðnaðarins þar og komist að þeirri niðurstöðu að hann væri í stórhættu. Og menn væru mjög óánægðir með frammi- stöðu brezku rikisstjórnarinnar í fiskveióimálum, ekki síst hvað varðaði Bretland sjálft. Um þess- ar mundir væri mjög góð þorsk- veiði i Norðursjó og þegar vel viðraði mætti segja, að þorsk- urinn hoppaði um borð. „Já, ástandið i fiskveiðimál- unum leggst þungt á menn hér, en það versta er að flestir skilja ekki að það er mest Bretum sjálf- um að kenna hvernig komió er.“ Morgunblaðið spurði Jón hvort ekki væri hægt að láta þá togara, sem nú eru á Islandsmiðum stunda veiðar í Norðursjó þegar svona vel fiskaðist þar. Hann sagði, að það væri ógjörn- ingur. Togararnir væru alltof stórir og óheppilegir til að stunda veiðar i Norðursjó og þess vegna væri stefna að láta þá vera á Is- landsmiðum eins lengi og hægt væri. Það væri betra en ekkert.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.