Morgunblaðið - 21.02.1976, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 21.02.1976, Blaðsíða 15
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. FEBRUAR 1976 MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 21. FEBRUAR 1976 15 fMtogtitiliffifrUr Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavik. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson Ritstjórar Matthias Johannessen, Stycmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson Fréttastjóri Björn Jóhannsson Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, simi 10 100 Auglýsingar Aðalstræti 6, simi 22 4 80 Áskriftargjald 800,00 kr. á mánuði innanlands. j lausasölu 40,00 kr. eintakið. Biliðminnkar Ifyrrakvold tóku vinnu- veitendur afstöðu til miðl- unartillögu þeirrar, sem sátta- nefnd ríkisins lagði fram fyrir nokkru og ákváðu að fallast á þær hugmyndir, sem þar koma fram í meginatriðum, þ e. að laun hækki á bilinu 13,6—16,5% í áföngum Hins vegar leggja vinnuveit- endur til, að samningstíminn verði til 1 júní 1 977 í stað 28 febrúar það ár og færa fram þau rök fyrir þeirri breytingu, að þar sem í sáttatillögunni felst svokallað rautt strik, sem miðast við 1. nóvember 1976 og framfærsluvísitölu 585 stig sé kaupmáttur launa tryggður eftir 1. nóvember í ár, þótt samningstíminn verði þremur mánuðum lengri. Þá hafa vinnuveitendur fallizt á ýmsar sérkröfur verkalýðsfélaganna. Þeir fallast á verulegan hluta af sameiginlegum sérkröfum aðildarfélaga Alþýðusambands íslands. Þeir fallast á að greiða slysa- og atvinnusjúkdóma- bætur með óskertu kaupi í fjór- ar vikur en áður voru þessar greiðslur bundnar við eina viku. Þeir fallast á, að fjárfiæðir vegna slysa- og dánarbóta verði hækkaðar til samræmis við kaupgjald en fjárhæðir þessar hafa verið óbreyttar frá 1974. Þeir fallast á, að fastir starfsmenn varðandi orlofslaun skuli teljast þeir, sem hafa minnst eins mánaðar upp- sagnarfrest og þeir fallast á með vissum skílyrðum, að launþegi, sem veikist alvarlega í orlofi í ákveðinn dagagjölda, skuli eiga rétt á orlofslengingu að uppfylltum ákveðnum skil- yrðum. Ennfremur fallast vinnuveitendur á, að áunnin réttindi starfsmanns, sem sagt hefur verið upp störfum t.d. vegna samdráttar skuli haldast, ef -hann er endur- ráðinn innan eins árs. Hins vegar setja vinnuveitendur það skilyrði fyrir þvi að samþykkja þessi atriði, að fallið verði frá sérkröfum einstakra stéttar- félaga og landssambanda, ef undan eru skildar þær kröfur, sem vinnuveitendur hafa nú þegar gefið i skyn að þeir séu tilbúnir til að samþykkja. Eins og sjá má af þessu hlýt- ur afstaða vinnuveitenda að leiða til þess, að mjög veruleg hreyfing komist á samningavið- ræður. Aiþýðusambandið hafði áður lýst því yfir, að það liti á hugmyndir sáttanefndar sem umræðugrundvöll. Þar sem vinnuveitendur hafa nú fallizt á miðlunartillögur sáttanefndar í öllum meginatriðum og enn- fremur á verulegan hluta þeirra sérkrafna, sem aðildarfélög Al- þýðusambandsins höfðu komið sér saman um sameiginlega, hlýtur að vera Ijóst að bilið á milli deiluaðila hefur minnkað svo mjög, að það er ekki verjanlegt að halda tugum þús- unda launþega í