Morgunblaðið - 21.02.1976, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. FEBRUAR 1976
Afgreiðslusalir bankanna eru enn snyrtilegir, en þar er líka fátt Svona er orðið umhorfs í sumum kennslustofum æðri skóla.
um manninn þessa dagana
Enn fleiri stofnunum lokað:
Borgarbókasafn-
inu lokað í dag — Háskólanum og
fleiri skólum eftir helgi
ENN fjölgar þeim stofnunum,
sem eiga í erfiðleikum með að
halda uppi eðlilegri þjónustu af
völdum verkfallsins, og þeim
stofnunum fer fjölgandi með
degi hverjum,* sem loka verður
af heilbrigðisástæðum. I gær var
t.d. ákveðið að loka Borgarbóka-
safninu um helgina og ef verk-
fall leysist ekki, þá verður engin
afgreiðsla þar eftir helgi.
Strætisvögnum Reykjavíkur,
sem gengið hefur mjög illa að
halda uppi áætlun, hafa fengið
fleiri undanþágur, þannig að
hægt verður að aka á ölium
leiðum um helgina. Þá verða
leikhús og kvikmyndahús opin
um helgina.
S.V.R.
FJÖLGAR FERÐUM
Haraldur Þóröarson hjá Strætisvögn-
um Reykjavíkur sagöi í samtali við
Morgunblaðið í gær, að hægt yrði að
f jölga ferðum í dag og á morgun meir en
gert hafði verið ráð fyrir. I dag, laugar-
dag, yrði ekið á öllum leiðum frá kl.
07—24 samkvæmt kvöldtímatöflu. Á
morgun yrði einnig ekið á öllum leiðum
frá kl. 13—24 samkvæmt sömu tíma-
töflu.
Hann sagði, að þeir menn, sem undan-
þága hefði fengist fyrir til vinnu á verk-
stæði S.V.R. mættu vinna 8 tíma á dag og
skiluðu þeir því 280 vinnustundum á
viku. Undanfarnar þrjár vikur hefðu
unnar vinnustundir á verkstæðinu verið
um 1200 á viku.
BORGARBÓKA-
SAFNIÐ LOKAÐ
Elva Björk Gunnarsdóttir borgarbóka-
vörður sagði í gær, að afgreiðslur borgar-
bókasafnsins yrðu opnar í dag, laugar-
dag, en síðan yrði þeim lokað þangað til
verkfall leystist. Hún sagði að þetta væri
gert vegna þess, að mikill óþrifnaður
væri í afgreiðslunum m.a. væri kominn
ódaunn upp úr ruslafötum. Sótt hefði
verið um undanþágu fyrir safnið til
verkakvennafélagsins Framsóknar, en
hún ekki fengist.
LITLU FLUGFÉLÖGIN
HAFA ÆRINN STARFA
Mjög mikið er að gera hjá litlu flug-
félögunum þessa dagana og eru allar
vélar á lofti þegar veður leyfir. Reyndar
var ekkert hægt að fljúga í gær vegna
veðurs.
Hjá Flugstöðinni varð Guðmundur
Hilmarsson fyrir svörum. Hann sagði að
þeir hjá Flugstöðinni ættu að geta haldið
áfram flugi næsta hálfa mánuðinn, en
þeir ættu bensín til þess tíma. Þá gætu
þeir ávallt bætt á geymana úti á landi,
þannig að það gerði birgðirnar enn
drýgri.
Báðar stóru vélarnar hjá Flugstöðinni
eru í stanzlausri notkun og er önnur
eingöngu notuð til utanlandsflugs.
Hjá Vængjum fékk Morgunblaðið þau
svör að félagið gæti haldið uppi flugi í
eina viku enn, en þá yrðu bensínbirgðir
á þrotum.
LEIKHUSINOPIN —
OG BÍÓIN LÍKA
Ivar H. Jónsson, skrifstofustjóri Þjóð-
Það er ekki mikið að gera á veitingastöðunum.
leikhússins, sagði, að leikhúsið yrði
örugglega opið fram yfir helgi og sýnt
yrði af krafti alla helgina. Þórhallur
Halldórsson hjá heilbrigðiseftirlitinu
sagði í gærkvöldi, að engin ástæða væri
að loka leikhúsunum enn sem komið
væri, því þar liti allt mjög þokkalega út.
Hann sagði að heilbrigðiseftirlitið
hefði litið á kvikmyndahúsin í gær og
satt bezt að segja væri umgangurinn í
þeim mjög misjafn, — og reyndar væru
sum lokuð núna —. Ákveðið hefði verið
að heimila húsunum að hafa opið yfir
helgina.
Þá sagði hann, að farið yrði í opin-
berar stofnanir eins og t.d. banka eftir
helgina. Vonandi kæmi ekki til að loka
þyrfti opinberum stofnunum, og að verk-
fallið leystist um helgina.
BARNAHEIMILIN
OPIN
Ragnhildur Bogadóttir hjá Barna-
vinafélaginu Sumargjöf sagði, að undan-
þága hefði fengist fyrir ræstingu á
barnaheimilum borgarinnar og því væri
rekstur þeirra í fullum gangi.
ÆÐRI SKÓLUM
LOKAÐ
Akveðið hefur verið að loka flestum
æðri skólum borgarinnar eins og
menntaskólum og Háskólanum eftir
helgina, ef samningar hafa ekki tekizt
þá. Mun þá flest ef ekki öll kennslustarf-
semi á SV-landi hafa lagst niður.
