Morgunblaðið - 21.02.1976, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. FEBRUAR 1976
Leikbrúðuland
frumsýnir
tvö barnaleikrit
A MORGUN frumsýnir Leik-
brúðuland tvö brúðuleikrit. Er
þetta fjórði veturinn sem Leik-
brúðuland sýnir og er skemmst
að minnast svningar þess um
jólin „Jólasveinar einn og
átta“. Sú sýning fór einnig til
Chicago og hlaut þar góðar
undirtektir. Leikritin sem sett
verða upp að þessu sinni eru
Meistari Jakob og tröllið Loðin-
barði og einnig leikritið Gréta
og grái fiskurinn.
Meistari Jakob sem unnið
hefur hylli yngri kynslóðarinn-
ar bregður sér að þessu sinni í
Kleinuríki og þarf þar að kljást
við tröllið Loðinbarða, sem
rænt hefur Koparfléttu kóngs-
dóttur.
Gréta og grái fiskurinn er af
öðrum toga spunnið. Þetta er í
fyrsta sinn sem Leikbrúðuland
ræðst i þessa leikbrúðugerð, en
hún felst í því að sviðið er lýst
með sérstöku ljósi og brúður og
leiktjöld eru máluð með sér-
stökum litum og efnum sem
verða sjálfiýsandi í ljósinu.
Leikritið gerist að mestu niðri í
sjónum. Aðalpersónan er grár
fiskur sem finnst hann vera
mjög ljótur en er svo heppinn
að hitta litla stúlku sem heitir
VEIZLA í bláa hellinum hjá sædrottningunni. Ur leikritinu Gréta
og grái fiskurinn.
Gréta og hún hjálpar honum í
vandræðum hans.
Tónlistina við leikritið samdi
Atli Heimir Sveinsson og er
hún afar nýstárleg og dansa
eftir henni bæði fiskar, haf-
meyjar og kolkrabbar.
Leikritið er byggt á sögu eftir
Hariette Vanhalewijn sem
þýdd var af Örnólfi Thorlacius
en Hólmfrfður Pálsdóttir hefur
búið söguna til leiks. Hólmfríð-
ur stjórnar einnig báðum leik-
ritunum og er þetta þriðji
veturinn sem hún setur á svið
með Leikbrúðulandi. Einnig á
hún heiðurinn af þeim Meist-
ara Jakob sem íslenzk börn
þekkja, én hann er vinsæll víða
um lönd undir mismunandi
nöfnum.
Þorbjörg Höskuldsdóttir
hefur gert leikbrúður og tjöld í
samvinnu við Leikbrúðuland
en æfingar hafa staðið yfir sið-
an í haust.
Launagreiðslur Flug-
leiða á 4 milli. kr. á dag
SlÐAN verkfall hófst hefir Is-
land verið nær alveg samgöngu-
laust, bæði við önnur lönd og
innanlands, þar sem flugið liggur
nú algjörlega niðri. Menn hafa
velt fyrir sér hver væri afstaða
Flugleiða til yfirstandandi verk-
falls, svo og frekari samninga-
mála. Mbl. sneri sér f gærkvöldi
til eins forustumanna Flugleiða.
Hann lýsti skoðun sinni eftir-
farandi:
„Yfirstandandi verkföll hafa
MORGUNBLAÐINU er nú kunn
ugt um, að ekkert hinna stærri
bifreiðaumboða á 1 útistöðum við
skattvfirvöld vegna meintra sölu-
gjaldssvika, en fregnir hafa birzt
f tveimur fjölmiðlum um slfkt
bitnað með sérstökum hætti mjög
harkalega á rekstri og stöðu Flug-
leiða h.f.