verkfalli öllu lengur eftir að deiluaðilar hafa nálgazt svo mjög sjónarmið hvors annars. Að vísu munu vera raddir uppi um það, að hin einstöku verkalýðsfélög eigi að halda fast við sérkröfur sínar en það gefur auga leið, að í þessum samningum sem öðrum verða báðir aðilar að slá nokkuð af upphaflegri afstöðu sinni, ef samningar eiga að takast. Með því skrefi, sem vinnuveitendur hafa nú stigið, hafa þeir kastað boltanum yfir til verkalýðssam- takanna. Þjóðin biður með eftirvæntingu eftir viðbrögðum þeirra. Það er almanna mál, að verk- fall það, sem nú stendur yfir. Að undanförnu hafa birzt fréttir í nokkrum dag- blöðum um það, sem þessi blöð hafa kallað „punkta Luns" og í Þjóðviljanum hefur því verið haldið fram, að hér séu á ferðinni hugmyndir Josephs Luns framkvæmdastjóra At- lantshafsbandalagsins um efnisatriði hugsanlegs sam- komulags milli íslendinga og Breta ' í landhelgisdeilunni. Þetta er auðvitað einber þvætt- ingur. Framkvæmdastjóri At- lantshafsbandalagsins hefur ekki lagt fram af sinni hálfu nokkrar tillögur um efnisatriði slíks samkomulags enda er það ekki hans verkefni. Hér er ekki um að ræða „punkta Luns", heldur eru sé óvinsælt meðal alls þorra launþega og almenningur hafi sízt af öllu viljað fá yfir sig verkfall eins og nú standa sakir. Þegar svo lítið ber orðið á milli, sem raun ber vitni um, er það áreiðanlega skýlaus krafa launþega, að gengið verði frá samningum nú þegar svo að hjól atvinnulífsins geti farið að snúast með eðlilegum hætti á ný og ekki verði meira tjón en orðið er af þessum verkfallsað- gerðum. þarna á ferðinni þær hug- myndir, sem Wilson, forsætis- ráðherra Breta, og Callaghan, utanríkisráðherra, settu fram við framkvæmdastjóra Atlants- hafsbandalagsins, þegar hann átti viðræður við þá í London á dögunum til þess að kanna möguleika á lausn landhelgis- deilunnar. Eftir að Joseph Luns kom aftur til Brússel skýrði hann Islenzku rikisstjórninni frá þessum viðræðum og hvaða sjónarmið Bretar hefðu sett fram i þeim. Þessum tillögum Breta hefur íslenzka ríkisstjórn- in að sjálfsögðu hafnað. Það er alveg ástæðulaust af Þjóð- viljanum og öðrum dagblöðum að eigna framkvæmdastjóra At- lantshafsbandalagsins rang- lega þessar hugmyndir Breta. Hugmyndir Breta en ekki „punktar Luns” misfellur eða mistúlkun Friðrik Pálsson: Mistök, 1 MORGUNBLAÐINU 18. febrúar ' er grein eftir Eyjólf Isfeld Eyjólfsson um verðlagningu yfir- nefndar Verðlagsráðs á loðnu til frystingar. Eyjólfur nefnir grein sína „Mistök eða verkfallspólitik" og telur hann of háa verðlagningu á loðnu til frystingar hafa stafað af mistökum meirihluta yfir- nefndar Verðlagsráðs, eða með hans eigin orðum: .. en hvernig sem á þetta er litið þá verður niðurstaðan sú að við þessa verð- lagningu hafa meirihluta yfir- nefndar Verðlagsráðs orðið á víta- verð mistök vegna óafsakanlegrar vanþekkingar.