Morgunblaðið - 21.02.1976, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. FEBRUAR 1976
9
Stefán Bjarn-ason verkfr,:
Verkfallsréttur
inn, já eða nei?
Bandalag háskólamanna og
Bandalag starfsmanna ríkis og
bæja er þessa daga að auglýsa
eftir áliti félagsmanna sinna á
samningum um eða töku verk-
fallsréttar til handa félögum
sínum. Ég á vist heima í báðum
þessum hópum og vil því gjarna
segja skoðun mína í þessu efni.
Svarið er stutt. Eg er á móti
þvi að taka mér nokkurn rétt til
eins eða annars.
Enginn verður sæll af þvi að
bíta i það brauð, sem fengið er
með frekju og ágangi á tilveru-
rétt náungans. Verkfallsréttur
er hnefaréttur og á hvergi
heima i lögum og viðskiptum
manna, aðeins dýra. Kjara-
bætur sem ekki fást við sann-
gjarna samninga um skiptingu
arðs af sameiginlegu striti is-
lenzku þjóðarinnar eru ekki
þess virði að vera teknar með
krepptum hnefa, því illur
fengur illa forgengur.
1 skýrslu Kjararannsókna-
nefndar er að finna nýlega yfir-
lit yfir vinnustöðvunardaga
ASl síðastliðin 15 ár. Þar var
árið 1970 hæst með 303.743
vinnustöðvunardaga. Hvað
segir þetta? Jú, ef þessir vinnu-
dagar hefðu verið unnir, þá
hefðu þeir skapað verðmæti,
sem hefðu stækkað þjóðarkök-
una, sem til skipta kemur. Ef 10
menn geta byggt einbýlishús á
þrem mánuðum, þá fara til þess
900 vinnudagar. Arið 1970
hefði þjóðin því getað eignast
330 einbýlishús í stað þess að
eyða þessum vinnudögum í
verkföll.
Bretland og Island eru fræg-
ustu verkfallslönd heims, en
Svíþjóð og Vestur-Þýzkaland
frægustu vinnufriðarlönd
heims. Hvergi eru laun verka-
manna hærri og kaupmáttur
launa meiri en í Sviþjóð og
Vestur-Þýzkalandi og hvergi
lakari en i Bretlandi og á Is-
landi að sögn manna, sem hafa
rannsakað þetta mál. Þetta er
fram sett í stórum dráttum og
kann að eiga sér eðlilegar
undantekningar.
Verkalýðs- og launþega-
forustan í landinu er sá ný-aðall
í landi okkar, sem við hliðina á
svonefndum uppmælinga-aðli
iðnstétta ber hæst um þessar
mundir. Ný-aðallinn situr við
samningaborð um kaup og kjör
nær allt árið, og að baki þeim
svo fjölmennar samninga-
nefndir, að sjálft Alþingi er
bara lítill strákahópur, miðað
við þessar samningahjarðir.
Allir fá þeir kaup, svo það er
eins gott að fundir séu langir.
Annars yrði lítið upp úr þessu
að hafa. Og nú vantar bara
meiri verkfallsrétt, svo hægt sé
að sauma að helv. vinnuveit-
andanum, sem öllu stelur og
kúgar okkur í bak og fyrir.
Slíkur er öfuguggaháttur samn-
ingaforustunnar, að þeir telja
vinnuveitandann geta borgað
hærra kaup fyrir minni afköst
og fleiri verkfallsdaga í stað
hærra kaups fyrir meiri afköst.
Nei, piltar, ég er ekki með f
þessum leik. Ég er á móti verk-
fallsrétti allra stétta og tel að
banna eigi verkföll með lögum
og jafnvel í stjórnarskrá lýð-
veldisins.