Vöruskortur að
byrja úti á landi:
Akarlegur mjólk-
Brezka freigátan Yarmouth F-101, sem reyndi að sigla á Tý
urskortur á Akureyri
Landhelgisgæzlan:
„Verndarskipum gefn-
ar frjálsar hendur”
— ekki rétt segja Bretar
VÖRUSKORTUR er nú að byrjaaðgera vart viS sig úti á landsbyggðinni, en
hvergi mun hann þó vera alvarlegur. Hins vegar er orðið alvarlegt ístand f
mjólkursölumálum á þeim stöðum, þar sem algert verkfall hefur verið slðan á
þriðjudag. Kom þetta fram, þegar MorgunblaSiB hafBi samband við nokkra
fréttaritara sina I gær.
Landheigisgæzlan skýrði frá
því f gær, að varðskipið Týr hefði
náð tilkynningu frá dráttarbátn-
um Lioydsman til brezkra skipa á
lslandsmiðum í gærmorgun, þar
sem frá þvf var skýrt, að héðan f
frá hefðu brezku skipin frjálsar
hendur um þær aðgerðir sem
þau beittu togurunum til vernd-
ar. Sagði Lloydsman að þetta væri
komið frá yfirvöldum f London.
Talsmaður brezka varnarmála-
ráðuneytisins neitaði f gærkvöldi
að nokkuð væri hæft f þessu. „Það
væri firra að gera slíkt. Þetta
væri það síðasta sem við gerðum á
þeim tfma, sem við erum að reyna
að koma samningaviðræðum af
stað aftur,“ sagði talsmaðurinn.
34 brezkir togarar voru við
landið i gær og 11 aðstoðarskip.
Hið versta veður var á miðunum í
gær, 10 vindstig og enginn togari
að veiðum. Togararnir voru
dreifðir á svæði frá Hvalbak að
Vopnafjarðargrunni.
Það bar til tiðinda i gærmorgun
Framhald á bls. 27
EKKERT VERZLUNAR-
MANNAFÉLAG TIL
Ásgeir Lárusson I Neskaupstað
sagði, að þar væru allar verzlanir opn-
ar, þar sem Norðfirðingar nytu þeirra
forréttinda, að þar væri ekkert verzlun-
armannafélag Ekki væri byrjað enn að
örla á vbruskorti, en það yrði mjög
fljótlega, þvl samgöngur hefðu nú leg-
ið niðri I nokkra daga.
Hann kvað almennt verkfall hafa
skollið á I Neskaupstað á miðnætti I
fyrrinótt og þá hefðu allir búist við, að
hætt yrði að afgreiða bensln á bensln-
afgreiðslustöðvum. Þvl hefði fólk fyllt
geymana á bllum slnum, en þegar til
hefði komið, hefði þetta verið óþarfi,
þvl afgreiðslustúlkurnar á benslnstöðv-
unum væru ekki I neinu stéttarfélagi.
Þá sagði Ásgeir, að verið væri að
bræða loðnu I nýju verksmiðjunni. sem
þar hefði fengist undanþága til
bræðslu. Þá hefði einnig verið veitt
undanþága fyrir iðnaðarmenn til að
vinna að viðgerðum I verksmiðjunni.
VANTAR KÓK Á HÖFN
Ellas Jónsson á Höfn I Hornafirði
sagði, að ekki væri enn um neinn
tilfinnanlegan vöruskort að ræða þar.
Hinu væri samt ekki að neita. að skort-
ur væri orðinn á gosdrykkjum eins og
t.d. kóka kóla
Almennt verkfall átti að hefjast i
Höfn á miðnætti s.l. og var ekki búis
við að bræðslu I verksmiðjunni yrí
lokið fyrir þann tfma. Þeim bátum, sem
ekki tókst að ná upp öllum netum
slnum I dag, hefur verið gefin undan-
þága til þess Verslunarfólk á Höfn
hefur boðað verkfall frá 2 7. febrúar
hafi samningar ekki tekizt fyrir þann
tlma.
Sumarveðrátta hefur verið á Höfn að
undanförnu og er farið að grænka I
görðum, sem flestum þykir einum of
snemmt, sagði Ellas.
ALVARLEGUR MJÓLKUR-
SKORTUR
Sverrir Pálsson á Akureyri sagði,
að ekki væri orðinn neinn áberandi
vöruskortur I verzlunum, en samt væri
farið að þynnast 1 hillum og ýmislegt
unnið kjötmeti vantaði. Hitt væri svo
öllu verra að mjólkurskortur væri far-
inn að gera vart við sig, sem gæti haft
hinar alvarlegustu afleiðingar fyrir
barnafjölskyldur, sérstaklega þar sem
kornabörn væru, en engin mjólk hefði
fengist siðan um hádegi á þriðjudag.
Þá sagði Sverrir að skólar hefðu
starfað eðlilega til þessa, og ræsting á
þeim hefði farið fram þar til I gær, en I
MA hefði ekki verið ræst síðan á
þriðjudag og yrði kennslu hætt þar
eftir helgi, ef verkfallið leystist ekki
Heilbrigðiseftirlitið myndi slðan taka
ákvörðun um, hvort loka þyrfti öðrum
skólum og þá hvenær.