“ Nú ætti öllum að vera það ljóst, að verðákvarðanir Verðlagsráðs eru ekki minna mál en svo, að þar ræðst tekjuskipting þjóðarinnar í stórum dráttum, þar eð Verðlags- ráð ákveður skiptingu þess fjár- magns, sem fæst fyrir útflutning sjávarafurða milli fiskvinnslu- stöðvanna annars vegar og sjó- manna og útgerðarmanna hins vegar. Og hvort sem okkur líkar betur eða verr, þá eru sjávar- afurðir ennþá um 80% alls út- flutnings okkar og þvi nær alls ráðandi um velmegun lands- manna. Hvernig er þá hægt að una því, að þeim, sem að þessum ákvörðunum Verðlagsráðs standa, skuli geta orðið á „vitaverð mis- tök vegna óafsakanlegrar van- þekkingar“ að mati manns, sem einna bezt þekkir alla starfshætti ráðsins og hefur setið þar hvað lengst. Auðvitað er mannlegt að skjátlast, en kannski var ekki um mistök að ræða, heldur misfellur í kerfinu. í þessu einstakatilfelli var verð ákveðið með atkvæðum seljenda og oddamanns Þjóðhagsstofnunar gegn atkvæðum kaupenda í yfir- nefnd, sem telja að þessi ákvörð- un verði til þess, að loðnufrysting verði mun minni en ella og ef svo verður, þá er nú heldur lítill hag- ur fyrir sjómenn og útgerðar- menn að ákvörðun þeirra eigin fulltrúa. Hefur þá löggjafarvaldið ekki búið betur um hnútana en svo að svona nokkuð geti gerzt? Jú, reyndar, ef að er gáð. Það er ætlast til þess skv. lögum um Verðlagsráð, að 12 manna nefnd taki ákvörðun um verðlagningu sjávarafurða til vinnslu og er sú nefnd hið eiginlega Verðlagsráð. I því er enginn oddamaður og er þess vegna um að ræða frjálsa samninga kaupenda og seljenda líkt og á sér stað í kjarasamning- um launþegaog vinnuveitenda. Eins og löggjafinn stofnar til Verðlagsráðs telur hann senni- lega, að þangað hljóti að veljast kunnáttumenn á flestum svíðum útgerðar, sjómennsku og fisk- vinnslu, þar sem í lögunum er gert ráð fyrir einum eða fleiri fulltrúum frá öllum helztu sam- tökum í sjávarútvegi. Vafalaust hefur verið gert ráð fyrir því, að í hinu eiginlega Verð- lagsráði yrðu allflestar ákvarðan- ir teknar ella hefði tæpast verið burðast með 12 manna ráð, ef í 4—5 manna yfirnefnd hefði þótt liklegt að allar skoðanir kæmu fram. Að minnsta kosti hefur verið ætlast til þess, að þess yrði freist- að að ná samkomulagi í 12 manna ráðinu í lengstu lög og yfirnefnd- in einungis notuð i vandræðatil- fellum. En nú er raunin orðin sú, að 5 manna yfirnefndin er að mestu búin að yfirtaka starfsemi 12 manna ráðsins og í mörgum til- fellum tekur hún við málunum frá Verðlagsráði svo til alveg hrá- um, þar sem það þarf aðeins einn mann af 12 til að vísa verð- ákvörðunum til yfirnefndar. Og hvers vegna er það svo óeðli- legt, að yfimefndin gerist svona atkvæðamikil? I fyrsta lagi vegna þess, að hug- myndin um frjálsa samninga á einungis við í Verðlagsráðinu sjálfu, en ekki í yfirnefndinni eftir að þar er kominn þriðji aðili, oddamaður Þjóðhagsstofnunar, sem í raun er úrskurðaraðili. I öðru lagi vegna þess, að í 12 manna ráðinu hlýtur að vera minni hætta á „vítaverðum mis- tökum vegna vanþekkingar" þar sem þar eru fleiri visir menn samankomnir, þó ef til vill sé það þungt I vöfum. Ef við stöldrum aðeins við og íhugum tilkomu oddamanns Þjóð- hagsstofnunar, þá kemur i ljós, að fyrstu ár Verðiagsráðsins voru lögín á þann veg, að aðilar komu sér saman um oddamann yfir- nefndar, ef málum var skotið þangað og ef þeir urðu ekki sam- mála um tilnefningu þá tilnefndi Hæstiréttur oddamann. Með fullri virðingu fyrir núverandi