Ekki einasta hefir allur flug-
rekstur innanlands og utan gjör-
samlega stöðvast og tekjumissir,
álitshnekkir og f járhagstjón beint
og óbeint er gífurlegt af þeim
sökum, heldur hafa ýmsar starfs-
stéttir, sem jafnvel eru innan vé-
banda Alþýðusambands Islands,
kosið að hafa ekki samstöðu með
misferli fyrirtækja og þá einkum
rætt um stórt bifreiðaumboð f þvf
sambandi.
Ríkisskattstjóri hefur skýrt frá
því, að skömmu fyrir áramót hafi
þeim hópum, sem nú stöðva flug-
reksturinn.
Daglega nema launagreiðslur
félagsins til slíkra starfshópa á
fjórðu milljón króna án þess að
vinna komi á móti nema að litlu
leyti. Félagið telur með öllu óverj-
andi að margir starfshópar geti
jafnvel á víxl lamað flugsam-
göngur landsmanna og mun beita
sér fyrir því — i samvinnu við
Vinnuveitendasamband Islands
Framhald á bfs. 27
verið byrjað á skyndikönnun á
sölugjaldsskilum ársins 1975 hjá
nokkrum fyrirtækjum, sem orðið
höfðu uppvis aó óeðlilegum
drætti á skilum á sölugjaldi vegna
ársins áður. Athugun er þegar
lokið hjá allmörgum aðilum og
eru þau nú á úrskurðarstigi hjá
ríkisskattstjóra.
Um 700 fyrirtæki munu við
skattuppgjör í fyrra hafa skilað
leiðréttingarskýrslum við sölu-
gjald eða fengið viðbótarálagn-
ingu.
Spjallað við
samningamenn
í kjaradeilu:
Davíð Scheving
Thorsteinsson
VerSbólgusamningar
liggja á borðinu
DAVlÐ Scheving Thorsteinsson, for-
maður Félags Islenzkra iSnrekenda
er einn af samningamönnum Vinnu-
veitendasambands fslands i kjara-
deilunni, sem veriS er aS reyna aS
leysa i LoftleiSahótelinu. Morgun-
blaSið hitti DavlS aS mili I gær og
spurSi hann, hvernig honum litist i
stöSu samningamilanna. Hann
sagSi:
„Mér lýst illa á stöðuna, að þvi leyti,
að verkföll skuli standa svo lengi með
þeim afleiðingum, sem allir finna á
eigin pyngju og ennfremur vegna
þess, að þegar er borðliggjandi, að
gerðir verða gengisfellingar- og verð-
bólgusamningar Það er aðeins spurn-
ing um stærð hvors tveggja."
„Það gefur auga leið," sagði Davlð,
„að þegar þjóðartekjur á mann fara
minnkandi eins og fyrirsjáanlegt er að
þær munu gera á árinu 1976, er
svokölluð kauphækkun óraunhæf.
Staða framleiðsluiðnaðarins er sú
sama og útflutningsiðnaðarins, þ.e.a.s.
að samkeppnin við erlenda keppinauta
verður mun erfiðari en nú er hjá báð-
um aðilum. Ég harma að ríkisstjórnin
skuli ekki hafa séð sér fært að koma til
móts við tillögur þær, sem AS( og
vinnuveitendur voru sammála um að
myndu geta fært launþegum raunhæf-
ar kjarabætur, en þess er svo sannar-
lega þörf. Til þess að svo megi verða
þarf að beita öllum ráðum til þess að
auka framleiðslu þjóðarinnar, þ.e. að
stækka kökuna, sem til skipta er, en
eyða ekki svo mikilli orku I að skipta
sifellt minnkandi köku."
Að lokum sagði Davið Scheving
Thorsteinsson: „Ég vona, að þegar
staðið verður upp frá þessum samn-
ingum, verði niðurstaðan sú — sem
hlýtur að vera stefna allra sanngjarnra
aðila — að kjör hinna lægstlaunuðu
batni i raun, en útlitið fyrir þvi að það
takist er þvi miður dökkt."
