Morgunblaðið - 21.02.1976, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 21.02.1976, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. FEBRUAR 1976 Hollenskiþjálfar- inn tókMolenbeek framyfirÍBV — ÉG var a8 lesa það I bloðunum í dag að hollenski þjálfarinn Cor Bron myndi að öllum líkindum verða næsti aðalþjálfari belgíska liðsins Molenbeek svo það er kannski ekki skrltið að hann hafi hafnað þjálfarastöðu hjá Vest- mannaeyjaliðinu, sagði Ásgeir Sigurvinsson þegar íþróttasíðan hringdi í hartn til Belgfu I gær. — Það hefur verið mikið um að vera hérna hjá okkur í Standard að undanförnu Báðir aðalþjálfarar félagsins hafa sagt starfi sínu lausu og þriðji þjálfarinn er tekinn við, sagði Ásgeir — Petit, framkvæmdastjóri félagsins, lét stór orð falla i garð þjálfarans að loknum tapleiknum við Anderlecht og er við mættum á æfingu á miðvikudaginn fengum við svo þær fréttir að báðir þjálfararnir væru hættir og prófessor í heilsu- rækt og slíku tæki við Hann hefur svo verið með æfingarnar þessa vik- una, ekkert nema úthaldsæfingar og púl, hér i eðjunni, sem þekur alla knattspyrnuvelli i Belgíu um þessar mundir. — Hins vegar dró Petit til baka sín stóru orð um fyrirliðann Gerets, sem hann sagði að ekki yrði fyrirliði framar, hélt Ásgeir áfram. — Hann verður áfram fyrirliði, en miklar breytingar verða á liðsskipaninni Gerets, sem leikið hefur sem bakvörður með belgíska landsliðinu, verður núna framherji og ég fer aftur í mína stöðu sem tengiliður, sagði Ásgeir Þrátt fyrir það að Standard Liege tapaði stórt fyrir Anderlecht, eða 3 0, og flestir leikmanna Standard fái skammir í belgískum blöðum þá er Ásgeir Sigurvinsson hafinn yfir þá gagnrýni Hann er talinn bezti maður liðs síns í þessum leik og öðrum upp á síðkastið, ásamt belgíska landsliðsmanninum Van Moer, sem þó er sagt að hafi ekki haft úthald nema I hálfan leikinn. Einn þekktasti útvarpsmaður Belga lét svo ummælt eftir leik Standard við Anderlecht að það væri slæmt að Ásgeir skyldi ekki vera belgískur ríkisborgari, ef hann væri það þá væri hann öruggur í belgíska landsliðinu. í leiknum gegn Anderlecht lék Ásgeir á vinstri kanti, en eigi að síður stóð hann sig mjög vel og var bezti maður liðs síns að sögn belgískra blaða Átti Ásgeir þrjú skot að marki andstæðingsins, en i öll skiptin náði Ruiter, mark- vörður Anderlechts, að bjarga meistaralega Auk þess spilaði Ásgeir félaga sína nokkru sinni vel uppi, en þeir voru klaufar að nýta ekki tækifærin til að skora Er leið á leikinn minnkaði hlutur Standards í leiknum, en Ásgeir barðist þó áfram af krafti og hin mikla yfirferð hans vakti mikla athygli Ásgeir var eftir leikinn valinn í lið vikunnar í Belglu og var það í fjórða skipti í röð, sem hann varð þess heiðurs aðnjótandi Van Moer var einnig valinn í lið vikunnar og sömuleiðis markvörður andstæðing- anna og voru þessir þrír þeir einu úr þessum leik, sem valdir voru í lið vikunnar Mynd þessi var tekin er H.G. Rich, yfirmaður bandarfska varnar- liðsins á Keflavíkurflugvelli, afhenti Sigurði Ingólfssyni í Körfuknattleiksráði Reykjavíkur sigurlaunin í hinni árlegu ambassadors-keppni í körfuknattleik, en tslendingar sigruðu nú í keppninni við varnarliðsmenn. Fóru fram fimm leikir og unnu tslendingar þrjá þeirra, en Bandaríkjamenn tvo. Valsmenn geta orðið Islandsmeistarar á sunnudaginn án þess að leika. Sigri Fram lið FH hafa