forstjóra Þjóðhags- stofnunar og öðrum starfsmönn- um hennar tel ég, að spor hafi verið stigið afturábak, þegar lögunum var breytt i núverandi horf, að forstöðumaður Efnahags- stofnunar (nú forstjóri Þjóðhags- stofnunar) eða fulltrúi hans skyldi verða oddamaður Verðlags- ráðs. Þessi gagnrýni min á ekki sízt rétt á sér nú vegna þeirrar þróunar, sem að framan er lýst um vaxandi áhrif yfirnefndar. Forstjóri Þjóðhagsstofnunar er vafalaust, eðli stofnunarinnar vegna, í einna beztri aðstöðu til að dæma um fjárhagslega stöðu at- vinnuveganna og þá um leið að ráða hugsaniegum breytingum innbyrðis á milli greina, en hann er jafnframt nánasti ráðgjafi rikisstjórnarinnar í efnahagsmál- um og getur þess vegna tæpast talizt fullkomlega hlutlaus. (e.t.v. er ekki ástæða til þess, að hann sé það.) Þó að hann eigi nú sæti i sáttanefnd í yfirstandandi kjara- deilu, þá er hvorki hann né sátta- nefndin neinir oddamenn og það gerir gæfumuninn. Ég á ekki von á því, að samningsaðilarnir, Alþýðusambandið annars vegar og Vinnuveitendasamband íslands og Vinnumálasamband samvinnufélaga hins vegar, myndu sætta sig við þá skerðingu samningsréttar, sem fælist í skip- un oddamanns, sem skæri úr um kaupkröfur með atkvæðum annars aðilans gegn hinum og það jafnvel án þess, að mikið hefði verið reynt að ná samkomulagi áður með frjálsum samningum. Þetta má auðveldlega skýra. Við verðákvörðun yfirnefndar sitja tveir menn sinn hvorum megin við sáttaborð og þó að ég leyfí mér að nefna nöfn nokkurra manna, sem hér hafa átt hlut að máli, þá er það eingöngu til ein- földunar en ekki á nokkurn hátt viðkomandi til upphefðar eða niðurlægingar. Seljenda megin sitja oftast eins og öllum er kunnugt úr fjölmiðl- um, Kristján Ragnarsson frá L.l.U! og Ingólfur Ingólfsson frá sjómönnum, en kaupenda megin Eyjólfur Isfeld Eyjólfson og Árni Benediktsson frá vinnslustöðvun- um. Fyrir endanum situr svo for- stjóri Þjóðhagsstofnunar eða full- trúi hans sem oddamaður. Kristján Ragnarsson Eyjólfur Isfeld Eyjólfsson Ingófur Ingólfsson Árni Benediktsson Forstjóri Þjóðhags- stofnunar Upp á síðkastið hefur verð- ákvörðun oftast verið samþykkt með atkvæðum seljenda og odda- manns gegn atkvæðum kaupenda. Þannig ráða kaupendur litlu sem engu (eftir atvikum) um verðið. Þegar svo kemur til samninga um kaup og kjör á vinnumarkaðnum breytist myndin talsvert. Fulltrúar launþega Eyjólfur Isfeld Eyjólfsson Arni Benediktsson Krist ján Ragnarsson Ingólfur Ingólfsson Kristján Ragnarsson flytur sig nú yfir borðið og tekur sæti gegnt Ingólfi Ingólfssyni og nú verða þeir að bitast um þann hluta kök- unnar, sem þeir með fulltingi oddamanns skáru sér og ætti þeim ekki að vera það nein vorkunn. En Eyjólfur og Árni eða þeirra Framhalri á hls. 19 Popsýningin á Listasafni Islands vekur athygli og umtal — Rætt við Braga Ásgeirsson ÞAÐ er frekar rósemdarleg athöfn að reika um sali Lista- safns Islands á sunnudegi. En sl. sunnudag virtist eitthvað óvenjulegt á seyöi því að i for- sal safnsins var þröngt á þingi, líkast því sem einhver stór- meistarinn væri að opna sýn- ingu. Munurinn var þó sá, að fólkið er reikaði á milli sýningarbásanna var ekki