Runólfur Pétursson
Tryggja þarf bætur
til láglaunafólks
MORGUNBLAÐIÐ ræddi I gær við
Runólf Pétursson, formann Iðju.
félags verksmiðjufólks á Loftleiða-
hótelinu, þar sem verið er að rðða
fram úr kjarasamningum. Runólfur
var spurður, hvernig honum litist ð
stöðuna I samningunum. Hann svar-
aði:
„Mér lýst ekki vel á stöðuna, þar
sem ekki náðust samningar á fyrstu
tveimur til þremur dögum verkfallsins.
Vihnuveitendur svöruðu tillögum sátta-
nefndarinnar ekki fyrr en um miðja
síðastliðna nótt og ég óttast mjög að
samningar geti dregizt fram undir
miðja næstu viku."
„Hefur verið rætt um sérkröfur
Iðju?"
„Við höfum setið þó nokkra fundi
með iðnrekendum og rætt um sérkröf-
ur okkar. Hefur þeim verið tekið mjög
illa og telja viðsemjendur okkar að þær
séu of mikið tengdar öðrum launakröf-
um og þvl fáum við i raun ekkert svar.
Aðalkrafa okkar er um aldurshækkun
frá 9 mánuðum og upp I 4 ár og hreint
út sagt geta Iðjufélagar ekki gengið frá
samningum, nema aldurshækkun
komi til."
Þá spurði Mbl. Runólf. hvort hann
óttaðist að samningarnir kynnu að fá á
sig þann stimpil, sem samningarnir
1974 fengu, en að flestra dómi voru
þeir verðbólgusamningar. Runólfur
sagði: „Ef forysta verkalýðshreyfing-
arinnar talar af alvöru og hún hefur
einsett sér að bæta kjör hinna lægst-
launuðu, þá verða iðnaðarmannafé
lögin að doka við I þessum samningum
og hlevoa verkafólkinu nnn r—r *—'•
á þ
mai
brýiio nidii ug itu peir skiiji pena. cg
vona sem sagt að þessir samningar
leiði ekki til þess, sem gerðist 1974,
að gerðir verði kjallarasamningar svo-
kallaðir, sem komu mjög illa I bakið á
þeim lægstlaunuðu Þar eð samningar
hafa nú dregizt á langinn er ég og
hræddur um að hilli undir næstu helgi
áður en aðilar nái saman — nema þá
kraftaverk verði Ég get ekki skilið á
hvern hátt unnt er að ætlazt til þess að
verkamenn og konur lifi á 52 til 53
þúsund krónum á mánuði, en þetta er
Iðjukaupið. Það sem aftur er verra að I
ýmsum atvinnugreinum getur fólk með
þvl að leggja að sér og vinna eftirvinnu
bætt sér þetta upp, en svo er því miður
ekki farið með Iðjufólk. Með þessu
hefur iðnaðurinn misst sitt bezta fólk.
Það hefur hvað eftir annað sést, er
vertlðir hefjast, þá hættir fólk I iðnaði
Ég veit að iðnrekendur llta þetta alvar-
legum augum og þeir vilja lagfæra
þetta. Ég vona að það verði I þessum
samningum.
Hjörtur Hjartarson
StaSa verzlunarinnar
er mjög erfið til
að veita kauphækkanir
HJÖRTUR Hjartarson, formaður
Kjararáðs verzlunarinnar, er einn
samninganefndarmanna Vinnuveit-
endasambands Islands. en Kjararáð-
ið, sem er umbjóðandi Verzlunarráðs
fslands. Félags fslenzkra stórkaup-
manna og Kaupmannasamtaka Is-
lands, er I þessum samningum fyrsta
sinni fullgildur aðili að VSf. Gekk
Kjararáð verzlunarinnar I VSl f
desember sfðastliðnum. Hjörtur var
fyrst spurður um álit hans á stöðu
samningamálanna:
„Þess er fyrst að geta," sagði Hjörtur
Hjartarson, „að verðlagsmál blandast
alltaf inn I okkar mál. I júnlmánuði
slðastliðnum sendum við inn greinar-
gerð til verðlagsyfirvalda og fengum
neitandi svar nú eftir áramót. Erum við
þvl I ákaflega erfiðri aðstöðu til þess að
bjóða kauphækkanir yfir höfuð. Við
rökstuddum greinargerð okkar með
kauphækkunum, sem orðið hafa og
öðrum kostnaðarhækkunum, sem
þyngt hafa mjög rekstur verzlunar-
innar. En ég vil samt undirstrika það að
þar sem við erum þegar orðnir aðilar
að Vinnuveitendasambandinu munum
við samþykkja þá samninga, sem gerð-
ir verða og ekki skera okkur úr þeirri
samstöðu sem myndast innan VSÍ."