Framararnir goldið greiðann frá því fyrir nokkrum árum, er Valur vann mótið fyrir Fram. Á myndinni er það Jóhannes Stefánsson sem brýst f gegn og skorar. Þróttararnir sem á sunnudaginn leika gegn Gróttu eru of seinir til að stöðva hann. Barist um meistaratitilinn í Höllinni annað kvöld Staöa—stig—mörk FRAM og FH leiða saman hesta sfna f 1. deild Islandsmótsins f handknattleik á sunnudagskvöldið. Sker sá leikur úr um það hvort FH-ingar verða Islandsmeistarar í ár, eða hvort aukaleikur verður nauðsynlegur. Ef Fram vinnur leikinn verða Valsmenn Islands- meistarar, ef jafntefli verður I leiknum verður að fara fram auka- leikur milli Vals og FH, en sigri FH-ingar verða þeir lslandsmeistarar. Að sjálfsögðu er þessa leiks beðið með mikilli eftirvæntingu og Valsmenn setja allt sitt traust á Framarana og segja að þeir eigi inni greiða hjá Fram, eftir að þeir hjálpuðu þeim í Islandsmótinu fyrir þremur árum. Valsmenn geta þó engum öðrum en sjálfum sér um kennt ef þeir verða ekki meistarar því sannast sagna léku þeir „rassinn úr buxunum“ er þeir töpuðu dýrmætum stigum á klaufalegan hátt er meistaratitil- inn blasti við þeim. Erfitt er að segja fyrir um það hvort liðið kemur til með að sigra í leiknum á sunnudaginn. Bæði liðin hafa bætt við getu sína i leikjunum að undanförnu — Fram kannski heldur meira — en það sem hefurgert aðalmuninn er að markvarzla þessara liða hefur batnað til mikilla muna. FH-liðið er leikreynt mjög, en á móti þessum kosti FH-liðsins hafa Framarar heimavöllinn, sem ætti að reynast þeim dýrmætur. Leikurinn á sunnudaginn hefst um klukkan 21.25, en á undan leika Þróttur og Grótta. Lið sem eru fyrir neðan miðjadeild, en þó endanlega laus úr fallhættu. Leik- ur þeirra skiptir því f rauninni engu máli. Klukkan 19.00 leika í Laugardalshöllinni lið Ármanns og Vals í 1. deild kvenna og gæti þar orðið um skemmtilcgan leik að ræða. Þrír aðrir kvennaleikir fara fram i Laugardalshöllinni á sunnudaginn. KR—ÍBK leika klukkan 14.40, Fram — UBK kl. 15.45 og Víkingur — FH klukkan 16.50. I 2. deild fer einn leikur fram um helgina, Leiknir leikur við IBK i Laugardalshöllinni i dag klukkan 17.00. Þá átti KR að leika við KA klukkan 18.15 í Laugardalshöllinni i dag, en óvíst er hvort Akureyringar komast suður. HUGUR I FH-INGUM Hér fer á eftir viðtal við Þór- arinn Ragnarsson, sem íþrótta- síðan átti við hann í gær. Því miður náðist ekki viðtal við leik- menn Fram eða þjálfara um leik- inn annað kvöld. Þórarinn Ragnarsson, einn hinna leikreyndu FH-inga sagðist trúa á sigur síns liðs — að sjálf- sögðu. — Æfingasóknin hefur ef til vill ekki verið sem skyldi í vetur, en að undanförnu hefur mannskapurinn mætt vel og það er hugur i mönnum. sagði Þór- arinn. — Leikreynsla okkar FH-inga verður ábyggilega þung á metun- um í þessum leik og ætli það sé ekki að verða siðasta tækifærið fyrir einhverja af þessum „gömlu" til að ná sér í meistara- titil. Annars er ekki annað hægt að segja en að uppskeran hafi verið góð í vetur hjá okkur — Reykjanesmótið, meistarakeppn- in, í 1. eða 2. sæti í íslandsmótinu og bikarkeppnin enn eftir, þannig að við getum unnið fjóra titla á tímabilinu. Þórarinn Ragnarsson Um Framliðið sagði Þórarinn að FH-ingum hefði yfirleitt gengið illa með Framara og hann sagðist búast við jöfnum leik á sunnudaginn þar sem FH ynni vonandi. — Framararnir leika skynsamlegan handknattleik og