Morgunblaðið - 21.02.1976, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. FEBRUAR 1976
LOFTLEIDIR
SKwBÍLALEIGA
H- 2 11 90 2 11 88
p!;
m
I u
BILALEIGAN
5IEYSIR ?i
O CAR Laugavegur 66
o RENTAL 24460 |o
28810 nll
Utvarp ocj stereo kaseltutíeki
FERÐABILARhf.
Bílaleiga, sími 81260.
Fólksbílar — stationbílar —
sendibílar — hópferðabílar.
® 22-0-22*
RAUÐARÁRSTÍG 31
Tryggið gegn
steinefnaskorti
gefið
STEWART FOÐURSALT
Samband nl umvinnufaiaca
INNFLUTNINGSDEILD
Baráttan, sem
vér eigum í
i
nefnist erindi SIGURÐAR
BJARNASONAR sem flutt
verður Á MORGUN, sunnudaq-
inn 22. febrúar KL 5 í AÐ-
VENTKIRKJUNNI Inqólfsstræti
HULDA JENSDÓTTIR flytur
stuttan fræðsluþátt um heil
brigði,
Blandaður kvartett, tvísöngur.
Fórn vegna Bibliudagsins.
Útvarp Reykjavlk
L4UG4RD4GUR
21. febrúar
MORGUNNINN
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05.
Frettir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.). 9.00 og
10.00.
Morgunbæn kl. 7.55
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Sigurður Gunnarsson
heldur áfram sögu sinni
„Frændi segir frá“ (6).
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða.
Oskalög sjúklinga kl. 10.25:
Kristln Sveinbjörnsdóttir
kynnir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar
Tilkynningar. Tónleikar.
SÍÐDEGIÐ
13.30 Iþróttir Umsjón: Jón
Asgeirsson.
14.00 Tónskáldakynning Atla
Heimis Sveinssonar.
15.00 Vikan framundan Björn
Baldursson kynnir dagskrá
útvarps og sjónvarps.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir
Islenzkt mál Asgeir Blöndal
Magnússon cand. mag. flytur
þáttinn.
16.40 Popp á laugardegi.
17.30 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir Fréttaauki.
Tilkynningar.
KVÖLDIÐ____________________
19.35 1 skipalest yfir Atlants-
haf Valgeir Sigurðsson ræðir
við Baldvin Sigurðsson frá
Garði f Aðaldal um siglingar
á strfðsárunum.
20.00 Hljómplöturabb
Þorsteins Hannessonar.
20.45 Minningartónleikar og
erindi um Inga T. Lárusson
tónskáld. Avarp og erindi
flytja Þórarinn Þórarinsson
fyrrum skólastjóri og Jón
Þórarinsson tónskáld. Ung-
lingalúðrasveit Mosfells-
sveitar leikur lagasyrpu f út-
setningu Ellerts Karlssonar.
Stjórnandi: Lárus Sveinsson.
Ingimar Sigurðsson syngur
tvö lög við undirleik Jöns
Stefánssonar. Kvennakór
Suðurnesja syngur þrjú lög
Einsöngvari: Elfsabet
Erlingsdóttir. Söngstjóri:
Herbert H. Agústsson, sem
raddsetti lögin. Eddukórinn
syngur þrjú Iög. Ólöf Harðar-
dóttir syngur þrjú lög. Jón
Stefánsson leikur á pfanó.
Kammersveit Reykjavfkur
leikur lagasyrpu f útsetningu
Jóns Sigurðssonar. Stjórn-
andi: Páll P. Pálsson. Karla-
kórinn Stefnir syngur tvö
lög. Einsöngvari: Kristinn
Hallsson. Söngstjóri: Lárus
Sveinsson.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir.
Lestur Passfusálma (6).
22.25 A mörkum þorra og góu
Haukur Morthens syngur og
leikur með hljómsveit sinni f
hálfa klukkustund. Að öðru
leyti danslög af hljómplöt-
um. (23.55 Fréttir).
01.00 Dagskrárlok.
SKJÁNUMI
LAUGARDAGUR
21. febrúar 1976
17.00 Iþróttir
Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
18.30 Pollyanna
Breskur myndaflokkur,
gerður eftir hinni alkunnu
skáldsögu Eleanor H.
Porter.
2. þáttur.
Þýðandi Ellert Sigurbjörns-
son.
19.00 Enska knattspyrnan
Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Ilagskrá og auglýsingar
20.35 Krossgáta III
Spurningaþáttur með þátt-
töku þeirra sem heima sitja.
Kvnnir Edda Þórarinsdóttir.
Umsjónarmaður-. Andrés
Indriðason.
21.05 Nei, ég er hérna
Breskur gamanmynda-
flokkur
Aðalhlutverk Ronnie
Corbett.
Skál
Þýðandi Stefán Jökulsson.
21.30 James Paul McCartney
Paul McCartney, eiginkona
hans, Linda, og hljómsveitin
Wings syngja og leika ný og
gömul lög, þar á meðal
syrpu af bftlalögum.
Þýðandi Jón Skaptason.
22.20 Otley
Bresk gamanmvnd frá árinu
1969.
Aðalhlutverk Tom
Courtenay og Romy
Schneider.
Hrakfallabálkurinn Otley er
f húsnæðisleit. Hanrt fær
inni hjá kunningja sfnum,
sem er myrtur sama kvöld,
og því lendir Otley f alls
kyns raunum.