Vafalaust er kökunni rang-
lega skipt víða i okkar litla
þjóðfélagi, og eru þá misvitrir
stjórnmálamenn og leiðtogar og
missterkir hagsmunahópar þar
að verki. Hinn 10. janúar sl. var
greint frá hæstu aflasölu is-
lenzks togara i Þýzkalandi og
söluverðmætið skiptist þannig:
Krónur:
Erlendur kostnaður 7.184.225
Sjóðafarganið 12.539.938
Kaup og aflahlutur 7.348.354
Afgangur útgerðar 628.728
Heildarsala 27.701.245
Sjóðakerfið er drýgst, enda
einskonar framfærslusjóður
þeirra, sem minna mega sín í
stéttinni og skila minni afla-
verðmætum. Sjóðakerfið er
áratuga afrakstur samningaað-
alsins, og nú dugar ekkert
minna en verkföll sjómanna til
þess að afnema það, sem náðst
hafði með verkföllum að mis-
vitrum ráðum aðalsins. Hvað
skyldi svo þessi flókna sjóða-
flækja kosta? Ekki veit ég, en
það veit ég, að nú orðið þarf
sérmenntaða sérfræðinga til
þess að reikna út laun allra,
skatta allra og verð á öllum
hlutum, svo ekki er nema von
að einhverjir púkar fitni i
öllum afætubúskap þjóðarinn-
ar.
Úr framangreindri veiðiferð
hlaut skipstjórinn kr. 648.885 í
hlut, en hásetinn kr. 267.418.
Ég hefi nú alltaf verið land-
krabbi og ég viðurkenni vissu-
lega erfitt og lífshættulegt starf
sjómannsins fram yfir störf
landkrabbans, en ég væri nú
ánægður með hálfdrætti á við
hásetann og kvartdrætti á við
skipstjórann. Það er aðeins til-
viljun að ég tók þetta dæmi um
kökuna. Eins hefði mátt taka
dæmi um iðnaðarmenn með
sína uppmælingartaxta, sem i
mörgum tilfellum eru hreint
hneyksli. Eða þá Sigöldumenn.
Eg man ekki betur en að þeir
væru í eilífum skæruverkföll-
um allt síðastliðið ár út af
hvaða tittlingaskít sem var, en
voru þó það tekjuháir, að sjó-
mannastéttin tók þá til viðmið-
unar um góð kjör í landi. En
svona mætti láta dæluna ganga
eins og læk í fjallshlið á vor-
degi. Af svo miklu er að taka
um bölvun verkfalla og
heimsku þeirra, sem vaða uppi
með þennan rétt i höndunum.
Það á að fækka þeim, en ekki
fjölga, þvi fyrr eða siðar keyra
þeir þjóðfélag okkar í algert
strand. Ef til þess kæmi er gott
að vita af afdrepi á auðum
Hornströndum eða í Jökulfjörð-
um.
Rvik, 12. janúar 1976,
Stefán Bjarnason verkfr.
Mosfellsprestakall:
Sr. Sveinbjörn
Bjarnason fékk
flest atkvæði
ATKVÆÐI í prestskosningunni f
Mosfellsprestakalli voru talin í
biskupsstofu fvrir hádegi f gær.
Atkvæði féllu þannig, að sr.
Sveinbjörn Bjarnason hlaut 311
atkvæði, sr. Bragi Benediktsson
268, sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir
95 og sr. Kolbeinn Þorleifsson 15
atkvæði.
Alls voru 944 á kjörskrá en at-
kvæði greiddu 694. Kosningin er
ólögmæt, þar sem enginn fram-
bjóðenda fékk 50% greiddra at-
kvæða. Auðir seðlar voru fimm.
Sr. Kolbeinn Þorleifsson kærði
kosninguna en þeirri kæru var
hafnað af yfirkjörstjórn.
SÍMIMER 24300
til sölu og sýnis 21.
Við Njálsgötu
Laus 3ja herb. risibúð i stein-
húsi. Útborgun 2 milljónir,
sem má skipta
4ra herb. íbúð
um 1 00 fm efri hæð með sérinn-
gangi í eldri borgarhlutanum.