stöð- ugt að heilsast og skeggræða um daginn og veginn eíns og við opnanir sýninga, heidur var það niðursokkið við að skoða fyrsta samsafn íslenzkrar pop- listar sem sett hefur verið upp hérlendis. Bragi Asgeirsson hefur lengi verið kenndur við þessa lista- stefnu, og lék Morgunblaðinu því forvitni á að heyra álit hans á sýningunni, hvort hún gæfi raunsanna hugmynd af upphafi og þróun pop-listarinnar hér- lendis, — hver væri upphafs- maður hennar og hvort þessi mikli áhugi kæmi honum á óvart. Bragi svarar því til, að áhug- inn komi honum mjög á óvart, jafnvel þótt hann hafi orðið var við töluverða hreyfingu á list- mati fólks undanfarið, — fólk virðist vera að opnast fyrir ýms- um nýjungum og væri farið að spyrja unga listamenn, hvort þeir ættu myndir í nýja stílnum í stað þess að biðja um eldri myndirsvo sem algengast var. Nei, sýningin gefur ekki raunsanna hugmynd af upphafi og þróun pop-listar á Islandi, til þess er hún of smá í sniðum og ýmsa vantar, t.d. Einar Hákonarson og marga fleiri, sem við sögu koma, — þá eiga þar sumir frumverk sín í þess- um stil en aðrir, t.d. ég, einung- is tiltölulega nýleg verk. Eg bauð þó fyrirsvarsmanni sýningarinnar eina af elztu myndum mínum í nýstílnum, sem er frá áramótunum 1964—'5, en hann vildi heldur hinar nýrri. Eg lét það gott heita enda hélt ég að hér yrði einungis um eins konar stikk- prufu að ræða á viðhorfum listamanna til þessá stíls, því það þarf að mínu mati miklu stærri sýningu til að raunsönn mynd komi fram af þróun áhrifa frá pop-list. Eg legg áherzlu á síðustu setninguna, því að ákaflega erfitt er að skil- greina þetta hugtak og marka því ákveðinn bás, en ég hyggst skilgreina hugtakið svo sem bezt ég get í sérstakri grein síðar. Hvort ég skrifi sérstak- lega um þessa sýningu eða starfsbróðir minn, Valtýr Pétursson, veit ég að svo komnu máli ekki, en það er skiljanlega harla erfitt að fjalla um sýningu þar sem maður sjálfur er einn aðalþátttakand- inn. Ég vil helzt leiða hjá mér að svara spurningunni um upp- hafsmann þessarar stefnu hér- lendis, en ég minnist þess nú, að myndum eftir mig var næst- um hafnað á haustsýninguna 1953 eða ’54. En svo var, að hringt var til mín af sýningar- nefnd og ég beðinn um að koma með eldri myndir I stað þeirra er ég sendi inn, en það voru nýjar tilraunir. Ég gerði svo sem beðið var um, en sé eftir því i dag, því að ég fékk einmitt að vita seinna að sýningar- nefndarmenn hefðu verið sam- mála um að þetta væru ljótustu myndir í óhlutlægum stíl, sem þeir hefðu augum litið! — Þetta voru upphafsmyndir mínar að nýstílnum, — seinna fylgdi svo hvíta tímabilið þar sem ég límdi ýmsa hluti á léreft, — tuskur, snærisspotta, flibba, skyrtur o.s.frv. og þannig hefur þetta þróazt á ýmsa vegu síðan. En á Pop- sýningunni getur að líta hið nýjasta, að nýjustu myndinni undanskilinni, sem ekki var hengd upp. Eina slíka mynd hef ég selt á safn í Norður Þýzkalandi. Ég minnist þess í sambandi við hvítu myndina („Vetur”), sem safnið á, að skömmu eftir að safnið falaði hana 1964 kom maður á safnið og vildi fá mynd af henni, en hann hugðist skrifa grein um þann ósóma er safnið verði I peningum sínum! Honum