Þýðandí Heba Júlfusdóttir.
23.45 Dagskrárlok.
Myndaflokkur
um Pollyönnu
— 2. þállur í dag
Brezkur myndaflokkur i sex
þáttum. ætlaður börnum, hófst s.l.
laugardag I sjónvarpi. ÞaS er
„Pollyanna", sem gerð er eftir
sögu Eleanor H. Porter. Bók þessi
kom út hér fyrir mörgum érum i
svokölluðum flokki „Rauðu bók-
anna" og varð afar vinsæl meðal
telpna þð. Pollyanna er ung telpa,
munaðarlaus. sem hin siðvanda
frænka hennar, ungfrú Polli,
neyðist til að taka að sér af þvl
„að skyldan býður henni það"
enda er það höfuðkostur og
ókostur ungfrú Polllar hversu yfir-
mðta skyldurækin hún er. Polly-
anna kemur á heimilið og verða
þar miklar sviptingar, þar sem
ungfrú Polll gengur vægast sagt
erfiðlega að fást við hið glaðsinna
og sérkennilega stúlkubarn. sem
jafnan sér bjartari hliðina á hverju
máli, og hefur ómæld áhrif ð um-
hverfi sitt með þeirri afstöðu.
Eysteinn oy
Hannibal í
heimsókn
MÖRGUM mun áreiðanlega leika
hugur á að horfa á gestaþáttinn í
sjónvarpi í kvöld, en þar tekur
Magnús Bjarnfreðsson á móti
tveimur stjórnmálakempum, sem nú
hafa dregið sig út úr skarkala stjórn-
málanna að mestu og sitja á friðar-
stóli, þeim Eysteini Jónssyni og
Hannibal Valdimarssyni Eysteinn
Jónsson var forystumaður Fram-
sóknarflokksins um áratuga skeið,
hefur yngstur allra orðið ráðherra og
gegndi tfðast embætti fjármálaráð-
herra. Hannibal Valdimarsson hefur
komið viða við í stjórnmálaflokkun-
um íslenzku og síðast stofnaði hann
Samtök frjálslyndra og vinstri
manna
Magnús Bjarnfreðsson sagði, að
þátturinn hefði verið tekinn upp
milli jóla og nýjárs og væru þeir
Eysteinn og Hannibal málhressir og
hispurslausir. Rabbað væri um
stjórnmálaferil þeirra, skoðanir
þeirra á stjórnmálamönnum, um
búskap Hannibals og skíðamennsku
og náttúruverndaráhugamál
Eysteins og allvíða komið við.
Sendandi
Þriðja krossgálan er I kvöld og birtum við hér ti) hægðarauka
krossgátuna sem áhorfendum er æflað að fást við.
„Það er
œvintýrið
um Inya Lár ... ”
Minningartónleikar
í hljóðvarpi í kvöld
í KVÖLD verður í hljóðvarpi löng og
mikil dagskrá um hið ástsæla tön-
skáld Inga T Lárusson Þar flytur
Jón Þórarinsson erindi um hann og
Þórarinn Þórarinsson, fyrrv. skóla-
stjórí á Eiðum, sem þekkti Inga !
mörg ár, flytur ávarp Ingi T. Lárus-
son var fæddur á Seyðisfirði árið
1892 og lézt i Vopnafirði 1946.
Hann ólst upp á Seyðisfirði en þar
var faðir hans kennari og bóksali
Ingi var i Verzlunarskólanum I
Reykjavtk I tvö ár, en hélt heim til
Seyðisfjarðar siðan og sneri sér fljót-
lega að lagasmlð Heimili foreldra
hans var þekkt fyrir tónlistaráhuga
og söng svo og heimili þáverandi
læknis á staðnum, Kristjáns
Kristjánssonar, en siðar tók Ingi T.
við af honum sem söngstjóri Braga.
Fyrsta lagið, sem vitað er til að Ingi
hafi samið, er „Ó hlessuð vertu
sumarsól".
Þá var hann I vegavinnu á Fljóts-
dalsheiði
Ingi T. Lárusson stundaði slðan
verzlunar- og kennslustörf á Aust-
fjörðum en varð síðast póst- og
simamálastjóri á Neskaupstað I níu
ár
Þórarinn Þórarinsson sagði, að
Ingi T. Lárusson hefði verið elsku-
legur, þýður og viðkvæmur per-
sónuleiki og hann teldi að Ijóð Þor-
steins Valdimarssonar, sem greipt
verður I minnismerkið um tónskáld-
ið, segði I raun og veru allt sem
þyrfti að segja:
Svanur ber undir brirtgudúni
banasár,
það er ævintýrið um Inga Lár.
Ingi T. Lárusson
Tærir berast ur tjarnarsefi
tónar um fjöll
heiðin töfrast og hlustar öM.
Sumir kveSja og slðan
ekki söguna meir,
aSrir meS söng sem
aldrei deyr.
í kvöld mun unglingahljómsveit
Mosfellssveitar leika lagasyrpu eftir
Inga undir stjórn Lárusar Sveinsson-
ar, Ingimar Sigurðsson syngur við
undirleik Jóns Stefánssonar,
Kvennakór Suðurnesja syngur og
Elísabet Erlingsdóttir syngur
einsöng, Eddukórinn, Kammersveit-
in og Karlakórinn Stefnir o.fl. flytja
tónlist eftir Inga T Lárusson. Hefst
dagskrá þessi kl. 20 45.