„Þið hafið rætt sérkröfur við verzl-
unarmenn."
„Já, meginhluti sérkrafna verzlunar-
manna falla undir svokallaðar sam-
eiginlegar sérkröfur ASf og um það er
fullt samkomulag milli aðila Aðrar
kröfur eru á viðræðustigi enn."
„Óttastu að þessir samningar verði
verðbólgusamningar?"
„Ég óttast það mjög. Það fer ekki
milli mála að kauphækkanir hafa verð-
bólguhvetjandi áhrif og þvi miður
verða þær þvf ekki að raunverulegum
kjarabótum. Á fundi með rfkisstjórn-
inni var henni bent á að ekki væri um
að ræða annað en rfkið linaði eitthvað
á kröfum slnum. T.d. var bent á 3,5%
launaskatt, sem mætti fella niður, en
hann er svo til óþekktur annars staðar.
Ennfremur var bent á fleiri gjöld. sem
unnt ætti að vera að taka til endurskoð-
unar Þessi atriði eru ekki öll beinllnis
tengd verzluninni einni."
Að lokum sagði Hjörtur Hjartarson:
„Ég er hræddur um að það geti dregizt
út næstu viku, að samkomulag takist.
Framhald á bfs. 13
Utanríkisráðherra um 100 þús. tonna tilboðið:
SKIIAIMH) I’HÁ BRFIIVI -
EKKIPUNKTAR FR\ LUNS
VEGNA staðhæfinga um, að dr. Joseph Luns, fram-
kvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, hafi lagt til,
að Bretar fengju að veiða hér við land allt að 100
þúsund tonn á ári, sneri Morgunblaðið sér til Einars
Ágústssonar utanríkisráðherra og óskaði eftir skýr-
ingu hans á þessu atriði.
Utanrikisráðherra sagði:
„Það er alrangt, að hér sé um
að ræða tillögur frá Luns. Þetta
eru bara skilaboð frá Bretum.
Þetta er nánast einhliða yfirlýs-
ing þeirra. Sama er að segja um
fjölda togaranna. Þeir leggja til
að togurum verði fækkað úr
139 í 105. Þetta eru þær tak-
markanir, sem brezka útgerðin
hefur sett sjálfri sér, — bæði
hvað snertir togarafjöldann og
eins aflamagnið, — tölur um
þetta hafa birzt erlendis. Þetta
eru sem sagt þeirra eigin hug-
myndir, en ekki punktar frá
Luns.“
1 framhaldi af þessu má geta
þess, að í viðræðum Geirs
Hallgrímssonar forsætisráð-
herra ogHarolds Wilson í Bret-
landi á dögunum, settu Bretar
ekki fram formlegt tilboð um
85 þúsund tonna hámarksafla,
heldur nefndu þeir þá tölu sem
hugmynd eða umræðugrund-
völl.
Eiga þvi rangfærslur þess
efnis, að Luns hafi boðið Is-
lendingum verri kjör en Bretar
sjálfir, ekki við rök að styðjast.
Meint sölugjaldssvik:
Ekkert stóru bílaum-
boðanna til meðferðar