var því svarað, að myndin væri týnd! Þá mynd sýndi ég á Gallerý 16 i nóv. 1964 ásamt nokkrum fleiri myndum i nýja stílnum. Það getur vel verið, að annar hafi orðið fyrri til með pop- myndir á tslandi svo sem gefið hefur verið í skyn, en þó aðeins að sú skilgreining geti staðizt, að ég hafi gert slíkar myndir án þess að vera undir áhrifum að utan og þá skal þess getið að ég var þegar farin að setja að- skotahluti I málverk í Róm og Flórenz veturinn 1953—'54. — Minn metnaður gengur ekki út á það að vera fyrstur með frétt- irnar hverju sinni enda hefi ég skopazt af slíkri áráttu starfs- bræðra minna sem auglýsa jafnvel, að þeir séu fyrstir til að nota ákveðnar litategundir hér- lendis, — fyrir slíka er sviðið opið til að flytja inn nýjar gerðir pentskúfa eða jafnvel handáburðar til að þvo af sér málninguna! Ég skil ekki þesskonar metnað. því að eigi maður erindi inn á svið ákveð- ins stils þá gengur maður óhikað til verks og leggur sig allan fram og er þá árangurinn fyrir mestu, auðugt hugmynda- flug og ævintýraþrá. Hitt er þó staðreynd að ég byrjaði snemma á síðasta áratug á ýmsu fikti og hef verið nióur- sokkinn við það síðan snemma árs 1964. Þann anga pop-listar sem miðar við það að klippa myndir úr dagblöðum og ýms- um tímaritum, góðum sem vondum hefi ég hins vegar lítið fengizt við. Ég minnist þess mótlætis, sem ég átti við i fyrstu, starfsbræöur mínir litu mig vorkunnaraugum og gagn- rýnendur voru óvægir framan af, en ég hélt óhikað mínu striki enda fann ég að ég var kominn út á svið sem einnig fullnægði hneigð minni til grafík-listar, sem ég átti á þeim árum lítinn kost á að iðka svo sem ég vildi. Dæmi um viðbrögð fólks er meðfylgjandi heilsíðugréin úr Speglinum (maí eða júní ’66) ásamt mynd er birtist i tilefni stórrar einkasýningar sem ég hélt í Listamannaskálanum fyrr í maíbyrjun. Sjálfur Halldór Laxness sendi mér fyrirspurn á sýningarskrá i sambandi við sýningu i Unuhúsi árið eftir: „Hvernig á að dæma um málverk þegar þau eru orðin relieff og farin að hafa efnislega dimension? Eru þau málaður skúlptúr? En látum Kobba í Speglinum hafa orðið: „I viðtali við dagblað 14. maí sl. sagði Bragi Ásgeirsson list- málari m.a. í tilefni af sýningu sinni í Listamannaskálanum: „Það hafa fáir uppgötvað hve járnaruslið hjá Sindra er fallegt, hve mikil fylling er I þessum gömlu hlutum. Fólki finnst bíll, sem hefur „farið í klessu” firnaljótur, en hann getur verkað fallega á lista- mann, að minnsta kosti eru formin orðin miklu fjöl- breyttari. Gamlir bílar eru mikl.u skemmtilegri en straum- línubílar, vinalegri og höfða til einhvers persónulega í manni.” Vér þurfum vart að taka það fram, að vér hröðuðum okkur i Listamannaskálann til að taka þátt í hinni menningarlegu gleði er góð myndasýning veitir. Vér urðum hreint og beint plastiskir af að horfa á hina geometrisku abstraktsjón sem kemur fram í hinni hættu- legu uppbyggingu. Á einu léreftinu, undir málningunni, var ein reglustrika og tveir penslar og einmitt þessir hlutir gáfu myndinni gildi. Vér feng- um allt aðra innsýn i ljóta hluti við að horfa á útsýn þeirra. Er vér sluppum út, horfðum með velþóknun á Grjótaþorpið