Þarfnast standsetningar. Útborg-
un 4 milljónir.
Húseignir
af ýmsum stærðum svo sem ein-
býlishús 2ja ibúða hús, 3ja
ibúða hús og raðhús, fokheld og
næstum fullgerð.
Einnig 2ja—5 herb.
ibúðir o.m.fl.
\vja fasteignasalan
Laugaveg 1 2
Simi 24300
utan skrifstofutíma 18546
Seljendur athugið
Vegna mikillar eftirspurnar höfum við
jafnan kaupendur að Tlestum
stærðum og gerðum íbúða,
raðhúsa og einbýlishúsa.
Kvöld og helgarsími 42618.
Sími 28440
Ný söluskrá í dag
Fasteignasalan
Bankastræti 6,
Hús og eignir.
Opið í dag 2—5.
Sími28440.
Hafnarstræti 1 1
Simar. 20424 — 14120
Heima: 85798 — 30008
Við Gaukshóla
mjög góð 2ja herb. ibúð á 3.
hæð.
Við Þverbrekku
litil snotur 2ja herb. ibúð á 3.
hæð.
í smiðum
4ra herb. ibúðir á 2. og 3. hæð
(endaibúðir) ásamt stórum herb.
og geymslum i kjallara og bil-
skýlisrétti. Seljast fokheldar og
önnur með miðstöð og einan-
gruðum útveggjum. Skipti æski-
leg á 2ja herb. ibúð.
í Samtúni
ca 100 fm sérhæð ásamt risi. Á
hæðinni eru 2 góð svefnherb. og
saml. stofur. í risi eru tvö góð
herb. undir súð. Miklar og góðar
geymslur. Æskileg skipti á góðri
3ja herb. ibúð miðsvæðis i
Reykjavik.
Einbýlishús
til sölu 157 fm einbýlishús
ásamt bílskúr í Garðabæ. í hús-
inu eru m.a. 4 til 5 svefnherb.
Verð 15.5 til 16 millj.
Höfum kaupanda
að góðu raðhúsi eða sérhæð.
Möguleiki er á að tvær ibúðir
ganga upp i kaupin þ.e.a.s.
vönduð 4ra herb. ibúð á mjög
góðum stað i bænum og góð 2ja
herb. ibúð með einu herb. og
aðgang að snyrtingu i kjallara.
AUGLYSINGASIMINN ER:
22480
JRercunbUbiti
Tveir snjóbílar af Weasel gerð ásamt sleðum
eru til sölu. Nánari upplýsingar í síma 92-1 480
og 92-1880.
Blaðburðarfólk
óskast__________
AUSTURBÆR: Óðinsgata,
VESTURBÆR: Nesvegur 40—82
UPPL. í SÍMA 35408
Skíðadeild ÍR
Ferðir á skíðaæfingar deildarinnar sem haldnar verða við skíðaskála
deildarinnar í Hamragili, og síðar í Bláfjöllum, verða sem hér segir:
Mýrarhúsaskóli
B.S.I.
Garðabær (Kaupf. Pappaverksm.)
Kópavogur Pósth., Vörðufell
Breiðholt: Straumn., Breiðh.kjör
Bíll frá B.S.Í. ekur um Miklubraut
veg.
Þriðjud.
ugard. Sunnud. Fimmtud.
12.50 9.50 17.50
13.00 10.00 & 1 3.30 18.50
12.40 9.40 17.40
12.50 9.50 17.50
13.00 10.00 18.00
stoppar við Shell og Réttarholts-
Kennsla er bæði fyrir keppendur og almenning, en sérstök áherzla er
lögð á þjálfun unglinga og hefur verið ráðinn norskur þjálfari í því skyni
auk sjö íslenskra þjálfara.
Nánari uppl. og innritun í síma 33242 og 84960.
Geymið auglýsinguna.