auk þess leika þeir á heimavelli, sem alltaf er ávinningur. En ég hef ekki trú á öðru en Hafnfirð- ingar fjölmenni á leikinn og styðji okkur eins og venjulega. Aðspurður um handknattleik- inn, sagði hann að erfitt væri að dæma um hvort hann hefði verið mikið verri en áður, augljóslega þó mun „köflóttari". — Hins vegar held ég að það fari ekki á milli mála að nýtt blóð vantar i þjálfunina hjá liðunum. Þar tala ég af eigin reynslu því er ég tók við Gróttuliðinu var sem sumir leikmanna liðsins væru þarna aðeins i hressingarleikfimi, sagði Þórarinn að lokum. STAÐAN I 1. deild Islandsmóts- ins I handknattleik fyrir síðasta leikkvöldið er þessi: Valur 14 9 1 4 282:248 19 FH 13 9 0 4 290:251 18 Fram 13 7 2 4 243:221 16 Haukar 14 6 2 6 264:255 14 Vfkingur 14 7 0 7 289:296 14 Þróttur 13 4 2 7 246:262 10 Grótta 13 5 0 8 238:258 10 Ármann 14 3 1 10 232:293 7 MARKHÆSTIR. Friðrik Friðrikss., Þrótti 83 Pálmi Pálmason, Fram 78 Viðar Símonarson, FH 77 Páll Björgvinsson, Vfkingi 75 Hörður Sigmarsson, Haukum 74 EINKUNNAGJÖFIN Eftirtaldir hafa hlotið flest stig f einkunnagjöf Morgunblaðsins. Tala leikja er f sviga: Pálmi Pálmason Pálmi Pálmason, Fram Árni Indriðas., Gróttu Elfas Jónasson, Haukum Páll Björgvinss., Vfkingi Geir Hallsteinsson, FH Stefán Halldórss., Vfk. Viðar Símonarson, FH Friðrik Frfðriksson 37(13) Friðrik Friðrikss., Þrótti 34(13) 36(13) Olafur Benediktsson, Val 34(14) 36(14) Guðjón Magnússon, Val 33(14) 36(14) Hörður Sigm., Haukum 33(14) 35(13) iJón Pétur Jónsson, Val 31 (14) 35(14) Hörður Kristinss., Arm. 30(12) 35(13) Viggó Sigurðss., Vfkingi 30(13) Kft - ÍR viðureip helgar- innar í körfnknattleiknnm ÞRlR leikir verða f 1. deildar keppni Islandsmótsins f körfu- knattleik nú um helgina, og er einn þeirra stórleikur er gömlu stórveldin, KR og lR, mætast. Leikir þessa liða hafa jafnan ver- ið gffurlega spennandi, og verður leikurinn að þessu sinni senni- lega þannig, en staðan f mótinu er nú sú, að það lið sem tapar leikn- um á nánast enga möguleika á að hljóta Islandsmeistaratitilinn í ár. Fyrsti leikur helgarinnar verð- Einn blakleikur Nú um helgina fer fram einn leikur í 1. deildar keppni tslandsmótsins í blaki. Verður hann að Laugarvatni og liðin sem mætast eru UMFB og Vík- ingur. Hefst leikurinn kl. 15.30 á morgun. Þá verður einn leikur í 2. deild Islands- mótsins, einnig að Laugar- vatni og leikur B-lið Vfkinga þar við lið Stfganda. ur á Akranesi í dag og þar leika Snæfell og Ármann. Hefst leikhr- inn kl. 13.30. Má búast við að þar verði um að ræða leik kattarins að músinni, þar sem Ármenningar hafa að því að keppa fyrst og fremst að reyna að setja stigamet í deildinni. Kl. 17.00 i dag fer svo fram í Iþróttahúsi Kennaraháskólans leikur milli ÍS og UMFN og ætti þar að geta orðið um jafna og skemmtilega viður*eign að ræða. Leikur KR og IR fer fram í íþróttahúsi Hagaskólans kl. 14.00 á morgun. ÍR-ingar hafa nú hlotið 14 stig eftir 9 leiki, en KR-ingar eru með 10 stig eftir 7 leiki. Bæði liðin hafa því tapað fjórum stigum. Ármenningar eru hins vegar í forystu í deildinni, með fullt hús, þ.e. hafa engu stigi tapað. Það lið sem tapar leiknum á morgun er því væntanlega alveg úr leik í baráttunni um Islandsmeistaratit- ilinn, en það sem sigrar á enn allgóða möguleika, þótt róðurinn verði vitanlega erfiður að ná Ár- menningunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.