eins og hverja aðra pop-list I arkitektur. Eins konar strúktúr. Ekki skulum vér kjósa þá borgarstjórn, sem vogar sér að rífa þessi geómetrisku hús. Og i því er vér beygðum fyrir hornið á Herkastalanum kom bill, sem keyrði á annan og fór alveg i klessu. Bilstjórinn á klessta bílnum fór að skammast við konu-bilstjórann á hinum bílnum, en þetta var allt henni að kenna. Hún mótmælti kröftuglega hefir líklega eins og listamaðurinn sem sýndi I Listamannaskálanum talið klessta bila miklu skemmtilegri og vinalegri en straumlinubíla og höfða til einhvers persónu- legs í manni. En vér vorum alveg sammála bílstjóranum á klessta bílnum, en það kemur líklega af því að vort menningarlausa sálartetur er bara straumlínulagaður struktúr, og kann ekki að meia klessta bíla, a.m.k. ekki ef við ættum þá sjálfir. Kobbi." Þýskur rithöfundur ræð- ir við menntaskólanema Frá 23. febrúar til 6. marz n.k. mun þýzki rithöfundurinn Josef Reding dveljast hér á landi á vegum Félags þýzku- kennara (formaður er Baldur Ingólfsson) og þýzka sendi- kennarans við Háskóla tslands, dr. Egon Hitzler. Ráðgert er, að Josef Reding heimsæki menntaskóla i Reykjavík og nágrenni, og fari auk þess til Akureyrar, Isa- fjarðar og Laugarvatns. I skólanum les hann úr verkum sínum og ræðir við nemendur, og i Háskólanum heldur hann þrjár bókmenntaæfingar með stúdentum í þýzkum fræðum, þar sem fjallað verður um verk hans. Josef Reding hefur á undan- förnum árum ferðazt um Noreg, Svíþjóð, og Finnland á vegum stofnunarinnar Goethe- Institut og lesið úr verkum sín- um í skólum til þess að gefa nemendum tækifæri til að kom- ast í beint samband við þýzkar nútímabókmenntir. Reding er einn af stofnend- um rithöfundasamtakanna „GRUPPE 61“, sem hefur valið sér það verkefni i Sambands- lýðveldinu Þýzkalandi að fjalla um lífskjör og lifsviðhorf verkamanna í bókmenntum. Þvi er Josef Reding oft nefndur í sömu andrá og Max von der Grún, sem kom til Reykja- vikur í nóvember 1974 og las hér upp úr skáldsögu sinni „STELLENWEISE GLATTEIS” (Hálkublettir), sem hefur vakið mikla athygli í Sambandslýðveldinu. Það er stefna þessara rithöfunda að kynna íesendum stööu verka- manna í stjórnmála- og efna- hagslífi landsins, en ekki að- eins að lýsa ytri kjörum þeirra og umhverfi. Höfundar þeir, sem teljast til hópsins „GRUPPE 61“ og samtaka, sem hafa þróazt út frá honum og nefna sig „WERKKREISE DER LITERATUR DER ARBEITSWELT”, hafa ekki í huga að skrifa aðeins fyrir verkamenn, heldur fyrir alla, sem á annað borð hafa áhuga á bókmenntum. Josef Reding er fæddur 1929 og á nú heima í mesta iðnaðar- héraði Sambandslýðveldisins, Ruhrhéraðinu. Hann hafði ekki lokið skólagöngu, þegar hann lenti í stríðsvél Hitlers og var sendur á vígvöil ásamt bekkjar- félögum slnum, þá aðeins 15 ára að aldri. Helmingur þeirra féll. Þessi atburður nægði til þess að gera Reding að friðar- sinna, eins og hann kemst sjálf- ur aó orði. Eftir stríðið vann hann tvö ár við byggingar- vinnu, en hóf síðan háskóla- nám, fyrst í Þýzkalandi og síðan i Bandaríkjunum, þar sem hann tók virkan þátt í mann- Framhaid á bls. 19

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.